Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1998, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1998, Qupperneq 28
32 ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1998 Fréttir Fimm dagar eftir af fiskveiðiárinu: 20.000 tonn eftir af rækju Aðeins fimm dagar eru eftir af fiskveiðiárinu í dag og líklegt taliö að ekki náist að nýta þann kvóta sem úthlutað var til veiöa á úthafs- rækju. Skv. upplýsingum frá fiski- stofu var úthlutað nokkru meira af rækjukvóta í ár en fyrir árið 1997. Nú var úthlutað mn 75.000 tonnum samanborið við um 60.000 tonn árið áður en svo voru um 4.000 tonn færð yfir á árið 1998. Árið 1997 veiddust um 58.000 tonn af rækju en á yfir- standandi fiskveiðiári hafa einnig veiðst um 58.000 tonn og enn eru eft- ir fimm dagar af fiskveiöiárinu. Því eru alls eftir um 21.000 tonn af rækju eins og staðan er skv. tölum frá fiski- stofu 21. þ.m. Ekki er víst að náist að nýta allan kvótann sem úthlutað var. Nánast hefur náðst að nýta allan þorsk- og ufsakvótann en aðeins eru Uthafsrækja 80000 torin 70000 60000 50000 40000 30000 20000 10000 0 Úthlutun Veitt á fiskveiðiárinu '97 '98 Afgangur um 5.000 tonn eftir sem telja má enn eru eftir rúmlega 11.000 tonn af nokkuð öruggt að takist að veiða. En ýsukvóta sem óvist er með. -hb Alvarleg aftanákeyrsla í Borgarfiröi: Níu urðu fyrir meiðslum Níu manns í tveimur bílum urðu fyrir meiðslum þegar fólksbíl var ekið aftan á annan við Galtarholt skammt norðan við Borgames síð- degis á laugardag. Báðir bílarnir eru taldir ónýtir eftir áreksturinn, að sögn lögreglu. Slysið varð með þeim hætti að ökumaður fremri bilsins var að draga úr ferð áður en beygt yrði að afleggjara á móts við Galtarholt. Billinn sem kom á eftir var á um 70 km hraða. Áreksturinn varð harð- ur. Engin hemlafór mældust eftir bílinn sem kom á eftir og skall á þeim fremri. í bílunum tveimur voru samtals níu manns. Lögreglan segir að allir hafi hlotið einhver meiösl, einkum bak- og hálsmeiðsl. Bílamir vora dregnir á brott með kranabíl. -Ótt >J|| rjjjB! ] 1 W**3** -jfjl V,' t ijá. , \ Tjarnarkvartettinn söng fyrir gesti á Hólahátíö. DV-mynd Örn Fjölmenni á Hólahátíð DV, Skagafirði: Fjölmenni var saman komið á Hólum í Hjaltadal í tilefhi af hinni árlegu Hólahátíð sem haldin var þann 16. ágúst sl. Hólahátíð á sér orðið alllanga hefð, var nú haldin í 48. skiptið. Auk hefðbundinnar guðsþjónustu er þar að jafnaði dag- skrá á sviði lista og menningar. Að þessu sinni vora tignir gestir í heimsókn á Hólastað. Herra Karl Sigurbjömsson, biskup íslands, predikaði við messuna en séra Bolli Gústafsson vígslubiskup þjónaði fyrir altari. Söng önnuðust Jóhann Már Jóhannsson og Tjamarkvar- tettinn en undirleikari var Jóhann Bjamason. Að lokinni guðsþjónustu var kirkjugestum boðið til kaffi- drykkju í húsnæði bændaskólans. Að henni lokinni var aftur haldið tU kirkju þar sem gestir hlýddu á ræðu forseta íslands, herra Ólafs Ragnars Grímssonar, sem bar yfir- skriftina Kirkja og kristni á vega- mótum árþúsunda. í ræðunni fjaU- aði forsetinn m.a. um kristinsögu íslendinga og minnti á að stutt væri í mikU tímamót, þ.e. aldamótin 2000. Þá velti hann upp spumingu rnn hvað yrði um manninn sjálfan, sál- arheUl hans og lífssýn, vísindi og tækni, þekkingu og hæfni. Á undan og eftir ræðu forsetans flutti Tjarnarkvartettinn úr Svarf- aðardal nokkur lög en lokaorð á samkomunni Uutti séra BoUi Gúst- afsson. -ÖÞ Strandamenn fyrir utan veitingahúsið Vagninn á Flateyri þar sem þeir nutu gestrisni Önfiröinga. Sumarferð um Vestfiröi: DV, Guðmundur á Merkisstaðir skoðaðir DV, Vestfjöröum: „Það era um 30 ár frá því að við byrjuöum á þessum árlegu sumar- ferðum okkar. Á þessum áram erum við búin að fara æði víða. Bæði í íjaUaferðir og um landið auk þess sem við eram búin að fara tU Færeyja. Þetta er ómissandi þáttur í félagsstarfinu og þjappar fólki betiu- saman að fara svona í hóp í rútu,“ segir Guðrún Steingrímsdóttir, for- maður Átthagafélags Stranda- manna. Um miðjan ágúst fór Félag Strandamanna í ReyKjavík í hina árlegu sumarferð sína og að þessu sinni var farið um Vestfirði. Ferðin stóð í þijá daga og var komið við á ýmsum merkisstöðum á Vestfjörð- um og þeir skoðaðir. „Þetta er fysta ferðin okkar tU Vestfjarða og heppnaöist hún mjög vel. Við voram heppin með veður og svo fengum við einstaklega góöar móttökur þar sem við komum. Ön- firðingafélagið í Reykjavík bauð hópnum meðal annars tU kaffihlað- borðs í Vagninum á Flateyri. Undir leiðsögn Guðmundar Björgvinsson- ar frá Flateyri fengum við einstæða innsýn í mannlíf og náttúra Vest- fjarða," segir Guðrún. -GS Viö Ánanaust standa yfir miklar gatnaframkvæmdir en þar er fyrirhugaö aö búa til torg sem vafalaust á eftir aö setja skemmtilegan svip á umhverfið. Ekki vildi þó betur til en svo aö gat kom á vatnsleiðslu og gusaöist vatn yfir næsta nágrenni í nokkra stund. DV-mynd S

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.