Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1998, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1998, Blaðsíða 11
popp Þá er jólaplötuflóðið skollið á. Ein af þeim hljómsveitum sem kerrtur til með að beijast um athygli næstu mánuði er Ensími sem gaf út plötuna Kafbátamúsik í gær. Jonni trommari og Franz gítar- leikari og söngvari byrjuðu á því að segja mér af hverju plata hljómsveitarinnar Ensími héti Kaf- bátamúsik. „Það er nú engin brjálæðisleg hugsun á bak við það nafn en ætli það sé ekki vegna þess að við ís- lendingar eigum enga kafbáta. Ef við ættum kafbáta gæti flotinn not- að plötuna til að peppa sig upp, fólk verður alltaf svo einmana í þessum kafbátum.“ Þetta er þá músík fyrir neöan- sjávarstarfsemi? „Já, hún er æskileg sem slík.“ En aö öllu kaf- bátagamni slepptu, hvaöa ástand er œskileg- ast til að fíla hljómsveit- ina Ensími? „Ekkert ástand beint. Það er ekki verið að stíla inn á eitthvað eitt. Það er fjölbreytni í gangi, við höfðum það að leiðar- ljósi, án þess þó að einhverja safnplötu. Við köllum stundum tónlist- ina „prokk“; popp og rokk.“ Mér finnst stundum vera eighties-fílingur í gangi. „Já, við neitum þvi ekki. Við vorum öll mikl- ir Duran Duran-aðdáend- ur. Hrafn (gítarleikari og aðalsöngvari) er líka algjört eighties-fan, þannig að mörg hljóm- borðssándin eru ættuð þaðan, alls kyns þannig fílingur." Þið eruð þá ný-nýróm- antískt band? „Jaaaa. Fólk verður að gera það upp við sjáift sig. Það heyra allir mús- íkina á sinn hátt.“ Kælibox og flotkví Textarnir eru ekki mjög greinilegir á plöt- unni og ekki prentaöir í umslaginu. Skipta þeir litlu máli fyrir ykkur? „Jú, jú, að sjálfsögðu skipta þeir máli. Allt bandið sá um textagerð- ina saman og þeir voru gerðir á lokastiginu, rétt áður en farið var að syngja. Það var komnir grunnar en svo fóru text- amir milli manna og þeir voru ræddir á diplómatískan hátt. Texti og lag fittar saman, við heyr- um það virka." Eru einhver meginþemu í gangi í textunum? „Alls ekki. Það er verið að semja um alls konar hluti, eins og t.d. kælibox og flotkví - allt það nauð- synlega i lífinu. Einnig er texti um mann sem týnir uppáhaldsskónum sínum og einn um frekan lítinn krakka sem á afmæli, þannig að þetta er ekkert tengt. Svo er ein- hver rómantik þama inn á milli." Engin þjóöfélagsleg gagnrýni? „Óbeint jú. Þetta er allt á lík- ingamáli, við fömm ekki beint að rótinni. Kæliboxið bráðnar, það hefur kannski merkingu fyrir suma.“ Er þetta ekki í fyrsta skipti sem þið eruö í hljómsveit sem syngur á íslensku? „Jú. Textamir vom reyndar á ensku fyrst en það var ákveðið að skipta í íslenskuna. Það er meiri þraut að slengja fram textum á ís- lensku, það vefst fyrir mönnum sem hafa stundað þetta enskubrjál- æði. Það er miklu skemmtilegra að gera lög með íslenskum textum og við gerum bara músík vegna þess að það er gaman að búa hana til. Einmanalegt í skúrnum Jonni og Hrafn voru í Jet Black Joe, Franz í Quicksand Jesus, Kjarri bassaleikari í Strigaskóm #42 en Ensími er fyrsta band Odd- nýjar hljómborðsleikara. Ég spyr hvernig saga hljómsveitarinnar sé. „Eftir að Jet-bandið þarna dó byijuðum við Hrafn að grúska í bíl- skúmum heima hjá mér,“ segir Jonni. „Við ætluðum að taka aðra stefnu heldur en þetta hefur leiðst út í; ætluðum að gera einhverjar tölvupælingar, eitthvað nýtt - fyrir okkur allavega. Það var bara svo einmanalegt í bílskúrnum að við fengum Franz til að koma í skúrinn. Við vor- um heilllengi saman þrír og það komu hljóð- færaleikarar og fóru. Heildarmyndin, eins og hún er núna, er búin að vera saman í ár.“ Er jafnmikil sam- vinna á bak við lögin og textana? „Já, þetta er allt gert í sátt og samlyndi.“ Hvernig funduð þið Oddnýju? „Við fundum hana eiginlega bara út á götu. Hún var búin að vera í klassík svo hún er að af- meyjast núna, músík- lega séö. Þetta small allt saman og músíkin breyttist. Allt stöffið á plötunni varð til eftir að heildarmyndin var kom- in. Fyrir það voram við bara að leika okkur en þegar bandið var komið var ekki aftur snúið. Þá voram við komin út í pælingar og vildum gera einhverja hluti." Breyttist eitthvaö mórallinn á œfingum eft- ir aö þaö kom stelpa í bandiö - fóruö aö hella upp á te og svoleiöis? „Nei, mórailinn er ná- kvæmlega eins, og hann er mjög góður. Hún til- kynnti okkur um daginn að alltaf þegar við fær- um að tala um karlamál læddist hún út í hom og hlustaði en færi svo beint í vinkonur sínar og segði þeim frá öllu. Hún er mesti pervertinn af okkur öllum ef eitt- hvað er.“ -glh BeckFatboy SlimBusta Rage against the Machin Jólaplötuflóðið er ekki bara á ís- landi. Þó erlendum plötum sé dælt á markað jafnt og þétt cillt árið er þó alltaf áherslan sett á söluvænleg- ar plötur fyrir jólin. Lítum aðeins á það hvað er að koma út. Átta fyrstu plötum Queen verður safnað í einn kassa, sándið endur- bætt og músíkin krufin akademískt. Pakkinn heitir „The Crown Jewels". Það sem heimur- inn þarfnast akkúrat núna er best of-plata með Whitney Houston. Sú kemur í búðir bráðlega. Svipaða hrifningu á hárgreiðslustofunum ætti tvöföld best of-plata, „Ladies and Gentlemen" með George Martin, að vekja. Yfirvofandi best of-plata með Dire Straits ætti hins vegar að vekja lukku á dekkjaverk- stæðum og ekki síður safhplatan „Hits“ með Phil Collins, sem er við það að skreiðast í búðir. Aðrir í best-of pælingum era Lloyd Cole, Joe Cocker, Vanessa Wiiliams og svo auðvitað U2. Þeir gefa út helstu lögin frá árunum 1980-90 þann 3. nóv. Þá ættu U2-aðdáendur að hafa hraðan á því aukadiskur með B- hliðar lögum fylgir frítt með fyrstu vikuna. Faith Evans er góð vinkona Puff Daddy og verður með sína fyrstu sólóplötu. Eighties-dívan Chaka Khan hefúr verið að vinna með Prince og verður meö kombakk á plötu í byrjun nóv. Aer- osmith era kannski eins og gamlir hnakkar í framan, en samt alltaf jafn heitir og verða með tvöfalda læfplötu. Aðrir hnakkar, önnur læf- plata; Rolling Stones með „No Security“ í byrjun nóv. „Mutations" heitir nýja Beck- platan; hana fáum við annan nóv- ember. Warp-útgáfan er með nýjar plötur frá Two Lone Swordsmen og Squarepusher og svo tvöfalt safh af fágætum eðal frá Stereolab. Vinir okkar í Cardigans verða með sína fjórðu plötu 20. okt., „Gran turis- mo“. Portishead verða með læfplöt- una „PNYC“ 3. nóv. og sama dag kemur míníalbúmið „Mother" frá Goldie. Wu-tangarinn Method Man verður með plötuna „Tical 2000: Judgement Day“ tíimda nóv. og annar rapphundur, Ice Cube, meö „War & Peace" viku seinna. Busta Rhymes blandar sér líka í rappslaginn með „Extinction Level Event“ í byrjun des. Rokk og engar refjar fáum við svo á nýrri plötu frá Metallica 18. nóv. Fatboy Slim heldur áfram að halda uppi fjörinu. Ný plata með honum, „You've Come a Long Way Baby“, kemur eftir helgi. Oasis B- hliðar safnið kemur 2. nóv. og am- erísku pönkararnir í Offspring verða með „Americana" þann 9. Mariah Carey verður með „One“ þann 16. nóv. og læfþlata Pearl Jam kemur 23. nóv. Við verðum að bíða þangað til í janúar eftir nýrri Rage against the Machine-plötu, en bara til 26. október eftir „Up“ með R.E.M. Seal birtist eftir langt hlé þann 16. nóv. Hans plata heitir ekki „Seal 111“ eins og eðlilegt væri, heldur „Human Being“ - ætli Hebbi viti af þessu? Aö lokum er rétt að minnast á nýja plötu frá Al- anis Morissette, sem heitir hvorki meira né minna en „Supposed For- mer Infatuation Junkie" og kemur út 2. nóv. Stelpan seldi heil 28 miilj- ón stykki af fyrstu plötunni sinni, „Jagged Little Pill“, svo einhverj- um plötumógúlnum er öragglega farið að klæja í lófana undan kom- andi hárvexti. Kaffl Reykjavík. Hljómsveitin Svartur Ts spilar í kvöld og á morgun en á sunnudagskvöldiö skemmta þeir Harold og Þórir. Annars er Grolsch-vika núna á þessum fróma staö. Þaö þýöir að tilboö eru á bjór fram eftir kvöldi alla vikuna og það veröur líka fariö í ýmsa leiki þar sem veglegir vinningar eru í boöi. Til dæmis bjórkeppni sem gítarleikarinn Ingl Gunnar stjórnar um leiö og hann heldur uppi fjöri á staðnum. Ásgaröur I Glæsibæ. Hljómsveit HJördísar Gelrsdóttur leikur fyrir dansi T kvöld en á morgun veröur harmóníkuball, aö sjálfsögöu með Harmóníkufélagi Reykjavikur. Á sunnu- dagskvöldið heldur svo Caprí-tríólö uppi fjör- inu. Hitt húsið. Hljómsveitin Sporfari leikur á síö- degistónleikum Hins Hússins og Rásar 2 á Geysi Kakóbar í dag klukkan fimm. Ókeypis inn. Á Fógetanum spilar hljómsveitin Blál flðring- urinn í kvöld og annaö kvöld en á sunnudags- kvöldið veröur leikinn djass af Kvartett Þor- stelns Elrikssonar. BBroadway. I kvöld veröur þaö Gelrmund- ur Valtýsson, ásamt j hljómsveit, sem leikur fyrir dansi. Álftageröls- bræður verða þarna líka og Ómar Ragnars- son, allir saman léttir! lund eins og venjulega. Á morgun veröur svo sýningin New Vork, New York og aö henni lok- inni munu Páll Óskar og Caslno troöa upp. Álafoss föt bezt. Tryggvl Húbner og Rúnar Júlíusson í kvöld og annaö kvöld. Svaka stuö alltaf í þeim. Grand Hótel v/Sigtún. Frá klukkan sjö til ell- efu leikur Gunnar Páll og syngur perlur! kvöld og annaö kvöld. Catalina. Hljómsvertin Útlagar leikur { kvöld og annaö kvöld þarna! Kópavogi. Café Amsterdam. Drengirnir úr Úlrik frá Borg- arnesi munu halda uppi sveitaballastuöi alla helgina. Gaukur á Stöng. Hljómsveitin Buttercup stíg- ur á stokk meö hressilegt helgarfiörefni tvö fyrri kvöld helgarinnar en á sunnudags- og mánudagskvöld veröur leikinn ítalskur blús meö hljómsveitinni Ullldy Blues Band. Hótel Saga. Gleöigjafarnir André Backman og KJartan leika valda tónlist á Mímisbar. Gullöldin. Svensen & Hallfunkel leika bæöi djammkvöldin. Já, já. Næturgallnn. Þau Hllmar Sverrlsson og Anna Vllhjálms leika í kvöld og á morgun en Hljóm- sveit Hjördísar Geirs leikur nýju og gömlu dansana á sunnudagskvöldiö eins og öll önn- ur sunnudagskvöld! vetur. Café Romance. Hin ómótstæöilega Llz Gammon skemmtir gestum þetta misseriö. Líka matargestum Café Óperu. Kringlukráln. Léttlr sprettlr leika ! kvöld og annaö kvöld og I Leikstofunni verður Vlðar Jónsson meö Ijúfa tóna. Naustlð. Öm Árnason og píanóleikarinn KJart- an Valdlmarsson veröa meö gleðistundir um helgina. Svo verður dansaö til þrjú. Naustkjallarlnn. Skugga-Baldur leikur til þrjú! kvöld. Á fimmtudagskvöldiö veröur svo að vanda dansaður línudans á staönum. Þaö byrjar alltaf klukkan níu og kostar fimmhund- ruökall. Dubliner. Bjaml Tryggva sér um aö engum leiðist á þessum Irska bar um helgina. Lelkhúskjallarínn. Stjórnin veröur á sínum stað í kvöld en á morgun verður Slggl Hlö ! búrinu og sér um diskóstuöið. Á mánudags- kvöldiö veröur svo skemmtidagskrá sem Ustaklúbburinn stendur fyrir. Margir kunnir listamenn koma þar fram. FJaran. Jón Moller klikkar ekki á róman- ttsku píanótónlistinni og Víkingasveitin kemur líka í heimsókn. Feltl dvergurinn. Slxtles í kvöld og diskó- tek á morgun. FJörugarðurinn. Á föstudags- og laugar- dagskvöldum eru víkingaveislur og þá spil- ar Viklngasveltin. Á eftir er dansleikur meö hljómsveitinni KOS, krúttllegum og sætum. Klúbburinn. Bjórfestival, októberfest og all- ur sá pakki. Byrjar klukkan ellefu i kvöld og á sama tíma á morgun. Plötusnúðurinn DJ Gumml Gonzales sér svo um aö engum leiö- ist. Skothúslð í Hafnarfirði. Stórdansleikur meö Stjórnlnnl á morgun. Vltlnn i Hafnarfiröi. Hafnfirskar unglingahljóm- sveitir standa fyrir upptökutónleikum annað kvöld frá klukkan sex til ellefu. Slr Ollver. Blús- menn Andreu skemmta í kvöld og annaö kvöld en á sunnudagskvöld mæta hinir hressu Bitlar á svæöiö. | meira á uuwuu uisir is 16. október 1998 f ÓkUS 11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.