Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1998, Page 7
Fyrirsætustarfið kitiar Bryndísi Bjarnadóttur
ekki lengur. Hún er búin að silja fýrir hér
og þar í heiminum alveg síðan hún var
fjórtán ára en núna situr hún á skólabekk,
sinnir móðurhlutverkinu
og er á leiðinni í enn
þá meira nám. Hún segir
íslendinga þjást of mikið
af Garðars Hólm-syndrómi
og útilokar ekki að hennar
pólitíski tími muni koma.
Eftir að hafa starfað sem fyrir-
sæta viða um heim i nærri áratug,
kom Bryndís Bjamadóttir heim,
eignaðist bam og sökkti sér í heim-
spekinám við Háskólann. Allt frá
því hún var á fermingaraldri var
hún eftirsótt á fyrirsætuskrifstof-
um úti um ailan heim enda hefur
hún allt til að bera til að vera ofar-
lega á heimsmælikvarðanum.
Varstu þaö sem kallaö er ofurfyr-
irsœta?
„Nei, biddu fyrir þér. Það eru
ekki til nema fimm eða sex konur i
heiminum sem hægt er að kalla
súpermódel eða ofurfyrirsætur.
Gcirðars Hólm-syndrómið er ríkt í
íslendingum, þeir mega ekki
bregða sér til útlanda án þess að
verða ofur hitt og ofur þetta. Ég átti
mina spretti, það er ekki ofsögum
sagt.“
íslenska frægðin
Maðurinn hennar Bryndísar
heitir Glúmur Baldvinsson. Hann
er eðlilega mjög stoltur af sinni
konu eins og berlega kom í ljós þeg-
ar fyrsta spurning þessa viðtals var
borin upp. Hann var þá ekki búinn
að yfirgefa svæðið eins og til stóð
og gat ekki setið á sér.
„Hún hefði náð langt ef hún hefði
ekki verið að dandalast með mér og
MR.“
„Það er hálfspaugilegt hvað það
þarf lítið til að verða frægur hér á
íslandi. Það liggur við að það sé
nóg að fá birta mynd af sér í Spurn-
ingu dagsins. Eins og ég segi þá var
ég aldrei nein ofurfyrirsæta þótt ég
hafi verið í útlöndum."
Framboðsdýrðir
Eru tœkifœrin sem sagt í útlönd-
um? Ómögulegt aö meika þaö hér?
„Það er að vissu leyti stundum
verra að gera það gott hérna
heima þar sem kjörin hér eru
lægri en fyrir samsvarandi vinnu
erlendis. Það hlýtur að hafa áhrif
á að landflóttinn héðan er veruleg-
ur.“
Þetta var nú frekar pólitískt
svar. Þú varst einhvern tíma í
framboöi, var þaö ekki?
„Oh, jú. Eigum við að tala um
það?“
Já.
„Ég álpaðist í framboð fyrir Al-
þýðuflokkinn í síðustu alþingis-
kosningum. Fékk svo oftrú á
sjálfri mér og kenndi mér um að
flokkurinn tapaði atkvæðum. Ég
var nú bara i sextánda sæti.“
Ertu svolítiö pólitísk?
„Ég fylgdist ekkert sérstaklega
mikið með pófitík fyrr en ég fór í
þetta framboð. Þá kviknaði áhug-
inn enda var mjög gaman að taka
þátt í þessu. Þetta var mér frekar
auðvelt því málstaður Alþýðu-
flokks þess tíma fór vel saman við
skoðanir mínar á þjóðmálum. Það
er sjónarsviptir að flokknum sem
var. í kjölfar framboðsdáða minna
á landsvísu fóru háskólafylking-
arnar að bera í mig víurnar. En
það er önnur saga."
Ætlaröu aö reyna aö komast inn
á þing núna?
„Nei, ég reikna ekki með því en
ég útiloka aldrei neitt sem gæti
gerst í framtíðinni. Kannski mun
minn tími koma.“
París vs. Flyðrugrandi
Hvernig er aö vera tengdadóttir
Jóns Baldvins Hannibalssonar
og vera í þessari umtöluöu fjöl-
skyldu?
„Fjölskyldan er umtöluð af
þeirri einföldu ástæðu að hún er
afskaplega merkileg. Jón Baldvin
og Bryndís eru áhugavert fólk og
þess vegna er mikið um hana
skrafað. Svo leynist alltaf öfund og
afbrýði í samfélagi manna. Ann-
ars finnst mér mjög gaman að eiga
samneyti við þetta fólk, það er alls
engin lognmolla á þeim bæ.“
Ergott að vera komin heim? Par-
ís vs. Flyörugrandi?
„Lífið hérna heima er mjög frá-
brugðið þessari tilbúnu veröld
sem ég er búin að vera að hrærast
í.“
Tilbúnu veröld?
„Já, það er einhver gervilykt af
þessum glassúrheimi sem fyrir-
sæturnar byggja. Þar er ekkert
varanlegt. Orðið módel táknar fyr-
irmynd einhvers tíma og tísku og
er þar af leiðandi ekki endanlegt.
Ég upplifði þetta affavega þannig.
Skapgerð mín passaði kannski
ekki alveg inn í þetta. Fyrirsætan
þarf alltaf að vera til í að leika,
vera hress og kát og veita jáyrði
við öllu. Ég er bara ekki þannig."
Reðursrökmiðjuhyggjan
Ertu þá alveg hœtt aö sitja fyrir?
„Þetta verður ekki aðalatvinnan
mín oftar þó ég taki kannski að mér
eitt og eitt verkefni ef það býðst.
Módelbransinn kitlar mig ekki
lengur."
Af hverju kepptir þú aldrei í feg-
uröarsamkeppni?
„Ég hafði bara aldrei áhuga á
þeirri keppni. Mér fannst alveg nóg
að vera fyrirsæta enda er ég ekki
haldin þrálátri athyglisþörf. Feg-
urðarsamkeppni íslands býður ekki
upp á mörg atvinnutækifæri og er
tilgangslaus að mörgu leyti.“
Hvernig er svo aö vera mamma?
„Það er stórkostlegt að fá nýja
veru til liðs við sig, að fylgjast með
ferðalaginu frá upphafi og horfa á
hana mótast og umbreytast dag frá
degi. Ég er mjög hamingjusöm með
yndislegu, litlu dóttur mfna. Þetta
er hins vegar ekkert grín, það væri
fölsk vitund að segja að móðurhlut-
verkið sé frábært og ekkert annað.
Lífið umturnast og fólk verður að
temja sér nýja siði.
Ég vil ekki halda því fram að til
sé eitthvert móðureðli, það er bara
reðursrökmiðjuhyggja. Konur jafnt
sem karlmenn þurfa að læra að ala
upp börn, það er ekki meðfætt."
Þetta er oröiö nokkuö heimspeki-
legt viötal. Gœtir þú ekki sagt mér
eitthvaó heimspekilegt um islenska
karlmenn í samanburöi viö erlenda?
„Æ, ég vil alls ekkert setja út á
þessar elskur. Það er heilmikið var-
ið í íslenska karlmenn. Goðsögnin
um að erlendir karlmenn séu svo
kurteisir, frábærir, blíðir og hugul-
samir er fráleit. Karlmenn eru jafn
misjafnir og þeir eru margir. Þessi
íslensku eiga það helst til að hleypa
seint heimdraganum. Naflastreng-
urinn milli þeirra og mömmu slitn-
ar ekki mjög auðveldlega."
-ILK
föld
ónæcjja!
Hringdu og
pantaðu
16" pizzu
með 5
áleggsteg.
fyrir aðeins
1400 kr.
16. október 1998 f Ókus
7