Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1998, Page 9
ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1998
9
DV
Skjöl afhjúpa margra ára lögbrot Leyniþjónustu dönsku lögreglunnar:
Safnaði upplýsingum
um vinstrisinnaða Dani
Skjöl sem nýlega fundust í skjala-
safni Leyniþjónustu dönsku lögregl-
unnar, PET, hafa valdið titringi á
þingi og meðal almennings í Dan-
mörku. Skjölin sýna að í mörg ár
safnaði leyniþjónustan upplýsing-
um um fólk sem var virkt í stjóm-
málaflokkum á vinstri vængnum,
þrátt fyrir að það væri ekki leyfílegt
samkvæmt lögum. Vegna skjalanna,
sem núverandi yfirmaður PET af-
henti Fran Jensen dómsmálaráð-
herra, hefur ríkisstjómin ákveðið
að skipa óháða rannsóknarnefnd
sem skoða á starfsemi leyniþjónust-
unnar síðastliðin 30 ár niður í kjöl-
inn.
Annað skjalið sem
um ræðir sýnir að
Arne Nielsen, fyrram
yfirmaður PET, gaf
fyrirskipanir 1968 um
að leyniþjónustan
skyldi eftir sem áður
safna upplýsingum
um fólk sem virkt var
í starfi vinstriflokk-
anna. Þessar fyrir-
skipanir gengu þvert
á þær reglur sem
Hilmar Baunsgaard,
þáverandi forsætis-
ráðherra, hafði kynnt
um að framvegis væri
Ríkisstjórn Pouls Nyrups
Rasmussen tekur á njósna-
hneyksli.
að safna upplýsing-
um um fólk vegna
starfsemi þess í
stjórnmálaflokkum.
Hitt skjalið sýnir
að þessi upplýsinga-
söfnun var stöðvuð
1974 af þáverandi
yfirmanni PET.
Frank Jensen er
allt annað en
ánægður með þess-
ar afhjúpanir og
segir þær vekja upp
spurningar um
hvort Leyniþjón-
usta lögreglunnar
hafi starfað eins og ríki í ríkinu og
hvernig upplýsingar i skjalasafni
hennar hafi verið notaðar.
Rannsóknarnefndin verður skip-
uð landsdómara, lögmanni og há-
skólaprófessor og mun ná yfir 30
ára tímabil. Það þýðir að fjöldi fyrr-
verandi og núverandi ráðherra og
embættismanna verða yfirheyrðir
auk fjölda starfsmanna leyniþjón-
ustunnar. Komist nefndin að því að
einhver ofantalinna hafi brotið lög á
sá sami refsingu yfir höfði sér. Ekki
er aö vænta neinna upplýsinga frá
nefndinni fyrr en árið 2001.
Reuter
mií
+* I*
Fleki sem tákna á þrælaskip er hér dreginn um götur Port au Prince á Haítí f hátíðahöldum til að minnast afnáms þrælahalds. Þann 23. ágúst 1791 gerðu
þrælar á Haítí uppreisn og var sá dagur þvi valinn til að minnast afnáms þrælahalds víða um heim. Símamynd Reuters
Útlönd
Clinton sleppir
golfi til að vera
með frúnni
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
hefur alveg sleppt því að spila golf
það sem af er sumarleyfisins á
Martha’s Vineyard undan strönd
Massachusetts og veisluhöldin
hafa verið lítil sem engin. Þess i
stað hefur forsetinn verið öllum
stundum með Hiliary, eiginkonu
sinni, til að reyna að bæta fyrir
framkomu sína í Lewinsky-mál-
inu.
Leiðir forsetahjónanna skildu
svo í fyrsta sinn í tvo daga í há-
deginu í gær. Clinton snæddi lax
með vini sínum og ráögjafa,
Vemon Jordan, en Hillary fór í
bátsferð með vinum sínum.
Embættismenn í Hvíta húsinu
útilokuðu ekki í gær að Clinton
mundi aftur ræða samband sitt
við Monicu Lewinsky opinber-
lega. Forsetinn viðurkenndi í síð-
ustu viku í sjónvarpsávarpi til
þjóðarinnar að hann hefði átt í
óviðurkvæmilegu sambandi við
fyrrum lærlinginn í Hvíta hús-
inu.
Einn ráðgjafa forsetans lét að
þvi liggja á sunnudag að Clinton
kynni að biðjast opinberlega af-
sökunar á framferði sínu.
Beðið eflir svari
Líbíumanna
Bandarísk og bresk stjómvöld
tilkynntu í gær að þau tækju boði
Líbíustjómar um aö réttað yrði í
Hollandi yfir mönnunum sem
grunaðir eru um Lockerbie-til-
ræðið þegar þota Pan Am var
sprengd í loft upp á flugi. Líbíu-
menn hafa lagt þetta til í nokkur
ár. Nú er beðið viðbragða þeirra
við samþykki landanna tveggja.
Allt á floti í Suður-Texas:
Sautján fundnir látnir
Úrhellisrigning hefur valdið gif-
urlegum flóðum í sunnanverðu
Texasríki, við landamærin að
Mexíkó, síðustu daga. Að minnsta
kosti sautján manns hafa týnt lífi i
flóðunum og þúsundir hafa neyðst
til að yfirgefa heimili sín.
Búist er við að fleiri finnist látnir
þegar björgunarsveitir hafa lokið
leit í rústum heimila og fyrirtækja
sem skoluðust burt þegar lækir
breyttust í beljandi stórfljót eftir að
450 millimetra regn úr hitabeltis-
lægðinni Charley féll á svæðiö.
Talsmaður landamæraeftirlitsins
sagði að þijátíu manna að minnsta
kosti væri saknað. Ekki væri þó úti-
lokað að þeir væra fleiri.
Vörubílar og
Þann 9. september mun 24 síðna aukablað
um vörubíla og vinnuvélar fylgja DV.
Meöal efnis:
Dísilvélar og umhverfiskröfur.
Kynntar ýmsar nýjungar á vörubíla- og
vinnuvélamarkaöinum.
Innflutningur á vinnuvélum. o.fl. o.fl.
vinnuvélar
Umsjón efnis:
Þórhallur Jósepsson í
síma 550 5000
Auglýsendur, athugið!
Síðasti skiladagur auglýsinga er
fimmtudagurinn 3. september
Umsjón auglýsinga hefur Gústaf
Kristinsson í síma 550 5731,
550 5000, fax 550 5727.