Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.1998, Side 42
50
MÁNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1998
Afmæli___________________
Jón Þórir Leifsson
Jón Þórir Leifsson lögreglumað-
ur, Vesturgötu 129, Akranesi, er
fimmtugur í dag.
Starfsferill
Jón Þórir fæddist á Akranesi og
ólst þar upp og í Borgarfirði. Hann
var í Bamaskóla Akraness, Gagn-
fræðaskóla Akraness, stundaöi nám
við Iðnskólann á Akranesi, lauk
sveinsprófi í vélvirkjun 1974, öðlað-
ist meistararéttindi i þeirri grein
1977 og lauk nám frá Lögregluskóla
ríkisins 1984.
Jón Þórir stundaði landbúnaðar-
störf, almenn verkamannastörf og
sjómennsku, stundaði vélvirkjun og
jámsmíðar hjá Þorgeiri og Ellert á
Akranesi 1970-77, vann við vélvirkj-
un á Seyðisfirði 1977-80, var auk
þess héraðslögreglumaður á Seyðis-
firði 1978 og 1979, var lögreglumað-
ur á Akranesi 1980-86, var búsettur
í Noregi 1986-87 og vann
þar við vélvirkjun og
járnsmíði, var með sjálf-
stæðan rekstur við járn-
smíði 1988 og 1989 en hef-
ur starfað í lögreglunni á
Akranesi frá 1990.
Jón Þórir hefur starfað
í Skátafélagi Akraness
frá tólf ára aldri og hefur
verið fjármálastjói félags-
ins sl. ellefu ár. Hann hef-
ur séð um uppbyggingu
náttúru- og útilífsmið-
stöðvarinnar Skátafell í
Skorradal undanfarin ár, hefur unn-
ið við uppbyggingu hitaveitu
Skorradals ehf., situr í stjórn hita-
veitunnar og er framkvæmdastjóri
hennar.
Fjölskylda
Jón Þórir kvæntist 1.3. 1975
Jennýju Ásgerði Magnús-
dóttur, f. 28.6. 1957, hús-
móður, skrautritara og
ræstitækni. Hún er dóttir
Magnúsar Guðmundsson-
ar og Sigurbjargar Odds-
dóttur.
Börn Jóns Þórs og
Jennýjar Ásgerðar era
Daníel Birkir Jónsson, f.
15.7.1975, verkamaður en
sambýliskona hans er
Þórdís Ingibjartsdóttir, f.
30.5. 1971 en dóttir henn-
ar er Vera Kristín Jónas-
dóttir; Davíð Þór Jónsson, f. 27.6.
1978, tónlistarmaður og nemi við
FÍH-skólann; Leifur Jónsson, f. 26.1.
1982, nemi FVA á Akranesi; Arnar
Freyr Jónsson, f. 2.3. 1985, nemi í
Brekkubæjarskóla á Akranesi.
Systkini Jóns Þóris: Helgi Friðrik
Leifsson, f. 1.6. 1940, búsettur í Bæj-
arsveit, kvæntur Dóru Hervarsdótt-
ur, f. 6.9. 1939; drengur Leifsson, f.
10.3. 1943, d. 30.4. 1943; Oddbjörg
Leifsdóttir, f. 31.1. 1945, búsett í
Höfn í Melasveit en maður hennar
er Gísli Jónsson, f. 17.6.1946; Jófríð-
ur Leifsdóttir, f. 25.7. 1956, búsett að
Miklatúni að Hvanneyri.
Foreldrar Jóns Þórs: Leifur Jóns-
son, f. 31.10. 1912, d. 1.4. 1997, verka-
maður á Akranesi, og Áslaug Ella
Helgadóttir, f. 5.12. 1921, húsmóðir.
Ætt
Leifur var sonur Jóns Þórólfs
Jónssonar og Jófríðar Ásmunds-
dóttur, frá Gunnlaugsstöðum í Staf-
holtstungum.
Áslaug er dóttir Helga Jónssonar
og Friðrikku Þorláksínu Friðriks-
dóttur, frá Tungu í Reykjavík.
Jón Þórir er á vakt í dag en hélt
upp á afmælið í kyrrþey í gærdag.
Jón Þórir Leifsson.
Anna Svanhildur Björasdóttir
Anna Svanhildur
Bjömsdóttir, ljóðskáld og
kennari, Mosarima 9,
Reykjavík, er fimmtug í
dag.
Starfsferill
Anna Svanhildur fædd-
ist í Reykjavík, var í
Laugamesskólanum
1959-63 og lauk almennu
kennaraprófi frá KÍ 1969.
Anna Svanhildur hefur
verið kennari síðan, auk
þess að vera skólastjóri á Lýsuhóli í
Staðarsveit 1974-75, og á Broddanesi
1988-90.
Anna Svanhildur hefur gefið út
ljóðabækurnar Örugglega ég, 1988,
Strendur, 1990, Blíða myrkur, 1991,
Skilurðu steinhjartað, 1993, í engja-
kaffi hjá mömmu, 1996 og nú síðast
ljóðabókina Hægur söngur í daln-
um, 1998.
Anna var pistlahöfundur fyrir
Vikuna árin 1993-95.
Fjölskylda
Eiginmaður Önnu var Einar Að-
alsteinsson, f. á Akureyri
19.7. 1941, d. 9.7. 1998,
tæknifræðingur, ættaður
frá Eyrarlandi við Eyja-
fjörð. Foreldrar hans
voru Ólöf Friðriksdóttir
hjúkrunarfræðingur og
Aðalsteinn Ólafur Ein-
arsson, gjaldkeri Kaupfé-
lags F.yfirðinga á Akur-
eyri.
Börn Önnu og Einars eru
Sólveig Krista, f. 14.2.
1980, menntaskólanemi;
Einar Hlér, f. 23.6. 1982,
nemi.
Synir Önnu frá fyrra hjónabandi,
með Emi Ásbjamarsyni, eru Ás-
björn Símir, f. 19.9. 1970, starfsmað-
ur Rafmagnsveitu Reykjavíkur,
kvæntur Kolbrúnu Júlíu Erlends-
dóttur og eru dætur þeirra Malena
Sif, f. 1989, og Anna Lilja, f. 1992;
Starkaður Öm, f. 16.8. 1972 en
unnusta hans er Aðalheiður Krist-
insdóttir.
Systkini Önnu em Ragnhildur, f.
6.7. 1947, d. 5.5. 1998, hjúkmnar-
fræðingur, var gift Gunnari Inga
Gunnarssyni lækni og eiga þau
þrjár dætur en þau skildu; Birna
Salóme, f. 12.1. 1955, lögfræðingur
og deidarstjóri hjá sýslumanninum
í Reykjavík en dóttir hennar er
Margrét Magnúsdóttir; Björn S.
Björnsson, f. 31.5. 1957, deildarstjóri
hjá íslenskri getspá, kvæntur Lauf-
eyju Kristinsdóttur og eru börn
þeirra Anna Margrét og Björn
Magnús.
Foreldrar Önnu voru hjónin
Hulda Margrét Kristjánsdóttir
kjólameistari og Björn M. Björns-
son, aðalbókari hjá SÍF. Þau em
bæði látin.
Ætt
Björn var sonur Björns Sigur-
björnssonar, tryggingarstarfsmanns
í Haugasundi, og k.h., Malene Hope,
dóttur Jóhannesar Hope, sjómanns
á Hörðalandi, og k.h., Önnu Hope.
Bjöm var somu- Sigurbjarnar, sjó-
manns í Hrísey Sigurðssonar, og
k.h., Guðbjargar Jónasdóttur. Hulda
var dóttir Kristjáns Guðmundsson-
ar, verkmanns í Reykjavík, og k.h.,
Ragnhildar Þórðardóttur, b. í
Garðakoti í Mýrdal, Sigurðssonar,
b. á Brekkum, Þórðarsonar, prófasts
í Fagradal, Brynjólfssonar. Móðir
Ragnhildar var Guðrún Finnsdóttir,
b. í Garðakoti, Þorsteinssonar, b. og
smiðs á Vatnsskarðshólum í Mýr-
dal, Eyjólfssonar. Móðir Guðrúnar
var Ólöf Vigfúsdóttir Schevings,
stúdents á Hellum í Mýrdal, Jóns-
sonar, guðfræðings og klausturhald-
ara á Reynistað, Vigfússonar. Móðir
Jóns var Helga Jónsdóttir, biskups
á Hólum, Vigfússonar. Móðir Vig-
fúsar var Þórunn Hannesdóttir
Scevings, sýslumanns á Munka-
þverá, og k.h., Jórunnar Steinsdótt-
ur, biskups á Hólum, Jónssonar.
Móðir Ólafar var Sesselja Þórðar-
dóttir Thorlaciusar, klausturhald-
ara Þykkvabæjarklausturs, Brynj-
ólfssonar Thorlaciusar, sýslumanns
á Hlíðarenda, Þórðarsonar, biskups
í Skálholti, Þorlákssonar, biskups á
Hólum, Skúlasonar. Móðir Þorláks
var Steinunn Guðbrandsdóttir,
biskups á Hólum, Þorlákssonar.
Móðir Sesselju var Kristín Sigurð-
ardóttir, sýslumanns í Saurbæ á
Kjalamesi, Sigurðssonar, lögmanns
í Saurbæ, Björnssonar.
Föðursystur Önnu em Anna Guð-
björg, látin og Svanhildur Marta.
Móðursystur Önnu eru Þóra Sand-
holt og Sigríður Ebba, látin.
Anna Svanhildur
Björnsdóttir.
HagstϚ
Ef sama smáauglýsingin
er birt undir 2 dálkum sama
dag er 50% afsláttur
af annarri auglýsingunni.
a\\t mlll) hlrrjin'
Smáauglýsingar
550 5000
Ólafur Logi
Jónasson
Ólafur Logi Jónasson,
Vættaborgum 41, Reykja-
vík, er fimmtugur í dag.
Starfsferill
Ólafúr Logi fæddist í
Reykjavík og ólst þar upp
í Vesturbænum. Hann
var í Melaskólanum,
Hagaskóla, stundaði nám
við VÍ og Gagnfræðaskól-
ann í Hveragerði, stund-
aðin nám við Loftskeyta-
skólann og útskrifaðist
þaðan 1968.
Ólafur Logi fór ungur til sjós og
var á farskipum og togurum. Hann
hefur auk þess stundað ýmis störf í
landi en starfar nú á Loftskeytastöð-
inni í Gufunesi.
Fjölskylda
Ólafur kvæntist 1.8. 1975 Gunn-
fríði Harðardóttur, f. 8.7. 1953, gjald-
kera. Foreldrar hennar eru Ásta
Kristinsdóttir, f. 14.11. 1925, og
Hörður Frímannsson, f. 6.8.1929.
Dóttir Ólafs frá fyrra
hjónabandi og Lindu
Michelsen, f. 21.8. 1949,
er Rósa Hrönn Ólafsdótt-
ir, f. 6.12. 1966 en maður
hennar er Gylfi Birgis-
son, f. 13.2. 1965 og em
synir þeirra Sæþór Aron
Gylfason, f. 5.11. 1993 og
Darri Viktor Gylfason, f.
3.2. 1998.
Sonur Ólafs og Valgerðar
Stefánsdóttur, f. 30.8.
1952, er Jónas Helgi
Ólafsson, f. , f. 11.10. 1973
en unnusta hans er Guðrún Einars-
dóttir, f. 1.3. 1979 en sonur Jónasar
Helga og Sunnbjargar Durhuus, f.
15.2.1975, er Aron Suni Jónasson, f.
31.12. 1994.
Ólafur Logi er sonur Jónasar
Halldórssonar, f. 13.6. 1914, fyrrv.
sundkennari og nuddari, og k.h.,
Rósa Gestsdóttir, f. 24.7. 1920, fyrrv.
kennari við VÍ. Þau bjuggu lengst af
á Kvisthaga 29 í Reykjavík.
Ólafur Logi verður að heiman.
Ólafur Logi
Jónasson.
I>V
Hl hamingju
með afmælið
30. nóvember
80 ára______________________
Tyrfingur Þorsteinsson,
Hraínistu í Reykjavík.
Pétur Sigurjónsson,
Eyrarvegi 18, Grundarfirði.
Valgarð Björnsson,
Skagfirðingabraut 4,
Sauðárkróki.
Einar Kristinn Einarsson,
Laugum, Flúðum.
75 ára
Sigurður Guðmmidsson,
Hraunbrún 34, Hafnarfirði.
70 ára
Amljótur Sigurðsson,
Karfavogi 29, Reykjavík.
Adolf Óskarsson,
Ölduslóð 15, Hafnarfirði.
Sigríður Jónsdóttir,
Smáragrund 17, Sauðárkróki.
Kristján Frímannsson,
Strandgötu 39, Akureyri.
60 ára
Jón Ásbjörnsson,
Skúlagötu 10, Reykjavik.
Reynir Bergsveinsson,
Rauðalæk 63, Reykjavík.
Guðný Björnsdóttir,
Hólabraut 29, Skagaströnd.
Rósa Lilja Sigmimdsdóttir,
Miðási 1, Raufarhöfn.
50 ára
Ástríður
Ingadóttir,
Kúrlandi 8,
Reykjavík.
Eiginmaður
hennar er
Magnús Theodórsson.
Hún tekur á móti ættingjum
og vinum í Oddfellowhúsinu,
Vonarstræti 10, Reykjavík,
laugard. 5.12. kl. 19.00-22.00.
Þórleifur V. Friðriksson,
Tjamarstíg 4, Seltjamamesi.
Hilmar Karlsson,
Hvassabergi 10, Hafnarfirði.
Ásgeir Magnússon,
Baðsvöllum 5, Grindavík.
Guðfinna Magnúsdóttir,
Skólastíg 22, Bolungarvík.
Sigríður Helgadóttir,
Vogsholti 6, Raufarhöfn.
Guðný Einarsdóttir,
Svínaskálahlíð 15, Eskifirði.
Haukur Elísson,
Starmýri 2, Djúpavogi.
40 ára
Hanna Emelita
Gunnlaugsdóttir,
Kriuhólum 4, Reykjavík.
Sigurveig B.
Björgvinsdóttir,
Vesturbergi 3, Reykjavík.
Sveinn Haraldsson,
Löngumýri 29, Garðabæ.
Ámi Sigmundsson,
Eyrarholti 1, Hafnarfirði.
Harpa Kristinsdóttir,
Melbraut 13, Garði.
Halldór Pétur Andrésson,
Keflavíkurgötu 5, Hellissandi.
Guðmundur Jóhann
Jóhannsson,
Sundstræti 14, ísafirði.
Eggert Aðalsteinn
Antonsson,
Garðavegi 30, Hvammstanga.
Hallgrimur Haraldsson,
Hrisalundi 14 A, Akureyri.