Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1998, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1998, Síða 17
ÞRIÐJUDAGUR 25. ágúst 1998 17 ÍJjUiíjjJjJ íslensk erfðagreining: fyrir í ágúst 1996 tók nýtt fyrirtæki, íslensk erfðagreining, til starfa á íslandi. Fyrirtæk- ið vakti mikla athygli og hefur verið í brennidepli íslenskrar þjóðmálaumræðu síðan. Þótt mikið hafi verið talað, skrifað og rifist um þetta nýja fyrirtæki hefur lítið verið fjallað um það vísindastarf sem þar ferfram eða fólkið sem þar vinnur. DV heimsótti íslenska erfðagreiningu og rabbaði við nokkra unga íslenska r~j að er undarleg tilviljun að á ís- gf lenskri erfðagreiningu skuli vinna tveir menn að nafni Stef- án Jónsson, og það sem meira er, báð- ir eru þeir lífefnafræðingar. „Við vinnum á tölvum við að búa til erfða- upplýsingar úr tölvumyndum sem koma út úr raðgreinum," segja Stefán Jónsson og Stefán Jónsson. „Þær upp- lýsingar sem við drögum úr mynd- inni sendum við til tölffæðideiidar sem notar þær til að fmna svæði á litningum sem hafa erfðafræðileg og raunvísindamenn. tölfræðileg tengsl við þann sjúkdóm sem verið er að rannsaka." Til að aðgreina þessa ágætu menn ákvað blaðamaður að kalla mennina þeim frumlegu nöfnum Stefán Jóns- son „fyrsti" og Stefán Jónsson „ann- ar“. „Ég hóf störf héma í apríl 1997 og er þetta því annað sumarið mitt,“ seg- ir Stefán Jónsson fyrsti. „Ég vann hér í hlutastarfi með skólanum í vetur en útskrifaðist með BS í lífefnafræði 17. júní. Nú í haust er ég að fara í dokt- Stefán Jónsson og Stefán Jónsson segjast ekki vera í vafa um að á íslenskri erfðagreiningu verði í framtíðinni gerð- ar merkar uppgötvanir. orsnám i Dublin.“ „Ég byrjaði héma 4. ágúst og er því enn að setja mig inn í hlutina héma og læra á ýmis tæki,“ segir Stefán Jónsson annar. „Ég útskrifaðist fyrir tveimur árum með BS í lífefnafræði og er nú að skrifa MA-ritgerð í líf- rænni efnafræði. Ég mun útskrifast með MS-gráðuna í október." Stefán Jónsson fyrsti og annar segjast báðir vera mjög ánægðir hjá íslenskri erfða- greiningu. „Það eru allir sammála um það að íslensk erfðagreining er mikill fengur fyrir íslenskt raunvísindafólk. Áður en íslensk erfðagreining kom til sögunnar var enginn virkilega spenn- andi kostur í boði héma heima en þetta fyrirtæki gerir það að verkum að íslenskt raunvísindafólk kemur frekar heim að loknu framhaldsnámi erlendis. Hér er öll aðstaða eins og best verður á kosið, þetta er besti staður í heimi til að framkvæma erfðafræðirannsóknir og hér er stór hópur af mjög vel menntuðu og færu fólki. Við erum ekki í nokkrum vafa um að hér munu verða gerðar merk- ar uppgötvanir á komandi árum og hlökkum við til að taka þátt i því starfi.“ -me pottinn Elísabet Einarsdóttir segir að á íslenskri erfðagreiningu hafi allir áhuga á því sem þeir eru að gera og stundum gangi illa að koma fólki heim úr vinnunni. DV-myndir E.ÓI I _ lísabet Einarsdóttir var önn- _ um kafin þegar DV bar að garði en gaf sér þó tíma til að líta aðeins upp úr vinnu sinni og spjalla við blaðamann. „Það má segja að ég hafi dottið í lukkupottinn að fá þessa vinnu," segir Elisa- bet sem nú í haust útskrifast með BS í líffræði við HÍ. „Ég byrjaði hjá íslenskri erfðagreiningu síðasta vor og var svo að vinna með skólanum í vetur. Núna er ég að vinna í hópi sem rannsakar arfgengt heilablóðfall. Við erum ekki komin langt af stað en markmiðið er að finna gen sem veldur þessum hræðilega sjúkdómi. Þetta er rosalega spennandi og gaman að vinna með öllu þessu hæfa fólki." Elísabet segist ekki hafa farið í líffræði til að verða rik heldur vegna brennandi áhuga á faginu. „Síðan ég byrjaði hérna hef ég fengið enn meiri áhuga á líffræði og einnig hefur þessi reynsla hjálp- að mér mikið í náminu. Meirihlutann af þvi sem ég kann hef ég lært á því að vinna hér á Islenskri erföagreiningu. Ég ætla að vera hjá fyrirtækinu í vetur en svo langar mig til að læra meira og taka masterspróf. Hvort að ég tek það hér heima eða úti hef ég enn ekki ákveðið." Góður andi Þegar Islensk erfðagreining tók til starfa í ágúst 1996 unnu þar um 55 manns en í dag eru þar um 230 manns. „Á þessu eina ári síðan ég byrjaði hjá fyrirtækinu hefur orðið ótrúleg aukning og héma vinnur mjög mikiö af ungu raimvísindafólki. Þetta er skemmtilegur vinnustaður og er aðstaðan hér í alla staði góð. Hér hafa allir áhuga á því sem þeir em að gera og stundum gengur erfiðlega að koma fólki heim úr vinnunni." Elísabet hefur ver- ið nemendaráðgjafi í líffræðinni tvö síðustu árin og segir hún að síðan að íslensk erfðagreining tók til starfa hafi íslenskir stúdentar sýnt raungrein- um vaxandi áhuga. „Nýnemar í líffræði hafa aldrei verið fleiri en tvö síðustu árin viö HÍ og er sömu sögu að segja með lífefnafræðina. Loksins er komið fyrirtæki hér á landi þar sem íslenskt raun- vísindafólk getur unnið við það sem það hefur áhuga á.“ -me Dattí Opnar möguleika slensk erfðagreining er vinsæll vinnustað- ur hjá ungu raunvísindafólki," segir Vala Dröfn Jóhannsdóttir líffræðingur. „Eftir að ég útskrifaðist úr HÍ 1997 fékk ég styrk frá Leonardo da Vinci til að vinna á rannsókna- stofu í Frakklandi í eitt ár. Ég kom heim um miðjan júlí og hef unnið hér síðan. Ég er í 10-12 manna hópi sem rannsakar arf- gengan sjúkdóm en hver einstaklingur vinnur með sitt afmarkaða verkefni. Við fylgjumst þó vel með hvert öðm og höldum fund einu sinni í viku til að fara yfir málin. Þetta er samstilltur hópur og er gaman að vinna með þessu fólki.“ Rannsóknarstofan er langstærsta deildin á íslenskri erfðagreiningu og þar fer fram kjami allrar starfseminn- ar. „Starf okkar felst i því að reyna að finna gen, eitt eða fleiri, sem valda hin- um ýmsu sjúkdómum. Vegna einangr- unar í margar aldir er erfðamengi ís- lensku þjóðarinnar mjög einsleitt en það auðveldar okkur leitina að hinum skaðlegu genum. ísland er því mjög vel fallið til allra erfðafræðirannsókna." Ýmsir hafa velt fyrir sér og haft áhyggjur af lítilli aðsókn í raunvísinda- deild við HÍ. „Ég tel að þennan litla áhuga megi rekja til þess að það hafa ekki verið nægilega spennandi mögu- leikar í boði hér á landi fyrir raunvís- indafólk. Með tilkomu íslenskrar erfða- greiningar verður breyting þar á og hef ég trú á að íslensku raunvísindafólki muni fjölga hér á landi á næstu ámm. Ég hef nú þegar orðið vör við aukinn áhuga ungs fólks á fógum eins og líffræði, líf- efnafræði og tölvufræði. Ég er á leiðinni í mastersnám í S-Frakk- landi nú í haust en ég gæti vel hugsað mér að koma aftur og vinna hér i framtiðinni. Á ís- lenskri erfðagreiningu fara fram áhugaverðar og mikilvægar rannsóknir." -me Vala Dröfn Jóhannsdóttir segist hafa orðið vör við aukinn áhuga ungs fólks á fögum eins og líffræði, lífefnafræði og tölvufræði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.