Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1998, Page 10
Mel B og kryddpiurnar stetna ao
því að eiga mest seldu plötuna
fyrir þessi jól.
Hver hreppir
jólahnossið?
í kringum HM í fótbolta í sum-
ar stóð baráttan í breska poppinu
á milli nokkurra poppara sem
herjuðu með fótboltatengt popp á
markaðinn. Nú eru jólin á næsta
leiti og baráttan að verða spenn-
andi um það hver hreppir jóla-
hnossið og verður með toppsmá-
skífuna fyrir jólin. Flestir veðja á
Spice girls sem gefa út lagið
„Goodbye" þann 14. des„ en sigur-
stranglegur þykir einnig
bransagaurinn Simon Cowell
sem sendir hina 14 ára Albertu
með „The yo-yo song“ á markað-
inn sama dag. Simon þessi ber
ábyrgð á Teletubbies-dúkkunum,
sem hafa verið að gera allt vit-
laust á smábarnamarkaðinum síð-
ustu árin. „Teletubbies say eh-
oh!“ var einmitt í öðru sæti fyrir
siðustu jól á eftir „Too much“
Kryddpíanna. „Ég er búinn að gef-
ast upp á að reyna að vera með
jólasmellinn,“ segir Simon, „og
verð himinlifandi ef ég verð núm-
er tvö.“
Kryddpíumar hafa þegar verið
tvö ár í röð með jólasmellinn -
met sem Bítlamir einir hafa áður
náð - og veðbankar spá þeim aftur
sigri í ár. Aðrir popparar sem
ætla sér að fita bankainnstæðuna
með jólasmelli þetta árið era m.a.
Jane McDonald (“Cruising to
christmas"), B*Witched (“To you I
belong“), Billie (“She wants
you“), Boyzone (“I love the way
you love me“), Fat Les (“Naughty
christmas (“Goblin in the office“)
og Cliff gamli Richards, sem gef-
ur út „Vita Mia“.
jJargt að
komafrá
Neil Young
Hinn aldni ■
meistari Neil I
Young hefur I
fullgert nýja ■
plötu sem lítur ■
dagsins ljós I
na'Sta ýgj
ári. A ])lötunni I
snýr linnn aftur I
i akkústísku I
ræturnar sem K
hafa einkennt I
feril hans. Um H^HKli \
sama leyti er HHHHH.
von á safnkassa með gamla band-
inu hans, Buffalo Springfield, sem
m.a. inniheldur sjö lög sem hafa
ekki heyrst áður. Neil á ein 100 lög
á lager sem ekki hafa heyrst og nú
er einnig væntanlegur kassi með
þessum upptökum. Þessi útgáfu
hefur verið á útgáfuáætlun Wam-
er Brothers sl. fimm ár en nú er
sem sagt komin hreyfing á málið.
Séu þessar fréttir ekki nóg fyrir
aðdáendur karlsins má einnig
geta þess að þær plötur hans sem
ekki hafa komið út á geisladiski
eru nú einnig væntanlegar:
„American Stars 'n' Bars“, „On
the Beach“, „Time Fades away“,
„Hawks and Doves“ og
„Re*ac*tor“.
plötudomur
Sætabrauð
Bang Gang - You: ★★★
Goggi heitir reyndar Panayiotou
að eftimafni og er Grikki alinn upp
í London. Hann og Andrew Ridgel-
ey voru Wham!, einn stærsti sitt-að-
aftan hópurinn, en árið 1987 skildi
leiðir, Andrew flutti í einangrun
upp í sveit en George varð sólógoð.
Hann hefur gefið út þrjár sólóplöt-
ur; „Faith“ (1987), „Listen without
Prejudice Vol. 1“ (1990) og „01der“
(1996). Nú er kominn út tvöfaldur
pakki, „Ladies & Gentlemen - The
Best of George Michael", með lög-
um af plötunum hans og nýjum lög-
um. Plöturnar skiptast eftir stuð-
gildum, ein er fyrir hjartað, hin fyr-
ir fæturna, og þetta myndarlega
safn er skreytt textum og fleiri
myndum af popparanum en
nokkurn mann gæti hugsanlega
vantað.
Ekki það að Goggi sé ekki sætur.
Hann er smjörkúkur af guðs náð,
enda óð hann í sénsum á Wham!
tímabilinu. Skömmu eftir að hafa
reynt að komast upp á Brooke Shi-
elds (“Mamma hennar rak mig út
þegar ég hélt að það væri að
takast") komst George að því að
hann væri hommi. Þetta var 1990 og
þá var hann orðinn 27 ára.
„Miðað við mann sem hafði riðið
eins mikið og ég var ég ömurlega
óþroskaður kynferðislega. Ég hafði
ekki hugmynd um út á hvað ástin
gekk. Kynlíf er ekki bara að fá
stand með einhverjum, heldur að fá
stand og verða ástfanginn
líka.“
Goggi kynntist brasil-
ískum hönnuði,
Anselmo Feleppa, og
þeir voru par þar til
Anselmo lést úr eyðni-
tengdu heilablóðfalli
1993. George syrgði
hinn látna ástvin
George Michael ásamt núvarandi
unnusta, Kenny Goss.
og lenti í miklum málaferlum við
Sony-samsteypuna út af höfundar-
rétti og söluhagnaði. Eftir mikið
maus tapaði hann málinu. Hin
langa þögn á milli platna skýrist af
þessum tilfinningahræringi öllum,
en þegar George kom loksins með
plötu, „01der“, var hann, eins og
nafnið bendir til, orðinn eldri og
reyndari, enda búinn að fá sinn
skerf af raunum tilverunnar.
Bömmerinn var því ekki allur því í
febrúar ‘97 lést móðir hans, sem
hann hafði haldið miklu og djúpu
sambandi við. Enn á ný fór poppar-
inn í rusl, kynntist þó nýjum
kærasta, Texasgæjanum Kenny
Goss, og reif sig hægt og bítandi
upp úr lægðinni. Nánustu vinir og
samstarfsmenn vissu að George var
hommi, en heimurinn var ekki al-
veg með það á hreinu. Hann komst
þó að því á stórbrotinn hátt þann 7.
apríl sl.
George með hundinum
sínum, sem fílar líka
að stunda kynlíf
á almannafæri.
Eg skal sýna þer minn
ef þú sýmr mer þinn
Þá var George handtekinn fyrir
„ósæmilegt athæfi á almannafæri"
af tveim löggum fyrir framan al-
menningssalerni í Los Angeles.
Hann er ekki í nokkrum vafa að
þaö hafi verið tilgangur laganna
varða að koma höggi á sig. Goggi
var í mesta sakleysi að þykjast
pissa í rennuna er inn kemur karl-
maður og fer að þykjast spræna
við hliðina. Samkvæmt lögreglu-
skýrslum sem þessi karlmaður,
óeinkennisklædda löggan Rodrigu-
ez, gerði; „beindi hinn ákærði reist-
um limi sínum að mér og fróaði sér
með hægri hendi.“ Löggan fór und-
an í flæmingi og aumingja Goggi
var handtekinn þegar hann fór út.
Afleiðing: smásekt og best skráða
„komið-úr-skápnum“ saga poppsög-
unnar.
„Ég hef alltaf filað að stimda kyn-
líf á almannafæri," segir George.
„Einu sinni fór ég upp á einhverja
stelpu á bilastæði eftir Wham! tón-
leika. Það var hópur af fólki í kring,
öryggisverðirnir voru þarna, og ég
var pissfollur. Það hringdi samt
enginn á lögguna þá.“
Hvaö geröist eiginlega á kamrin-
um?
„Ég gat bara ekki setið á mér en
ég kom ekki nálægt gaurnum. Hann
byrjaði líka, ég skal sýna þér minn
ef þú sýnir mér þinn. Og þegar þú
sýnir mér þinn þá tek ég þig fastan.
Þetta er það sem geröist og ég var
bálreiður.
Hann var líka myndarlegur, þetta
var enginn Columbo með typpið á
sér úti. Um leið og ég sýndi honum
typpið á mér var hann farinn og ég
stóð þarna og hugsaði; „vá, þetta
tók fljótt af,“ ég gerði ráð fyrir að
honum þætti ekkert varið í mig. En
þetta er bara það sem gerist. Ef
menn vilja pikka hvor annan upp
sýna þeir hvor öðrum á sér
typpið. En menn eru yfirleitt ekki
teknir fastir og ég hafði enga
ástæðu til að halda að þessi gaur
væri lögga."
Ég er bestur
Bresku blöðin æptu auðvitað
„Hneyksli, hneyksli" á forsíðum, en
ferill Georges dróst ekki í svaðið,
enda er almenningur ekki eins
hneykslunargjarn og blöðin sem
hann les. Skítt með það þó Goggi sé
graður, hverjum kemur það við?
Hann er poppari; laga- og textasmið-
ur sem hefur samið helling af lög-
um sem fólki þykir vænt um og hef-
ur notað sem sándtrakk við eigið
lif. Og það er aðalatriðið.
George með foreldrum sínum,
Jack og Lesley Panayiotou.
„í því sem ég geri er ég bestur,"
segir George. „Hæfileikar mínar
eru mjög hefðbundnir. Ég hef ekki
áhuga á öðru en lögum sem stand-
ast tímans tönn. Ég hef alltaf viljað
búa til tónlist fyrir fólk og fæ gæsa-
húð þegar ég geri eitthvað sem ég
finn á mér að fólki mun líka við.
Núna get ég samið texta um eitt-
hvað sem er mjög mikilvægt fyrir
mig og látið það virka innan popp-
lágs sem allir munu fila. Fyrir mér
er það þróun. Ég virði algjörlega
hæfileika mína.“
George segist vera góður gæi og
besti félagi hans er labradorhundur-
inn Hippy. „Ég er frekar skrýtinn.
Fólk heldur að ég sé jafn hreinlynd-
ur og auðveldur að melta og lögin
sem ég bý til, en í raun er ég mjög
óhefðbundin poppstjarna. Ég er
mikill sómamaður þó ég sé útmálað-
ur sem eitthvað annað. Ég hef aldrei
vísvitandi sært eða komið illa
fram við einhvern. Ég er bara
venjuleg manneskja með
einstaka hæfi-
leika.“ -glh
Hann er þriðja stærsta poppgoð heimsins (á eftir Michael Jackson
og Madonnu) en hann er jafn mannlegur og nágranni þinn. Hann
vílar ekki fyrir sér að reykja gras í viðtölum, hann runkar sér framan
í löggur á almenningsklósettum og hann blótar eins og hann sé
með Tourette’s heilkenni. Hann er George Michael og hann er svalur
Barði Jóhannsson er búinn að
bauka í alls kyns böndum frá því
um fermingu. Einu sinni var hann
í bandi sem kallaði sig Öpp jors,
var að gera frekar rótækt popp og
var með groddalegt grin í gangi;
bandið dreifði t.d. myndum af sér
að míga fram af handriði. Nú virð-
ist Barði búinn að hlaupa af sér
hornin og er kominn út í tónlistar-
stefnuna sem allir ætla væntan-
lega að nota til að feta í fótspor
Bjarkar í útlöndum, stefnu sem
hægt er að kalla „auglýsingastofu-
popp“, því þetta er tónlist af
teikniborðinu, ekki frá hjartanu
heldur heilanum, hönnuð fyrir
markaðinn með sándi sem æpir úr
öllum saumum; „nú er 1998 og
þetta er það sem gengur í dag!“
Þó tónlist Bang Gang sé hönnuð
froða hefur hún tvennt sem fær
hana til að lyftast yfir meðal-
mennskuna og minni spámenn;
Barði er orðinn verulega klár
melódíusmiður og hann er búinn
að fá til liðs við sig eina albestu
söngkonu landsins af nýja skólan-
um, Estheri Taliu Casey. Þetta
gerir þessa plötu að gómsætu
sætabrauði og sætindin eru lík-
lega alveg jafn nauðsynleg í fæðu-
keðju poppsins og rúgbrauðið.
Melódíur Barða eru einfaldar en
eftirminnilegar. Eins og auglýs-
ingastofupopps er siður eru þær
skreyttar nýjustu grúfum og sánd-
um, þó passað að hafa sum sándin
dálítið gamaldags, enda þykir það
svalt. Á „You“ eru ellefu lög, það
síðasta úr David Lynch-myndinni
„Eraserhead", hin frá Barða. Flest
eru glerfin popplög, hvert öðru
betra, en dálítið á sömu línu,
straumlínu. Mörg hafa þegar orðið
vinsæl; „So Alone?“, „Sacred
Things" og „Sleep" eru fljótandi
froða en þó föst í sér og klínast
ekki í eyrunum við hlustun -
möbelfaktaprófuð dægurlög sem
fylla upp í bakgrunninn og heimta
enga sérstaka athygli. Þó tónlistin
sé listilega hrærð upp úr upp-
skriftum St. Etienne, Air og
Portishead hefur Barði hitt
naglann á höfuðið og ekki er hægt
að væna hann um stælingar; Bang
gang er með sitt eigið sánd og íi-
líng og það kæmi ekki á óvart þó
fleiri lög á þessari plötu myndu
feta sig upp vinsældalistana.
„You“ er einfaldlega góð popp-
plata þar sem umbúðir skipta
meira máli en innihald. Bang
Gang hefur ekkert að segja í text-
um og kannski ekkert að segja yf-
irleitt, nema kannski „Hard life,
simple song“, sem er ekki verri
speki en hver önnur. Platan er
sem hress og vel snyrtur púðlu-
hundur á gæruskinni, þægileg,
froðuleg, flott. Ég hefði ekkert haft
á móti því að heyra meiri áhættur
teknar og jafnvel smágrodda sett-
an í gang, þó það sé ljótt að stríða
,,„You“ er einfaldlega góð popp-
plata þar sem umbúðir skipta
meira máli en innihald. Bang
Gang hefur ekkert að segja
í textum og kannski ekkert að
segja yfirleitt
dýrum hefði þessum púðluhundi
ekkert veitt af smásinnepi í rass-
inn - það hefði alveg mátt míga
aðeins fram af popphandriðinu.
Bang Gang verður kannski mál
seinna.
Gunnar Hjálmarsson
10
f ÓktlS 27. nóvember 1998