Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1999, Blaðsíða 11
I Frumkvöðull „ambient“-tónlistarinnar hefur hingað til verið talinn Bretinn Brian Eno. Löngu áður en Brian byrjaði að fást við tónlist, árið 1957, var þó Kaninn Raymond Scott farinn að dunda sér við tónlistarsköpun sem minnir allnokkuð á þau fljótandi hljóðverk sem „ambient“-heitið hefur fest við. popp Gleðibandið írafár verður með öll völd um helgina á Gauki á Stöng. Á sunnudagskvöld verður fýrsta KK-kvöldið sem verður síðan nokkuð reglulega annan hvern sunnudag fram í mars. Tónleikarnir hefjast klukkan hálfellefu. Á sunnudagskvöldum í vetur verður uppistand og tónlistardagskrá með Bítlunum á Glaumb- ar. Þeir eru ofsalega sniðugir. meira á. www.visir.is Raflónlist reifabörn ^ Raymond Scott er einn af gleymdum snillingum tónlistar- sögunnar. Hann var tónlistar- stjóri hjá útvarps- og sjónvarps- stöðvum, samdi stef og tónlist, en er einna kunnastur fyrir tónlist sína við teiknimyndir þar sem þeir kumpánar Daffy Duck og Bugs Bunny eru í aðalhlutverkum. Árið 1957 var honum sagt upp hjá NBC- stöðinni. Hann fór heim, lokaði sig niðri í kjallara, þar sem hann Raymond Scott: Snillingurinn í kjallaranum hafði sankað að sér hinum furðu- legustu rafmagnstólum - og smíð- að fjölmörg sjálfur - og fór að vinna að algjörlega nýrri gerð tón- listar. Með honum í skúrnum var ungur verkfræðingur, Bob Moog, sem síðar átti eftir að hafa mikil áhrif á tónlistarþróunina þegar hann setti Moog-hljóðgervilinn á markaðinn. Á þessum tíma voru uppeldismál i brennid- epli í Bandaríkjunum og með hjálp frá Gesell Institute of Child Develop- ment Inc. gerði Raymond þriggja platna seríu, „Soot- hing Sounds for Baby“ (“sefj- andi hljóð fyrir barn“), sem átti að hafa það eina nota- gildi að senda smábörn með hraði inn í draumalandið. Ekki er vitað hvort plöturn- ar virkuðu vel til þess arna en eftir að þessi útúrframúr- stefnulegu draumahljóð voru ný- lega endurútgefln á geisladisk hef- ur athygli tónlistarmanna sam- tímans beinst í miklum mæli að ævistarfi frumkvöðulsins. Eins og stjórnborð í geimflaug Raymond var alltaf mjög tæknilega sinnaður. Hann fann upp ýmsa hluti sem svo lágu á víð og dreif um heimilið, ekki ósvipað og heima hjá pró- fessomum í „Elskan, ég minnkaði börnin". Tækið „Videola" var ætlað til að hljóðsetja bíó- m y n d i r . Raymond var kominn með einhvers kon- ar faxtæki árið 1967 - hann gat þó ekki notað það því enginn annar var með fax! - og hann fann upp fyrsta hljóðsarpinn (“samplerinn"), tæki sem hann kall- aði „Karloff1. Tækið gat m.a. hermt eftir hósta og hljóðum sem líktust snarki í fleski á pönnu. Þá hannaði Raymond eins konar frumgerð af hljóðgervli handa dóttir sinni, tæki sem hann kallaði „Clavivox". Þetta dót - auk annarra frumhljóðgervla sem aðrir höfðu þróað, t.d. theram- in og franska undratækið ondioline - notaði Raymond við gerð sefjandi barnahljóðanna. Meistarinn hélt áfram að þróa rafmagns- og tölvuhljóðfæri og ein- beitti sér í síaúknum mæli að gerð risastórrar maskínu sem hann kall- aði „Electronium" og gat samið og spilað tónlist „upp úr sjálfri sér“, án þess að mannshöndin kæmi nærri. ^Oothing ýounds htllþy h HAYMONú scorr I» Hann starfaði í ein- rúmi og fylltist sífellt meira of- sóknaræði við tilraunir sínar þó sögur lækju út um uppgötvanir hans. Blaðamaður kom í heimsókn og lýsti Electronium-hljóðfærinu svona: „Það lítur út eins og stjórn- borð í geimflaug og tekur allt plássið í kjEillaranum. Ljós blikka og mælaborðið glóir í appelsínu- gulu ljósi.“ Motown-bossinn Berry Gordy renndi upp að húsi Raymonds einn daginn og varð svo uppnuminn af Electronium-tækinu að hann gerði Raymond yfirmann tækni- og rannsóknarsviðs Motown-útgáf- unnar. Raymond hélt áfram með tilraunir sínar í bílskúr í Los Ang- eles frá 1972 til 1977 en þegar Berry Gordy fékk meiri áhuga á að gera Dlönu Ross-bíómyndir fór Raymond heim í kjallarann aftur og gerði mörg hundruð tilrarma- upptökur. Raymond Scott lést árið 1994. Fjörutíu árum eftir að tilrauna- starfsemi þeirra hófst viðurkennir lærlingurinn Bob Moog enn þá áhrif hans: „Raymond hafði snilli- gáfu. Honum datt eitthvað I hug og gerði tilraunir þangað til hann náði þeirri niðurstöðu sem hann hafði hugsað sér.“ Gamli Moog- hljóðgervillinn sem Boh Moog og lærifaðir hans, Raymond Scott, lögðu grunn að í bílskúr í Los Ang- eles er nýkominn aftur á markað- inn í lítillega endurbættri útgáfu. Framúrstefna frumkvöðlanna er orðin hljóðrás í daglegu lífi fólks en þeir sem vilja heyra hvar þetta byrjaði allt saman ættu að tékka á hinum sefjandi barnahljóðum meistara Raymonds Scotts. -glh Háskólaspekíngurinn og hágæða hipp-hopp töffarínn Canibus: hljómsveitin Sóldögg leikur svo á dansleik að þessu loknu. Annað kvöld verða nýárstðnleik- ar Álftagerðlsbræðra ásamt Ómarl Ragnars- | synl. Glæsilegt hlaðborð í boði og I húsið verður opnað klukkan sjö. Hljómsveit Gelrmundar Valtýsson- | ar leikur slðan fýrir dansi. Ásgarður. í kvöld er dansleikur og hljómsveit Birgis Gunnlaugssonar sér um fjörið. Caprí- tríóið mun svo halda uppi stuðinu á sunnu- dagskvöld og allir eru velkomnir. Café Romance. Um helgina sem og f öllum janúarmánuði ætlar píanóleikarinn Barry Rocklln að skemmta gestum staðarins og líka matargestum Óperu sem er þarna á sama stað. Á Kaffi Reykjavik verður hljómsveitin Hálft í hvoru að spila um helgina. Á sunnudagskvöld Eyjólfur Kristjánsson og á mánudag og þriðju- dag ætla Hálf köflóttir að skemmta. Annað kvöld mun Virkni í samvinnu við breska útgáfufýrirtækið Partisan Recordings standa fýrir kvöldi á Kaffi Thomsen. Þar munu þeir Deep Blue og Rhodesy frá Partisan Recor- dings og DJ Indlcla frá bresku útvarpsstööinni Rude FM verða í aðalhlutverki við skífuþeyting- ar. Þeir ætla sér að kynna íslendingum það nýjasta sem er að gerast hjá Partisan og í drum & bass danstónlistinni almennt. Er þetta kvöld það fýrsta af mörgum sem Virkni mun standa fýrir í ár sem hvert og eitt mun tengj- ast erlendum drum & bass útgáfufýrtækjum. Anna Vilhjálms og Hilmar Sverrisson sjá um fjörið á Næturgalanum í kvöld og annað kvöld. Á sunnudagskvöldið mætir svo Hjördís Geirs- dóttir og hljómsveit hennar og þá verða gömlu og nýju dansarnir dansaðir. í Árseli verður ball fýrir fatlaða annað kvöld. Fjögur hundruð krónur kostar inn og ballið byrj- ar klukkan átta. Fjörukráin í Hafnarfirði. Jón Moller leikur á pf- anóið fýrir matargesti Fjörunnar en í Fjörugarð- inum leikur Víkingasveitin og syngur fyrir veislugesti. Hreyfilshúsið. Félag harmóníkuunnenda sér um að gömlu dansarnir verði dansaðir annað kvöld frá klukkan tíu. Það ætti engum að koma á j óvart að hin lífseiga hljómsveit ( Stjórnin verður í Leikhúskjallar- anum í kvöld og annað kvöld. Péturspöbb. Rúnar Júlíusson I verður þar f kvöld sem og annað ' kvöld. Sveitaböll PPK er hljómsveit sem ætlar að halda uppi stuðinu f Sjallanum á Akureyri í kvöld og ann- að kvöld. Margar rappplötur byrja á dynj- andi skothríð. Frumsmíð rappar- ans Canibus byrjar á því að „logg- að“ er inn á Internetið. Canibus er nefnilega ekki „gangsta" rappari heldur vísindalega sinnaður ungur maður sem rappar um internetið, erfðavísindi, Einstein og samsær- iskenningar á sinni fyrstu plötu, „Can-I-bus“. Hann er þó langt í frá eitthvert tölvunörd. Tónlistin er þrælspikað og hart hágæðahipp- hopp og innan um háskólaspekina er Canibus töffari sem hótar að sparka í innyfli hlustandans og selja eistun á honum til Mexíkó. Piltur er á 23. ári, sonur skil- inna foreldra og ólst upp „úti um allt“, eins og hann segir sjálfur. New York vann hann sér virð- ingu þegar hann vann með Yo- ussou N’Dour og Wyclef Jean en komst fyrst almennilega í fréttirnar eftir opinbert rifrildi við rapparann LL Cool J sem byrjaði vegna deilna um húðflúr. Önnur smáskífa Canibusar, „Second round OK“, sakaði LL um að vera „hommatitt", dópætu, ritþjóf og brjálæðing. Til að auka vægi orða sinni fékk Canibus eyrnanartarann Mike Tyson til að rappa I laginu. „Þú elskar Mike annað hvort eða hat- ar,“ segir Canibus „en þú veitir honum a.m.k. athygli." Lagið varð smellur og Canibus baðaði sig í athyglinni. Busta Rhymes lét m.a. þau orð falla að hann væri „heitasti rapparinn á svæðinu" og víðar var tekið í sama streng. „Það er eins og ég sé á minni þriðju eða fjórðu plötu miðað við athyglina sem ég hef fengið," seg- ir Canibus, sigursæll, „en ég er bara að byrja. Ég er ennþá bara smábarn.“ -glh Catalína I Kóþavogi. Dúettinn Jukebox skemmtir um helgina. Á Broadway verður ýmislegt um að vera um helgina. í dag er hönnunarkeppnl Völustelns, Facette fatahönnun og skólahönnun. Svo verður þríréttaður kvöldverður klukkan átta og Hótel Saga. André Bachmann tónlistarmað- ur á fimmtugsafmæli um þessar mundir. Honum til heiðurs verður fagnaður f Súlnasal f kvöld. Á morgun leikur svo hljómsveitin Pops ásamt Pétri Kristjánssyni en þetta mun verða síðasta uppákoma sveitarinnar á þessu ári. Þeim sem hvorki hafa áhuga á Pétri né André er bent á Arnar og Stefán sem verða á Mímis- bar í kvöld og annað kvöld. Grand Hótel v/Sigtún. Gunnar Páll er jafn hress og f fýrra og leikur og syngur dægurlög fýrir gesti hótelsins í kvöld og annað kvöld. All- ir eru velkomnir. Rappar um El og erfðavísind 8. janúar 1999 fókus

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.