Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Blaðsíða 10
10 Fréttir MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1998 Eyrnalokkagöt Nú einnig Nýjung - gull í gegn 100 gerðir af eyrnalokkum 3 stœrlíir Þegar krafan um gott sæti er í fyrirrúmi Skúlagötu 61 ■ S: 561 2987 Hjöruliðskrossar Viðurkenndir bílavarahlutir. 1 Bíla InaustS Sími 535 9000 VÖRURMEÐ ÞESSU MERKI MENGA MINNA Norræna umhverfismerkið hjálpar þér að velja þær vörur sem skaða síður umhverfið. Þannig færum við verðmæti til komandi kynslóða. UMHVERFISMERKISRÁÐ HOLLUSTUVERND RÍKISINS Upplýsingar hjá Hollustuvernd ríksins ísíma 568 8848, heimasíða: www.hollver.is Hvernig er sálarástand þjóðarinnar undir lok aldarinnar? Frekar hömlulaust og stressað og þörf fyrir öðruvísi verðmæti - segja sálfræðingarnir Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal i>v Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal sálfræðingar - miklar framfarir hafa orðið á sviði sálfræðinnar eins og í öðrum greinum. DV-mynd ATH! Sálarástand þjóðarinnar hefur breyst á 15 árum. Það staðfesta sál- fræðingarnir Guðfinna Eydal og Álfheiður Steinþórsdóttir i Sál- fræðistöðinni. Þær lýsa þjóðarsál- inni svo: „Þjóðin er menntaðri og upplýstari og þess vegna eru for- dómar minni en áður. Fólk tileink- ar sér nýjungar með miklum hraða. En allar kröfur aukast að sama skapi um það sem nauðsyn- legt er talið að eiga og fá. Þjóðfélag- ið er kannski frekar hömlulaust og stressað. Ef eitthvað einkennir ís- land er það efalaust hversu mikið neysluþjóðfélag það er. En einnig má sjá viss merki um leiða og þreytu á þessu einhæfa mati og þörf fyrir öðruvísi verðmæti í líf- inu. Fólk sættir sig mun minna við erfið samskipti og vanlíðan en áður var og gerir sér einnig grein fyrir að það verður sjálft að taka af skarið ef það á að verða breyting á högum þess,“ segja sálfræðingam- ir tveir. Fordómar hjá alþingis- mönnum „Við kynntumst fyrir tilviljun árið 1979 þegar við vorum fengnar til aö skipuleggja fréttamanna- fundi fyrir norrænu sálfræðinga- ráðstefnuna. Það gekk svo bráðvel að við sáum að við hlutum aö geta unnið meira saman,“ segja þær Álfheiður Steinþórsdóttir og Guð- fmna Eydal sálfræðingar í samtali við DV. Þær reka Sálfræðimiðstöð- ina sem er fyrsta einkarekna fyrir- tækið í landinu sem boðið hefur sálfræðiþjónustu fyrir hinn al- menna markað, einstaklinga og fyrirtæki. Þær fögnuðu 15 ára af- mæli stofunnar og buðu til sín ætt- ingjum og vinum. í framhaidi af fyrstu samvinn- unni á sálfræðingaráðstefnunni efndu þær til Foreldraráðgjafar sem var talsvert á undan timanum og störfuðu við hana í nokkur ár. Ráðgjöfm mæltist mjög vel fyrir og reynt var að festa hana í sessi með frumvarpi sem lagt var fyrir Al- þingi. „Það var merkileg lifsreynsla að fylgjast með vinnslu frumvarpsins á þinginu. Þingmenn úr öllum flokkum lögðu fram frumvarpið, Guðrún Helgadóttir, Matthías Bjamason, Jóhanna Sigurðardóttir og Niels Ámi Lund. í byrjun fannst flestum þetta réttlætismál fyrir íjölskyldurnar í landinu. Má þar nefna Albert Guðmundsson, Sigurlaugu Bjamadóttur og Ólaf Þ. Þórðarson. Enginn talaði beinlínis gegn frumvarpinu en andstaðan vai- greinilega pólitísk og bak viö tjöldin. Þetta litla mál olli tals- verðu fjaðrafoki en við fylgdumst meö því hvernig því var ýtt til hliðar og afgreitt til nefndar. Það fengum við að vita að jafngilti synjun. í dag sjáum við ekki þá for- dóma sem við fundum 1981 í garð svona ráðgjafar en fljótlega eftir þetta ákváðum við að starfa á eig- in vegum og stofnuðum Sálfræði- stöðina 1983,“ segja þær Álfheiður og Guðfinna. Þær stöllur fengu að heyra í byrjun að ekki væri líklegt að svona starfsemi gæti gengið upp. Sjálfar voru þær vissar um að allt gengi þeim í haginn enda höfðu þær þreifað svolítið púlsinn á þjóð- inni því þær höfðu í nokkur ár skrifað dálka í Vikuna um sál- fræðileg málefni við góðar undir- tektir og höfðu oft fengið spuming- ar um hvort ekki væri hægt að fá að tala við sálfræðingana. Á þess- um tíma voru sálfræðingar ekki með opnar stofur en í dag er það sjálfsagt mál að leita aðstoðar og ástandiö hefur gjörbreyst á stutt- um tíma eins og greina má í gulu síðum símaskrárinnar. Fólk sem er fast í farinu Hvers vegna leitar fólk til sál- fræðings? „Það stafar af fjölmörgu, en með- al annars vegna samskiptavanda- mála eða andlegrar vanlíðunar. Fólki finnst oft aö það sé fast í ein- hveiju fari, það er með slæmt sjálfsmat, er kvíðið eða dapurt. Fólk stendur líka oft á tímamótum og þarf að taka ákvarðanir sem eru erfiðar. Margir lenda í sálarkreppu vegna ýmiss konar missis, skilnað- ar eða trúnaöarbrests og þurfa hjálp til að vinna sig út úr þeim erfiðleikum. Sumir koma í eitt eða örfá viðtöl en aðrir þurfa lengri tíma til að greina vanda og takast á við hann," segja þær Álfheiður og Guðfinna. Sálfræðingamir verða að sýna mikinn hreyfanleika í starfi og vinna því mikið utan stofu sinnar, á námskeiðum af ýmsu tagi, við fyrirlestrahald og starfsmannaráð- gjöf fyrir fyrirtæki. Vitað er að samskipti á vinnustað geta verið viðkvæm og geta verið allt frá því að vera ljúf og þægileg og yfir í að vera nánast óþolandi. í tilvikum þar sem sálfræðingar koma að málinu leggja þeir áherslu á að greina og skilja samskiptaleiðimar og finna nýjar lausnir þegar nauð- syn krefur. „Sjúkur" vinnustaður er ekki vel til þess fallinn að af- kasta miklu af gæðum auk þess sem ástandið getur verið öllum á vinnustaðnum erfitt. Námskeiðin spanna yfir vítt svið en þær Álf- heiður og Guðfinna segjast ekki síst vera stoltar yfir sjálfstyrking- amámskeiðunum sem þær sömdu fyrir 15 árum og hafa haldið margoft síðan. „Við heyrum mjög oft frá fólki, jafnvel löngu eftir námskeið, sem lýsir því hve margt hafl breyst í kjölfar þess að hafa lært að takast á við lífið á nýjan hátt.“ Sambandslausar sjómannsfjölskyldur Em einhver námskeið sérstak- lega minnisstæð? „Já, fyrir stuttu síðan héldum við námskeið fyrir togarasjómenn og maka þeirra sem okkur fannst sérstaklega ánægjulegt og gefandi. Það er sérstakt fjölskyldulíf sem verður til þegar annar makinn er langtímum saman fiarverandi frá sínum nánustu, oft án símasam- bands og hinn makinn þarf að róa í land heimilisrekstri, barnaupp- eldi og ef til vill eigin starfi utan heimilis. Það er talsverð prófraun á sambandiö þegar makarnir era aðskildir vegna starfsins til lang- frama. Okkar hlutverk var að fr æða um hvemig svona raunveru- leiki hefur áhrif á fólk og hvaða leiðir hafi reynst vel til að styrkja fiölskylduna. Það er sérstaklega ánægjulegt að útgerðarfélögin hafa sýnt þessu skilning og áhuga og gjarnan tekið ffumkvæði að þess- um námskeiðum. Það hefði varla gerst fyrir 10-15 árum. Þaö eru ekki síst tengsl sem skapast á nám- skeiðum eins og þessum, bæöi í Reykjavík og úti á landi, sem gefa okkur innsýn í íslensku þjóðar- sálina og skilning á henni," sögðu sálfræðingamir Álfheiðm- og Guð- finna að lokum. -JBP Síðustu ár hefur skátahreyf'mgin selt sígrœn eðaltré, í hcesta gœðaflokki og prýða pau nú mörg hundruð íslensk heimili. t* 10 ára ábyrgð 10 stœrðir, 90 - 370 cm í». Stálfótur fylgir té. Ekkert barr að ryksuga t*. Truflar ekki stofublómin ;*• Eldtraust f*. Þarf ekki að vökva té íslenskar leiðbeiningar té.- Traustur söluaðili té Skynsamleg fjárfesting BANDALAG ÍSLENSiCSA SKÁTA áw

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.