Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Blaðsíða 8
1 e i k h ú s
Á morgun kl. 20 verður frumsýnd á litla sviði
Borgarlelkhússlns Búa saga eftir Þór Rögn-
valdsson, en eins og menn rekur minni til
vann þetta leikrit samkeppni sem Borgarleik-
húsið stóð fyrir einhvern veginn mitt á milli
leikhússtjóratíðar Vlðars Eggertssonar og
Þórhlldar Þorlelfsdóttur. Nú er það sem sagt
komið upp á svið - lítið svið. Leikstjóri er Ey-
vindur Erlendsson (sem smíðar líka leikmynd)
en hann er nú orðiö fremur fátíður gestur í at-
vinnuleikhúsunum. Samkvæmt upplýsingum
frá Borgarleikhúsinu er Búa saga sérstætt
verk. Það er byggt á grunni Kjalnesingasögu
og er sá grunnur færður til nútímans. Og leik-
ritið er fullt af skírskotunum til allra átta:
verka Laxness, Antígónu Sófóklesar, hugar-
heima Nietzsches og Hegel. Það er því eins
gott að áhorfendur komi þokkalesnir til leiks.
Átökin í verkinu standa á milli viðtekinnar
venju og skapandi hugsjóna, samkvæmt yfir-
liti frá leikhúsinu, „milli gerðarinnar annars
vegar, sem tekur heiminn eins og hann er og
framkvæmir hans vilja, og hins vegar dónv
hörkunnar sem horfir á heiminn eins og hún
vill að hann sé og gagnrýnir samkvæmt því“.
Heill herskari leikenda tekur þátt í sýningunni.
Þorsteinn Bachmann er Búi en einnig koma
fram Árni Pétur Guðjónsson, Björn Ingl Hllm-
arsson, Guðlaug E. Ólafsdóttir, Halldór Gylfa-
son, Pétur Einarsson, Rósa Guóný Þórsdóttlr,
Sóley Elíasdóttlr, Theodór Júlíusson og Val-
gerður Dan. Þeir sem vilja skella sér á frum-
sýninguna á morgun og ekki eiga tryggt sæti
geta hringt í 568 8000.
Felix Bergsson fer meö verk sitt Hinn full-
komni jafnlngi í íslensku óperunnl í kvöld og
annað kvöld kl. 20 og síðan aftur á fimmtu-
daginn á sama tíma. Felix bregður sér I gervi
fimm homma á ýmsum aldri og varpar með því
Ijósi á líf samkynhneigöra karla í Reykjavlk.
Öllum hommum er að sjálfsögðu skylt að sjá
sýninguna en aðrir hafa einnig gott og gaman
af henni. Og síminn er 551 1475.
Þaö er uppselt á Brúðuhelmllið i Þjóðleikhús-
Inu á sunnudaginn kl. 20. Hins vegar eru enn
til miðar á sýningu á sama tíma á miðvikudag-
inn. Þetta gamla stykki Ibsens ætlar seint aö
úreldast - ef til vill ekki vegna innihalds eða
erindis heldur koma stfellt nýjar kynslóðir leik-
ara sem vilja glíma við það. Og eins og vana-
lega er Nóra stjarna sýningarinnar. Sími 551
1200.
Á litla sviöi ÞJóðleikhússlns veröur I kvöld kl.
20 leikinn Abel snorko býr elnn eftir Erlc
Emmanuel-Schmltt. Og aftur á morgun og slð-
an enn aftur á fimmtudaginn. Miðar eru til á
allar þessar sýningar. Síminn er 5511200.
Hafnarfjarðarlelkhúsið auglýsir nú að sýningin
á Okkur feðgunum I kvöld sé sú allra slöasta.
Þeir sem trúa þvl og vilja ekki missa af þessu
leikverki höfundar Blíðfinns ættu að hringja I
slma 555 0553.
Maður I mlslltum sokkum veröur mættur á
Smíöaverkstæölö kl. 20.301 kvöld ásamt full-
um sal áhorfenda og engan miða mun vera að
finna á þessa sýningu. Ekki einu sinni á svört-
um markaöi. Örfáir miöar munu hins vegar
vera til á sýninguna á sunnudagskvöldið og
einnig á fimmtudagskvöldiö. Slminn er 551
1200.
Tölvuskopleikurinn Vírus verður sýndur I Hafn-
arfjarðarlelkhúsinu annað kvöld. Slmi 555
Helllsbúlnn gengur og
gengur I íslensku Óper-
unnl. Tvær sýningar eru I
kvöld, kl. 20 og 23.30, og
uppselt er á þær báðar. Ný-
lega auglýsti Hellisbúinn
prógramm febrúarmánaðar og mun vera
möguleiki á að krækja sér I miða á einhverja
sýningu I þeim mánuði. Janúar mun hins veg-
ar allur vera meira og minna bókaður. Síminn
I Óperunni er 5511475.
Þótt Ragnar Arnalds sé á leið út úr pólitík þá
gengur Solvelg hans enn I Þjóðleikhúsinu. Ein
sýning er I kvöld kl. 20. Miðar eru til. Síminn
er 5511200.
Sex I svelt gengur og gengur á stóra sviði
Borgarleikhússlns. Ein sýning er I kvöld, kl.
20, og getur verið að enn séu til miðar. Sírrv
inn er 568 8000.
Þjónn I súpunni er enn I gangi I Iðnó og ættu
þeir sem enn hafa ekki séð þennan farsa en
vilja ekki missa af honum að fara að drlfa sig.
Næsta sýning er ki. 20 annað kvöld. Sú þar
næsta á fimmtudagskvöldið á sama tíma.
Slminn er 530 3030.
Tvelr tvöfaldlr verða sýndir á morgun kl. 20 I
Þjóðleikhúslnu og aftur á fimmtudagskvöldiö
á sama tima. Laus sæti á báöar sýningar.
Síminn er 551 1200.
Næstkomandi föstudag, ekki I kvöld, frumsýn-
ir Loftkastallnn leikritið Mýs og menn. Nánar
verður fjallað um það verk I næsta Fókusi. En
síminn er 552 3000 fyrir þá sem vilja freista
þess að krækja sér I miða á frumsýninguna.
[mexxrai á.]
www.visir.is
0553.
Það hefur stundum verið sagt að það sé varla til sá íslendingur sem
syngi í baði og sé ekki búinn að gefa út geisladisk. Allavega gefur
stærð jólaplötuflóðsins það til kynna. Mikael Torfason skellti sér í
karaoke í Ölveri og tók púlsinn á venjulegu fólki sem syngur af því
það hefur gaman af því að syngja en ekki fyrir frægð og frama.
Baldur Hólmsteinsson, karaoke-söngvari og barþjónn, er þaö pró í bransan-
um að hann syngur bara á íslensku og þá viö eigin texta.
„Leiknum var að ljúka og það
tekur smátíma fyrir staðinn að
jafna sig,“ segir Baldur Hólm-
steinsson, barþjónn í Ölveri.
Leikurinn sem um ræðir fór 4:2
fyrir Arsenal á móti Preston (voru
samt yfir 2:0 um tíma). Baldur er
greinilega ekkert of ánægður með
úrslitin en vill þó ekki kvarta í
frjálsu og óháðu dagblaði. Hann
segir mér bara að hann hafi byrj-
að að vinna í Ölveri áður en kara-
oke-ið kom og sé því búinn að
fylgja því frá upphafi. En aðspurð-
ur um hvort hann ætli að syngja í
kvöld, svarar hann að það komi
bara í ljós og að karaoke sé ókeyp-
is skemmtun og því er aldrei að
vita hvað gerist.
„Take My Breath away“ byrjar
að óma um salinn. Það lag er bet-
ur þekkt með hljómsveitinni Berl-
in en er eftir þá T. Whitlock og
G. Ronoder.
Ég lít á skjáinn og á alveg eins
von á myndbandi úr Top Gun.
Það væri ekki slæmt að ná léttum
Tom Cruise. Vonbrigði. Mynd-
bandið fjallar bara um einvern
einmana nikótínista sem keyrir
taxa í LA. Hann tekur upp ein-
hverja rosapiu með blásið hár.
Sjálfur er hann með sítt að aftan
og ímyndar sér að konan verði
ástfangin af honum á leiðinni.
Það gengur ekki eftir og ungi
leigubílstjórinn horfir á eftir getn-
aðarfullri konu stökkva í fangið á
gráhærðum kjána.
Syngjandi barþjónar
Kemuröu hingaö oft?
„Já. Ætli ég komi ekki tvisvar
þrisvar í viku,“ svarar Kolbrún
Kvaran en hún var rétt í þessu að
stíga niður af sviðinu eftir að hafa
sungið Take My Breath away
mjög fallega.
Líturöu þá á þetta sem áhuga-
mál?
„Nei. Algjöra nauðsyn."
Hvaö ertu búin aö syngja lengi í
karaoke?
Halldór Svansson er barþjónn, rafvirki
og söngvari.
„Eitt og hálft ár.“
Hvenœr söngstu fyrst?
„Ég var beðin um að syngja á
þorrablóti á Suðurnesjum. Við
fengum græjur lánaðar og ég
ákvað að slá til. Fólkið sem sá um
þetta hafði heyrt að ég væri í
söngskóla og bað mig því um að
syngja."
Það var ekki aftur snúið fyrir
hana Kolbrúnu eftir það. Nú getur
hún varla lifað án þess að syngja
og hún hefur kynnst fullt af fólki
í tengslum við karaoke-vélina í
Ölveri. Þetta er fastur kjarni sem
mætir nokkrum sinnum í viku og
stígur á stokk. Fær með því útrás
og stendur sig eflaust betur í líf-
inu sem bíður morguninn eftir.
Annar barþjónninn, hann heitir
Halldór Svansson og er rafvirki
á daginn, stekkur upp á svið. Tón-
listin byrjar og lagið Let Your
Love Fly fyllir staðinn. Mynd-
bandið er ástarklisja um konu i
bíl og par á strönd. Engan botn
hægt að fá í það en lagið kemur
með stuð í húsið. Eldri maður
með gleraugu byrjar að dansa og
veifa höndum. Ég vind mér að
honum og reyni að taka á honum
púlsinn. Hann ýtir mér í burtu
því hann er á deiti með klassa-
konu. Ég tek það gott og gilt og
skelli mér á barinn.
„Ég er búinn að vinna hérna í
tæp átta ár,“ segir Halldór þegar
hann hefur lokið við að syngja.
Hann er að afgreiða kolsvartan bjór
og þarf að láta renna hægt í hann.
Og synguröu oft?
„Já. Þegar ég er að vinna. Þetta
fylgir."
Haföiröu sungiö í karaoke áður
en þú byrjaöir hér?
„Nei.“
Hvaöa lag söngstu fyrst?
„Jailhouse Rock. Það er mjög
auðvelt lag.“
Varstu stressaöur?
„Nei, ekkert voðalega. Ég var
aðallega á rassgatinu."
Barflugurnar hlæja og Halldór
réttir manni bjór.
Hvar er Hófí?
Staðurinn er nánast tómur. Fót-
boltabullumar eru alveg horfnar.
Mesta lífið í salnum er í hinum
endanum þar sem spilakassarnir
eru. Þar tapar fólk fúlgum fyrir
utan þennan sem mætti með 20.000-
kall rétt áðan. Hann kom með hann
í plastbakka og barþjónninn Baldur
sturtaði úr honum í sjálfvirkan telj-
ara, svona eins og bankar hafa.
Ég og Teitur ljósmyndari reyn-
um að mana hvor annan upp í að
syngja en erum báðir svo miklir
plebbar að við endum inni í horni
með nokkrum krökkum. Erum
ekki einu sinni með bjór. Fengum
okkur bara kaffi og reynum að
jafna okkur eftir allt þetta frí und-
anfarið.
f Ó k U S 8. janúar 1999