Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1998, Síða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1998, Síða 9
Ómar Blöndal Sigurgeirsson, 44 ára: Bara óþroskuð bönd í dag „Ég kaupi ab meðaltali svona 4-5 plötur á mánuði. Ég fylgist mikið með músík, bæði gamalli og nýrri." Hlustarðu þá líka á drömmenbeis? „Nei, ég er nú eigínlega kominn alveg yfir í djassinn. Fyrir svona einu og hálfu ári fór ég yfir í djassinn svo ég er byrjandi í þeirri deild. Maður hafði bara heyrt þessa tónlist úr léleg- um græjum svo það opnuðust nýir heimar þegar maður fékk sér almennilegar græjur. Fyrir djassinn var maður í Pink Floyd og þeirri deild." Þannlg að þú ert hættur að fylgjast með því sem hægt er að kalla það „nýjasta í popplnu“? „Já, það er lítið varið í það.“ Hvað er mlnna varið í það en þegar þú varst ungur? „Flestir sem eru að spila í dag eru óþroskuð bönd en þegar maður hlustar á þessa gömlu djassista, Miles Davis og fleiri, eru þeir mörg- um skrefum fyrir framan." Hvað verðurðu að hlusta á þegar þú ert orðinn 75? „Djass!" merkilegt" og „alveg eins og eitthvað annað sem var í gangi þegar ég var ung/ur“. Þessi afneitun er athyglis- verð og má kannski setja í samband við þá staðreynd að fólk saknar ung- lingsáranna. Afneitunin hefur verið viðloðandi síðan rokkið varð til. Á fæðingartíma rokksins í kringum 1956 fannst kántrístjörnunni Bob WiUis það vera „alveg eins og ég hef verið að gera síðan 1935“, hippunum fannst pönkið vera rugl og fólk í dag sem fílaði Pixies og R.E.M. finnst „þessi tölvutónlist alger vitleysa. Það getur hver sem er sem á tölvu gert þetta,“ segir það. Það má vel vera að þetta sé allt sama helvítis vitleysan og um þrí- tugt fer fólk sem á annað borð hlust- ar enn þá á tónlist (aðra en þá sem heyrist úr útvarpinu) mjög oft að hlusta á klassíska tónlist og djass, sem er athyglisverð þróun og svipað því ef fólk með myndlistaráhuga gæfist upp á að fylgjast með um þrí- tugt og færi að leggja komur sínar í Þjóðminjasafnið til að mæna á gamlar útskomar hurðir. Að hlusta á klassík og djass þykir enn bera vott um þroska, þó í raun sé klassík mjög oft bara popp síns tíma, sbr. poppið í Mozarti. Þá þykja „erfið- ar“ tónsmíðar - þ.e.a.s. eitthvað sem maður getur aldrei flautað í sturtu - merkilegri og „þroskaðri" en popp, og t.d. er tónlistin flokkuð hjá Stefi eftir a til e kerfi; í lægsta flokkinn - a - (6 punktar) fer popp- ið, en „alvarlegri" tónsmíðar í e- flokk (24 punktar). Ríkið heldur vemdarhendi yfir þessari óréttlátu mismunun og auðvitað verður ekk- ert réttlæti í tónlistarheiminum fyrr en þrjár mínútur af Skítamóral í útvarpinu gefa sömu Stef-gjöld og þrjár mínútur af Atla Heimi. Fólk með óslökkvandi tónlistará- huga færir sig yfir í klassík eða djass en meiri hluti fólks fer að hlusta á „rólegri" tónlist með aldrinum. Kerl- ingapopp í anda Celine Dion er því vinsælast þegar fólk fer yfir þrítugt enda selur hún eina plötu á hverri sekúndu árið um kring. Örfá undan- tekningartilfelli em þegar fólk um og yfir þrítugt fylgist enn þá með þvi „nýjasta" í poppinu, en ég vil ekki taka svo djúpt í árinni að segja að það sé óþroskað, kannski frekar segja að það búi yfir víðsýni eða vilja halda dauðahaldi í unglinginn í sjálfu sér. 7. Mið fuliorðinsár (40-60; Lagt af mörkum / stöðnun - Hínn mióaldra fær tilfinningu fyrir því aö hann sé aó leggja eitthvaö af morkum í lifinu. í gegnum fjolskyldu eóa vinnu. eöa hann veröur var viö tilgangsleysi. Kerlingapopp og græjukarlar Ef fólk á þessum aldri tæki sig til og færi að fila Chemical Brothers væri það einfaldlega álitið eitthvað skrítið eða þá illa haldið af gráum fiðringi. Tónlistarsmekkurinn er yf- irleitt löngu staðnaður og bundinn við það sem hlustað var á á 5. eða 6. stigi, þ.e. fólk á þessum aldri í dag vill heyra þetta „gamla góða“ og stillir á Gullið eða Stjörnuna eða hef- ur sökkt sér djúpt í klassísku forn- leifafræðina. Að heyra „Fyrsta koss- inn“ í útvarpinu rifjar upp gamla tima í Glaumbæ og sinfónía eftir Beethoven býr til róandi sefjun. Þeir sem ólust upp með rokkinu hafa þó margir góðlátlega meðaumkun með tónlistaráhuga afkvæmanna og ef þeir vilja vera einstaklega „líbó“ þykjast þeir jafnvel hafa áhuga á því sem unglingurinn filar. Karlar á þessum aldri fyllast oft græjuæði og vilja fá sér sem kraftmestar ster- eogræjur til að spila Stóns eða Kinks og halda að ef sándið sé betra verði æskuminningin sterkari. Konurnar eru enn á Celine Dion-stiginu og fyll- ast oft jákvæðu æði ef lag verður vinsælt í útvarpinu, t.d. lag sem móðir syngur til heyrnarlausrar dóttur eða þegar Sigga Beinteins eða Diddú gefa út plötu; þær hlusta sem sagt eftir persónuleika poppar- ans, lesa Séð og heyrt og tala sín á milli í saumaklúbbunum um hvað hún Sigga sé nú alltaf skemmtileg. 8. Sið-fullorðinsár (60 og ufjjj úr) Hfcilleikl / orvænting - Þegar hugsaó er til haka finnur hinn aldraöi annaöhvort fyrir ánægju meó lífiö eöa finnst honum hafa mis- tekist og fyllist orvæntingu, því þaö er oröiö of seint aö gera eitthvaö i málinu. Kemur í liós hvort Elvis fyigir meo á eiiiheimilin Hingað til hafa gamlingjar hlust- að á það sem þeir hlustuðu á þegar þeir voru upp á sitt besta, harm- óníkutónlist, einsöngslög og karla- kóra, enda hefur stöðnun ríkt ára- tugum saman í tónlistarhlustun fólks og fáránlegt fyrir sjötugan mann að taka upp á því að fara að fíla Botnleðju, hann yrði sendur babú á Klepp ef hann mætti i Mar- ylin Manson-meiköppi á hannyrða- kvöld. Svo undarlega sem það hljómar þá er stöðnun kallað þroskamerki; ef fólk er eins áratugum saman, hlust- andi á sömu tónlistina í sömu flóka- inniskónum, þá er það viturt og spakt. Það er einhver pirrandi þver- sögn í þessu. Á lífið ekki að vera sí- Grímur Ormsson 69 ára: Thikk í ktassfldnni „Ég er náttúrlega gamall og ég ólst upp við harmóníkumúsík . Á böllum var bara harm- óníkumúslk . Ég er nú meira tyrir hana og ís- lensk sönglög en samt er maður aðeins að færa sig út í klassíkina. Ég ætla t.d. að fá mér plötuna með Diddú núna. En nýju tónlist- ina, nei, ég er ekki fyrir hana. Rokkið var komið þegar ég var yngri, það er ágætt." Hefur smekkurinn breyst með aldrinum? „Ég er kominn I klassíkina meira núna, þá tónlist heyrði maður aldrei áður.“ Dlddú þá aðallega? „Nei, allt þara, kóra og óperur lika. Ég kaupi einstaka sinnum diska, nokkra á ári, helst eitthvað í klassíkinni." Hvað verður gamla fólklð að fila eftir fimmtíu ár? felld þróun og leit? Þessi speki skilar sér ekki í tónlistaráhuga. Brennandi tónlistaráhugi virðist vera æskumerki, það að hafa staðn- aðan smekk þroskamerki. Megin- þorri fólks hlustar því á sömu tónlist- ina frá því að það er tuttugu og fimm þar til það er á lokastiginu, að „búa sig undir dauðann". Kannski þetta sé út af því að í eðli sínu er popptónlist- in alltaf eins, grípandi melódíur ofan í gefandi takti, og kannski eru Elvis, Sex Pistols, Duran Duran og Goldie í raun það sama, bara popphjól sem er fundið upp aftur og aftur. Kannski gefst fólk upp á poppi og staðnar i gömlu fari þegar það kemst að því að þetta er allt sama tóbakið, það hætt- ir að nenna að eltast við rófuna á popphundinum sem hleypur gjamm- andi í hringi. Það verður alla vega gaman að kíkja á Grund árið 2050 þegar Wu- Tang Clan berst úr bingósalnum og gamlingjarnir sitja bognir á göngun- um og „dissa þetta helvítis „skvúdd- plong-flobb“ sem unglingarnir eru svo hrifnir af í dag“. „Það er erfitt að segia. Þetta er voðalega rikt í manni, tónlistarsmekkurinn, ég miða bara viö sjálfan mig. Það sem maður elst upp við og er mest I gangi fram yfir tvítugt verður alltaf rikt I manni en svo breytist það að- eins.“ Hvað helllar vlð klassíklna? „Það gefur manni svolítið. Mér finnst t.d. meira varið I að heyra karlmenn syngja. Þeir gefa manni trukk og upplifun ef þeir eru sterkir og góðir." Landsbankin n 27. nóvember 1998 f Ó k U S 9

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.