Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1998, Page 6
m a t u r
f Ó k U S 28. ágúst 1998
Argentína ★★★
Barónsstíg lla, s. 551 9555.
„Bæjarins besta steikhús hefur
dalað. Dýrustu ogenn þá bestu
nautasteikur landsins, en ekki
alveg eins innanfeitar og safa-
rikar og áður." Op/'ð 18-23.30
v.d., 18-3 um helgar.
Einar Ben ★★
Veltusundl 1. 5115090.
„Fremur þemahús en veitingahús og leggur
meiri áherslu á umbúðir en innihald. Einar
Ben. býður yfirleitt ekki upp á vondan mat og
verður því seint jafnvinsaell og Fashion Café
eða Planet Hollywood." Op/ð 18-22.
Café Ópera ★
Lækjargötu 2, s. 522 9499
„Undarlegir stælar einkenna þetta Café Óperu
og þar virðist vera takmarkaður áhugi á mat-
reiöslu." Op/ð frá 17.30 til 23.30.
Fiðlarinn á þakinu ★★★
Sklpagötu 14, Akureyrl, s. 462 7100
„Matreiðslan stóð ekki undir háu verði en hún
hefur batnað. Þjónustan var alltaf góö en nú
er of mikið treyst á lærlinga." Op/ð 12.30-
14.00 Og 18.00-22.00.
Hótel Holt ★★★★★
Bergstaðastræti 37, s. 552 5700.
„Listasafnið á Hótel Holti ber í matargerðarlist
af öðrum veitingastofum landsins. Þar fara
saman frumlegir réttir og nærfærin mat-
reiösla, sem gerir jafnvel baunir að Ijúfmeti."
Op/'ð 12-14.30 og 19-22.30 v.d., 12-14.30
og 18-22 fd. og Id.
Hótel Óðinsvé ★★
v/Óðlnstorg, s. 552 5224.
„Stundum góður matur og stundum ekki, jafn-
vel í einni og sömu máltíð." Op/'ð 12-15 og
18-23 v.d., 12-15 og 18-23.30 fd. og Id.
Ítalía ★★
Laugavegl 11, s. 552 4630.
„Eignarhaldið er ítalskt, kokk-
arnir eru ítalskir, gæðaþjónust-
an er hálfítölsk, vel valið vínið
er að mestu ítalskt og tilviljana-
kenndar veggskreytingarnar
eru ítalskar. Það, sem tæpast
hangir í Itölskunni, er mat-
reiðslan. Bakaðar kartöflur og
ameriskar pítsur eru einkennis-
tákn hennar." Op/'ð
11:30-11:30.
Játvarður ★★★
Strandgötu 13, Akureyrl, 461 3050
„Skemmtilega hannaður staður með fínlegri
matreiðslu, ef sneitt er hjá fiski, svo og elsku-
legri þjónustu sem getur svarað spurningum
um matinn." Op/'ð 11.30-14.00 og
18.00-22.00.
Lauga-ás ★★★★
Laugarásvegl 1, s. 553 1620.
„Franskt bistró að íslenskum
hætti sem dregur til sín hverfis-
búa, sem nenna ekki að elda í
kvöld, barnafjölskyldur utan úr
bæ og ferðamenn utan að
landi og frá útlöndum. Hér
koma hvorki uppar né ímyndar-
fræðingar." Op/'ð 11-22 og
11-21 um helgar.
Lækjarbrekka ★★
Bankastrætl 2, s. 5514430.
„Matreiðslan rambar út og suður, góð, fram-
bærileg eða vond eftir atvikum. Með annarri
hendinni eru geröar forvitnilegar tilraunir en
með hinni er farið eftir verstu hefðum." Op/'ð
md.-mid. 11-23.30, fid.-sd. 11-0.30.
Mirabelle ★★★
Smlðjustíg 6., s. 552 2333.
„Gamal-frönsk matreiðsla alla leið yfir I
profiteroles og créme brulée. Mirabelle er
komin á gott skrið." Op/'ð 18-22.30.
Pasta Basta ★★★
Klapparstíg 38, s. 561 3131
„Ljúfir hrísgrjónaréttir og óteljandi tilbrigöi af
góðum pöstum en lítt skólað og of uppá-
þrengjandi þjónustufólk." Op/'ð 11.30-23.00
virka daga og 11.30-24.00 um helgar. Barinn
er opinn til 1.00 virka daga og til 3.00 um
heigar.
Rauðará ★
Rauðarárstíg 37, s. 562 6766.
„Túrista-steikhús. Nautasteikin getur verið
góð, en hún getur líka verið óæt. Yfirþjónninn
er svo önnum kafinn við að vera kammó að
hann tekur ekki alvarlega ábendingar um að
nautakjöt sé skemmt." Op/'ð frá kl. 18 og fram
eftir kvöldi. Hversu lengi fer eftir aösókn.
Skólabrú ★★★
Skólabrú 1, s. 562 4455.
„Matreiðslan er fögur og fín,
vönduð og létt, en dálítið fros-
in. Þjónustan er kurteis og hóf-
söm.“ Op/'ð frá kl. 18 alla daga.
Smiðjan ★★★
Hafnarstrætl 92, Akureyrl, s. 462 1818
„Smiöjan hefur árum og sennilega árum sam-
an verið eini staðurinn á Akureyri þar sem er
þorandi að borða fisk." Op/'ð 18.00-22.00.
þetta fólk í heimsókn?
Allt frá tímum Loftleiða hafa íslendingar þráð
að fá útlent fólk til að líta hér við, þó ekki væri
nema í örskotsstund sem stop-over-farþegar
á leið yfir hafið. Á síðustu áratugum hefur
þessi þrá breyst í skipulagða herferð þar sem
reglulega eru birtar upplýsingar um tölu fallinni.
Og í þessu stríði er öllum brögðum beitt.
Við segjumst eiga náttúruperlur, að hér sé
kynlífsparadís, jafnvel að hér sé menningarborg.
En hvaða fólk er það sem við erum að tæla
hingað? Er þetta fólk sem við myndum vilja
þekkja ef við værum ekki sannfærð um að
það væri með að meðaltali 100 þúsund kall í
vasanum sem við gætum grætt af því?
Fókus fékk hóp valinkunnra mannþekkjara
til spá í þetta fólk sem leggst yfir landið og
borgina á sumrin, fyllir tjaldstæðin og kaffihúsin
og virðist aldrei geta lært hvar Barónsstígur er.
Vill einhver fá
Helga Braga: „Yeees, typpaframlengingin virkar hérna.“
Þorsteinn: „Jussi Norgén kom til íslands til aö fylgja
Bylgjulestinni um landið."
Þorvaldur: „Þegar háriö fer að þynnast er fínt að fá sér
svona stórt hjól. Ég skil ekki hvað hann er að gera
með þessa skjalatösku."
Jakob Bjarnar: „Ég man ekki til þess að hafa séð mótor-
hjólagarp með skjalatösku fyrr. Ef ég væri Óli Umferðarráðs
hefði ég af þessu þungar áhyggjur."
Jakob Bjarnar: „Á þessu stigi er þessi einmanalegi ungi
maður farinn að sjá verulega eftir því að hafa komið til Islands
í staðinn fyrir að fara til Mallorca. Hann er búinn með alla pen-
ingana og er að velta því fyrir sér hvort hann eigi fyrir pylsu.“
Helga Braga: „Hún fór frá mér og ég fór til fslands til að
gleyma - en það tókst ekki. Ég er einmana og maturinn er
vondur. I'm in heeell.“
Þorsteinn: „Oooo, rosalega sakna ég móður minnar."
Þorvaldun „Þetta er gáfumaður sem hefur orðið fyrir von-
brigðum með Kaffi List. Gáfumönnum finnst þeir komast í
snertingu við náttúruna þegar þeir fá sér pulsu."
Hard Rock Café ★★
Tommi er hættur og hávaði hefur
aukizt, verð hækkað og gæði minnk-
að. Innihald hefur vikið fyrir um-
búðum, örugg formúla aukinnar vel-
gengni, enda er oftar en áður beðið
eftir borðum á Hard Rock Café.
Staðurinn hæfir fólki, sem ekki
þekkir annað en skyndibita og viU
ekki annað en skyndibita; fólki, sem
þolir tvöfalt verð fyrir góða ham-
borgara og daufa ímynd þess aö
vera úti að borða. Ósjálfstæðir við-
skiptavinir eru ekki beinlínis að
kaupa mat, heldur aðgang að þekkt-
um stæl.
Hávaðavænn sogar staðurinn til
sín afmælisbörn og túrista, drykkju-
lið og barnafólk, býður raunar vel
þegna bamagæzlu á kvöldin. Óm-
stríöir hátalarar yfirgnæfa tónlistar-
myndbandarásina og bamsgrátinn
en eiga í harðri samkeppni við
drykkjuliðið.
Hringlaga harðviðarbar úr vöra-
lista hefur hrokkið inn á mitt gólf og
storkar upprunalegum rokkminja-
stíl hússins. Að öðra leyti er hús-
búnaður að mestu óbreyttur og
þjónusta jafn alúðleg og ágæt sem
fym.
Hér borga menn 975 krónur fyrir
hamborgara og 1090 krónur fyrir
samloku, 1750 krónur fyrir aðalrétt
og 3170 krónur fyrir þríréttað með
kaffi. Aðalréttur og súpa í hádeginu
kosta 745 krónur.
Súpa dagsins var í eitt skipti hefð-
bundin, uppbökuð sveppasúpa og í
annað sinn hveitilaus tómatsúpa,
hvor tveggja með brúnu frans-
brauði. Hard Rock Salat reyndist
eins og annað salat hússins vera
næsta einfalt jöklasalat, ferskt og
hlutlaust.
Nachos vora fyrrum betri, þegar
hörðu tortilla-flögurnar vora bomar
fram sérstaklega, en ekki í graut
með álegginu. Santa Fe-hveitikökur
vora bornar fram í stórri eftirrétta-
skál með jöklasalati, fylltar creole-
krydduðu kjúklingahakki.
Fiskur dagsins tókst bezt. Pönnu-
„Staðurinn hæfir fólki, sem ekki þekkir annað en
skyndihita og vill ekki annað en skyndihita; fólki,
sem þolir tvöfalt verð fyrir góða hamhorgara og
daufa ímynd þess að vera úti að borða. “
steiktur karfi
með mildri gráð-
ostsósu var
mátulega eldað-
ur, svo og grillað-
ur lax með
mildri sjávar-
réttasósu, hvor
tveggja fremur
mikið pipraður,
borinn fram með
jöklasalati.
Lasagna dags-
ins var bragð-
sterk og kjötmikil, með mjúku
hvítlauksbrauði og jöklasalati.
Hversdagsleg var grilluð samloka
með meyram kjúklingi, bráðnum
osti, lárperumauki og auðvitað
jöklasalati.
Faitas var gott, tortilla-pönnu-
kökur í bauk og snarkandi grillaö-
ur kjúklingur og grænmeti á
pönnu með lárperumauki og ýms-
um sósum. Glóðargrilluð nauta-
lund var smá í sniðum, en vel eld-
uð, borin fram meö bakaðri kart-
öflu og frönskum kartöflum í senn,
svo og hinu endalausa jöklasalati
staöarins.
Ostakaka var hversdagsleg og
mjólkurhristingur hnausþykkur,
hæfilegur og síður en svo minnis-
stæður endir á metnaðarlítilli og
íhaldssamri matreiðslu. Kaffi var
sæmilegt, svokallað espresso, stund-
um lapþunnt og stundum sterkt og
gott. Jónas Kristjánsson
Þorsteinn: „Margret og Olav, náttúrufræðingar,
komu til Islands til að kynna sér íslenska reðursafnið
en urðu fyrir vonbrigðum. Margret: Þetta er í síðasta
skipti sem ég læt draga mig yfir hálfan hnöttinn til
að sjá uppstoppuð typpi."
Jakob Bjarnar: „Þessi norsku hjón hafa aldrei
botnað í því af hverju þessi þjóð flúði gósenlandið
hér forðum og eru að reyna að átta sig á því núna.
En allt kemur fyrir ekki... undrun þeirra vex ef eitt-
hvað er.“
Helga Braga: „Þessi eru nýbúin að ræna bankahólf
og hún er með peningana í svörtu töskunni. Þau lát-
ast vera venjulegir vegfarendur en það er augljóst að
þarna fara ræningjar. Fótabúnaðurinn er hins vegar
flottur."
Þorvaldun „Mér finnst merkilegt hvað svona fólk er
eins alltaf. Hann hefur rekið einhvern frekar lítinn og
venjulegan bissness, hún talað við kellinguna (
næsta húsi i 30 ár. Þau hafa orðið viðskila við hóp-
inn og henni finnst það óþægilegra en honum.“
Jakob Bjarnan „Hérvera þessa gaurs er árangur
þeirrar stefnu í ferðamálum vorum að hér sé að finna
lauslátar konur. Hann er tilbúinn í slaginn og hugsar sér
vel til veiðar þó svo að hann hafi aldrei komist í tæri við
hitt kynið í heimalandi sínu - Nördalandinu góða.“
Þorvaldun „Þessi lagði áherslu á að finna gististað
sem næst Húsdýragarðinum. Þarna er hún að leita að
kúlunni sinni. Augljóslega norsk."
Helga Braga: „Ooohh, hvað gerði ég við smokkana."
Þorsteinn: „Er ég maður eða er ég kona? Jæja, ég
geng þá bara í Fíladelfíu eins og Páll Rósinkrans."
Þorsteinn: „Svetlana spyr: Hvaða lykt er
þetta? Masha svarar: Hún er af mér. Ég geri
ekki annað en svitna eftir að ég keypti þessa
fjandans lopapeysu."
Helga Braga: „Lessur in love. Þær eru greini-
lega að skoða hringana og velta fyrir sér hvar
þær eigi að láta gefa sig saman. Kannski í
Surtshelli, kannski í fjörunni undir Dyrhóiaey.“
Eva María: „Þessi hafa sennilega fyrir sið að
kaupa tískufatnað í því landi sem þau heim-
sækja. En hann skal vera á niðursettu verði.
Svona líta þau út fyrir að vera fyrsta flokks
vegasjoppustarfsmenn hvaðan sem er af [s-
landi.“
Þorvaldun „Hér á manni að finnast eitthvað
fyndið við lesbiur i Rammagerðinni en þær
þurfa að halda á sér hita eins og aðrir.“
Helga Braga: „Hún hugsar: Guð
minn góður, hvað segir fíflið núna.“
Eva María: „Sannir túristar borða
helst bara það sem þeir þekkja
bragðið af og flýta þannig fyrir því
að þjóðlönd heimsins líði undir lok
og samsteypurnar taki við. Hvaða
samsteypu verslar þú við? Hvaða
afsláttarkorti ert þú ofurseldur?"
Þorsteinn: „Þetta er fyrsta ferð
Stefáns Halldórssonar til Reykjavík-
ur. Hann er úr Kópavoginum og
hefur aldrei heyrt talað um svita-
sprey.“
Þorvaldur: „Það er allt í nösunum
á þessum. Sennilega Dani. Kærast-
an hans er að hugsa um hvort hún
hafi fengið rétt til baka á MacDon-
ald's og þau eru að fara heim á
Hjálpræðisher að spila Yatzy."
meira á.
www.visir.is
Dauf ímynd veitingahúss