Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1998, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1998, Síða 36
> o o oO UJ so o s lo < c/3 O kLO m FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 ÞRIÐJUDAGUR 25. ÁGÚST 1998 Húsavíkurflug: Yfirgnæfandi líkur eru á íslandsflugi Yfirgnæfandi líkur eru á því að ís- landsflug hefji áætlunarflug til Húsavíkur þegar Flugfélag íslands hættir flugi þangað þann 1. sept- ember. Sam- kvæmt heimildum DV kom Ómar Bene- diktsson, framkvæmdastjóri íslandsflugs, úr sumrafrii fyrr en ætlað var til að ganga í þessi mál. Félagið mun telja sig hafa þann vélaflota sem þarf til að þjóna Húsvíkingum. ídag og á morgun munu stjórnendur íslands- flugs fara yfir dæmið og stjórn fé- lagsins kemur síðan til fundar á fimmtudag þar sem er að vænta ákvörðunar í málinu. Ekki náðist i Ómar Benediktsson í morgun. -RT Breski listinn: Alda beint í 7. sæti Smáskífa Öldu Bjarkar Ólafsdóttur með laginu Real Good Time fór beint í 7. sæti á breska sölulistanum sem birt- ur var í fyrradag. Þama er um frábær- an árangur að ræða því þetta er fyrsta vika skífunnar á listanum. í gær höfðu yfir 200.000 eintök selst. Lagið er eftir Öldu sem syngur það jafnffamt. í helgarblaði DV birtist nýlega við- tal við Öldu en þá hafði hún nýlega sungið á Wembley fyrir milijónir manna áður en Arsenal og Manchester United léku um Góðgerðarskjöldinn. Þá þegar hafði Alda gert plötusamning við Wiid Star Records sem er eitt virtasta út- gáfufyrirtæki Bretlands um þessar mundir. Er von á breiðskífu í nóvem- ber og annarri smáskífú um svipað leyti. DV tókst ekki að ná tali af Öldu í gær þar sem hún er á tónleikaferðalagi, svokölluðu Road Show, um Suður-Eng- land. Á bak við Road Show standa út- varpsstöðvar víðs vegar um landið sem fá söngvara til að koma fram. Nk. fimmtudag verður Alda á Top of the Pops sem er aðal-poppsjónvarpsþáttur- inn í Bretlandi. Að því búnu heldur hún tónleikaferðalaginu áfram og verð- ur á ferð og flugi, a.m.k. út þennan mánuð. Platan mun eiga að koma út í Evrópu í dag ef allt fer samkvæmt áætl- un. Álda mun fylgja útkomu hennar eftir með tónleikahaldi. -JSS Alda Björk. Hér má sjá Halldór Blöndal taka á móti samráöherra sínum, Þorsteini Páissyni, í sextugsafmæli sínu sem hann hélt upp á í íþróttahöllinni á Akureyri í gærkvöld. Hundruö manna voru í afmælinu en þingflokksfundir Sjálfstæðisflokks- ins var haldinn á Akureyri í gær til þess aö þingmenn gætu haldið í afmæli flokksbróður síns. DV-mynd Anton Andaílótti af Tjörninni: Hðfðum tekið tillit „Þetta kom okkur algjörlega í opna skjöldu, og sérstaklega að þetta skuli gert með þessum hætti. Fuglafræðing- urinn hefði alveg mátt tala við okkur fyrr,“ sagði Harpa Björnsdóttir, framkvæmda- stjóri menningar- nætur í Reykja- vík. Jóhann Óli Hilmarsson fugla- fræðingur fullyrð- ir að um 40 pró- sent andanna á Tjörninni í Reykjavík hafi flúið við flugeldasýn- inguna á menningamótt sl. laugar- dagskvöld. Harpa sagðist hafa verið í sam- bandi við Jóhann Óla í fyrra þegar flugeldasýningin var ákveðin á þess- um stað. „Hann hefur aldrei haft sam- band við okkur, þannig að við höfðum enga vitneskju um þetta. Hefði hann haft svo mikið sem grun um að þetta gæti gerst hefði hann átt að tala við okkur því við hefðum tekið tillit til þess.“ Harpa sagði að málið yrði tekið fyr- ir svo fljótt sem fuglafræðingúrinn legði fram rökstuddar mælingar. -JSS Harpa Björnsdóttir. Komst lífs af ásamt félaga sínum og 10 ára dreng er bát hvolfdi á Þingvallavatni: Hélt þetta væri búiö Bjargvættirnir Hrönn og Guömann Reynir við bátinn sem hvoifdi á Þingvallavatni. DV-mynd Pjetur. „Þegar ég var kominn upp á kjöl- inn á bátnum var ég hræddur í 10-15 sekúndur. Ég hugsaði með mér, nú er tíminn kominn. Það var myrkur og mér datt ekki í hug að nokkur myndi sjá okkur eða heyra í okkur. En svo var ekki um annað að ræða en hugsa jákvætt," sagði Kjartan Guðjónsson sem var bjarg- að köldum af kili báts ásamt félaga sínum og 10 ára dreng á Þingvalla- vatni, á móts við Skálabrekku, í fyrrakvöld. „Þetta byrjaði með því að það drapst á bátnum þegar við vorum á leiðinni í land. Þegar ég byrjaði að draga hann i gang aftur uppgötvaði ég að aftasta hólfið af þremur var orðið fullt af vatni. Stuttu síðar var annað hólf orðið fullt líka. Ég fór að reyna að róa en félagi minn og strákurinn fóru fram í stafn. Á 2-3 mínútum fylltist báturinn og hon- um hvolfdi. Við réðum ekki við neitt.“ Félagi Kjartans hélt fast í dreng- inn þegar ósköpin dundu yflr. Þre- menningunum tókst öllum að komast upp á kjölinn. „Siðan var ekki um annað að ræða en kalla á hjálp. Við flautuðum líka því flauta var á vest- unum,“ sagði Kjartan. „Mér fannst þetta ekki þægilegt. Samt fannst mér að okkur yrði bjargað," sagði drengurinn við DV. „Við heyrðum neyðaróp en rosalega dauft,“ sagði Guð- mann Reynir Hilm- arsson sem var stadd- ur ásamt konu sinni, Hrönn Ægisdóttur, inni i stofu sum- arbústaðar við Skálabrekku, í á að giska 800 metra fjarlægð. Glugginn var opinn. „Við heyrðum „hjálp“ og neyðina í röddinni," sagði Hrönn. „Þetta var ofboðslega sláandi augna- blik. Þetta var angistarvein. Við höfum kynnst vatninu sem ekki hef- ur skilað öllum sem hafa farið út á það.“ Hjónin voru með bát við litla bryggju skammt frá og ákváðu að sigla strax af stað í áttina að þeim stað sem neyðarópin heyrðust: „Ég sá ekki bátinn úti á vatninu en ákvað að taka Hörð Guðmannsson bónda með okkur Hrönn,“ sagði Reynir. „Við sáum ljós á bíl hjá bóndabænum,“ sagði Kjartan. „Mér fannst samt ótrúlegt að einhver hefði heyrt í okkur.“ „Við sáum þremenn- ingana sitja á kilinum og það var þónokkur alda þama þegar við komum á staðinn,“ sagði Guð- mann Reynir. „Mennirn- ir tveir ríghéldu í strák- inn. Við náðum að kom- ast upp að bátnum og koma þeim um borð til okkar,“ sagði Guðmann Reynir. Hann sagði að mikil mildi hefði verið að þau hjón hefðu heyrt í þremenningunum sem ekki varð meint af. „Eina ástæðan fyrir því að við heyrðum var sú að við erum ekki með sjónvarp eða önnur tæki. Við sátum bara inni í bústað í kyrrðinni," sagði hann. -Ótt Veðrið á morgun: Hiti 8 til 15 stig Á morgun verður hæg vestlæg átt og skýjað með köflum norð- austanlands en annars litils hátt- ar súld eða rigning af og til. Hiti verður 8 til 15 stig að deginum. Veðrið í dag er á bls. 37. Vörubílar og leikföng í miklu úrvali Heildverslun S: 567 4151

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.