Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1998, Síða 23
ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1998
27
Hestar
Úrslit
- á þýska meistaramótinu
Tölt
1. Walter Feldmann
á Bjarka frá Aldenghoor
2. Irene Reber
á Kappa frá Álftagerði
3. Suzan Beuk
á Kolfinnu frá Vatnsleysu
4. Jolly Schrenk á Ófeigi
5. Hans-Georg Gundlach
á Þyt frá Krossum
6. Rúna Einarsdóttir
á Snerpu frá Reykjavík
9. Sigurður Óskarsson
á Kát frá Stördal
Fjórgangur
1. Irene Reber
á Kappa frá Álftagerði
2. Walter Feldmann
á Nökkva von Cartze
3. Jolly Schrenk á Ófeigi
4. Helmut Lange
á Emi frá Eyrarbakka
5. Martin Gúldner
á Hugarburði von Guggenheim
6. Hans-Georg Gundlach
á Þyt frá Krossum
Fimmgangur
1. Karly Zingsheim
á Feyki von Rinkscheid
2. Tanja Gundlach
á Geysir frá Hvolsvelli
3. Jens Fúchtenschnieder
á Reyk frá Kringlu
4. Uli Reber
á Pistli frá Búlandi
5. Dörte Mithau
á Gletta von Ellenbach
6. Laura Grimm
á Sæla vom Basselthof
7 Styrmir Árnason
á Yngri frá Reykjavík
Slaktaumatölt
1. Tanja Gundlach
á Geysi frá Hvolsvelli
2. Daniel Berres
á Mætti frá Króki
3. Thorsten Reisinger á Gösla
4. Anna Valdimarsdóttir
á Safir frá Grænumýri
5. Tanja Heinze
á Kolfreyju frá Hólakoti
6. Rosl Rössner
á Skýjafák frá Djúpadal
Gæðingaskeið
1. Karly Zingsheim
á Fák frá Holti
2. Ralf Wohllaib
á Svört frá Aldenghoor
3. Karly Zingsheim
á Feyki von Rinkscheid
4. Dieter Becker á Feyki
5. Jón Steinbjömsson
á Hárfagra vom Barhof
6. Diddi Sigurbjömsson
á Kolbak frá Hvassafelli
7. Styrmir Árnason
á Yngri frá Reykjavík
8. Herbert Ólason
á Smára frá Borgarhóli
150 metra skeið
1. Yngri frá Reykjavík á 14,79 sek.
Knapi: Styrmir Árnason
2. Stóri-Jarpur frá Akureyri á 14,83
sek.
Knapi: Angantýr Þórðarson
3. Feykir á 14,83 sek.
Knapi: Dieter Becker
4. Elvar frá Búlandi á 14,84 sek.
Knapi: Brjánn Júliusson
5. Hárfagri vom Barhof á 14,87 sek.
Knapi: Jón Steinbjömsson
6. Jónas von Ellenbach á 14,92 sek.
Knapi: Dörte Mitgau
8. Kolur frá Stóra-Hofí á 15,3 sek.
Knapi: Hulda Gústafsdóttir
9. Hvellur frá Læk I á 15,69 sek.
Knapi: Hólmgeir Jónsson
250 metra skeið
1. Gordon frá Stóru-Ásgeirsá á 22,8
sek.
Knapi: Bemd Schliekermann
2. Gammur frá Krithóli á 22,82 sek.
Knapi: Lothar Schenzel
3. Fákur frá Holti á 22,89 sek.
Knapi: Karly Zingsheim
4. Spútnik frá Hóli á 23,17 sek.
Knapi: Herbert Ólason
5. Níels frá Árbæ á 23,62 sek.
Knapi: Þórir Grétarsson
6. Sprengi-Hvellur frá Efstadal á
23,62 sek. Knapi: Uli Reber
8. Eitill frá Akureyri á 23,74 sek.
Knapi: Brjánn Júlíusson
sumarssýningin
Bringa frá Feti, fjögurra vetra gömul, fékk 8,11 á síðsumarssýningunni á
Hellu. Knapi er Erlingur Erlingsson. DV-mynd E.J.
128 kynbótahross voru fulldæmd
á síðsumarssýningu á Hellu í síð-
ustu viku, sex stóðhestar og 122
hryssur.
Útkoman var ljómandi góð og
taldi Jón Vilmundarson kynbóta-
hrossadómari að þessi sýning
væri sú besta til þessa á stórmóti
á Hellu.
Fjögurra vetra hryssa, Bringa
frá Feti, var stjarna sýningarinn-
ar, með 8,11 I aðaleinkunn, en auk
hennar var ein fimm vetra hryssa
og 9 hryssur í sex vetra flokknum
með 8,00 eða meira í aðaleinkunn.
Stóðhestar í yngri flokkunum
gerðu engar rósir en í sex vetra
flokknum fengu þrír hestar fulln-
aðardóm og voru allir yfir 7,75 í
aðaleinkunn.
Stefnir frá Ketilsstöðum stóð
efstur með 7,98 fyrir byggingu, 8,26
fyrir hæfileika og 8,12 í aðalein-
kunn. Hann er undan Orra frá
Þúfu og Brynju frá Ketilsstöðum
og fékk meðal annars 10,00 fyrir
hófa.
Svaði frá Árbakka fékk 7,95 og
Dagur frá Þverá I fékk 7,90.
í sex vetra flokki hryssna fengu
9 hryssur hærri aðaleinkunn en
8,00. Ekki var mikill munur á
efstu hryssunmn en List frá Litla-
Dunhaga II stóð efst með 8,13 í að-
aleinkunn. Hún er undan Sóloni
frá Hóli og Tinnu frá Möðruvöll-
um og fékk 7,60 fyrir byggingu og
8,66 fyrir hæfileika.
Krás frá Stóra-Hofi, undan Stíg
frá Kjartansstöðum og Kötlu frá
Syðra-Skörðugili, fékk 7,83 fyrir
byggingu, 8,36 fyrir hæfileika og
8,09 í aðaleinkunn.
Linda frá Árbakka fékk 8,08 í að-
aleinkunn. Hún er undan Leisti
frá Álftagerði og Dala-Brúnku frá
Kolkuósi og fékk 7,93 fyrir bygg-
ingu og 8,24 fyrir hæfileika.
Duld frá Víðivöllum fremri fékk
8,06, Reisn frá Húsatóftum fékk
8,05 í aðaleinkunn, Aría frá Laug-
ardælum, Orka frá Kálfholti, Fiðla
frá Kjarnholtum I og Blika frá
Höskuldsstöðum fengu allar 8,01 í
aðaleinkunn.
Hylling frá Kvistum stóð efst 5
vetra hryssnanna og var sú eina
sem fór í gömlu 1. verðlaunin.
Hylling er undan Ófeigi frá
Flugumýri og Hremsu frá Hafnar-
firði og fékk 7,85 fyrir byggingu,
8,19 fyrir hæfileika og 8,02 í aðal-
einkunn.
Tilvera frá Votmúla fékk 7,93,
Gifting frá Hofi I fékk 7,86, Issa frá
Hrólfsstaðahelli 7,84 og Snót frá
Brimilsvöllum 7,84.
Bringa frá Feti, stjarna sýning-
arinnar, er undan Orra frá Þúfu
og Brynju frá Skarði. Hún fékk
7,83 fyrir byggingu, 8,39 fyrir hæfi-
leika og 8,11 í aðaleinkunn og bæt-
ist I hóp þeirra hryssna frá Feti
sem hafa vakið athygli á undan-
förnum árum.
Steinvör frá Nautabúi fékk 7,76
og Rúna frá Varmadal 7,48.
Leiðrétting
Því miður urðu þau mistök í upptalningu á verðlaunahöfúm á
Suðurlandsmótinu að nafn Hrefnu M. Ómarsdóttur féll niður, en hún
varð i 4. sæti í fjórgangi unglinga á Hrafnari frá Álfhólum, eftir að hafa
unnið sig upp úr B-úrslitum.
Besta síð-
Þýska meistaramótið:
Karly Zingsheim
fékk flest gull
Þýska meistaramótið var haldið
um síðustu helgi. Margir íslending-
ar kepptu á mótinu og voru nokkrir
þeirra í efstu sætunum. Þeir geta þó
ekki talist þýskir meistarar vegna
íslenska vegabréfsins.
Til dæmis sigraði Styrmir Árna-
son í 150 metra skeiði á Yngri frá
Reykjavík og Angantýr Þórðarson
var annar á Stóra-Jarpi frá Akur-
eyri svo þýski meistarinn Dieter
Becker á Feyki varð í 3. sæti en
þýskur meistari þrátt fyrir það.
Hér eru taldir upp sigurvegarar í
helstu greinunum og íslenskir
knapar sem komust í B-úrslit.
Nöfn margra hestanna eru kunn-
ugleg og hafa verið í keppni hér á
landi og jafnvel sem fulltrúar Is-
lands á heimsmeistaramótum.
Karly Zingsheim var sigursælasti
knapi mótsins. Hann var stigahæsti
knapinn og sigraði að auki í fimm-
gangi og gæðingaskeiði. Eflaust
munu einhverjir þessara knapa og
hesta verða fulltrúar Þýskalands á
heimsmeistaramótinu í Þýskalandi
á næsta ári.
Dögg vó sig yfir átta
Á síðsumarsýningu á Melgerðis-
melum síðastliðinn laugardag náði
ein hryssa af nítján fulldæmdum
hærri aðaleinkunn en 8,00.
Það var Dögg frá Eyvindarstöð-
um, undan Glað frá Sauðárkróki og
Vök frá Eyvindarstöðum. Hún fékk
7,93 fyrir byggingu, 8,07 fyrir hæfi-
leika og 8,00 í aðaleinkunn.
Skvetta frá Eiríksstöðum fékk
7,83 og Drottning frá Hofsstaðaseli
7,61.
Fulldæmdar voru 15 sex vetra
hryssur og fengu sex þeirra hærri
aðaleinkunn en 7,50.
4 fimm vetra hryssur voru full-
dæmdar og stóð efst Sending frá
Indriðastöðum undan Dyn frá Múla-
koti og Spurningu frá Indriðastöð-
um. Sending fékk 7,50 fyrir bygg-
ingu, 8,30 fyrir hæfileika og 7,90 í
aðaleinkunn. Glóð frá Meðalheimi
fékk 7,64 og Sólrún frá Ytra-Dals-
gerði 7,59.
4 íjögurra vetra hryssur voru
byggingadæmdar og fékk Vænting
frá Garðshorni hæstu einkunnina
8,18. Vænting er undan Dyn frá
Keldudal og Blesu frá Garðshomi.
. «;• ■ýgt&A
'ÆKSiM
/jft/
Hagstœö kjör
WÁ
w,
Ef sama smáauglýsingin
er birt undir 2 dálkum sama
dag er
afsláttur
af annarri auglýsingunni.
Ife.
a\W mil/i him/i
'ns,
fSÍt
Smáaugtýsingar
rfiSÁ
550 5000
<
■T