Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Blaðsíða 9
Karaoke-krakkarnir. Hún er heilbrigð þessi göfuga æska sem hangir á börum og drekkur kaffi og vatn og syngur í karaoke. Það er einmitt það sem krakk- amir á borðinu okkar eru að gera. Þau eru fimm. Það er Jóhanna Vigfúsdóttir, nemi Borgarholts- skóla, sem er að peppa sig upp í að taka lagið Rescue Me. Hún hefur bara sungið einu sinni í karaoke áður og er komin með þessa furðu- legu bakteríu sem þeir einir skilja sem hafa sungið. Á móti Jóhönnu sitja Jónheið- ur Pálmey Halldórsdóttir og Davíð Jóhannsson. Þau eru álíka vön söngnum og vinkonan. Davíð er í FB en Pálmey á milli starfa. Jú, og þær Ásta Júlía og Hall- dóra sem gengur í MH. Ásta er með vinnu og syngur ekki. Hún er plebbi eins og ég og Teitur. Hvaö er múliö, af hverju eruöi aö þessu? „Þetta er bara svo gaman,“ full- yrðir Pálmey og Jóhanna tekur Pálmey er örugglega einhver sem á eftir að gefa út plötu fyrr en síðar. undir. „Maður þarf ekki einu sinni að halda lagi til að geta sungið héma.“ Ættuöi ekki frekar aö vera í hljómsveit? „Maður væri svo sem alveg til í það,“ segir Jóhanna og um leið er hún kölluð upp á svið. Hennar lag er þegar byrjað. „Þarf ég ekki að ýta á einhvem takka?" kallar Jóhanna og vinir hennar leiðbeina henni um hvern- ig hún eigi að kveikja á hljóðnem- anum. Hún var greinilega ekki að ljúga þegar hún sagðist bara hafa sungið einu sinni áður. Myndbandið sem birtist á fleiri, fleiri sjónvarpsskjám og einum súperskjá er það allra versta til þessa. Eighties helvíti. Stelpur með túperað hár, hvit sólgleraugu og bleikan varcilit liggja á sund- bakka í undarlega sniðnum sund- bolum. Nokkrir karlmenn eru á leiðinni til þeima. Allir í leður- jökkum, með grifflur, í netbolum og hárgreiðslan er svo hræðileg að þú trúir því ekki að þetta sé þeirra hár. Þá kemur allt í einu ein kona þrammandi eftir sundlaugarbakka og það undarlega við það er að hún lítur nákvæmlega út eins og Hólmfríður Karlsdóttir. Ég fæ ekki betur séð en þetta sé hún. Hvar er hún Hófí stödd í dag? Hófí okkar? Hófl sem heil kynslóð lærði að dýrka og dá? Skáldið og söngvarinn Pálmey og Davíð standa á svið- inu. Allir skjáir eru svartir. „Little Bird, A. Lennox" birtist svo á skjánum og enn eitt eighties myndbandið byrjar. Texti lagsins er neðst á skjánum. Hann er blár og byrjar fljótlega að verða bleik- ru:. Pálmey hefur upp raust sína og enga smáraust. Án þess að við Teitur höfum hundsvit á tónlist þá er okkur að líka það sem við heyr- um. En það er nú þannig með alla sem sungu. Við bjuggumst kannski við einstaka manneskju sem héldi lagi en cillt er þetta fólk að verða að fagmönnum. Þetta eru listamenn, alþýðulistamenn. En það gæti nú breyst fyrir Pálmeyju. Vantar bara svona feita kalla með vindla á íslandi. Einhverja sem uppgötva fólk og redda þeim samningum og gera þá að millj- ónamæringum. Popp í Reykjavík fjallaði allavega um unga fólkið sem dreymir um frægð og frama. Pálmey og Davíð fá mikið klapp og barþjónninn Baldur byrjar að syngja She Believes in You, á ís- lensku: Ég segja vildi þér. Skáldið og söngvarinn er hæfileikaríkur og Kenny Rogers yrði örugglega ánægður með þessa túlkun. En þannig er þetta. ísland getur verið svo meiri háttar. Það er hreint út sagt ótrúlegt að fólk inni í Vogum flnni sig knúið til að syngja og semja jafnvel íslenska texta við lög í karaoke. Við Teitur getum ekki stillt okkur um að lofa bar- þjónunum því að við munum mæta pöddufullir um næstu helgi og þá verður stigið á svið. Kolbrún Kvaran söng fyrst í karaoke þegar hún var á ættarmóti á Suður- nesjum. www.visir.is Taktu frá miða á Vísir.is Þú gætir sleppt við að borga miðann eða unnið Nike vörur að eigin vali að andvirði 50.000 kr.- Næstkomandi föstudag, þann 15. janúar, verður grínsmellurinn Waterboy frumsýnd í 5 bíóum um land allt. Myndin gerði allt vitlaust í Bandaríkjunum fyrir stuttu, endaði sem 4. aðsóknarhæsta mynd síðasta árs og stefnir í að verða ein aðsóknarhæsta grínmynd allra tíma. Kannski ekki skrýtið þegar fólkið á bak við The Wedding Singer kemur saman á ný. Langar þig til að sjá Waterboy frumsýningarhelgina? Smelltu þér þá inn á Vísir.is ogtaktu frá miða. Þú velur sjálfur milli fimm kvikmyndahúsa (Bíóhöllin, Kringlubíó, Stjörnubíó, Nýja Bíó Akureyri ogNýja Bíó Keflavík) ogsýningartímann. Þú þarft svo að mæta 2 klukkutímum fyrir sýningu í viðkomandi bíó og greiða miðann. Nema þú verðir einn af 200 heppnum aðilum sem sleppa við að greiða miðann sinn. £n það kemur þó ekki í Ijós fyrr en við lúguna. Nike vörur fyrir 50.000! Þeir sem panta miða á Vísir.is og greiða miðann, komast í pott og eiga möguleika á að vinna Nike vörur að eigin vali að andvirði 50.000 krónur. Bara fyrir að panta miða á Vísir.is og sjá frábæra grínmynd! ATH! Opnað verður fyrir miðapantanir á Vísir.is kl. 12 á mánudaginn! rAðhustorgi 8. janúar 1999 f Ókus 9

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.