Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1998, Page 13
MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 1998
13
Fréttír
ÚA endanlega laust
við Mecklenburger
DV, Akureyri:
Útgerðarfélag Akureyringa hf. af-
henti fyrir skömmu hlutabréf sín í
þýska útgerðarfélaginu Mecklen-
burger Hochseefischerei til þýskra
eigenda og er afskiptum ÚA af fyrir-
tækinu þar með lokið. ÚA keypti
snemma áratugarins meirihluta í
fyrirtækinu og voru miklar vonir
bundnar við að Mecklenburger
myndi færa ÚA umtalsverðan hagn-
að. Annað hefur komið á daginn og
hefur þýska fyrirtækið verið rekið
með halia allt síðan.
Guðbrandur Sigurðsson, forstjóri
Útgerðarfélags Akureyringa, segir
að í og með sé sárt að sjá á eftir
þýska fyrirtækinu enda sé rekstur
þess farinn að ganga betur en áður
vegna þeirra aðgerða sem gripið
hefur verið til undanfarin ár. „Á
móti kemur að þetta er
mjög áhættusamur
rekstur sem hefur verið
þungur baggi á ÚA und-
anfarin ár,“ segir Guð-
brandur.
- Hvað hefur ÚA tap-
að miklu á þessu máli?
„ÚA sjálft hefúr ekki
tapað neinu. Það var sett
ákveðin upphæð í þetta
upphaflega og hún fæst
til baka með vöxtum en
ég má reyndar ekki gefa
upp söluverð okkar á
bréfunum í fyrirtækinu en það er
trúnaöarmál. Tapið á félaginu í
gegnum árin var alltaf fjármagnað
með sölu skipa. Ef mig minnir rétt
átti Mecklenburger 8 togara þegar
ÚA kom að því en nú eru þeir orðn-
ir fjórir. Það er líka ljóst að ef rekst-
Guðbrandur Sigurðs-
son, forstjóri Útgerð-
arfélags Akureyringa.
urinn hefði gengið illa í
ár hefði verið komið að
þeim krossgötum að ÚA
hefði þurft að leggja fyr-
irtækinu til fé eða
ábyrgjast einhverjar
greiðslur," segir Guð-
brandur.
Hann segir að stjórn
ÚA sé nú búin að gera
það sem rætt hafi verið
um á aðalfundi að fyrir
dyrum stæði, að losa ÚA
við ákveðnar eignir.
„Við byrjuðum á að selja
hlutabréfin í Skagstrendingi, losuð-
um okkur út úr Tanga á hárréttu
augnabliki, að ég tel, og svo út úr
Mecklenburger. Nú einbeitum við
okkur að því að byggja upp þetta
fyrirtæki og auka veltuna," segir
Guðbrandur. -gk
Haraldur
verölaunað
ur í París
Eins og við sögðum frá í helgarblaði DV nýlega var Haraldur Ólafsson veðurfræðingur verðlaunaður á dögunum af Veð-
urfræðifélagi Frakklands fyrir doktorsritgerð hans frá háskólanum í Toulouse. Verðlaunin, sem kennd eru við veðurfræð-
inginn Prud’homme, voru afhent með viðhöfn hjá Frönsku vísindaakademíunni í París. Myndin var tekin við það tæki-
færi en hún barst ekki í tæka tfð fyrir birtingu viðtalsins við Harald í helgarblaðinu. DV-mynd Margrét E. Ólafsdóttir
Menntunarmál sjávarútvegsins:
Frekari uppbygging á Akur-
eyri kemur vel til greina
- aö mati Davíðs Oddssonar
DV, Akureyri:
Davíð Oddsson forsætisráðherra
segir að Akureyri hljóti að eiga
mikla möguleika varðandi frekari
uppbyggingu kennslu í sjávarút-
vegsfræðum. „Ég held að það væri
fráleitt að beina allri þessari starf-
semi hingað suður og þáð gengi
þvert á allar þær hugmyndir sem
menn hafa haft uppi í byggðamálum
almennt," segir Davíð í viðtali viö
Útveginn, fréttablað LÍÚ.
Davíð fer mjög lofsamlegum orð-
um um sjávarútvegsbraut Háskól-
ans á Akureyri sem hann segir hafa
verið mjög farsæla. „Ég tel að Akur-
eyri og nágrenni hafi upp á afskap-
lega margt að bjóða í þessu sam-
bandi. Sjávarútvegsdeildin við Há-
skólann á Akureyri hefúr lukkast
framar vonum og þá er ég ekki bara
að leggja dóm á kennsluna sem
slíka heldur ekki síður hvert nem-
endumir hafa síðan farið. Þetta fólk
hefúr farið inn í atvinnugreinina en
ekki til annarra starfa. Auðvitað er
öll menntun góð en hún hefur
stundum farið forgöröum, ef svo má
segja. Menn hafa verið í námi í
nokkur ár og síðan farið til starfa
við eitthvað allt annað en þeir
lærðu til“.
Davíð segir að viö Sjávarútvegs-
deild Háskólans á Akureyri hafl
nýtingin hins vegar orðið mjög góð.
„Við sem erum með byggðamálin á
okkar könnu í stjómsýslunni og eig-
um nú í vök að verjast vegna flutn-
ings af landsbyggðinni horfum með
aðáun á hvemig þetta hefur lukkast
við Háskólann á Akureyri. Það á
bæði við um sjávarútvegsbrautina
og fLeiri brautir við skólann. Verk-
menntaskólinn hefúr einnig verið
með vel lukkaða braut í tengslum
við nám í sjávarútvegsfræðum. Ég
tel að Akureyri hljóti að eiga mikla
möguleika núna, varðandi frekari
uppbyggingu í sjávarútvegsfræð-
um“ segir Davíð Oddsson. -gk
Viö treystu
GUININARSSOTNI
-rödd Reykjarneskjördæmis
á Alþingi
Einar Sveinsson forstjóri, Garðabæ
Magnús Gunnarsson bæjarstjóri, Hafnarfirði
Gunnsteinn Sigurösson skólastjóri, Kópavogi
Hörður Sævaldsson tannlæknir, Seltjamamesi
Bjami Snæbjöm Jónsson ráðgjafi, Mosfellsbæ
Þorsteinn Erlingsson útgerðarmaður, Reykjanesbæ
Olafur Proppé prófessor, Hafnarfírði
Þorgerður Aðalsteinsdóttir form. sjálfstæöiskv. Eldu, Kópavogi
Guðrún Eggertsdóttir viðskiptafræðingur, Bessastaðahreppi
Engilbert Snorrason tannlæknir, Hafnarfírði
Hörður Gunnarsson framkvæmdastjóri, Garðabæ
Stefán Sigurðsson veitingamaður, Kópavogi
Hanna Lina Helgadóttir lögmaður, Hafnarfirði
Sigurrós Þorgrimsdóttir bæjarfulltri, Kópavogi
Jón Þórarinsson flugstjóri, Garðabæ
Bragi Michaelsson bæjarfulltrúi, Kópavogi
Haraldur Stefánsson slökkviliðsstjóri Keflavíkurflugvelli
Steinar J. Lúðvíksson ritstjóri, Garðabæ
Þórður Guðmundsson framkvæmdastjóri, Seltjamamesi
Pétur Friðriksson rekstrarfræðingur, Kjalamesi
Guöjón Valgeirsson tannlæknir, Mosfellsbæ
Halldór Ámason sparisjóösstjóri, Kópavogi
Ámi Rafnsson framkvæmdastjóri, Seltjamamesi
Rúnar Sigurhjartarson verslunarmaður, Bessastaðahreppi
Sveinn Hjörtur Hjartarson rekstrarhagfræðingur, Kópavogi
Jónas Reynisson sparisjóðsstjóri, Hafnarfirði
Guöný Kristinsdóttir fijármálastjóri, Seltjamamesi
Stuðningsmenn
MMC Pajero DTI 2500
5 d. '98, vlnr., ek. 21 þ. km, spoiler,
álf., 31“. V. 2.800.000
MMC Carisma GLX 1600
5 d., '98, grár, ek. 9 þ. km, ssk.
V. 1.650.000
Subaru Legacy 4x4 GL 2000
5 d„ '97, silfurl., ssk., ek.17 þ. km,
krókur. V. 2.050.000
MMC Galant 4x4 GLSI 2000 '96
Ijósblár, ek. 57 þ. km, álf., spoiler.
V. 1.750.000
Subaru Justy 4x4 J-12 '90
hvitur, ek. 83 þ. km.
V. 450.000
MMC Space Wagon 4x4 GLXi 2000 '98
blár, ek. 7 þ. km, ssk., krókur.
V. 2.190.000
MIKIL SALA
VANTAR BÍLA Á SKRÁ
OG Á STAÐINN STRAX
Opið virka daga 10-12 og 13-18. Laugardaga 13-17.
.. fBÍLÁSAUm]
HöUur ehf.
B í L A S A L A
Tryggvabraut 14 600 Akureyri
461 3020-461 3019
VW Golf 4x4 GL 1800, 5 d. '97
silfurl. ek. 41 þ. km, álf. o.fl.
V. 1.490.000