Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Qupperneq 14
14 MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1998 Frjálst, óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjómarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 11,105 RVÍK, SlMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is 'Ritstjórn: dvritst@tff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@tff.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1900 kr. m. vsk. Lausasöluverð 170 kr. m. vsk., Helgarblað 230 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Yfirþyrmandi klúður Þjóðin fékk í liðinni viku kennslu í því hvernig ekki á að stofna stjórnmálaflokk eða stjórnmálafLokka. Stofn- fundur Frjálslynda flokksins átti að vera nýliðinn laug- ardag en áður en til þess kom varð þverbrestur í sam- starfi þeirra sem að fLokksstofnuninni stóðu. Hópur þeirra sem upphaflega stóð að Samtökum um þjóðareign gat ekki starfað með Sverri Hermannssyni vegna meints ofríkis, gott ef ekki fasisma, og Sverrir og hans nánustu stuðningsmenn vönduðu fyrrum samstarfsmönnum ekki kveðjurnar. Niðurstaðan varð tveir flokkar. Annar, Frjálslyndi lýð- ræðisflokkurinn, var stofnaður á fámennum fundi á laugardaginn. Hinn, Frjálslyndi flokkurinn, fékk bráða- birgðastjóm og boðar til formlegs landsþings í janúar. Sá farsi sem kjósendum var boðinn í vikunni er lélegt veganesti fyrir komandi alþingiskosningar. Persónuleg- ar deilur og valdabrölt kæfðu stofnun hins upprunalega Frjálslynda flokks í fæðingu. Hvað úr flokksbrotunum tveimur verður er ekki vitað. Skoðanakannanir fyrir klofning höfðu sýnt að Frjálslyndi flokkurinn gat hugs- anlega fengið fulltrúa á þing sem væntanlega hefðu styrkt hann í baráttu fyrir meginmarkmiðinu, barátt- unni gegn kvótakerfi sjávarútvegsins. Þegar borin er saman stefnuskrá Frjálslynda lýðræðis- flokksins og stefnudrög Frjálslynda flokksins kemur í ljós að stefnan er að kalla sú sama. Það kemur vart á óvart því í liðinni viku sökuðu forystumenn Frjálslynda lýðræðisflokksins Sverri um að hafa stolið stefnunni. Frjálslyndi flokkurinn mun einbeita sér að þremur meg- inþáttum, sjávarútvegsmálum, umhverfismálum og sam- félagsþjónustu. Hann vill að gjörbreyting verði á fisk- veiðistjórninni þar sem aðaláhersla verði lögð á að skila þjóðinni lögmætri eign sinni og afnema með öllu brask með veiðiheimildir og brottkast fisks. Frjálslyndi lýðræð- isflokkurinn er á sömu nótum en í stefnu hans er það meginmarkmið að þjóðin nái aftur frumburðarrétti sín- um til hagnýtingar lands og sjávar og hafnað er hvers kyns sérdrægni og einkaleyfum til aðgangs að sameigin- legum auðlindum. Bæði flokksbrotin setja velferðarkerfið í öndvegi, vilja styðja við bak fátækra og öryrkja. Þá eru þau samstiga um bætt heilbrigðiskeríi og undirstrika gildi menntunar sem undirstöðu framfara í þjóðfélaginu. Flokksbrotin eru sammála um flest að því er séð verður. Stefnuskrá Frjálslynda lýðræðisflokksins er að sönnu frágengin en stefna hins brotsins í drögum fram að landsþinginu í jan- úar. Það sem á milli ber eru ekki málefnin. Það eru persón- ur og leikendur, menn sem standa frammi hver fyrir öðr- um, og um leið kjósendum, sem hundar og kettir. Sverr- ir Hermannsson hugsaði ýmsum þegjandi þörfina þegar hann hraktist úr Landsbankastjórastóli fyrr á árinu. Hann fann heift sinni farveg í nýjum flokki og málefna- lega samstöðu með þeim sem stóðu að Samtökum um þjóðareign. Um leið var það hann, sem kröftugur einstak- lingur og gamalreyndur stjómmálamaður, sem dró að fylgið sem þó mældist í skoðanakönnunum. Það var rétt hjá nýkjömum formanni Frjálslynda lýð- ræðisflokksins að sjaldan hafa flokkar orðið til úr meiri vandræðaskap en að þessu sinni. Eftirtekt vakti einnig að boðað varaformannsefni hans mætti ekki einu sinni á stofnfundinn og enginn vildi verða fjármálastjóri flokks- ins. Allt þetta klúður er yfirþyrmandi. Jónas Haraldsson í DV-kjallaragrein í mars síðastliðnum greindi ég frá því tækifæri að fá hingað til lands næsta alþjóðlega þing um veður og öryggi á heims- höfunum sem halda á hið raunverulega aldamótaár, árið 2001. Alldýrt er að bjóð- ast til að halda þingið en það væri vel þess virði fyrir okkur eyþjóðina sem sótt höfum sjóinn fast frá fornu fari. Að loknum glæsilegum minningarathöfnum um landafundi og kristnitöku fyrir þúsund árum ættum við íslendingar að huga að framtíðinni og fagna nýrri öld með því að bjóða hingað þjóðum heims til fundar um veðrið á höfunum, lífið á sjónum og alþjóðlega sam- vinnu þar að lútandi. Samtök veðurstofa - og heimshöfin Þing þetta er haldið á veg- um samtaka allra veður- stofa í heiminum en mið- stöðvar þeirra eru í Genf í Öldur og ölduspár eru enn eitt viðfangsefni fundanna, segir m.a. í greininni. Sameinuðu þjóð- irnar til íslands? - aldamótaþing um veðriö á heimshöfunum komulag á samskipt- um þjóðanna og fá yf- irsýn yfir viðeigandi rannsóknir í heimin- um. Fleiri viðfangs- efni þinganna mætti nefna, hvert öðru gagnlegra. Alþjóðaþing 4. hvert ár Allt þetta er býsna viðamikið starf hjá nefndunum og huga þarf snemma að und- irbúningi að loka- skýrslum og tillögum fyrir allsherjarþingin fjórða hvert ár. Af þessum sökum og öðr- „Að loknum glæsilegum minning■ arathöfnum um landafundi og kristnitöku fyrir þúsund árum ættum við íslendingar að huga að framtíðinni og fagna nýrri öld með því að bjóða hingað þjóðum heims til fundar um veðrið á höf- unum, lífið á sjónum og alþjóð- lega samvinnu þar að lútandi. “ Kjallarinn Þór Jakobsson veðurfræðingur Sviss. Samtökin nefnast á íslensku því langa heiti Al- Jjjóðaveðurfræði- stofnunin en á ensku „World Meteorolog- ical Organization", skammstafað WMO. Stofnunin er ein und- irdeilda Sameinuðu þjóðanna. Hún hefur verið vel rekin og óvíst er hvort mann- kynið vinnur jafnvel saman að nokkru á jarðríki og daglegri veðurþjónustu í heiminum. Hið al- þjóðlega þing um sjó- veðurfræði er haldið Qórða hvert ár, ýmist í Genf eða í landi sem boðist hefur til að halda þingið með því að standa straum af viðbótarkostnaði við þinghald utan Sviss. Á fundunum er fjallað um vinnu og niðurstöður sérfræð- inganefnda sem starf- að hafa síðan síðasta þing var haldið. Fjallað er um veður- athuganir á sjó, mengun á höfunum, mengunar- vamir og viðvaranir. Þá er rætt um skipulag á fjarskiptum, bæði varðandi upplýsingar um veður og öryggiskerfi fyrir sjófarendur. Öldur og ölduspár eru enn eitt við- fangsefnið. Er bæði unnið að því að betrumbæta ríkjandi fyrir- um ástæðum þarf líka að ákveða snemma hvar halda eigi næsta allsherjarþing. Til dæmis þarf að ákveða fundarstað þingsins árið 2001 nú um miðjan desember 1998. Þingið árið 1997 var haldið dag- ana 10. - 20. mars í Havana á Kúbu í boði ríkisstjórnar landsins. Fulltrúi ríkisstjórnar í upphafi þingsins var ráðherra vísinda, tækni og umhverfismála, frú Si- meón, en Rannsóknaráð ríkisins og Veðurstofa Kúbu sáu um fram- kvæmd. Framkvæmdin þótti takast með miklum ágætum og var gestgjöfum hrósað fyrir að leysa ýmsan mikilvægan tækni- vanda en halda þarf t.d. stöðugu og snurðulausu tölvunetssam- bandi við höfuðstöðvamar í Genf. Þá þótti takast vel að sinna því sem krafist er á formlegum fund- um á vegum Sameinuðu þjóðanna, túlkun á 5 tungumál. Ég átti því láni að fagna að sækja þingið á Kúbu fyrir hönd ís- lands. Það var haldið við prýðileg- ar aðstæður í ráðstefnusal áfóst- um hóteli þar sem fundargestir dvöldust. En skemmst er frá að segja að áður en fundum lauk hafði vaknað áhugi á að halda hið næsta þing hér á Fróni. Ný- kjörinn formaður sjóveður- fræðinefndarinnar, Norðmaður- inn Johannes Guddal, átti hug- myndina en hann hefur alloft verið hér á ferðinni og er kunn- ugur fundaraðstæðum. Þótt hér vanti enn ráðstefnuhöll á borð við þá í Havana treysti hann íslendingum til að halda þingið með kurt og pí. Vonandi fæst stuðningur íslenskra stofn- ana og samtaka um alþjóðlegt þing á íslandi árið 2001, fyrsta ár aldar- innar, um veður og öryggi á höf- unum. Umhverfisráðuneytið og Veðurstofan hafa unnið að því að kanna hvort af því geti ekki orðið. - Gerum betur en Kúba! Þór Jakobsson Skoðanir aimarra Rangtúlkun Mbl-leiðara „Ég sé ekki ástæðu til að fjalla sérstaklega um við- talið við mig í „Svenska Dagbladet“... Það er verið að gera hænu úr nokkrum fjöðrum að fara að tala um breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins í þessu sam- bandi... En hvemig á forsetinn að geta túlkað hags- muni íslands án þess að nefna þessi mál? Það er hins vegar misskilningur að ég hafi hér gengið inn á svið ríkisstjórnar og utanríkisráðherra og algjör rang- túlkun að halda því fram. Ef menn þurfa að skrifa leiðara af þessu tilefni þá bendir það til þess að menn hafi ríkan vilja til að rangtúlka orð forseta ís- lands.“ Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, í Mbl. 27. nóv. Samfylkingin noti aðventuna „Óþreyja er komin upp í röðum óbreyttra stuðn- ingsmanna samfylkingarinnar og kjósenda sem telja vænlegt fyrir þjóðmálaþróunina að A-flokkamir og Kvennalisti nái saman um meginmál sín ... Vanda- málið er í raun eitt: Ekki næst samkomulag um framboð í Reykjavík. Reykjanes ætti að verða auð- velt þegar höfuðborgin hefúr ráðið sínum ráðum. Úr því sem komið er sýnist engin ástæða til að steypa sér í tilbúna tímaþröng. Aðventan er kjörin til að koma sér í rétta skapið til að leysa vandamál." Stefán Jón Hafstein í Degi 27. nóv. Pólitískt hættulegur gagnagrunnur „Miðlægur gagnagrunnur á heilbrigðissviði, eins og gert er ráð fyrir í lagafrumvarpi, sem nú er til umræðu á alþingi skerðir friðhelgi einkalífs og er pólitískt hættulegur. Einkaleyfi til gerðar og rekst- urs slíks gagnagmnns skerðir rannsóknafrelsi og heftir þekkingarleitina. Því ber að vísa frumvarpinu frá. Nær væri að láta fara fram vandaða úttekt á dreifðum gagnagrunnum á heilbrigðissviði og at- huga hvort nýta megi þá betur vegna rannsókna og heilbrigðisþjónustu eins og gert er ráð fyrir í tillögu til þingsályktunar um dreifða gagnagrunna á heil- brigissviði og persónuvernd." Tómas Helgason í Mbl. 27. nóv.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.