Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1998, Side 26
f Ó k U S 27. nóvember 1998
Bíóborgin
Mulan ★★★★ Mulan er uppfull af skemmti-
legum hugmyndum og flottum senum, handrit-
ið vel skrifað og sagan ánægiulega laus við þá
yfirdrifnu væmni sem oft einkennir Disney.
Mikil natni er lögð i smáatriði eins og er við
hæfi í teiknimyndum, og aukakarakterar eins
og drekinn og litla (lukku)engisprettan eru svo
,r skemmtileg að þau hefðu ein og sér verið efni
í heila mynd. Gó sí. -úd
A Perfect Murder ★★★ Andrew Davis, leik-
stjóri A Perfect Murder, ræðst ekki á garðinn
þar sem hann er hæstur því að fyrirmyndin,
Dial M for Murder (1954) telst ekki til bestu
mynda Alfreds Hitchcocks. Útkoman er þó
ágætisafþreying sem kemur stundum
skemmtilega á óvart. -ge
The Horse Whlsperer ★★★
Bíóhöllin/Saga-bíó
The Negotlator ★★★ Samuel L. Jakson og
Kevin Spacey eru eru í fínu formi I The Negoti-
ator sem er ágætlega skrifuö sakamálamynd
en ekki nógu heilsteypt. Þeir dreifa athyglinni
frá brotalömum í uppbyggingu myndarinnar og
því hversu aldrei næst að skapa almennilega
spennu í kringum þá dramatísku atburði sem
eru að gerast. -HK
A Smile llke Yours i Mislukkuð kvikmynd um
ung hjón sem langar mikið að eignast barn.
Vandræðagangurinn er mestur þegar reynt er
að fjalla um getnað á opinskáan hátt enda
hefur raunsæi í þessum málum aldrei verið of-
arlega á blaði í Hollywood. Myndin, sem á aö
vera rómantísk gamanmynd, verður því eitt
klúður frá upphafi til enda. -HK
The Avengers ★
Herra Steed og frú
Peel eru leyniþjón-
| ustumenn sem eiga
| í höggi við veðurspá-
mann sem hefur tek-
ið að sér veður-
stjórnun svo það er allra veðra von. En skraut-
legt veðurfar er ekki nógtil að halda uppi heilli
' mynd og vandamáliö hér er að þegar svona
rr.ikið hangir á stílnum þá verður sá að ganga
unp; virka smart og kúl en ekki vandræðalega
tilgerðarlegur. -úd
S.iake Eyes ★★★
Wrongfully Accused *i
Töfrasverðlð ★★
Háskólabíó
Out of Slght ★★★
Þetta er svona
hnsarmynd á yfir-
borðinu en undir
mðri lítill blús um
< tvær manneskjur
sem hefðu sameinast á öörum stað og öðrum
tíma en heimurinn er stundum vondur og
svosem ekkert um það að segja nema að
þetta jafnast allt hjá guði. Steven Soderbergh
stýrir þeim Clooney og Lopez beina leið í höfn.
-ÁS
Stelpukvöld ★★ Persónur allar dregnar skýr-
uin, einföldum dráttum og lifna ágætlega á
tjaldinu. En þetta er ekki merkileg kvikmynda-
gerð, hér er málað á tjaldið eftir númerum og
satt að segja tilheyrir þessi mynd síðdegisdag-
skrám sjónvarpsstöövanna. -ÁS
Maurar ★★★ Vel heppnuð og skemmtileg
tölvugrafísk teiknimynd með rómantísku ívafi
sem öll fjölskyldan getur sameinast um að
sjá. Woody Allen talar fýrir aöalpersónuna Z og
fer á kostum í hlutverki sem skrifað var fyrir
hann. Af öðrum frægum röddum er vert að
geta hlutverka Sylvesters Stallones og Genes
Hackmans sem báðir komast vel frá sínu.-HK
Pdmary Colors ★★★ Mike Nichols hefur búið
til snjalla og góða kvikmynd sem er beitt í
ádeilunni á atvinnufóik í pólitíkinni, hefur góð-
an húmor og er skemmtilega kræf og laus við
fordóma. Þaö er ekki rangt aö draga þá álykt-
un að fýrri hluti myndarinnar sé að miklu leyti
byggður á framboði Clintons árið 1992. -HK
Smálr hermenn ★★ Eina feröina enn er það
brúðuhönnuöurinn og brellumeistarinn Stan
Winston sem stendur með pálmann í höndun-
um þvi það eina merkilega og skemmtilega í
annars einhæfri ævintýramynd er sköpunar-
verk Winstons. Leikstjðrinn Joe Dante, þekkt-
ur hryllingsmyndaleikstjóri á árum áður, hefur
fengist við sams konar atriði og I Small Soldi-
ers en hefur gert betur. -HK
Danslnn ★★★ Ágúst Guömundsson með sína
bestu kvikmynd frá því hann geröi Með allt á
hreinu. Áhrifamikil saga sem lætur engan
® ósnortinn. Vel gerö og myndmál sterkt. Oft á
tíðum frumleg þar sem dansinn dunar í for-
grunni og eða bakgrunni dramatískra atburða.
Leikarar I heild gððir og ekki hallað á neinn
þegar sagt er að Gunnar Helgason, Pálína
Jónsdóttir og Gísli Halldórsson séu best með-
al jafningja. -HK
BJörgun óbreytts Ryans ★★★★
Paulle ★
Kringlubíó
Popp í Reykjavík ★★ Helsta vandamál Popps
I Reykjavík: rysjóttur taktur, blindandi leiðin-
legur á köflum en með þónokkrum smart mó-
mentum. En með nokkrum fínum vísúal-
sprettum og ánægjulegri leiösögn Páls Óskars
f* um næturlífið þá er Popp í Reykjavík alls ekki
slæm sem kynning á tónlistarmenningu nú-
tímans - og tónlistin sjálf er fín. -úd
FJölskylduglldran ★★★
Framhald á næstu s/ðu —♦
Leiksjarmörinn
Kevin Space.y:
na
'fe $6 mHí P* 1
> *1lÉ]ll|, ||
Kevin Spacey og Samuel L.
Jackson sýna stórleik í The Negoti-
ator sem frumsýnd er í dag í Bíóhöll-
inni, Kringlubíói og Nýja bíói á Ak-
ureyri. Um er að ræða spennumynd
þar sem tekist er á um sannleikann
og réttlætið. Spacey og Jackson
leika báðir lögreglumenn sem eru í
misgóðri aðstöðu gagnvart samfélag-
inu.
Kevin Spacey hefur hægt og hljótt
verið að klifra upp á stjörnuhimin-
inn í Hollywood og er nú
meðal virtustu leikara þar
í borg. Það er ekki mikið
vitað um einkalíf Kevin
Spacey og þannig vill
hann hafa það: „Enginn
veit hver ég er og þannig
vill ég hafa það í lengstu
lög því það hjálpar mér að
gera betur sem leikari."
Þetta lét Spacey hafa eftir
sér fyrir fimm árum og
enn hefur hann getað haft
einkalíf sitt fyrir sjálfan
sig þótt sumir telji víst að
hann sé hommi. Sjálfur
segir hann að eina varanlega sam-
band hans sé við hundinn Legacy
sem hann hirti dag einn af strætum
Los Angeles. Einu sinni var hann
spurður hvort hann hefði einhvem
tíma verið í hjónabandi og svarið
var einfalt: „Ég hef verið mjög ná-
lægt því.“
Ódæll í æsku
Vitað er að Kevin Spacey fæddist
Kevin Fowler í New Jersey og ólst
upp í Kalifomíu og að móðir hans er
einkaritari og faðir hans var blaða-
maður. Að þeirra sögn var hann
frekar ódæll í æsku og eftir að hann
kveikti í auðu timburhúsi eitt sinn
var hann sendur í skóla þar sem agi
var mikill. Hann losnaði úr þessum
stranga skóla og fékk að fara í
„venjulegan" skóla þar sem hann
fékk áhuga á leiklist. Þar gekk hon-
um mjög vel og var annar tveggja
nemenda í leiklist sem útskrifuðust
með hæstu einkunn. Hinn nemand-
Helstu kvikmyndir Kevins Spacey:
Heartburn 1986 Working Girl 1988 See
no Evil, Hear no Evil 1989 ; Henry and June
1990 ■ Fall from Grace 1990 Glengarry
Glen Rpse 1992 Consenting Adults 1992
The Ref 1994 Swimming with Sharks 1994
Iron Will 1994 The Usual Suspect 1995 ®
Seven 1995 Outbreak 1995 ► Looking for
Richard 1996 A trime to kill 1996 •
Midnight in the Garden of Good and Evil
1997 L.A. Confidental 1997 • The
Negotiator 1998 A Bug’s Life (rödd) 1998
inn var leikkonan Mare Winning-
ham og léku þau saman í útskriftar-
leikritinu The Sound of Music þar
sem Spacey lék höfuð fjölskyldunnar
Von Trapp.
í Los Angeles reyndi Spacey fyrir
sér sem grínisti með litlum árangri
og ákvað því að farsælast væri að
læra meira og tók áskorum frá vini
sínum og félaga Val Kilmer að inn-
rita sig í Julliard þar sem Kilmer
var við nám. Að tveimur árum liðn-
um yfirgaf Spacey Julliard og réðst
sem statisti við The New York
Shakespeare Festival þar sem hann
frumraun hans á sviöi var boðberi i
Henry V. Spacey fór í kjölfarið að
reyna fyrir sér á Broadway. Heppni
og hæfileikar réðu því að hann fékk
stórt hlutverk í Draugum Ibsens á
móti Liv Ullman. Fékk hann nú í
fyrsta sinn góða dóma. Þetta var
árið 1984. Tilboðin komu til hans en
Spacey tók það rólega: „Ég vil aðeins
hlutverk sem ég er hræddur við,“
Mikil átök eiga sér staö á milli
Samuel L. Jackson og Kevin Spacey.
sagði hann og tók frekar við af fræg-
um leikurum í erfiðum leikritum
heldur en frumflytja sjálfur. Á þess-
um árum lék hann í mörgum góðum
uppsetningum á Broadway, meðal
annars á móti Jack Lemmon í Long
Day’s Journey into Night, uppsetn-
ing sem fékk mikið lof.
Sló í gegn á
sviði i Englandi
Kvikmyndaferill Kevins Spaceys
hefst með litlu hlutverki í Heart-
burn árið 1986. Lék hann misstór
hlutverk í nokkrum myndum en var
alltaf með annan fótinn á Broadway
og fékk Tony verðlaunin sem besti
leikarinn fyrir Lost in Yonkers eftir
Neil Simon. Með The Usual Suspect
má segja að að Kevin Spacey hafi
brotið múrinn gagnvart kvikmynd-
unum. ! hlutverki Roger „Verbal”
Kint sýndi hann magnaðan leik og
fékk óskarsverðlaun sem besti leik-
arinn í aukahlutverki. Þá jók L.A.
Confidental enn á frægð hans. Að
lokum má geta þess að Kevin Spacey
fór mikla sigurfór til Englands á
þessu ári þar sem hann lék í London
aðalhlutverkið í The Iceman Cometh
eftir Eugene O'Neill. Áttu gagn-
rýnendur varla nógu sterk orð til að
lýsa leik hans og er sjaldgæft að hin-
ir ströngu bresku leikhúsgagnrýend-
ur hæli bandarískum leikara jafii-
mikið. -HK
nýjustu
myndirnar?
Rugrats, nýjasta tölvuteikni-
myndin frá Disney sem nú er á
toppi aðsóknarlistans, fær held-
ur slæma útreið; Dave Kehr
hjá New York Daily News kall-
ar hana bæði kunnuglega og
fyrirsjáanlega, Roger Ebert
hjá Chicago Sun-Times hefði
ekki sætt sig við hana þegar
hann var tíu ára og félagi hans
Gene Siskel hjá Chicago Tribu-
ne segir hana valda vonbrigð-
um. Nýjasta mynd Will Smith
og Gene Hackman, Enemy of
the State, frá framleiðandanum
Jerry Bruckheimer (Arma-
geddon) og leikstjóranum Tony
Scott (Crimson Tide), fær góð-
ar viðtökur. Rita Kempley hjá
Washington Post segir hana
innihalda nauðsynlegan lúðra-
blástur og söng en lætin nái þó
ekki að hylja skort á dýpt.
Kollega hennar, Janet MasUn
hjá New York Times segir svo
vera, því sagan renni hraðar
áfram en svo að hægt sé að
staldra við gloppumar. Leikar-
arnir fá einnig mikið hrós og er
Smith meðal annars líkt við
Cary Grant í North by Nort-
hwest en Steve Murray hjá
The Atlanta Journal segir
Hackman vera Hackman „og
það er mikið hrós“. Eins og bú-
ast mátti við eru skiptar skoð-
anir um nýju Woody Allen-
myndina, Celebrity með Leon-
ardo DiCaprio. Mike Clark
hjá USA Today segir hana fara
á langan lista yfir bestu mynd-
ir Allens og bætir því við að
gamli maðurinn sé nálægt sínu
súrasta og besta. Roger Ebert
slær hvorki úr né í; segir hana
Jack Nicholson viö frumsýngu
Rugrats. Hann talar fyrir eina af
persónum myndarinnar, sem
hefur fengiö slælega dóma.
nógu snjalla og óvenjulega til
að afstýra leiðindum, en ekki sé
mikil ástæða til að gleðjast
heldur. Rick Groen hjá
Toronto Globe and Mail er þó
ekkert að skafa utan af því og
segir þessa ræmu hafa átt að
heita „Fúlibær”.
bíódómur
Sam-bíóin - The Negotiator: ★★'i
Lögga gegn löggu
Lelkstjórl: F. Gary Gray. Handrlt: David Ho-
berman og Arnon Milchqan. Kvikmyndataka:
Russell Carpenter. Tónllst: Graeme Revell.
Aðalhlutverk: Samuel L. Jackson, Kevin
Spacey, David Morse, Ron Rifkin og J.T.
Walsh.
Samuel L. Jakson og Kevin
Spacey eru ekki aðeins góðir leik-
arar heldur hafa þeir báðir mikla
útgeislun og eiga auðvelt með að
halda athygli áhorfandans og það
gera þeir svo sannarlega í The
Negotiator og dreifa um leið at-
hyglinni frá brotalömum í upp-
byggingu myndarinnar og því
hversu aldrei næst að skapa al-
mennilega spennu í kringum þá
dramatísku atburði sem eru að
gerast.
Samuel L. Jakson leikur ofur-
löggu, sérfræðing í aðgerðum
gegn mannræningjum, sem kvöld
eitt stendur frammi fyrir því að
vera ásakaður um að hafa stolið
úr sjóðum lögreglunnar og myrt
sinn besta vin. Aðeins Jackson
veit að hann gerði ekkert af því
sem hann er ásakaður um og veit
einnig að hann getur ekki geta
sannað sakleysi sitt gagnvart yfir-
mönnum þar sem greinilegt er að
um samsæri gegn honum er að
ræða innan lögreglunnar. Til að
fá málið á hreint tekur hann fólk
í gíslingu, meðal annars lögreglu-
menn, og býr um sig á tuttugustu
hæð í háhýsi. Heimtar hann að
honum sé fenginn samningamað-
ur sem hann þekkir til og er úr
öðru lögregluumdæmi. Hefst nú
mikið taugastríð milli tveggja
manna sem báðir eru færir í sínu
fagi og treysta engum.
Samuel L. Jackson og Kevin
Spacey eru ólíkir leikarar. Fyrir-
ferðin skipti miklu máli í leik
Jacksons á meðan Spacey leikur á
lágum nótum. Þeir ná samt ein-
staklega vel saman í The Negoti-
ator og samleikur þeirra er magn-
aður. Öll innri spenna sem mynd-
ast er þeim að þakka og er
frammistaöa þeirra svo góð að
það liggur við að þeir komi mynd-
inni upp um einn gæðaflokk.
Hefði sterkur leikstjóri verið við
stýrið hefði The Negotiator getað
orðið meiriháttar spennumynd en
F. Gary Gray er ekki vandanum
vaxinn og er leitt til þess að vita
að þegar leikstjóri fær allan óska-
listann upp í hendumar geti hann
ekki nýtt sér það. Hvað eftir ann-
að missir hann tökin á sögunni og
um leið áhuga áhorfandans og
lokaatriðið er punkturinn yfir i-ið
á slæma frammistöðu hans.
Vert er að geta góðra aukaleik-
ara, Paul Giamatti í hlutverki
gísls sem er að fara á taugum á
góða spretti og J.T. Walsh sem
leikur einnig einn gíslinn, spilta
löggu, bregst ekki frekar en oftast
áður. Þetta var síðasta kvikmynd-
in sem þessi ágæti karakterleik-
ari lék í og er myndin tileinkuð
honum.
Hilmar Karlsson