Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Qupperneq 31
MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1998 39 í. Fréttir Austurland: Tölvufyrirtæki í samstarf Bjarni Þór Sigurðsson, sölu- og markaðsfulltrúi TA, Gunnar Bjarnason og Ólafur Magnússon, starfsmenn Teymis. Tölvuþjónusta Austurlands og hug- búnaðarfyrirtækið Teymi hf. hafa undirritað viljayflrlýsingu um sam- starf en fyrirtækin héldu sameigin- lega kynningu á starfsemi sinni á Hót- el Héraði 20. nóvember. Teymi hf. er þekkingar- og þjónustufyrirtæki með það að meginmarkmiði að vera leið- andi á helstu sviðum upplýsingamála og felst starfsemi þess m.a. í að búa til viðskiptalega vitneskju úr hinum ýmsu gögnum sem verða til í fyrir- tækjum sem síðan nýtast á ýmsa vegu, t.d. við ákvarðanatöku og stjómum. Fyrirtækið er dreifmgarað- ili á íslandi fyrir ailan hugbúnað, ráð- gjöf, kennslu og þjónustu frá Oracle Corporation. Samstarf Teymis hf. og Tölvuþjón- ustunnar mun felast í því að taka þátt í sameiginlegum verkefhum og þróa sérlausnir til upplýsingameðhöndlun- ar og segir Bjami Þór Sigurðsson, sölu- og markaðsfulltrúi TA, það hafa í for með sér að fyrirtækið geti nú veitt þjónustu og upplýsingar á nær öllum sviðum í tölvugeiranum og boð- ið viðskiptavinum sínum heildar- lausn þannig að þeir þurfl ekki að leita annað. Tölvuþjónusta Austurlands er ört vaxandi fyrirtæki með starfsemi á fjórum stöðum í flórðungnum; á Homafírði, Egilsstöðum, Seyðisflrði og í sveitarfélagi nr. 7300. Hjá fyrir- tækinu starfa 11 manns en á döfinni er að bæta við tveimur sem væntan- lega koma til starfa í byrjun næsta árs. Að sögn Bjama auglýsti fyrirtæk- ið nýlega eftir kerflsfræðingum. Hafa margir fyrirspumir borist um þessi störf og margir sýnt áhuga á að flytja út á land. -AÞv Eyrarsveit, Grundarfirði: Erindi borgarlögmanns hafnaö - óskaði eftir sameiningu þriggja jarða DV.Vesturlandi: Borgarlögmaður Reykjavíkur, Hjör- leifur Kvaran, fór fram á það nýlega við hreppsnefnd Eyrarsveitar að jarð- imar Pumpa, Rimabær og Suðurbúðir í Eyrarsveit í Grandarflrði yrðu sam- einaðar. Hreppsnefnd samþykkti að eefa landeigendum í nágrenni Kvía- bryggju kost á því að gera athugasemd- ir við ósk borgarlögmanns um samein- ingu þessara þriggja jarða. Nú hafa tvær umsagnir borist frá landeigendum en áður höfðu gögn komið frá eigendum Krossnesslands og eftir að hafa yfirfarið þær ákvað hepps- nefhd að verða ekki við ósk borgarlög- manns um sameiningu jarðanna. Það var á þeim forsendum að ágreiningur kynni að vera uppi um landamerki við- vikjandi þeim jörðum sem óskað er eft- ir að verði sameinaðar. Þann 11. nóvember var lögð fram tiilaga í hreppsnefnd Eyrarsveitar um að erindi borgarlögmanns yrðihafnað varðandi sameiningu umræddra jarða og var hún samþykkt samhljóða. INNKA UPASTOFNUN REYKJA VIKURBORGAR Fríkirkjuveai 3 - Pósthólf 878 -121 Reykjavík Sími 552 58 OCf- Fax 562 26 16 - Netfang: isr@rvk.is ÚTBOÐ F.h. Sjúkrahúss Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í bindi, teygju- hólka, grisjur, sáraplötur, plástra o.fl. Útboðsgögn fást afhent endurgjaldslaust á skrifstofu okkar frá þriðjudeginum 1. desember 1998. Opnun tilboða: fimmtudaginn 28. janúar 1999 kl. 11.00 á sama stað. Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. shr 120/81 F.h. Gatnamálastjórans í Reykjavík er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk: „Þróttarsvæði, gatnagerð og lagnir“. Helstu magntölur eru þessar: Gröftur u.þ.b. 8.000 m3 Fyllingar u.þ.b. 8.500 m3 Malbik u.þ.b. 2.100 m2 Holræsalagnir u.þ.b. 500 m Skiladagur verksins er 1. júlí 1999. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu okkarfrá þriðjudeginum 1. desember nk. gegn 10.000 kr. skilatrygg- ingu. Opnun tilboða: miðvikudaginn 16. desember 1998, kl. 11.00 á sama stað. gat121/8| F.h. Vatnsveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í verkið: Vatnsgeymir á Litlu-Hlíð, utanhússviðgerðir á lokahúsi. Helstu magntölur: Múrhúðun: 130 m2 Vírhögg: 1.200 stk. Háþrýstiþvottur: 191 m2 Sílanböðun og málun veggja: 165 m2 Þakdúkur: 110 m2 Jarðvinna, gröftur og fylling: 250 m3 Verklok: 15. júní 1999. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu okkar gegn 5.000 kr. skila- tryggingu. Opnun tilboða: þriðjudaginn 8. desember 1998, kl. 14.00 á sama stað. vvr 122/81 ^DAGA'/j^jr Jöladagatal Happaþrannynnar. líQcfeAj spermandi morfnof fmrmmdah!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.