Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1998, Side 27
Hraðasta tölva í heimi:
Djúpblá verður græn af öfund
hermir eftir kjarnorkusprengingum
IBM hefur hannað hraðvirk-
ustu tölvu í heimi fyrir orku-
málaráðuneyti Bandaríkjanna.
Meginverkefni hennar verður
að framkvæma flókna útreikn-
inga tO að viðhalda kjamorku-
vopnabúri Bandaríkjamanna
án þess að eiginlegar sprengju-
tilraunir þurfi að fara fram.
Þegar A1 Gore tilkynnti
smíði tölvimnar, sem kölluð
hefur verið Kyrrahafsblá, spar-
aði hann ekki stóru orðin.
„Hér er á ferðinni tölva sem
gerir Djúpbláa græna af öf-
und,“ sagði hann, en Djúpblá
er ofurtölvan sem lagði
Kasparov að velli í skák eins
og margir muna eftir. „Kyrra-
hafsblá er meira en tvöfalt
hraðvirkari en nokkur önnur
tölva sem til er í dag,“ fullyrti
hann einnig.
Fjölbreyttir mögu-
leikar
Bandaríkjamenn þurfa nú ekki að gera eina einustu tilraun með kjarnavopn í ná-
inni framtíð, hvað þá skjóta kjarnorkufiaugum á loft.
Ofurtölvan nýja getur fram-
kvæmt hvorki meira né minna en
3,9 billjónir aðgerða á sekúndu.
Þessi geysilegi hraði gerir henni
m.a. kleift að herma eftir kjarnorku-
sprengingum. Það auðveldar vís-
indamönnum að fylgjast með kjarn-
orkuvopnabúri Bandaríkjamanna
án þess að sprengja eina einustu til-
raunasprengingu.
Vinnsluhraði Kyrrahafsblárrar
er um 15.000 sinnum meiri en venju-
legrar einkatölvu. Minni hennar er
jafnframt um 80.000 sinnum stærra
en við eigum aö venjast í heimilis-
tölvunum. Flókna útreikninga, sem
tæki jafnvel mjög öflugar tölvur
nokkra mánuði að framkvæma, er
hægt að gera í þessari tölvu á örfá-
um dögum.
En það er margt fleira hægt að
gera með grip sem þessum. Til
dæmis er hægt að nýta tölvuna til
að reikna út loftslagsbreytingar á
nákvæmari hátt en áður hefur ver-
ið hægt og til að bæta hönnun flug-
véla. Að auki hafa háþróaðar tölvur
hjálpað læknavísindunum undan-
farið við lyfjaþróun og sparað þeim
mikinn tíma sem annars hefði farið
í tímafrekar tilraunir.
Leikjaframleiðendur hagnast
Nú hafa margir leikjaframleið-
endur kynnt afkomu sína á þriðja
fjórðungi ársins og sumir jafnvel
gefið út ársskýrslur sínar með upp-
lýsingiun um afkomu. Helsta niður-
staðcm er sú að þessi starfsgrein fer
ört vaxandi og almennt er afkoma
fyrirtækjanna með ágætum.
En þó er ljóst að hagnaðurinn er
langmestur meðal stærstu fyrir-
tækjanna í bransanum. Umfangs-
miklir leikjaframleiðendur, eins og
Electronic Arts og Acclaim Enterta-
inment, hreinlega raka til sín fé.
Síðamefnda fyrirtækið varð næst-
um gjaldþrota fyrir tveimur árum
en tekst með undraverðum hætti að
skila 21 milljón dollara í hagnað í
ár. Sólin skín ekki alveg eins mikið
á meðalstór fyrirtæki á þessum
markaði. Allar spár benda til þess
að stóru fyrirtækin muni í náinni
framtíð kaupa upp helstu óháðu fyr-
irtækin. Útlit er fyrir að mörg þess-
ara fyrirtækja hreinlega neyðist til
að leita á náðir risanna til að forð-
ast skipbrot. Dæmi um leikjafyrir-
tæki í vandræðum eru Activision
og Interplay sem hafa verið rekin
með miklu tapi á síðustu misserum.
aðalfundur
Framhaldsaðalfundur Sameinaða
lífeyrissjóðsins verður haldinn mónu-
daginn 9. nóvember 1998 kl. ló.OO
að Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38.
1998
Dagskrá:
Tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins.
§ Aðildarfélögum sjóðsins hefur verið sent fundarboð
ásamt fundargögnum. Allir sjóðfélagar eiga rétt til setu
á fundinum með tillögu og málfrelsi. Þeir sjóðfélagar sem
hyggjast nýta sér þennan rétt eru beðnir að tilkynna það
skrifstofu sjóðsins eigi síðar en 6. nóvember n.k. og munu
þeir þá fá fundargögn við setningu fundarins.
^Tillögur til breytinga á samþykktum liggja frammi
á skrifstofu sjóðsins fró 21. september 1998 og geta þeir
sjóðfélagar sem áhuga hafa á að kynna sér þær fyrir
fundinn, fengið þær á skrifstofu sjóðsins eða sendar í pósti.
Einnig er hægt að nálgast tillögurnar á veraldarvefnum.
Slóð sjóðsins er www.lifeyrir.rl.is.
Reykjavík, 18. september 1998
Stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins.
rir
ameinaði
ífeyrissjóðurinn
Græddur er geymdur lífeyrir
SuSurlandsbraut 30
108 Reykjavík
Sími 510 5000
Fax 510 5010
Grænt númer 800 6865
HeimasíSa:
lifeyrir.rl.is
Netfang:
mottaka@lifeyrir.rl.is
|
baraiau
þiriu forskot a _
■■■■irramtiðiria
Framtíðarbörn og Síminn Internet bjóða börnum á aldrinum 5 -14 ára upp á nytsamleg og spennandi tölvunámskeið fyrir aðeins
3.900 krónur á mánuði. Tilboðið gildir aðeins fyrir viðskiptavini Símans Intemet.
3.900 krónur á mánuði
Tölvuskólinn Framtíðarbörn sérhæfir sig í tölvukennslu fyrir böm og unglinga á aldrinum 5-14 ára. Námið sjálft er byggt upp í kringum
tiu ákveðna þætti tölvunotkunar, m.a. ritvinnslu, töflureikni, myndvinnslu, margmiðlun og hagnýtingu tölvunnar og kennt er hvernig
tölvan nýtist við lausnir ýmissa verkefna og vandamála. Markmiðið er að gera tölvunotkun skemmtilega og lifandi og er unnið eftir
ákveðnu þema á hverju námskeiði.
Næstu námskeið hefjast 2. - 7. nóvember. Gert verður hlé á kennslu 14. desember, byrjað aftur 4. janúar og haldið áfram fram
í miðjan maí.
Skráning fer fram á skrifstofum Framtíðarbarna á eftirtöldum stöðum:
Reykjavík, Grensásvegi 13 (Pfaffhúsinu), sími: 553 3322
Akureyri, Skipagötu 16, sími: 4613328, Anna
Akranes, Kirkjubraut 17, sími: 4313350, Borghildur
ísafirði, Mánagötu 6, sími: 456 3168 eftir kl. 20, Bergljót
Selfossi, Tölvuskóla Suðurlands, sími: 482 3937
SIMINNinternet
->
FRAMTÍÐARBÖRN
sími 553 3322
Hönnun: Gísli B.