Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1998, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1998, Síða 30
34 ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1998 Afmæli Björg ívarsdóttir Björg ívarsdóttir, sjúkraliði og í'yrrv. ræstingastjóri á Hrafnistu í ' lafnarfirði, Stekkjarbergi 6, Hafn- trfirði, er sjötug í dag. Starfsferill Björg fæddist á Sveinsstöðum í Neshreppi utan Ennis og ólst upp í Ólafsvík og á Hellissandi. Hún lauk húsmæðraskólaprófi frá Húsmæðra- skólanum á Staðarfelli 1947 og síðar sjúkraliðaprófi frá Sjúkraliðaskóla íslands 1981. Auk húsmóðurstarfa var Björg aðstoðarstúlka lækna á St. Jóseps- spítala í Hafnarfirði 1974-81, sjúkra- liði á Vífilsstaðaspítala 1981-87 og ræstingastjóri á Hrafnistu í Hafnar- firði 1987-98. Fjölskylda Björg giftist 27.11. 1948 Valgarði Kristjánssyni, f. 15.4. 1917, fyrrv. borgardómara. Hann er sonur Krist- jáns Helga Benjamínssonar, f. 24.10. 1866, d. 10.1. 1956, bónda og oddvita að Ytri-Tjörnum í Öngulsstaða- hreppi í Eyjafirði, og k.h., Fanneyj- ar Friðriksdóttur, f. 6.1.1881, d. 13.8. 1955, húsfreyju. Böm Bjargar og Val- garðs em Sigrún, f. 9.5. 1949, hjúkrunarfræðingur á Akranesi, gift Magga Guðjóni Ingólfssyni, húsa- og húsgagnasmíðameist- ara, og eiga þau tvo syni; Amaldur, f. 29.6. 1950, sér- fræðingur í svæfingalækn- ingum við Sjúkrahús Reykjavíkur, kvæntur Arndísi Jónsdóttur hjúkr- imarfræðingi og eiga þau saman tvo syni auk þess sem Am- aldur á son frá þvi áður; ívar, f. 9.10. 1954, myndlistarmaður í Reykjavík og deildarfulltrúi á Kjarvalsstöðum, kvæntur Ragnheiði Hrafnkelsdótt- ur, myndlistarkonu og kaupkonu, og eiga þau tvo syni auk þess sem ívar á dóttur frá fyrri sambúð; Val- garður, f. 1.2. 1960, lögregluvarð- stjóri í Hafnarfírði, kvæntur Hildi Harðardóttur skrifstofumanni og eiga þau tvo syni; Kristján Fannar, f. 28.11. 1965, óperusöngvari, starfs- maður við Húsasmiðjuna og nemi í söngkennslu við Söngskólann í Reykjavik, kvænturSig- ríði Elísabetu Snorra- dóttur, óperasöngkonu og myndlistarkonu, og eiga þau eina dóttur. Þá ólst upp á heimili Bjargar og Valgarðs Berglind Hrönn Hall- grímsdóttir, f. 3.7. 1953, en hún dvaldist þar, ásamt móður sinni, Helgu ívarsdóttur, nokk- uð fram eftir uppvaxtar- áram sínum. Helga Hrönn er þroskaþjálfi og starfsmað- ur við ráðuneyti en maður hennar er Gunnar Vagn Gunnarsson tann- smiður og eiga þau tvö böm. Systkini Bjargar era Helga, f. 7.2. 1930, starfsmaður við ljósmynda- stofu Landsspítalans, og á hún eina dóttur; Örlygur, f. 2.4. 1931, tækni- fræðingur á Akureyri, kvæntur Bryndísi Þorvaldsdóttur íþrótta- kennara og eiga þau þrjú börn; Brynjar, f. 8.7.1932, rekur skipasölu í félagi við aðra, kvæntur Halldóra Karvelsdóttur sjúkraliða og eignuð- ust þau fimm börn; Leifur, f. 23.1. 1934, verslunarmaður, kvæntur Jón- ínu Sigríði Þorgeirsdóttur og eiga þau einn son; drengur, f. 20.4. 1935, dó nokkurra vikna gamall; Svala, f. 10.11. 1936, innheimtufulltrúi á Akranesi, ekkja eftir Sigurð Hann- esson vélvirkja og eignuðust þau fjögur börn. Foreldrar Bjargar voru ívar Mövel Þórðarson, f. 4.1. 1904, d. 5.5. 1983, útvegsbóndi í Amey á Breiða- firði, síðar í Stykkishólmi og í Reykjavík, og k.h., Sigrún Hólmfríð- ur Guðbjömsdóttir, f. 4.2. 1900. Ætt ívar var bróðir Þorleifs, forstjóra Ferðaskrifstofu ríkisins. Ivar var sonur Þórðar, skipstjóra í Ólafsvík, Matthíassonar, og k.h., Bjargar Þor- steinsdóttur, afkomanda Þorleifs Þorleifssonar, læknis í Bjamarhöfn. Sigrún var dóttir Guðbjöms, b. á Sveinsstöðum í Neshreppi, Bjarna- sonar, og k.h., Guðríðar Helgu Jóns- dóttur. Björg verður að heiman á afmæl- isdaginn. Björg ívarsdóttir. Hugrún Hlín Ingólfsdóttir Hugrún Hlin Ingólfsdóttir, starfs- maður hjá íslandsbanka í Banka- stræti, Hjallabrekku 36, Kópavogi, er fimmtug í dag. Starfsferill Hugrún fæddist í Vestmannaeyj- um og átti þar heima til 1975. Hún lauk bamaskóla- og gagnfræðaprófi í Vestmannaeyjum og stundaði síð- ar nám við Tölvuskóla í Reykjavík. Hugrún stundaöi skrifstofustörf í Vestmannaeyjum, vann á skrifstofu hjá Ó. Johnson og Kaaber í Reykja- vik og hjá heildsölufyrirtækinu Þ. Þorgrímsson, vann bankastörf við Alþýðubankann og starfaði hjá Hag- kaupi um tveggja ára skeið. Hún hefur verið starfsmaður hjá Islands- banka sl. sjö ár. Hugrún veiktist alvarlega 1983 en hefur með viljastyrk og þrotlausum æfingum náð sér vel eftir þau veik- indi. Fjölskylda Eiginmaður Hugrúnar er Baldur Þór Baldvinsson, f. 19.6. 1941, bygg- ingameistari. Hann er sonur Bald- vins Skæringssonar, f. 30.8. 1915, lengst af húsasmiðs í Vestmanna- eyjum, og Þórannar Elíasdóttur, f. 1.12. 1916, d. 29.7. 1990, húsmóður. Dætur Hugrúnar frá fyrra hjóna- bandi era Sigríður Drífa, f. 4.12. 1966, verslunar- maður í Reykjavík; Hera Björg, f. 19.2. 1974, nemi í Englandi; Ingunn Hlín, f. 4.2. 1983, nemi. Alsystkini Hugrúnar era Sigurður Ingi Ingólfs- son, framkvæmdastjóri í Vestmannaeyjum; Krist- ín Hrönn, snyrtifræðing- ur í Kaupmannahöfn; Harpa Fold, fisktæknir i Reykjavík; Elva Dröfn, hjúkranarfræðingur í Reykjavfk. Hálfsystkini Hugrúnar Hugrún Hlín Ingólfsdóttir. eru Jó- hanna, starfsmaður við mötuneyti í Reykjavík; Kollý, skrifstofumaður í Keflavík; Amalía, búsett í Hafnarfiröi. Foreldrar Hugrúnar: Ingólfur Theódórsson, f. 10.11. 1912, d. 14.3. 1988, netagerðarmeistari í Vestmannaeyjum, og Sig- ríður Inga Sigurðardótt- ir, f. 14.4. 1925, lengi gest- gjafi á gistiheimilinu Hvíld í Vestmannaeyjum. Steinunn F. Friðriksdóttir i Steinunn Friðhólm Friðriksdóttir verslunar- maður, Fellsbraut 9, Skagaströnd, varð fimm- tug þann 17.8. sl. Starfsferill Steinunn fæddist í Reykjavík en ólst upp í Kópavogi og lauk þaðan grannskólaprófi. Þá stundaði hún nám við Kvennaskólann á Blönduósi veturinn 1966-67. Steinunn hefúr stundað verslun- Sigmars Steinunn Fríðhólm Friðriksdóttir. arstörf í Reykjavík, Hafn- arfirði og á Skagaströnd. Hún kynnist eiginmanni sínum 1966. Þau bjuggu í Hafnarfirði til 1976 en fluttu þá til Skagastrand- ar þar sem þau hafa átt heima síðan. Fjölskylda Steinunn giftist 25.7. 1970 Gunnlaugi Gísla Sigmars- syni, f. 26.6. 1949, banka- starfsmanni á Skaga- strönd. Hann er sonur Hróbjartssonar, f. 24.5. 1919, múrarameistara á Skaga- strönd og í Reykjavík, og Jóhönnu Gunnlaugsdóttur, f. 29.12. 1924, verslunarmanns í Reykjavík. Böm Steinunnar og Gunnlaugs Gísla era Jóhanna Gunnlaugsdóttir, f. 15.5. 1970, skrifstofumaður í Varmahlíð; Ragnar Friörik Gunn- laugsson, f. 8.2. 1974, nemi á Skaga- strönd. Systkini Steinunnar era Sigurður Sævar Fríðhólm Friðriksson, f. 18.12.1949, rafvirki í Sandgerði; Þor- björg Elín Fríðhólm Friðriksdóttir, f. 6.10.1951, verslunarmaður í Sand- gerði; Jón Fríðhólm Friðriksson, f. 10.11. 1954, útgerðarstjóri í Sand- gerði; Friðrik Þór Friðriksson, f. 12.11. 1961, rafvirki í Sandgerði; Fanney Friðriksdóttir, f. 7.11. 1964, verslunarmaður i Sandgerði; Heið- ur Huld Friðriksdóttir, f. 6.5. 1967, húsmóðir i Reykjavík. Foreldrar Steinunnar eru Friðrik Bjömsson, f. 2.3. 1927, rafvirki í Kópavogi og síðar í Sandgerði, og k.h., Þórhildur Sigurðardóttir, f. 10.7. 1927, húsmóðir í Kópavogi og síðar í Sandgerði. Tll hamingju með afmælið 25. ágúst 80 ára Guðmundur I. Ágústsson, Heiðargerði 17, Vogum. Sigrún Sigurpálsdóttir, Hjaltabakka 32, Reykjavík. 75 ára Kjartan T. Ingimimdarson, Flúðaseli 88, Reykjavík. 70 ára Magnús Ragnar Sigurðsson, Njálsgötu 69, Reykjavík. 60 ára Grethe G. Ingimarsson, Engjaseli 33, Reykjavík. Sigurður Einarsson, Grenigrund 18, Akranesi. 50 ára Elísabet Einarsdóttir, Kirkjulundi 6, Garðabæ. Guðmundur Sigurðsson, Áslandi, Hranamannahreppi. Hafdís Gunnlaugsdóttir, Gónhóli 5, Njarðvík. Hans Jaeob Utne, húsi 669d, Keflavíkurflugvelli. Sigríður Kolbrún Þráinsdóttir, Heiðarbraut 7 A, Keflavík. Svavar Svavarsson, Daltúni 22, Kópavogi. 40 ára Aron Styrmir Sigurðsson, Leirubakka 24, Reykjavík. Ástríður Helga Helgadóttir, Rauðalæk 49, Reykjavík. Hrefna Svanlaugsdóttir,- Vestursíðu 32, Akureyri. Kristinn Ingi Valsson, Meiðastaðavegi 7, Garði. Olgeir Jens Jónsson, Byggðarhomi, Sandvíkurhreppi. Sigurbjörn Sigurðsson, Hrisateigi 21, Reykjavík. Sigurður Valur Sigurðsson, Dalhúsum 7, Reykjavík. Soffía Pálmadóttir, Hrísalundi 12 A, Akureyri. Svanur Hlíðdal Magnússon, Byggðarholti 12, Mosfellsbæ. Sverrir Heiðar Sigurðsson, Fögrabrekku 22, Kópavogi. Ert þú búinn ad taka þáttáunuui.uisir.is? ®TOYOTA Langur í miðborg Reykjovíkur Kaupmenn, veitingamenn og aðrir þjónustuaðilar i miðborginna, athugið Næsti langi laugardagur er 5. september. Þeim sem vilja tryggja sér pláss fyrir auglýsingu í DV föstudaginn 4. september er bent á áb hafa samband við Sigurð Hannesson sem fyrst í síma 550 5728. Auglýsingar þurfa fyrir kl. 16 þriðjudaginn 1. september 1998.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.