Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1998, Blaðsíða 14
b í ó
•* Bíóborgin
The Horse Whlsperer B6k Nicholas
Evans hlaut misjafnar viBtökur og var annars
vegar lofuö sem glæsilegt meistaraverk og
hins vegar gagnrýnd sem innihaldslaus loft-
bóla. Myndin brúar að mínu mati bilið, og
kannski má kalla hana fallega loftbólu. -ge
Hope Floats ★★
Bíóhöllin/Saga-bíó
Prlmary Colors ★★★ Sjá dóm Hilmars
Karlssonar hér á síðunni.
Lethal Weapon 4 ★★★ Armageddon ★★
Mafla ★ Godzilla ★★★
Háskólabíó
Smálr hermenn ★★
Eina ferðina enn er
það brúðuhönnuður-
inn og brellumeist-
| arinn Stan Winston
| sem stendur með
pálmann ! höndun-
um því eina merki-
lega og skemmti-
lega í annars ein-
hæfri ævintýramynd eru sköpunarverk Win-
stons. Leikstjórinn Joe Dante, þekktur hryll-
ingsmyndaleikstjóri á árum áður, hefur fengist
viö sams konar atriöi og í Small Soldiers, en
hefur gert betur. -HK
Oanslnn ★★★ Ágúst Guömundsson meö sina
bestu kvikmynd frá því hann gerði Meö allt á
hreinu. Áhrifamikil saga sem lætur engan
ósnortinn. Vel gerö og myndmál sterkt. Oft á
tíðum frumleg þar sem dansinn dunar I for-
grunni og eöa bakgrunni dramatískra atburöa.
Leikarar í heild góöir og ekki hallaö á neinn
þegar sagt er að Gunnar Helgason, Pálína
Jónsdóttir og Gfsli Halldórsson séu best meöal
jafningja. -HK
Björgun óbreytts Ryan ★★★★ Stórfengiegt
byrjunaratriði gæti eitt sér staðiö undir ómæld-
um stjörnufjölda, en Steven Spielberg er meiri
maöur en svo aö hann kunni ekki aö fýlgja
þessu eftir og í kjölfarið kemur áhugaverð saga
um björgun mannslífs, saga sem fær endi !
öðru sterku og löngu atriði þar sem barist er
gegn ofureflinu. -HK
Sporiaust Paulle ★
Kringlubíó
A Perfect Murder Andrew Davis, leik-
stjóri A Perfect Murder, ræöst ekki á garðinn
þar sem hann er hæstur því að fyrirmyndin,
Dial M for Murder (1954), telst ekki til bestu
mynda Alfreds Hitchcocks. Útkoman er þó
ágætis afþreying sem kemur stundum
skemmtilega á óvart. -ge
Töfrasveröló ★★
Laugarásbíó
Specles II ★ Þessi framhaldsmynd fellur i allar
þær gildrur sem framhaldsmyndir eiga á hættu
og viröist vera að framhalda fleiri en einni
mynd, Terminator II, Aliens, Invasion of the
Body Snatchers, Xtro og Insemnoid. -úd
Slldlng Doors **i
Regnboginn
Dr. Doollttle ★★! Það kom mér á óvart
hversu lítiö púður var í handriti Nat Mauldin og
Larry Levin, en sagan sem slík hefði átt að
tryggja fjörmeiri og eftirminniiegri mynd. Gam-
an er aö ærslunum í Eddie Murphy, en Dag-
frnnur olli mér vonbrigðum. -ge
Phantoms ★★★ The X-flles ★★
Les vlslteurs 2 ★
Stjörnubíó
The Mask of Zorro ★★★ Það mátti vel
skemmta sér yfir þessum ýktu hetjulátum og út-
blásnu rómantík og myndin var ákaflega áferðar-
falleg, glæsileg og glamúrus og flott og smart,
en einhvem veginn vantaði herslumuninn. -úd
meira
w w w \* i
aáj
bíódómur
Mike Nfchotey leikstjórf Prfmaiy Colors:
Uppistandsgrínari varð
eikstióri á Broadway
í dag frumsýnir Háskólabíó og
Bíóhöllin nýjustu kvikmynd Mike
Nichols, Primary Colors. Mynd
þessi vakti strax mikla athygli þar
sem hún þykir koma við kaunin á
forseta Bandaríkjanna, Bill Clint-
on, sem má ekki viö fleiri vanda-
málum í einkaliflnu þessa dagana.
Segir myndin frá nánast
óþekktum ríkisstjóra sem
ætlar sér að verða forseti
Bandaríkjanna og lætur ekk-
ert stööva sig í því miskunn-
arlausa stríði sem háð er bak
við ijöldin og í íjölmiðlum. Á
bak við hann stendur eigin-
konan sem lætur sem ekkert
sé þegar framhjáhald eigin-
mannsins kemur upp á yfir-
borðið. Til að sópa soranum
undir motttma hefur ríkis-
stjórinn sæg af metnaðar-
gjömu fólki sem kemur hon-
um til aðstoðar þegar á þarf
að halda.
John Travolta og Emma
Thompson leika ríkisstjórahjónin,
Adrian Lester leikur ungan hug-
sjónamann sem gengur tfl liðs við
ríkisstjórann, Billy Bob Thorton
og Kathy Bates leika þrautreynd-
ar samsærismanneskjur sem ráðn-
ar em til að koma í veg fyrir
hneyksli og Larry Hagman leikur
forsetaframbjóðanda sem virðist
hafa gleymt fortíð sinni.
Leikstjóri Primary Colors er
Mike Nichols, sem er sjálfsagt ein-
hver virtasti listamaður Banda-
ríkjanna í dag. Nichols er jafnvíg-
ur í kvikmyndum og á leiksviði og
á að baki marga sigra á hvorum
tveggja vígstöðvum. Hann hefur
fengið óskarsverðlaunin, Emmy-
verðlaunin og sjö Tonyverðlaun
sem þykja þau virtustu í leikhús-
bransanum i Bandaríkjunum.
Þrjátíu og tvö ár eru liðin frá því
Mike Nichols leikstýrði sinni
fyrstu kvikmynd, Who's Afraid of
Virgina Wolf? Fékk hann fyrir þá
Mike Nichols ræðir vlð John Travolta og Emmu
Thompson meðan á tökum stendur.
Kvfkmyndfr Mike Nfchote
Who's Afraid of Virginia Wolf? 1966
The Graduate 1967
Catch-22 1970
Carnal Knowledge, 1971
The Day of the Dolphin 1973
The Fortune 1975
Gilda Live 1980
Silkwood 1983
Heartburn 1986
Biloxi Blues 1988
Working Girt 1988
Postcards from the Edge 1990
Regarding Harry 1991
Wolf 1994
The Birdcage 1996
mynd sína fyrstu óskarstilnefh-
ingu. Ári síðar eða 1967 sendi hann
frá sér The Graduade og fékk
óskarinn sem besti leikstjóri auk
fjölda annarra verðlauna. Á löng-
um og farsælum ferli hefur Mike
Nichols leikstýrt mörgum úrvals-
myndum meðal annars Silkwood
og Working Girl sem báðar
voru tilnefndar til ósk-
arsverðlauna.
Mike Nichols fæddist í
Berlín 1931, faðir hans var
rússneskur og móðir hans
þýsk. Þegar hann var sjö ára
flutti fjölskyldan til New
York þar sem hann ólst upp.
Þegar Nichols var við há-
„«a| skólanám í Chicago kynntist
hann Elaine May og stofh-
uðu þau gamandúettinn
Second City. Um tíma voru
þau eftirsóttustu skemmti-
kraftar á næturklúbbum í
Bandaríkjunum. Á hátindi
frægðarinnar skildu leiðir
með þeim og þau fóru sitt í hvora
áttina. Þau áttu þó eftir að vinna
saman á ný og má geta þess að
Elaine May er handritshöfundur
að Primary Colors.
Mike Nichols hélt sig við heima-
borg sína í New York og sló í gegn
með sinni fyrstu uppsetningu á
Broadway, Barefoot in the Park,
árið 1963, þar kynnti hann til leiks
ungan og óþekktan leikara, Robert
Redford. Sigurganga hans á Broa-
dawy hefur verið nánast óslitin og
heifa ófáar uppsetningar hans á
nýjrnn leikritum verið stældar um
allan heim.
Bestu forsetamir
í kvikmyndum
1. Anthony Hopkins Nixon
Leikstjóri: Oliver Stone
2. Peter Sellers Dr. Strangelove
Leikstjóri: Stanley Kubrick
3. Frederick March
Seven Days in May
Leikstjóri: John Frankenheimer
4. Jack Warden Being there
Leikstjóri: Hal Ashby
5. Walter Huston
Gabriel over the White House
Leikstjóri: Gregory La Cava
6. Kevin Kline Dave
Leikstjóri: Ivan Reitman
7. Henry Fonda Fail Safe
Leikstjóri: Sidney Lumet
8. Michael Douglas
The American President
Leikstjóri: Rob Reiner
9. Philip Baker Hall Secret Honor
Leikstjóri: Robert Altman
10. Gregory Peck
Amazing Grace and Chuck
Leikstjóri: Mike Newell
Ronald Reagan er ekki
eini leikarinn sem hefur
glímt við hlutverk forseta
m Bandaríkjanna:
jObestu.
forsetamir
Það hefur verið ákaflega vinsælt
í Hollywood síðustu misserin að
flagga forseta Bandaríkjanna í kvik-
mynd, hvort sem harrn er tilbúinn
eða hefur verið til í raunveruleikan-
um. Ekki hefur eftirspumin minnk-
að í öllum gauraganginum sem nú
umlykur núverandi forseta Banda-
ríkjanna, Bill Clinton. Á síðustu
tveimur árum hafa verið gerðar
nokkrar kvikmyndir þar sem for-
setinn er þungamiðjan. Má nefna
Jefferson in Paris, Air Force One,
Absolute Power, Wag the Dog og nú
síðast Primary Colors. Þekktir og
óþekktir bandariskir leikarar hafa
leikið forsetann. Það er þó ekki
bandariskur leikari sem trónir efst
á blaði í könnun sem gerð var i
Bandaríkjunum um það hver væri
besti kvikmyndaforsetinn heldur er
það breski stórleikarinn Anthony
Hopkins sem þótti ttikast það vel
upp í hlutverki skúrksins Nixons í
samnefndri kvikmynd Olivers
Stone að hann trónar á toppnum.
Bíóhöllin /Háskólabíó: Primary Colors
Forsetaefni með opna buxnaklauf
Lelkstjórl: Mike Nichols. Handrlt: Elaine May.
Kvikmyndataka: Michael Ballhaus. Tónllst:
Ry Cooder. Helstu hlutverk: John Travolta,
Emma Thompson, Billy Bob Thornton, Adrian
Lester, Larry Hagman og Kathy Bates.
Þegar Primary Colors var frum-
sýnd í Bandaríkjunum rétt eftir síð-
ustu áramót gat tímasetningin ekki
verið betri. Cllnton forseti var í
vandamálum út af málarekstri sem
fyrrum ástkona hans Paula Jones
stóð í og allt var að fara á hvolf út af
Monicu Lewinsky. Primary Colors,
sem segir frá óþekktum rikisstjóra
meö fortíð sem ætlar í forsetafram-
boð, var því eins og veisla með vöffl-
um og rjóma fyrir þá sem drekka í
sig fréttir af hneykslismáium forset-
ans.
Greinilegt er strax í byrjun að
fyrirmyndin er kosningabarátta
Bills Clintons fyrir forsetakosning-
amar 1992. John Travolta, sem
leikur ríkisstjórann Jack Stanton,
er eins og klónun af Clinton, röddin
brostin, alltaf tilbúinn meö bros og
vinsamlegar ráðleggingar, er í raun
hinn mesti gæðamaður en á það til
að hlaupa útundan sér með ungum
stúlkum. Forsetafrúin, sem Emma
Thompson leikur, er kannski enn
meira Hillary heldur en Stanton er
Clinton, hún er lögfræðingur sem
grefur allt stolt á bak við grímu lög-
fræðingsins til að geta komið eigin-
manninum í æðsta embætti þjóðar-
innar.
Það er ekki rangt að draga þá
ályktun að fyrri hluti myndarinnar
sé að miklu leyti byggður á fram-
boði Clintons. Þegar líður á mynd-
ina fer hún að verða dálítið ýkt í
viðleitni sinni til að fá fram allan
sorann þð aldrei sé aö vita nema
stutt sé í sannleikann í ljósi síðustu
atburða hvað á sér stað bak við
tjöldin í pólitíkinni í Bandaríkjun-
um. Hvað um það, Mike Nichols
hefur búið til snjalla og góða kvik-
mynd sem er beitt í ádeilunni á at-
vinnufólk i pólitíkinni, hefur góðan
húmor og er skemmtilega kræf og
laus við fordóma. Við sjáum at-
burðarásina með augum Henry
Burtons (Adrian Lester) sem er
svartur hugsjónamaður sem telur
að Jack Stanton sé besti kosturinn
og fer því aö vinna fyrir hann.
Burton veröur, eins og búast má
við, fyrir vonbrigðum með fram-
bjóðandann, en í þjóðfélagi þar eins
manns dauði er annars brauð sér
hann enga ástæðu til að yfirgefa
Stanton og verður hans helsti trún-
aðarmaður og bjargar honmn út úr
vandræðum þegar kvennamálin
komast upp á yfirborðið.
Persónurnar í Primary Colors
eru einstaklega skýrar og sterkur
leikarahópur gerir þeim góð skil.
John Travolta og Emma Thompson
eru eins og klæðskerasniðin í hlut-
„John Travolta og Emma Thompson eru eins og klæðskerasniðin
í hlutverk ríkisstjórahjónanna og er þetta besti leikur Travolta
frá því hann lék í Pulp Fiction.“
verk ríkisstjórahjónanna og er þetta
besti leikur Travolta frá því hann
lék í Pulp Fiction. Af aukaleikurum
stendur Kathy Bates upp úr í hlut-
verki Libby Holden sem er sérfræð-
ingur í að koma í veg fyrir hneyksli.
Libby er lesbísk, með sóðakjaft og er
harkan uppmáluð. Samt er það nú
svo að þessi persóna er sú eina í
myndinni sem verður ósannfærandi
í lokin. Væntanlegum áhorfendum
skal bent á eitt, takið vel eftir upp-
hafsatriðinu og gleymið ekki skýr-
ingum, því í lokin kemur upp sú
staöa að gott er að hafa í huga þetta
atriði til að skynja viðhorf Stantons
til einstakra samferðamanna sinna.
Hilmar Karlsson
14
f Ó k U S 16. október 1998