Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1998, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1998, Blaðsíða 11
Húrra fyrir bobbingum! Bloodhound Gang, sem ærði landsmenn i Laugardalshöll í fyrra, gefur út nýja plötu, Horray for Boobies, í nóvember. Jimmy Pop, aðalsprautan í bandinu, segir að mamma sín sé ekki hneyksluð út af plötuheitinu (Húrra fyrir bobbing- um) en sú gamla er, að sögn, ekki ýkja hress með textann í laginu Vagina sem verður fyrsta smáskíf- an af plötunni. Þar segir: „Ég er að leita að stelpu sem minnir mig á mömmu/en það er erfitt að finna stelpu sem er með húðflúraða nöðru á rassinum/og hvað margar stelpur þekkirðu sem geta spilað á munnhörpu með píkunni?" Mamm- an þvertekur fyrir að vera búin þessum hæfileika. Auk gommu af gelgjulegum klósetthúmor í þessum dúr býður nýja platan upp á John Taylor úr Duran Duran sem herm- ir eftir Mick Jagger í jungle-útgáfu af gamla stóns-slagaranum, Under My Thumb. 1 byrjun lagsins segir hann: „Hæ, þetta er John Taylor úr Duran Duran og nú ætla ég að herma eftir Mick Jagger. Hæ, þetta Mick Jagger...“ maskínuhljóð. Ég held að ef djass- fushion artistarnir á áttunda ára- tugnum hefðu haft aðgang að þeim tölvugræjum sem við höfum þá hefði útkoman orðið svipuð. Á nýju plötunni vildum við nota tækifærið og taka upp með alvörustrengjum og slagverki ef okkur sýndist svo. Við vildum hafa tækifæri til að koma hugmyndum í framkvæmd án þess að þurfa að pæla í hver kostnaður- inn yrði. Og útkoman er eiginlega eins og við höfum hörfað frá fram- tíðinni og reynt að finna nýjan byij- unarreit fyrir tónlistina." Þeim er nokk sama þó hörðum d&b-hlustendum frnnist nýja línan vera skrýtin. „Þegar við byrjuðum að gera þessa tónlist var „drum & bass“-nafnið ekki komið til sögunn- ar og þau takmörk sem nafninu fylg- ir, þá var allt opið og áherslan lögð á tilraunir. Við höfum alltaf viljað víkka sjóndeildarhringinn, kanna alla möguleika á því hvað gengur í dansgeiranum almennt. Kannski hefur fólk alltaf séð okkur utan við d&b-geirann því við höfum aldrei einbeitt okkur að því að vera bara hluti af senunni." -glh Yoga: ★i Ekki fyrir hvern sem er Experimental drum'n'bass frá Svfþjóö hljómar dálítió, erm... blöhh?? Engu ab síbur staöreynd, fyrsti geisladiskur Prime music inniheldur 10 lög sem öll bera fremur steikt nöfn eins og t.d. Really Clean og Midnight Whale. Það eru engar upplýsingar af viti inni í umslaginu á disknum, aöeins einfaldar mynd- ir og hverjir semja lögin og heimasíða (www. primal.se) sem ég bendi fólki á að skoða ef það vill vita meira. Lögin á diskinum eru dáiítið úr öllum áttum hart, mjúkt og líka eitt lag sem er rappað yfir. En það er eitt sameiginlegt með öllum lögun- um og þab er að þaö eru einhver verulega twi- sted hljóð í þeim öllum, ekta exþerimental þótt taktarnir séu fremur venjulegir. Þótt ég sé ekkert ýkja hrifinn af þessum geira drum'n'þass tónlistar voru þó nokkur lög sem mér fannst nokkuð góð og aðeins eitt sem mér fannst verulega slappt. Það er lagið sem MC Supernatural gerir tilraun til að rappa yfir en rappið hans var svona einhvers konar ho ho ha ha ha ha og eitt- hvert þannig bull, hlátur og vitleysa. Keflið bara vitleysinginn og ég verð ánægður. Það verður að segjast að það er ekki fyr- ir hvern sem er að hlusta á þennan disk og eflaust mundu margir þurfa að hreinsa út á sér eyrun eftir að hafa hlustað á hann en experimentalfólk, endilega kíkiö á þetta. Og svona í lokinn þá gæti ég trúað að þessi diskur sómdi sér vel í sænskum eð- alvagni á þýskri hraðþraut. Guðmundur Halldðr Guðmundsson framtíði í „drum & bass“-geiranum eru Dego MacFarlane og Mark Mac goðsagnir. Þeir bera ábyrgð á fyrstu stóru plötunni sem d&b-nafnið festist við („In Rough Territory" frá 1991), komu með djass-áhrif inn í stefnuna með annarri plötu sinni, „Parallel Universe", og kynntu Goldie fyrir heiminum. Þó 4 Hero sé þeirra aðal- samstarfsgrundvöllur hafa þeir unn- ið saman undir nöfnunum Jacobs Optical Stairway, Tom & Jerry, Nu- Era o.fl. og sinn í hvoru lagi, m.a. sem Tek 9 og Manix. Þá reka þeir Reinforced útgáfuna og hafa dælt út á annan hundrað plötum með upp- rennandi d&b-tónlistarmönnum. Ný- lega kom út stærsta verkefni þeirra til þessa, 4 Hero-platan „Two Pages“ sem er tvöfaldur diskur og nýr kafli í d&b-sögu félaganna. Þeir hafa slípast heil ósköp, tónlistin hefur m.a. verið kölluð nýaldar-d&b eða þjóðlaga-d&b. Á fyrri disknum fá þeir bæði söngv- ara og klassíska strengjahljóðfæra- leikara til að spila og syngja með hljóðgervlatrukkinu en á þeim seinni er hefðbundnara og rafmagnaðra d&b. Þeir gefa plötuna út á Talkin' Loud merkinu sem er stöndugt eftir margar vinsælar útgáfur, t.d. plötu Roni Size. „Við höfum lengi viljað kanna hvemig tónlist við gætum gert með meira fjármagni en við höfum haft til þessa," segir Mark „og nú þegar við höfum meira til ráðstöfunar get- um við gert tilraunir og farið nýjar leiðir. 4 Hero hefur alltaf snúist um að blanda „alvöru" hljóðum við 4 Hero: „Reynum að finna nýjan byrjunarreit með „Two Pages“.“ i \ GLCRfíUGNfíVCRLSUNIN I MJODD OPTICfíL STUDIO DUTV FRCC STOR6

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.