Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1998, Síða 6
matur
ARGENTÍNA ★★★ Barónsstíg Ua, s. 551
9555. „Bæjarins besta steikhús hefur dalað."
Opiö 18-23.30 v.d., 18-3 um helgar.
CAFÉ ÓPERA ★ Lækjargötu 2, s. 522 9499.
CARPEDIEM ★ Rauöarárstíg 18, s. 552 4555.
CREOLE MEX ★★★★ Laugavegur 178, s.
553 4020. „Formúlan er líkleg til árangurs,
tveir eigendur, annar í eldhúsi og hinn í sal, og
fókusinn á matreiðsluhefðum skilgreinds
svæðis, i þessu tilviki suðurstrandar Banda-
rikjanna, Louisiana, Texas og Nýju-Mexíkó."
Opið 11.30-14 og 18-22 á virkum dögum en
18-23 um helgar.
EINAR BEN ★★ Veltusundl 1. 5115 090.
„Leggur meiri áherslu á umbúðir en innihald.
Býður yfirleitt ekki upp á vondan mat og verður
því seint jafnvinsæll og Fashion Café eöa Planet
Hollywood." Opiö 18-22.
HARD ROCK CAFÉ ★★ Krlnglunnl, s. 568
9888. „Staðurinn hæfir fólki, sem þolir tvöfalt
verð fyrir góöa hamborgara og daufa ímynd þess
að vera úti að borða. Þjónustan jafn alúðleg og
ágæt og fýrr." Opiö 11.30-23.30.
HÓTELHOLT ★★★★★ Bergstaðastrætl 37,
s. 552 5700. „Listasafnið á Hótel Holti ber í mat-
argerðariist af öðrum veitingastofum landsins.
Þar fara saman frumlegir réttir og nærfærin mat-
reiðsla, sem gerir jafnvel baunir aö Ijúfmeti." Opiö
12-14.30 og 19-22.30 virka daga, 12-14.30 og
18-22 föstu- og iaugardaga.
HÓTEL ÓÐINSVÉ ★★ v/Óðlnstorg, s. 552
5224. „Stundum góður matur og stundum ekki,
jafnvel í einni og sömu máltið." Opiö 12-15 og
18-23 virka daga, 12-15 og 18-23.30 föstu-
og laugardaga.
IÐNÓ ★★★ Vonarstrætl 3, s. 562 9700.
„Matreiðsla, sem stundum fer sínar eigin slóð-
ir, en nær sjaldan hæstu hæðum. Enginn réttur
var aö neinu leyti misheppnaður, en fáir minnis-
stæðir." Opiö frá 12-14.30 og 18-23.
ÍTALÍA ★★ Laugavegi 11, s. 552 4630.
„Eignarhaldið er ítalskt, kokkarnir eru ítalskir og
gæðaþjónustan er hálfitölsk. Það, sem tæpast
hangir í ítölskunni, er matreiöslan." Opiö
11.30-11.30.
KÍNAHÚSIÐ ★★★★ Lækjargötu 8, s. 551
1014. „Margt er það, sem dregur, matreiðsla,
verðlag og andrúmsloft, sem samanlagt gera
Kinahúsið að einni af helztu matarvinjum mið-
bæjarins." Opiö 11.30-14.00 og 17.30-22.00
virka daga, 16-23 laugardaga og 17-22 á
sunnudögum.
KÍNAMÚRINN ★★ Laugavegl 126, s. 562
2258 „Kínamúrinn eitt fárra frambærilegra veit-
ingahúsa hér á landi, sem kenna sig við aust-
ræna matreiðslu." Opiö 11.30 til 22.30 alla
daga nema sunnudaga frá 17.00 til 22.30.
LAUGA-ÁS ★★★★ Laugarásvegi 1, s. 553
1620. „Franskt bistró að íslenskum hætti sem
dregur til sín hverfisbúa, sem nenna ekki að
elda í kvöld, barnafjölskyldur utan úr bæ og
ferðamenn utan'af landi og frá útlöndum." Opiö
11-22 og 11-21 um helgar.
LÆKJARBREKKA ★★ Bankastrætl 2, s. 551
4430. „Matreiöslan rambar út og suður, góð,
frambærileg eða vond eftir atvikum." Opiö
mánudaga-miövikudaga 11-23.30, fimmtu-
daga-sunnudaga 11-0.30.
MADONNA ★★★ Rauðarárstíg 27-29, s.
893 4523 „Notaleg og næstum rómantisk
veitingastofa með góðri þjónustu og frambæri-
legum Ítalíumat fýrir lægsta verð, sem þekkist
hér á landi." Opiö virka daga 11.30-14.00 og
18.00- 23.00 og 17-23.30 um helgar.
MIRABELLE ★★★ Smlðjustíg 6., s. 552
2333. „Gamal-frönsk matreiðsla alla leið yfir í
profiteroles og créme brulée." Opiö 18-22.30.
PASTA BASTA ★★★ Klapparstíg 38, s. 561
3131. „Ljúfir hrfsgrjónaréttir og óteljandi til-
brigði af góöum pöstum en lítt skólað og of upp-
áþrengjandi þjónustufólk." Opiö 11.30-23 virka
daga og 11.30-24 um helgar. Barinn eropinn til
1 virka daga og til 3 um helgar.
LA PRIMAVERA ★★★★ Austuistræti 9, s.
5618555. „Sjálfstraust hússins er gott og næg
innistæða fýrir því." Opiö 12.00-14.30 og
18.00-22.30 virka daga og um helgar frá
18.00-23.30.
RAUÐARÁ ★ Rauðarárstíg 37, s. 562 6766.
8REX ★★★ Austurstrætl 9,
s. 511 9111 „Rex kom mér
* á óvart með góðri, fjöl-
: breyttri og oftast vandaðri
matreiðslu, með áherzlu á
einföld og falleg salöt, mis-
: jafnt eldaðar pöstur og hæfi-
! lega eldaða fiskrétti." Opiö
________ j 11.30-22.30.
SKÓUBRÚ ★★★ Skólabrú 1, s. 562 4455.
„Matreiðslan er fögur og fín, vönduð og létt, en
dálitið frosin. Þjónustan er kurteis og hófsöm."
Opiö frá kl. 18 alla daga.
VIÐ TJÖRNINA ★★★★ Templarasundl 3, s.
551 8666. „Nú virðist Tjörnin endanlega hafa
gefið forystuna eftir og raunar annað sætið líka,
gerir oftast vel, en ekki alltaf og mistekst raunar
stundum." Opiö 12-23.
ÞRÍR FRAKKAR ★★★★ Baldursgötu 14, s.
552 3939. „Þetta er einn af hornsteinum ís-
lenskrar matargerðarlistar og fiskhús landsins
númer eitt." Opiö 12-14.30 og 18-20 virka
daga og 18-22 um helgar en til 23 föstu- og
laugardag.
TTt-? Á
nJ&M nfe.ll
www.visir.is
Það er frelsið sem heillar Tolla
við tölvur og internet.
Laugardaginn 5. desember opnar hann
nýstárlega sýningu í Bílar og list við
hliðina á Vegamótum. Sýningin er
í samvinnu við Aco og kemur
nýi ilVlac-inn mikið við sögu.
Þessi myndlistarsýning er ekki
bara fyrir listfræðinga með
kampavínsglös. Þessi sýning
er fyrir íslendinga og verður í
beinni á www.apple.is.
_ j-r
sijóranna
ful
Internetið og tölvur eru framtíð-
in! Þetta er vinsælt slagorð hjá
stórpólitíkusum en það býr
kannski ekki mikið á bak við inni-
haldslaus slagorð. Bestu hlutimir
eiga það oft til að gerast að frum-
kvæði einstaklinga en ekki þjóða.
Heildin verður of einlit og fáir
vilja bregða út af venjunni. Og
venjan í myndlistarheiminum er
að opna sýningar i galleríum.
Venjan í bókaiðnaðinum er að
gefa bækur út fyrir jól og kvik-
myndagerðarmenn taka upp á
filmu og sýna í bíó. Þeir gera þetta
ekki endilega vegna þess að það sé
betra, hentugra, ódýrara eða lík-
legra til árangurs. Þetta er meira
bara vegna þess að þannig hefur
það verið í gegnum tíðina. Tolli er
ekki einn af þeim sem hlusta á
hópsálina um hvernig hlutirnir
eigi að vera. Hann er þekktur fyr-
ir að gera það sem honum sýnist.
„Sýningin samanstendur af
fimmtíu tölvum uppi í Bílar og
list,“ segir Tolli aðspurður hvað
sé eiginlega í gangi með þessa
sýningu. Hann bætir því við að á
skjá tölvanna séu myndir eftir
hann.
„Svo er þarna líka myndband
sem ég hef unnið með tónlistar-
manninum Mister BIX og Saga
film.“
Hvaö tölvupœlingar eru þetta?
„Það er frelsi internetsins.
Þarna eru menn að opna dyr sem
brjóta niður alla múra á milli
listamannsins og listunnandans.
Svo maður verði svolítið Einars
Máslegur í þessu þá er tími kaup-
félagsstjóranna liðinn og skæru-
liðarnir eru að koma út úr skápn-
um. Kaupfélagsstjórinn er þá gall-
eríseigandinn. Þeir ráða öllu í
þessum bransa. Velja hvað er sýnt
og svo framvegis en þessu getur
intemetið breytt.“
Að þessari sýningu stendur
verslunin Aco, í samvinnu við
Tolla. Þeir eru að kynna iMac-inn
sinn sem þykir með fríkaðri hönn-
unum á markaðnum.
„Við erum að gera Jóni Jóns
kleift að fara í gallerí,“ segir Ólaf-
ur Hand hjá Aco aðspurður af
hverju þeir séu að taka þátt í
þessu. „Við erum að sjálfsögðu
líka að kynna nýju tölvuna en
vildum gera eitthvað annað en
bara auglýsa í blöðum. Svo ég
hringdi í Tolla, sem ég kannast
við í gegnum íþróttir, því hann er
alltaf til í eitthvað nýtt. Og þetta
verður þannig að hægt er að koma
þarna og skoða sýninguna og fá
stóra og vandaða útprentuna af
myndinni. Það kostar eitthvað lít-
ið og peningamir renna svo beint
til Barnaspítala Hringsins.“
„Sýningin verðrn- einnig opnuð
á Netinu," segir Tolli og bætir því
við að þessi tjáskipti séu stór part-
ur af framtíðinni.
„Og á Netinu gefst landsbyggð-
arfólki einnig kostur á að kaupa
útprentanir og jafnvel komast í
samband við listamanninn,“ bætir
Ólafur við.
„Bjöm Bjarnason mun síðan
opna sýninguna í gegnum inter-
netið,“ segir Tolli. „Það verða
fimmtíu skjáir með Bimi þama.
Hann verður margklónaður því
hann verður í Danmörku á þess-
um tíma.“
Fyrir utan þessar pælingar allar
- sem verða til sýnis í Bílar og list
- er Tolli einnig að búa til marg-
miðlunardisk sem kemur á mark-
að á komandi misserum. Það er
því miður ekki hægt að koma með
mikla yfirlýsingar í þeim efnum
fyrr en það er komið betur á
hreint en það er hægt að eyða
klukkutíma í desember í heimsku-
legri hlut en að kíkja og kaupa sér
útprentun á engum öðrum en Toll-
anum. -MT
Tilveran:
Grænt og
bleikt friðarríki
Þjónustan er elskuleg og kemur
nógu af köldu vatni og mjúku
brauði á borðið, meðan beðið er
eftir matnum. Vínlistinn er stutt-
ur, vel valinn og ódýr, með góðu
Chile-víni í glasatali. Það eru
einmitt svona staðir, sem við
þurfum fleiri af til að fá almenn-
ing til að lyfta smekk sínum af
skyndibitaplani yfir á fyrstu þrep
almennilegs matar-
æðis.
Blaðlaukssúpa
dagsins var því
miður eins og oftar
áður hefðbundin
uppbökun á
hveiti. Græn-
metissúpa dags-
ins var skárri,
einkenndist af
tómati og ristuðum brauð-
teningum. Bezta súpan var
tært grænmetisseyði með miklu
af rækjum, laxi, lúðu, kræklingi
og sveppum, hressileg vetrarsúpa.
Salat dagsins var ferskt, en ein-
kenndist af jöklasalati, borið fram
með örlitlu af rækjum og
skinkuræmum.
Hæfilega elduð og eins góð og
„Það eru einmitt svona staðir, sem við þurfum fleiri aftil að fá
almenning til að lyfta smekk sínum af skyndibitaplani yfir á
fyrstu þrep almennilegs mataræðis.“
hún gerist bezt á landinu var
steikt tindabikkja með skemmti-
lega sterku sítrónusmjöri, hæfi-
lega elduðum kartöflum og góðu
hrásalati, tvímælalaust bezti rétt-
ur staðarins. Hins vegar var
tvenna staðarins, rauðspretta og
steinbítur, of mikið elduð, með
hæfilega elduðum kartöflum, of
þykktri humarsósu og sæmilegu
hrásalati.
Hin tvenna staðarins, lamb og
grís, var einnig ofelduð, einkum
grísinn, sem var orðinn þurr. Með
henni var samt ágætlega léttsoðið
grænmeti og kartöflustappa, bök-
uð í hálfu hýði af stórri bökunar-
kartöflu, rauðlaukur og tómatar.
Svipað meðlæti, og kryddlegnar
perusneiðar að auki, fylgdi hæfi-
lega léttsteiktum svartfuglsbring-
um með þunnri og góðri, en hlut-
lausri gráðostasósu.
ís staðarins var lagskiptur
vanillu og súkkulaðiís fíngerður
með kiwi og vatnsmelónusneið-
um. Ostakaka staðarins var ein-
fold og bragðmild, lítið þéttari en
búðingur. Kaffi var þunnt, en
gott. Jónas Kristjánsson
Saltnotkun hefur minnkað til
bóta, en eldunartímar á fiski eru
enn óþarflega breytilegir á Tilver-
unni, sem um nokkurt skeið hef-
ur haldið uppi merki framúrskar-
andi hagstæðs verðs á frambæri-
legum mat í Hafnarfírði. Þetta
grænþiljaða og bleikmálaða frið-
arríki er búið að festa sig í sessi á
horni Fjarðargötu og Linnetstígs.
Afspyrnuljótir pipar- og salt-
staukar i formi grænmetis
og ávaxta skera í augun,
þar sem rúmt er setið við
heimilislegar aðstæður
í þægilegum stólum við
kögurdúkuð borð undir
lágværri tónlist og reynt að
horfa á lítil og skemmti-
leg málverk frá Spáni.
Á kvöldin er hægt að
velja milli sex rétta, auk
súpu og eftirréttar, fyrir
1700 krónur að kaffí meðtöldu.
Val milli fimm rétta, auk súpu, í
hádeginu kostar 870 krónur. Þetta
verðlag er hvergi slegið út á boð-
legum veitingastað á íslandi,
nema á Laugaási í Reykjavík, og
takmarkar annan metnað staðar-
ins.
f Ó k U S 27. nóvember 1998
6