Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Blaðsíða 12
Þórbergur Þóröarson
„Af því fýrri hluti aldarinnar væri svo
miklu leiöinlegri án hans." Hjálmar
I Sveinsson.
„Fyrir utan glæsileg
| mörk á ritvellinum setti
I hann „mark" sitt á öld-
| ina sem þrætubókar-
I fræðingur og pólitískur
„uppalandi" fjölmargra fáráðlinga, rétt
eins og Halldór Laxness. En Halldór
gnæfir yfir Þórberg eins og Laddi yfir
Halla." Sverrír Stormsker.
Guðjón Samúelsson,
húsameistari ríkisins
„Guðjón skilur eftir sig bygg-
ingar sem þeir sem koma til
íslands munu horfa á í nokkr-
ar aldir og dást að.“ Vilhjálm-
ur Egilsson.
Margrét Guðnadóttir vísindamaður
„Ég myndi segja að Margrét
i væri maður aldarinnar vegna
þeirra merkilegu rannsókna
' sem hún hefur framkvæmt í
i þágu vísindanna. Hana vantar
bara peninga til að finna lækn-
ingu við alnæmi." Vigdís Grímsdóttir.
Björk Guðmundsdóttir
„Af þvl hún er svo dásamlega frjó og
sjálfstæð. Ég verð alltaf hreykinn að
tilheyra sömu náttúru og hún."
Hjálmar Sveinsson.
„Hún hefur náð stórkostlegum ár-
angri I frumlegri listsköpun á al-
þjóöavettvangi." Edda Andrésdóttir.
nn 7
NÚ
NÚ
öldina
eru liðnir átta dagar
af þessu síðasta ári
tuttugustu aldarinnar.
er kominn tími til að gera
upp, fólkið sem lifði hana
og mótaði. Hvaða íslendingar
höfðu mest áhrif á öldinni,
sköruðu fram úr, unnu glæstustu
afrekin - voru bestir, mestir,
snjallastír og glæsilegastir?
Hverjir voru íslendingar
aldarinnar?
Thor Jensen.
„Thor kenndi okkur að gera út.“ Hannes
Hólmsteinn Gissurarson
„Hann er góöur fulltrúi þeirra manna, sem
I stýrðu Islensku atvinnulífi frá búskaparháttum
I miðaldastll til nútímaatvinnuhátta. Thor var
' meðal frumherjanna I togaraútgerð og síðar
brautryðjandi I nútlma stórbúskap. Dugnaður og áræði
manna á borð við Thor Jensen fleytti Islendingum langt á
fyrstu áratugum aldarinnar áður en atvinnulífið var drepið I
dróma rlkisafskipta og haftastefnu." Birgir Ármannsson.
Eysteinn Jónsson
„Eysteinn var einn af foringjum Framsóknar-
flokksins á þessari öld og fáir menn hafa haft
jafnlengi eins mikil áhrif á rikisbúskapinn." Vil-
hjálmur Egilsson.
Pálmi Jónsson í Hagkaupi
„Af athafnamönnum hefur Pálmi átt mestan þátt
I að breyta verslunarháttum á Islandi og bæta
kjör alþýðu." Vilhjálmur Egilsson.
Einar Olgeirsson
„Hann var ótvlræður leiðtogi sóslaliskra hug-
mynda á íslandi á þessari öld sem er að kveðja; i
leiðtoga sem ekki verður metinn fyrr en eftir j
mörg ár sem skyldi og var I senn hataður, dáður I
og öfundaður af samtlð sinni og þess vegna I
reynt að þegja hann I hel. Sem ekki tekst." Svav-1
ar Gestsson.
Guðbergur Bergsson
„Af þvl seinni hluti aldarinnar væri svo miklu
; leiðinlegri án hans." Hjálmar Sveinsson.
Jón Baldvin Hannibalsson
„Sá stjórnmálamaður þessarar aldar
sem mér sýnist I fljótu bragði Islendingar
eiga hvaö mest að þakka, án þess að
þeir viti af þvl." Sverrir Stormsker.
Bjarni Benediktsson
„Bjarni var stjórnmála-
leiðtogi áratugum saman
og hann kom með fýrstu al-
vöru þjóðarsáttasamninga
á vinnumarkaðnum." Vil-
hjálmur Egilsson.
„Bjarni var um langt
skeið afar áhrifamikill á
stjórnmálasviðinu á miklum
umbrotatímum I sögu þjóðarinnar. Hann átti öðrum
fremur hlut að máli þegar Islendingar gengu til liös
við vestrænar þjóðir I Atlantshafsbandalaginu og
tóku upp varnarsamstarf við Bandaríkin og stýrði
efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar I átt til auk-
ins frjálsræöis og velsældar á Viðreisnarárunum,
þrátt fýrir ýmsa ytri erfiðleika." Birgir Ármannsson.
Jóhann Jónsson skáld
„Hann er skáldið sjálft." Matthías Viöar
Sæmundsson.
Vigdís
Guömundur Haraldsson
hagyrðingur
„Tákn allra þeirra sem vildu verða
skáld." Matthías Viöar Sæmunds-
son.
Helgi Pjeturs
„Islenskt vit kristallast I Helga." Matthías
Viöar Sæmundsson.
Björn Sigurðsson á Keldum
„Hefði hann átt kost á lengri ævi hefði hann
væntanlega komist næst þvi af islenskum
vlsindamönnum að fá nóbelsverðlaun I heil-
brigðisvísindum vegna rannsókna hans á
hæggengum veirum." Árni Björnsson.
Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur
„Rannsóknir hans á jarðfræði íslands, sérstak-
lega jöklum, eru heimsþekktar og viðurkenndar
sem grundvallarrannsóknir um allan heim." Árni
Björnsson.
Þorvaldur Guðmundsson í STId og fisk
„Hann reis úr fátækt upp I það aö verða auðug-
asti maður landsins og jafnframt frumkvöðull að
nýrri atvinnugrein I búfjárræktun sem og hótel-
rekstri." Árni Björnsson.
Jón Ottar Ragnarsson
j „Með aðstoð annarra stóð hann að þvl þrekvirki
j að koma á stofn frjálsri og óháðri sjónvarpsstöð
á seinni hluta aldarinnar og marka framfaraspor I
sögu íslenskrar fjölmiðlunar." Erna Kaaber.
„Ég nefni Vigdisi I nafni menningar og jafnréttis." Svavar Gestsson.
„Hún er kona. Eru það ekki næg rök fýrir valinu, á þessum ttmum kynja-
kvóta og „jafnréttis"? Við karlmenn ættum að skammast okkar fýrir að vera
ekki konur." Sverrir Stormsker.
„Hafði glfurlega mikið að segja I sambandi við ímynd okkar út á við og er
ekki enn farin að draga neitt I land. Hún heldur áfram að segja slna skoðun
og mér þykir það vel." Arnar Jónsson.
„Hún gaf íslenskum konum nýja sjálfsmynd." Gunnar Karlsson.
„Markaði sér stöðu á alþjóðavettvangi með glæsibrag." Edda Andrésdóttir.
Hannes Hofstein
séra Sigurbjörn Einarsson biskup
„Hann er alvöru kennimaður sem hefur frábært vald á tung-
unni og þorir að hafa skoðanir á hlutunum." Hjálmar Sveinsson
„Ég þarf ekki að hugsa mig lengi um til að komast að þvi hver
er maður aldarinnar I minum huga. Það er tvimælalaust Sigur-
björn Einarsson biskup. Hann hefur með predikun sinni komist
lengst I þvi að koma fagnaðarerindinu til þjóðarinnar þannig að
menn hafa virkilega skilið og skynjað hvað felst I þvl." Vigfús Þór
Árnason.
„Áhrifamikill trúarleiðtogi og kennimaður." Edda Andrésdóttir.
„Hinn eini sanni trúarleiðtogi þjóðarinnar á þessari öld. Innst
inni finnst flestum (slendingum sem lifðu biskupstíð hans aö eft-
irmenn hans hafi einungis verið prestlingar I samanburði. Karl
sonur hans gæti þó orðið undantekning." Össur Skarphéöinsson.
Jóhannes Sveinsson
Kjarval myndlistar-
maður
Bríet Bjarnhéðinsdóttir
Davíð Oddsson
„Davíð Oddson er að mínu mati maður aldarinnar. Stjórnartið hans hefur einkennst af
einstakri farsæld, ekki aðeins vegna góðs árferðis, þvl það var slæmt I byrjun, heldur
llka og umfram allt vegna góðs stjórnarfars.
Skuldir ríkisins eru að lækka, fýrirhyggja er I
ríkisfjármálum, réttur borgaranna er tryggður
með stjórnsýslulögum og annari löggjöf, verð-
bólga hefur aldrei verið lægri og ótal vaxtar-
sprotar eru að skjóta upp kollinum I atvinnullf-
inu." Hannes Hólmsteinn Gissurarson.
„Einn merkasti stjórnmálamaöur aldarinnar
og færi létt með að vera enn þá merkari ef
hann gerði sér far um vera forsætisráðherra
ALLRAR þjóðarinnar og útþurrka I leiðinni inn-
flutningshöft á búvörum, verndartolla og þess
háttar leifar framsóknarlegs viðbjóðs." Sverrir
Stormsker.
„Ef litið er á síðari hluta aldarinnar þá koma
að sjálfsögðu margir til greina en ég yrði ekki
hissa á að Davíð Oddsson verði sá stjórnmála-
maður sem talinn er hafa haft mest áhrif á of-
anverðri öldinni nema sagan telji hann frekar
verða áhrifamann næstu aldar." Friörik Sophusson.
„Davlð hefur slðustu tuttugu ár verið fremsti stjórnmálaforingi landsins og leiddi Reykja-
vlkurborg I gegnum miklar breytingar." Vilhjálmur Egilsson.
Steinn Steinarr
„Setti sterkan svip á samtíð sína við upphaf aldarinnar, bæði sem skáld og stjórn-
málamaður. Hann átti ríkan þátt I að vekja bjartsýni og þann framfarahug hjá þjóöinni,
sem nauðsynlegur var til að segja skilið viö bændasamfélag fortíöarinnar og horfast
I augu við viðfangsefni nýrrar aldar. Fyrstu ár heimastjórnartímabilsins voru mikið
framfaratlmabil og Hannes er á vissan hátt táknmynd þess." Birgir Ármannsson.
„Hannes Hafstein leiddi okkur inn I öldina." Hannes Hólmsteinn Gissurarson.
„Framfaramaður I upphafi aldar." Edda Andrésdóttir.
„Eitursnjall maður sem fór reyndar fýrst
að lifa með þjóðinni þegar hann var dauð-
ur. Dauðinn á það til að lengja llfið. Mis-
skildasta skáld þjóðarinnar þegar hann
var á lífi en er nú af tónlistarmönnum
misþyrmdasta skáld hennar." Sverrir
Stormsker.
„Hann er tákn og forystumaður þeirra
sem endurnýjuðu Ijóðlist þjóðarinnar."
Gunnar Karlsson.
„Hefur gert fleiri íslendinga að Ijóöskáld-
um en nokkurt annað Ijóöskáld. Flestir
hafa einhvern tlma á ævinni ort I stil
Steins." Össur Skarphéöinsson.
„Hún var óralangt á
undan sinni samtlð. Ef Is-
lenskar konur hefðu haft
dug og þor til að fylgja
hennar fordæmi þyrftu
þær ekki að vera að ves-
enast þetta nú undir ald-
arlok." Illugi Jökulsson.
„Brautryðjandi I réttinda-
baráttu kvenna." Edda
Andrésdóttir.
„Merkilegasta kona ald-
arinnar." Matthías Viöar
Sæmundsson.
„Hún var forystumaður I
mestu lýðræðisbyltingu
aldarinnar þegar konur
fengu almenn mannrétt-
indi." Gunnar Karlsson.
„Frumkvööull I kvenrétt-
indabaráttu. Kvenréttinda-
konan eina og sanna.
Hörkukelling einog þær
gerast bestar." Össur
Skarphéöinsson.
„Ég gæti trúað að hann kæmi upp aftur og aftur langt fram á næstu öld, fýr-
ir nú utan það hvað hann var sérkennilegur." Arnar Jónsson.
„Hann kenndi íslendingum að sjá land sitt nýjum augum." Gunnar Karísson.
„Hefði orðið einn af risum hins alþjóðlega myndlistarheims ef hann hefði
ekki fæðst hjá einangraðri smáþjóð. Einstakur málari sem túlkaöi fegurð
landsins með þeim hætti að allir hrifust." Össur Skarphéöinsson.
Kiljan Laxness
„Halldór Laxness skemmti okkur með skrifum slnum." Hannes Hólmsteinn Gissurarson.
„Mér sýnist að Halldór Laxness sé og verði talinn maður þessarar aldar. I fyrsta lagi þá lifði hann nokkurn veginn alla
öldina og I öðru lagi endurspegla verk hans þá þróun I bókmenntum og stjórnmálum sem áttu sér stað á öldinni. Sem
dæmi um þetta þá trúði hann á Stalín á unga aldri en gerði svo upp við kommúnismann eftir miðja öldina. Ég býst við að
hann sé sá Islendingur sem muni hafi mest framtíðaráhrif á þjóðina." Friörík Sophusson.
„Halldór er maðurinn sem á tuttugustu öldina nema tuttugasta öldin eigi hann. Hann er sami risi á tuttugustu öldinni
og Jón Sigurðsson á þeirri nltjándu." Svavar Gestsson.
„Laxness var heimsmeistari I „guðlasti", „klámi" og snilld. Hann þótti skrifa svo afspyrnu vondar bækur að ef hann
hefði ekki fengið Nóbelinn þá heföi hann fengið kúlu I hausinn frá þjóðinni. Átti það sameiginlegt með guði almáttugum
að vera allstaðar nálægur I nær öllum málum aldarinnar, nema hvað Laxness tók afstöðu. Maöur Islandssögunnar."
Sverrir Stormsker.
„Halldór ris upp á menningarsviðinu." Vilhjálmur Egilsson.
„Fyrir mér er hann táknmynd listarinnar, eða kannski öllu heldur samnefnari. Með verkum slnum snertir hann við öllum
tilfinningum, lyftir huganum á æðri svið og bendir til raunverulegra verðmæta, sem eru náttúran, sköpunin, landið og list-
in, en þó einkum það sem hann sjálfur kallar fegurð I mannlegri sambúð. Halldór Laxness er merkilega jafngamall öld-
inni. Og ekki slður merkilegt er það að hafa fengið að vera samlandi hans og samtímamaður um skeið." Helga Kress.
„Ber höfuð og herðar yfir aðra íslendinga aldarinnar. Hann endurspeglaði þjóðarsálina drjúgan hluta aldarinnar, hafði
góða innsýn I vitund hins almenna íslendings og skilaði mennskunni krufinni til þjóðarinnar I bókaformi." Erna Kaaber.
„Auðvitað er hann mér minnisstæður sem og allri þjóðinni." Vigfús Þór Árnason.
„Ber höfuð og herðar yfir aðra rithöfunda og var aö auki afar eftirminnilegur persónuleiki." Þuríöur Pálsdóttir.
„Halldór er auðvitað risi Islenskra bókmennta á 20. öld. Ritferill hans var langur, spannar meirihluta aldarinnar og er
samofin sögu þjóðarinnar á þeim tíma. Skrif hans höfðu ekki bara áhrif sem bókmenntir, heldur var hann einnig um langt
skeið þátttakandi I umræðum um menningarmál og þjóðmál og á þvl sviöi áhrifamikill áróðursmaður pólitískra sjónar-
miöa. Skrif Halldórs voru oft á tíðum mjög umdeild og ekki síður sú pólitlk sem hann beitti sér fyrir. Hann áttaði sig hins
vegar fyrr en margir samtlðamenn hans á þvl að hann hafði verið á villigötum, og var maður til að viðurkenna það.“ Birgir
Ármannsson.
„Enginn hefur túlkað betur vonir og þrár, sigra og ósigra þjóðarinnar sem býr I þessu dásamlega djöfulsins landi. Og
það sem meira er: hann hefur leitt okkur fyrir sjónir hvað það er að vera manneskja." Hjálmar Sveinsson.
„Hann hefur markað dýpri spor I þjóðarsálina en nokkur annar á þessari öld.“ Edda Andrésdóttir.
„Hann hefur lifað öldina alla og mótað skáldskap okkar meira en nokkur annar maður og þar með llfsviðhorf þjóðarinn-
ar I öllum efnum, ekki bara listrænt og siðlega heldur líka I heilbrigðis- og stjórmálum. Enginn maður á þessari öld hefur
haft jafn sterkmótandi áhrif og hann.“ Sveinn Skorri Höskuldsson.
„Ef það er hægt að tala um nokkurn mann sem mann aldarinnar þá er það Halldór Laxness vegna þess að hann lifði
nánast alla öldina. Hann er mesti rithöfundur aldarinnar, ekki bara á Islandi heldur á alþjóðamælikvarða, bækur hans eru
pólitískar og hann hafði áhrif á málefni þjóðarinnar með því að láta til sín taka I stjórnmálum." Árni Björnsson.
„Hafði mest áhrif andlega á landann og bar hróður okkar víða. Verk hans eiga eftir að halda þvl áfram um ókomna tíð."
Arnar Jónsson.
„Maður aldarinnar umfram alla aðra er Halldór Laxness, einkum af því að hann hefur skemmt okkur svo mikið, gefið
okkur svo mikið að hugsa um og hreyft svo mikið við tilfinningum okkar." Gunnar Karísson.
„Mesti gáfumaður þjóöarinnar á þessari öld. Mótaði þjóðfélagsumræðuna og samdi stórkostlegustu skáldsögur sem
skrifaðar hafa verið hér á landi. Fékk Nóbelinn og slðan hafa flestir rithöfundar þjáðst af Laxnesskomplex." ÖssurSkarp-
héöinsson.
Ólafur Thors
Jónas Jó
„Ólafur var einn af stjórnmálaleiðtogum þjóðarinn-
ar áratugum saman, gat leitt samstarf Sjálfstæðis-
flokksins og sósíalista á slnum tíma og leiddi þjóð-
ina enn fremur I gegnum viðreisnina árið 1960."
Vilhjáimur Egilsson
„Enginn stjórnmálamaður setur eins sterkan svip
á miðbik aldarinnar og Ólafur. Hann var I eldlínu
stjórnmálanna I meira en þrjá áratugi, forsætisráð-
herra fimm sinnum, oftar en nokkur annar, og var
oftar en ekki I fararbroddi þegar teknar voru mikil-
vægustu ákvarðanir um framtíð þjóðarinnar á vlð-
sjárverðum tímum. Þannig kom hann mjög að stofn-
un lýöveldis á Islandi, þátttöku íslands I varnarsam-
starfi vestrænna þjóða og loks afnámi haftabúskap-
arins á fýrstu árum Viðreisnarstjórnarinnar." Birgir
Ármannsson
Jón Þorláksson
stjórnmála- og
„Jón var mikill frumkvöð-
ull I slnum verkfræöistörf-
um. Hans störf ollu mjög
miklum breytingum, sér-
staklega fýrir Reykjavlk."
Vilhjálmur Egilsson.
„Mikill maöur og skör-
ungur." Þuríöur Pálsdóttir.
„Það er enginn vafi að Jónas
frá Hriflu hafi sem stjórnmála-
maður haft gífurleg áhrif á fýrri
hluta aldarinnar og það er fyrst
núna viö aldarhvörf sem menn
eru að losa sig við ýmis um-
merki eftir hann I stjórnmálun-
um." Friörik Sophusson
„Ég kann satt að segja sjálf-
ur ekkert sérstaklega vel að
meta þennan mann; en áhrifa-
mikill var hann eins og Þor-
steinn Pálsson sagði um Davlð
Oddsson einu sinni." Svavar
Gestsson.
„Óvenju áhrifamikill I þjóð-
málum á stórum hluta aldar-
innar." Edda Andrésdóttir.
„Jónas hafði afgerandi áhrif
á þjóðlífið og virðist um tíma
hafa verið valdameiri en önnur
dæmi eru um meðal íslenskra
stjórnmálamanna. Skoðanir
hans og ýmsar aðgerðir eru og
verða áfram umdeildar meðal
áhugamanna um stjórnmál en
hver sem afstaða fólks er I
þeim efnum er óumdeilt að á
þriðia og fjórða áratug aldarinnar setti hann mark sitt með ótvíræðum hætti á stjórnmál, menningarmál,
skólamál og ótal önnur málefni þjóöarinnar. Þaö, að menn skuli enn vera tilbúnir. að deila hart um arfleifð
Jónasar frá Hriflu, segir margt um þau áhrif sem hann hafði á sínum t!ma.“ Birgir Ármannsson.
„Hann kenndi íslendingum að hugsa á nýjan og djarfan hátt um pólitík og framfarir." Gunnar Karlsson.
„Hann hefur sennilega komist næst þvl aö verða einræöisherra á Islandi og hann er jafnframt frumkvöðull
að samvinnuhreyfingunni sem hefur verið eitt sterkasta afl I verslun landsmanna." Árni Björnsson.
„Hann átti sök á þvi að 20. öldin gekk ekki I garð fýrr en henni var nær lokið. Holdgervingur hins eilífa !s-
lenska sauðkindarhugsunarháttar." Sverrir Stormsker.
„Jónas stofnaði tvo stjórnmálaflokka og hugmyndafræði hans mótaði þjóðlífið áratugum saman." Vilhjálm-
ur Egilsson.
Sigurður Nordal
prófessor og
rithöfundur
„Benti
Islending-
um manna
best á þau verð-
mæti sem þeir eiga I fornbókmennt-
um sínum." Gunnar Karlsson.
„Áhrifamikill og gáfaður fræðimaður.
Ól upp kynslóðir fræðimanna sem
aldrei hafa losnað undan áhrifum
hans. Vann afrek á bak við tjöldin við
undirbúning að heimkomu handrit-
anna." Össur Skarphéöinsson.
Bryndís Schram
„Á hrós skilið fýrir umsjón
slna meö Stundinni okkar.
Það var gullöld innlendrar
dagskrárgeröar fýrir börn.“
Erna Kaaber.
Einar Benediktsson skáld
jmm „Hannvareittafokkarmestu
og bestu skáldum og er okk-
ur öllum ákaflega hugleik-
inn." Arnar Jónsson.
Nína Tryggvadóttir
myndlistarmaður
„Hún var stórkostlega
merkilegur málari." Arnar
Jónsson.
Jóhann Sigurjónsson
leikritaskáld
„Hann hafði mikil áhrif á sinni
tíð og var gott leikritaskáld."
ArnarJónsson.
Sigvaldi Kaldalóns
„Engin spurning að Sigvaldi
Kaldalóns hefur gefiö okkur
mikið á öldinni." ArnarJóns-
son.
Karólína Lárusdóttir
| myndlistarmaður
„Karólína er minnisstæð fýrir einstaklega
I hugmyndarikar myndir. Hún fer I sálar-
kraftinn sem við öll vitum að við búum yfir.“ Arnar
Jónsson.
Guðmundur Finnbogason,
heimspekingur og landsbókavörður
„Hann stóð að þv! að semja skólakerfi
sem var notaö I hálfa öld, skrifaði mikið og
þýddi og var auk þess mesti orðsmiður
sem viö höfum átt.“ Þuríöur Pálsdóttir. MmSaKuÍii
Páll ísólfsson, orgelleikari og tónskáld
„Fyrsti Islenski hljóðfæravirtúósinn á
„ í heimsmælikvarða og stóð öllum mönnum
»T »» framar viö að byggja upp íslenskt tónlistar-
I llf.“ Þuríöur Pálsdóttir. ,;,
Ragnar Jónsson í Smára
„Þarfasti örlagavaldur I íslenskri listsköp-
un á öllum sviðum." Þuríöur Pálsdóttir.
Arni Gíslason bátsformaður
„Hann lét fyrstur manna setja vél I bát á íslandi.
Hann er þannig upphafsmaður að vélvæðingu sjáv-
arútvegsins sem öll velmegun okkar á öldinni bygg-
ist á.“ Gunnar Karísson.
Lúðvík Jósepsson
sjávarútvegsráðherra
„Hann átti mestan þátt I aö Islend-
ingar sigruöu I sjálfstæðisbaráttu
20. aldar, baráttunni fýrir yfirráðum
yfir fiskimiðum sínum." Gunnar Karísson.
Jórunn Víðar,
s píanólelkari og tónskáld
„Með betri tónskáldum íslands."
\ Þuríöur Pálsdðttir.
Guðrún Katrín
Þorbergsdóttir forsetafrú
„Frámunalega gáfuð, flink og
frábærkona." Þuríöur Pálsdóttir.
Oþekkta fiskverkakonan
„Nafnlausa konan I fiskverkunarhúsinu er
hetja vinnunnar á íslandi. I öðrum löndum
tíðkast að leggja blómsveiga á leiði óþekkta
hermannsins. Við ættum að koma okkur
upp minnismerki um óþekktu fiskverkakon-
una og ættum að leggia blómsveiga á leiði
hennar á þjóðhátlðardaginn." Svavar Gests-
son.
Einnig voru nefndir:
Óþekkti sjómaðurinn, Óþekkti embættis-
maðurinn, Margrét Frimannsdóttir, Lárus
Pálsson leikari, Regína Þórðardóttir leik-
kona, Haraldur Björnsson leikari, Björn Þor-
steinsson sagnfræöiprófessor, Daníel Á.
Daníelsson læknir og skáld, Snorri Hjartar-
son skáld, Jón Helgason, skáld og prófessor, ■
Hallbjörg Bjarnadóttir söngkona, Jóhannes úr
Kötlum, Árni Kristjánsson planóleikari, Mugg-
ur (Guðmundur Þorsteinsson), Ragnar H. Ragn-
ar tónlistarfrömuður, Stefán íslandi, Hermann
Jónasson, Davíö Stefánsson skáld, Jón Leifs,
Guðrún Helgadóttir, Jóhannes á Borg, Aron Guö-
brandsson I Kauphöllinni, Einar Arnórsson hæsta-
réttardómari.
-ilk
Arnar Jónsson leikari. Ami Björnsson
læknir. Birgir Ármannsson lögfræðing-
ur. Edda Andrésdóttlr fréttaþulur. Erna
Kaaber háskólanemi. Friörlk Sophus-
son forstjóri. Gunnar Karlsson prófess-
or. Hannes Hólmsteinn Glssurarson
prófessor. Helga Kress prófessor.
Hjálmar Svelnsson dagskrárgerðarmaö-
ur. Illugl Jókulsson rithöfundur. Matthi-
as Viöar Sæmundsson lektor. Svavar
Gestsson alþingismaður. Svelnn Skorri
Höskuldsson prófessor. Sverrir Storm-
sker tónlistarmaöur. Vlgdís Grímsdóttlr
rithöfundur. Vlgfús Þór Ámason sóknar-
prestur. Vllhjálmur Egllsson hagfræö-
ingur. Þuríöur Pálsdóttlr söngkona. Öm
Clausen hæstaréttarlögmaöur. Össur
Skarphéölnsson alþingismaður.
f Ó k U S 8. janúar 1999