Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1998, Blaðsíða 28
leonardo
DiCaprio
leikur
Chet
Miramax til-
kynnti nýlega að
til stæði að gera
mynd um
trompetleikarann
og söngvarann
silkimjúka Chet
Baker og mun
Leonardo
DiCaprio hafa
verið orðaður
við aðalhlutverkið. Því skal þó tek-
ið með fyrirvara því að leikarinn
knái hefur á undanfómum mánuð-
'um játað ýmsum hlutverkum en
skipt svo jafnharðan um skoðun.
Þær fréttir berast að prufusýn-
ingar á Notting Hill, nýjustu mynd
Hughs Grants, sem jafnframt mun
vera óbeint framhald Fjögurra
brúðkaupa og jarðarfarar, hafi vak-
ið almenna ánægju þeirra sem á
horfðu. Til stendur að frumsýna
myndina næsta srnnar og satt að
segja veitir Grant kallinum ekkert
af ofurlítiHi velgengni enda hefur
hann leikið í eintómu drasli síðan
mn árið, fyrir utan ýmsa aðra óár-
an sem nóg hefur verið fjallað um.
Arlega sendir Walt Disney frá
sér eina stóra teiknimynd sem gerð
er með hefðbundinni aðferð, það er
að segja í meginatriðum með þeirri
sömu aðferð og frægar teiknimynd-
ir á borð við Mjallhvít og dvergarn-
ir sjö, Litla hafmeyjan, The Lion
King hafa verið gerðar með.
Nýjasta myndin í þennan hóp úr-
valsteiknimynda er Mulan, sem
fengið hefur góðar viðtökur hvar
sem hún hefur verið sýnd.
Mulan er sýnd hér á landi bæði
með íslensku og ensku tali. í ensku
útgáfunni er vert að benda á hlut
Eddies Murphys sem þykir fara á
kostum í hlutverki Mushu. Sú sem
talar fyrir Mulan heitir Ming-Na
Wen sem meðal annars lék í The
Joy Club. Aðrir leikarar sem ljá
raddir sínar eru Harvey Fier-
stein, Pat Moriata, Mami Nixon,
James Shigeta og Donny
Osmond. Hjá Disney gilda þær
reglur að enginn er valinn til að
tala inn á teiknimynd á þeirra veg-
um nema samþykki liggi fyrir í að-
alstöðvum Disneys og er islenskan
engin undantekning. Það þarf því
fyrst að senda til Bandaríkjanna
raddir sem koma til greina og þeir
sem sitja við skrifborðin í
Hollywood velja síðan raddimar.
Til að fara með rödd Mulans vald-
ist ung leikkona, Edda Eyjólfs-
dóttir, og Valgerður Guðnadóttir
syngur lög Mulans. Aðrir íslenskir
leikarar eru Hilmir Snær Guðna-
son, Þórhallur Sigurðsson, Ell-
ert Ingimundarson, Bergur Ing-
ólfsson, Jóhann Sigurðarson,
Rúrik Haraldsson, Helga Bach-
mann, Lísa Pálsdóttir, Valur
Freyr Einarsson, Jón Gnarr, Ró-
bert Arnfinnsson og Amar Jóns-
son. Steinunn Ólína Þorsteins-
dóttir stjómaði talsetningunni.
-HK
bíódómur
Ævintýri í
Lelkstjórn: Barry Cook og Tony Banchroft.
Raddlr: Ming Na Wen, B.D. Wong, Eddie
Murphy.
Barnamyndir em alltaf að verða
æ meira við hæfi fullorðinna, líkt
og tölvuvæddu Maura- og Leik-
fangamyndimar hafa sýnt og sann-
að. Disney hefur fengið aukna sam-
keppni í teiknimyndabransanum
og hafa þeir að því er virðist
bragðist þannig við að auka kröf-
umar og eru jafnvel famir að vera
pínulítið framsæknir. Nú þegar
allt austurlenskt er í brennidepli
(allt frá markaðsvandræðum til
aukinnar viðurkenningar Hong
Kong-mynda, samfara áberandi
ijölgun austurlenskra leikara) er
það einstaklega viðeigandi að fá í
hendurnar ekta kínverskt ævin-
týri með tilheyrandi drekum og
kynjahefðum. En hér gengur allt út
á að brjóta hefðimar, þvi Disney-
liðið tekur sig tO og býður upp á
sterka kvenhetju sem neitar að
beygja sig undir kynhlutverk sitt
og stendur uppi sem sigurvegari að
hætti hetja.
Mulan er einkadóttirin á heimil-
inu og henni gengur illa að aðlag-
ast hlutverki sínu sem hið auð-
mjúka brúðarefni. Þegar Húnarnir
ráðast yfir Kínamúrinn er gert al-
mennt herútkall, en vegna sona-
leysis verður aldraður faðir Mulan
að fara í stríðið. Nema Mulan sætt-
ir sig ekki við þetta, sker hár sitt
og stelur búningi og sverði föður
sins og heldur í herþjálfim. Fram-
liðnir forfeður vilja leggja sitt af
mörkum og vekja upp fyrir mistök
fremur misheppnaðan smádreka
sem tekur að sér að gerast vemd-
ari Mulan.
Líkt og í mauramyndinni skiptir
raddsetningin miklu máli, því
Sam-bíóin
— Mulan: ★★★★
Kína
„Myndin er uppfull af
skemmtilegum hugmyndum og
flottum senum, handritið vel
skrifað og sagan ánægjulega
laus við þá yfirdrifnu væmni
sem oft einkennir Disney."
drekinn er leikinn af Eddie
Murphy sem ljær honum sinn sér-
staka karakter og á ríkan þátt í að
gera Mulan að þeirri ánægjulegu
skemmtun sem hún er. Myndin er
uppfull af skemmtilegum hug-
myndum og flottum senum, hand-
ritið vel skrifað og sagan ánægju-
lega laus við þá yfndrifnu væmni
sem oft einkennir Disney. Mikil
natni er lögð í smáatriði eins og er
viö hæfi í teiknimyndum, og
aukakarakterar eins og drekinn og
litla (lukku)engisprettan em svo
skemmtileg að þau hefðu ein og sér
verið efni í heila mynd. Þetta ger-
ist varla betra. Gó si.
Úlfhildur Dagsdóttir