Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Qupperneq 25
MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1998
33 T
DV
Fréttir
Snjóflóðasvæðin á Norðfirði:
Tilboð í hús 37%
af brunabótamati
„Þetta er engan veginn nógu
gott tilboð og ég er ekki tilbúinn
að flytja úr húsinu og fá þetta verð
fyrir það. Húsið hefur verið innan
fjölskyldunnar í mörg ár,“ segir
Þórarinn Guðnason í Neskaup-
stað. Hann er meðal þeirra sem
búa á snjóflóðahættusvæði í kaup-
staðnum. Gert hefur verið tilboð í
hús hans sem nemur 37% af
brunabótamati eignarinnar en
mjög óalgengt er að hús í Neskaup-
stað séu seld á minna en 50% af
brunabótamatinu.
Um er að ræða 5 íbúðarhús og
eina verbúð á hættusvæðinu þar
sem snjóflóð féllu 1974. Vitað er
um snjóflóð á þessum stað á 19. öld
og þá varð einnig mannskaði. Þór-
arinn segir að sambærileg eign og
hans kosti 10-11 miljónir króna en
hann fær samkvæmt tilboðinu 5,9
miljónir fyrir eignina. Verður
hann því að taka lán ef hann kaup-
ir annað húsnæði. Honum finnst
sárgrætilegt ef farið verður með
jarðýtu á húsið og það brotið nið-
ur. Þó er það ekki víst. í athugun
er hvort hægt verður að selja það
til flutnings eða hvort það verður
aðeins í notkun yfir sumarið.
Guðmundur Bjarnason, bæjar-
stjóri í sveitarfélagi 7300, segir að
málið sé hjá ofanflóðasjóði og beð-
ið verði eftir umsögn í málinu.
Síðan verður framhaldið ákveðið.
Þórarinn segir að óánægja sé
hjá þremur húseigendum vegna
tilboðanna. Ofanflóðasjóður greið-
ir 90% af verðinu og bæjarsjóður
10%. Reglur um uppkaup húsa
vegna snjóflóðahættu eru sam-
ræmdar á landinu öllu og segir
Guðmundur að kannað hafi verið
hvort ódýrara væri að rífa húsin
eða að byggja snjóflóðavarnir í
fjallinu. í ljós kom að það er mun
mun ódýrara að kaupa eignirnar.
Þórarinn segist ekki kvíða öðr-
um vetri í húsinu því fólk í Nes-
kaupstað hefur búið við þessa vá
lengi og veturinn nú því engin
undantekning. -ÞH
ÞAÐ KOSTAR ÞIG
EKKI MIKIÐ AÐ
AUKA AFKÖSTIN
í VINNUNNI
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi:
Fundað um nýja
kjördæmaskipan
799.196 kr.
ónVSK.
Re kstrarl e igusam n ingur
Engin útborgun
23.752 kr. á mánuði
HyUNDAI ACCENT
Fjármögnunarleiga
Útborgun 199.799 kr.
12.827 kr. á mánuði
DV, Vesturlandi:
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á
Vesturlandi kom saman til síns
fyrsta fundar nýlega. Björg
Ágústsdóttir, sveitarstjóri í Eyrar-
sveit, var kosin formaður stjórnar
og Sigríður Gróa Kristjánsdóttir,
Akranesi, varaformaður. Aðrir í
stjórn eru Gunnar Sigurðsson,
Akranesi, Guðmundur Guðmars-
son, Borgarbyggð, Sigurður Val-
geirsson, Leirár- og Melasveit,
Stefán Jónsson, Dalabyggð, og Ás-
björn Óttarsson, Snæfellsbæ. Á
fyrsta fundinum samþykkti stjórn-
in að stuðla að því að gera starf
samtakanna meira opið og færa
það nær sveitarstjórnunum og íbú-
unum.
Að sögn Bjargar Ágústsdóttur
formanns er búið að skipa í undir-
búningsnefnd vegna stofnunar
eignarhaldsfélags fyrir Vestur-
land. Atvinnuráðgjöfin vinnur nú
að því að taka saman gögn um
stöðu byggðamála á Vesturlandi
og hefur verið leitað til allra sveit-
arstjórna í kjördæminu um upp-
lýsingar í því sambandi.
SSV hyggst standa fyrir al-
mennum fundi um breytingar á
kjördæmaskipan og hugmyndir
um nýja kosningalöggjöf. Fundur-
inn verður sennilegast haldinn í
Borgarnesi 8. desember nk. Fram-
sögumenn verða Friðrik Sophus-
son, formaður nefndar sem falið
var að endurskoða kjördæmaskip-
an og tilhögun kosninga til Alþing-
is, og Einar K. Guðfinnsson þing-
maður, formaður „nefndar um
hliðarráðstafanir vegna endur-
skoðunar á kjördæmaskipan og til-
högun kosninga til Alþingis". Auk
þess verða þingmenn kjördæmis-
ins á fundinum, sagði Björg við
DV. -DVÓ
Rekstrarleiga er miðuð er við 24 mánuði og 20.000 km akstur á ári. Fjármögnunarleiga er miðuð við 60 mánuði
og 25% útborgun, greiðslur eru án vsk. Vsk leggst ofan á leigugreiðslur en viðkomandi fær hann endurgreiddan
ef hann er með skattskyldan rekstur. Allt verð er án vsk.
Ármúli 13
Sími 575 1200
Söludeild 575 1220
ATVINNUBILAR
Fy Rl RTÆ KJ AÞJÓN U STA
HYunoni
★
★
★
Glæsileg, vönduð og þægileg
Björg Agústsdóttir, formaður
stjórnar Samtaka sveitarfélaga á
Vesturlandi. DV-mynd ITP
★
★
★
★
Mikið úrval af Amerískum
sófasettum, einstaklega
mjúk og þægileg.
Láttu þér líða vel á
heimili þínu.
V
HÚSGAGNAHÖLLIN
Bíldshöfði 20-112 Rvík - S:510 8000
GOTT FÓLK