Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1998, Blaðsíða 19
Nýjasta platan hans Bubba
kom út í gær. Hún heitir Arfur.
Það er alveg merkiiegt hvað
þessi maður býr yfir endalaust
miklum krafti. Hann er líka að
skrifa bók um box og
reglulega lýsir hann
boxviðureignum ^
í sjónvarpinu.
Hann kemur allavega k
tvisvar í viku fram * ik
á Borginni og þar að fe
auki sinnir hann konu,
búi og börnum.
Þá er Bubbi ekki þekktur
fyrir að liggja á skoðunum
sínum og þetta vill hann
segja um það sem
allir eru að tala um.
í§§y á að
HAfegáía alla.,
Sköpunarsagan verður leikin á morgun klukk-
an 17 í Neskirkju. Aðgangur er ókeypis og um
aö gera fyrir foreldra sem eiga í erfileikum
með aö útskýra af hverju Adam og Eva voru
ekki lengi í paradís að mæta. Verkið er unnið
af Furðuleikhúsinu og spinna þau og leika
sköpunarsögu Biblíunnar.
Góðan smokk má nota nokkrum sinnum
sé hann þveginn að samförum loknum
f. V.8F -Þannir er xmokknum haldlð. rC
Það er alltaf gaman að glugga í
gamlar fræðibækur, kannski
helst fyrir þá sök hvað hug-
myndafræðin er orðin úrelt miðað
við ríkjandi skoðanir, enda er
„sannleikurinn" í dag oftast orðinn
eintóm steypa á morgun. í byrjun
sjöunda áratugarins gaf Félags-
málastofnun út nokkrar fræðslu-
bækur eftir félagsfræðinginn
Hannes Jónsson. Þar tók hann fyr-
ir mál eins og Verkalýðinn og þjóð-
félagið; Efnið, andann og eilífðar-
málin; og í flmmtu bók sinni, sem
kom út 1964, var kastljósinu beint
að fjölskylduáætlunum og siðfræði
kynlífsins. Þessi bók er bráð-
skemmtileg lesning í ljósi breyttra
viðhorfa og nýrrar „tækni".
Lítillepa uppblás-
\j'j// / Inn i líni
■1 1 1 // s' Hannes kemst að
því að frjóvgunar-
- varnir eigi að vera
-v sem fullkomnastar
til að koma í veg fyrir
slysabörn. Hann bendir
á ýmsar leiðir í því
_ sambandi. Fyrst
rekur hann hin-
ar ýmsu gerðir
hettna sem eru á
markaðnum, en þegar
kemur að smokknum
rekur maður upp stór
augu: \j
„Þegar til lengdar læt- hux er bluinn upp.
ur flnnst flestum hjónum smokkur-
inn draga um of úr snertitilfínn-
ingu kynfæranna og verður oft báð-
um hvimleiður. Hann er líka til-
tölulega dýr frjóvgunarvöm, ef not-
aður aðeins einu sinni, sem oftast
vill verða, enda þótt góðan smokk
megi nota nokkrum sinnum sé
hann þveginn að samfórum loknum
og geymdur lítillega uppblásinn í
líni, sem talkúmi hefur verið stráð
á.“
Pillan var á þessum tíma enn á
tilraunastigi og Hannes er í vafa
um ágæti hennar.
„Sumar konur þola ekki þetta
mikla lyfjaát. Þær fá uppköst eða
þær ganga með velgju fyrstu dag-
•Þannit cr smoklmum haldlft.
ana, sem þær taka pill-
una, og aðrir erfiðleik-
ar hafa í einstaka til-
felli gert vart við sig.
Auk þess er pillan mjög
dýr sem frjóvgunar-
vöm, þar sem svo mik-
ið þarf að eta að henni
til þess að hún veiti ör-
yggi. Mánaðarskammt-
ur kostar á annað hundrað krón-
ur. Og til hvers allt þetta pilluát,
t.d. fyrir sjómannskonuna, sem
hefur mann sinn hjá sér e.t.v. að-
eins 2 daga í mánuði?“
Andstygqð í augum
heilbrigos fólks
í kafla sínum um siðfræði kyn-
lífsins kemst Hannes að fjórum
meginreglum:
1) Heilbrigðu og fullnægj-
andi kynlífi verður bezt
lifað innan hjónabandsins,
þar verður kynlíflð yfir-
leitt meira og betra en
utan hjónabands.
2) Lauslæti ber að varast
vegna þess, að því fylgir oft
ófullnægjandi kynlíf, það er
ósamboðið persónuleika
mannsins og býður heim per-
sónulegum og þjóðfélagslegum
vandamálum.
3) Framhjáhald í hjóna-
bandi ber að varast
vegna þess, að því fylg-
ir yfirleitt ófullnægj-
andi kynlíf, og það leið-
ir yfirleitt til persónu-
legra vandamála og
óhamingju.
4) Hvers konar öfuguggahátt á
sviði kynlífs ber að forðast, þar
sem hann er í senn ógeðslegur og
lítillækkar þar af leiðandi viðkom-
andi persónu og rýrir sjálfsvirð-
ingu hennar.
Lítum aðeins frekar á síðustu
siðaregluna.
„Fjórða siðaregla
kynlífsins, eins og
þær koma mér fyrir
sjónir, er sú, að
'Aíierí tu að hvers konar öfugugga-
profa smoklc. £ syjðj kynlífslns
beri að forðast, þar sem hann sé í
senn andstæður megintilgangi lifs-
ins, sé ógeðslegur og lítillækki þar
af leiðandi viðkomandi persónur og
rýri sjálfsvirðingu þeirra.
Þessa reglu þarf ekki að ræða
mikið. Gildi hennar er svo augljós.
Kynvilla, samfarir við dýr og hvers
konar kynferðislegur sadismi, er
svo langt fyrir neðan virðingu
mannsins, að það fólk, sem
stundar slíkan öfugugga-
hátt, missir að verulegu
leyti sjálfsvirðingu sína
og þar með rýmar örygg-
istÚfinningin og andleg
vellíðan þess. Það gengur
nær undantekningarlaust
með sektartilfinningu, af því
að það veit, að það hefur lítillækkað
sig og fyrirverður sig fyrir það.
Auk þess stríðir öfuguggaháttur-
inn á móti lögmálum sjálfs lífsins,
þar sem með slíkum aðforum er úti-
lokað að viðhalda kynstofninum, en
augljósustu rök benda til þess, að
kynfærin séu okkur ásköpuð til
þess fyrst og fremst að viðhalda lífi
mannsins á jörðinni.
Öfuguggahátturinn er því í senn
andstæður lögmálum lífsins og við-
haldi þess og auk þess andstyggð í
augum heilbrigðs fólks.“
Þjóðleikhúsið sýnir Bróður mlnn Ljónshjarta
eftir Astrid Lindgren á sunnudag kl. 14. Það
eru nokkur sæti laus og síminn er 551-1200.
Ávaxtakarfan er í Óperunni á sunnudag kl.
14. Það eru örfá sæti laus. Þetta er mjög upp-
eldislegt leikrit um ávexti sem þurfa að takast
á við einelti i körfunni sinni. Síminn í Óper-
unni er 551-1475.
Hannes Jónsson, fyrrum sendiherra, gaf út syrpu af bókum snemma á sjöunda áratugnum þar
sem hann krufði flest það sem máli skiptir í veröldinni. Ein þessara bóka fjallaði um siðfræði kyn
lífsins og lýsir í sumu viðhorfum síns tíma en í öðru sérstæðum hugmyndum Hannesar sjálfs.
Iðnó sýnir
Dlmmallmm á
sunnudag kl. 14,
nokkur sæti laus.
Sími 530-3030.
Hafnarfjarðarlelkhúslð Hermöður og Háðvör
heldur áfram að leika Síðasta bæinn í daln-
um. Næsta sýning er í dag kl. 16. Það fer þvi
hver að verða síðastur að hringja í sima 555-
0553 og panta sér miða.
Söngleikurinn Bugsy Malone i Loftkastalan-
um á sunnudag kl. 14. Þetta er síðasta sýn-
ingin á verkinu. Síminn í kastalanum er 552-
3000.
fi ■ Á að veita íslenskri
erfðagreiningu einkaleyfl á
gagnagrunni? „Ef það yrði til
þess að hægt væri að lækna sjúk-
dóma sem læknar hafa hingað til
staðið ráðþrota frammi fyrir. Ég
tala nú ekki um ef það yrði til
þess að fmna hið eina sanna
alkagen. Þá segði ég já.“
2b Á að taka Guðmundar-
og Geirfinnsmálið upp að
nýju? „Engin spurning. Það mál
er svartur blettur á réttarfars-
sögu íslendinga og ef það sannast
að þeir sem keyrðu á málið á sín-
um tíma hafi beitt ólöglegum að-
ferðum, þá á að sækja þá til
saka.“
3. Er Kristján Jóhannsson
góður söngvari? „Brillíant.
Hann er frábær söngvari, frábær
performer og frábærlega
skemmtilegur persónuleiki."
4. Á að koma á veiði-
leyfagjaldi? „Ef það er eina leið-
in sem stjórnvöld sjá í þessu
máli, já. Ég vil hins vegar afmá
kvótann einn, tveir og þrír og
myndi vilja sjá mun róttækari
aðgerðir.“
& u Á að selja áfengi í stór-
mörkuðum? „Málið er þetta: Ef
við eigum að taka mark á yflr-
völdum á annað borð, skulum
við hafa I huga að þau vilja sjá
ísland dóplaust árið tvöþúsund.
Ég held að það sé fyrst og fremst
til þess að réttlæta eigin neyslu á
áfengi sem er öflugasti og út-
breiddasti vímugjafinn sem er á
boðstólum."
6 ■ Hver flnnst þér að ætti
að veita sameinuðum jafnaðar-
mönnum forystu? „Össur Skarp-
héðinsson er hæfastur.“
7 ■ Hvort er betra sánd í
vínylplötu eða geisladiski?
„Það er bara smekksatriði. Mér
er nákvæmlega sama.“
ö« Ertu hlynntur loftárás-
um NATO á Serbíu? „Ég er yflr
höfuð ekki hlynntur loftárásum á
einn eða neinn. Ég hefði kannski
ekki verið hlynntur þessu fyrir
fjórum mánuðum, áður en
fjöldamorðin tóku á sig þessa
hrikalegu mynd. Ef loftárásir
geta stöðva fjöldamorð, þá get ég
ekki annað en verið hlynntur
þeim.“
w ■ Ertu hlynntur eftirlits-
myndavélimum í bænum? „Ég
er hlynntur auknu eftirliti með
ráðamönnum borgarinnar sem
virðast ekki geta séð til þess að
borgin sé hættulaus. Það er aum-
ingjaháttur að geta ekki stöðvað
þessa öldu ofbeldis sem ríkir í
miðbænum. Það býður hættunni
heim að þjappa öllum þessum
veitingahúsum saman á svona
litlu svæði. Kannski vegna þess
að borgarfulltrúarnir vilja geta
rúntað um á milli baranna."
10
11 ■ Á að lögleiða fíkni-
efni? „Það er lögleiðing á flkni-
efnum á íslandi og áfengisdýrkun
í þessu þjóðfélagi. Kannabisefni
virðast vera komin til að vera og
þau geta alveg eins verið lögleg
fyrst áfengið er það. Ég vil samt
taka skýrt fram að ég er ekki
hlynntur neyslu á þessum vímu-
efnum og mæli þeim ekki bót
enda hef ég eigin reynslu af skað-
semi þeirra. Það skiptir hins veg-
ar engu máli hvort menn
skemma sig á kannabisefnum
eða áfengi.“
i Viltu aðskilnað ríkis
og kirkju? „Nei.“
Hvor var betri, Lax-
ness eða Þórbergur? „Þeir voru
báðir miklir húmoristar."
13.
Á að fækka þing-
mönnum? „Það á að leggja alla
þingmenn af. Þeir eru óþarfir og
stjómarhættimir úreltir. Ég er
viss um að það sé hægt að flnna
betri leið til að stjórna þjóðarbú-
inu en að sitja uppi með alla
þessa þingmenn. Þeir gera ekkert
annað en að hygla sér og sínum
og skemma og menga landið. Ég
myndi frekar vilja sjá að hverfls-
og grasrótarsamtök fengju mögu-
leika á að stjóma landinu en það
eru auðvitað bara draumórar í
mér.“
Er einhver munur á
íslensku vatni og vatni í öðr-
um löndum? „Stórmunur. Það
er bragð af íslenska vatninu. Það
er það besta. Allavega enn sem
komið er. Ég veit ekki hvort ég
segi það sama eftir tíu ár.“
Eru íslenskar konur
lauslátar? „Nei. Ég held að ís-
lenskir karlmenn séu lauslátari."
Party Zone
Bara tónlist
Aðstandendur útvarpsþáttarins
Party Zone vilja koma eftirfarandi
athugasemd á framfæri:
Það eina sem við höfum boðað í
þætti okkar er tónlist og ekkert
annað ef einhverjir hafa skilið
það sem svo í viötali við okkur í
síðasta tölublaði Fókuss.
meira á.)
www.visir.is
16. október 1998 f ÓkUS
19