Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Blaðsíða 3
m e ö m æ 1 i e f n i Elektrókappinn Mike Dred á Hjartsláttarkvöldi: Aðallega Hjar.tsláttarkvöldin á Kaffi Thomsen halda áfram af fullum þunga einu sinni í mánuði. Á nýjunda Hjartslættinum nú um helgina bjóða Gus gus, Björk og Hr. Örlygur upp á Englendinginn Mike Dred, sem líkt og Dmx Krew - sem spilaði hér nýlega - er á samningi hjá Rephlex-útgáf- unni. Þar hafa rafvirkjar og grúf- menni átt samastað frá 1992 - fólk eins og Aphex Twin, Leila og Squarepusher - en Mike Dred var einn af þeim fyrstu til að skrifa undir hjá útgáfunni. Hér ætlar hann að koma fram með tölvusarp, raðara og hljómborð og fremja sprelllifandi elektró-dans- tónlist, hráa úr tækjunum. Mike - eða Michael Cullen - byrjaði að fást við tónlist 1988 og sem eftirsóttur plötusnúður var hann einn af þeim sem mótuðu „acid house“-stefnuna. Hjá Rephlex hefur hann tekið upp í ýmsum gervum, m.a. sem Kosmik Kommando, Universal Indicator og Chimera. Síðustu árin hefur hann unnið með Pete Green og saman segjast þeir frumkvöðlar tónlistarstefnu sem þeir kalla „technocoustic" og má heyra á plötunni „Virtual farmer". Platan gefur tóninn fyrir næstu kynslóð rafrænnar klúbbatónlistar og það er því ekkert smá maður sem er að koma hingað. Á lítið af hlýjum fötum Mike er á línunni, nývaknaður. Hvernig er venjulegur dagur hjá þér, herra minn? „Ég er kominn á lappir ein- hvern tímann síðdegis og fer að gera tónlist. Ef ekkert partí er í gangi þá vinn ég alla nóttina og skríð í rúmið þegar ég get ekki vakað lengur. Ef það er partí reyni ég að sofa nokkra tíma svo ég sé vakandi í partíinu." Hvaö ertu aó músisera í marga tíma á dag? „Bara eins marga og ég get. Stundum eru þetta átján tímar, stundum minna því það er fólk að reka inn nefið og maður getur ekki unnið þegar verið er að tala við mann. Nei, ég er ekki búinn að fá leiða á þessu. Ætli ég dræp- ist ekki bara ef ég gæti ekki búið til tónlist.“ Hvers konar hugarástandi er best aó vera í til aö njóta tónlistar þinnar? „Þetta er bara spurning um að skemmta sér og að taka tónlistina ekki of alvarlega; fá sér nokkra drykki og hoppa um. Mest af efn- inu sem ég spila er hratt en eitt eða tvö lög verður erfiðara að dansa við og þau virka meira á hugann en lappirnar. Þetta er að- allega acid og tekknó - hratt og hart stöff.“ Ertu með einhver skilaboö til ís- lenskra áhorfenda? „Ef mér verður kalt verðið þið að lofa að halda mér heitum. Ég á ekki mikið af hlýjum fötum svo ég þarf nokkrar góðlegar stelpur til að kúra með mér.“ Ó, þess vegna ertu þá aö koma til íslands?! „Nei, nei, auðvitað ekki. Tón- listin kemur fyrst, þá nokkrir drykkir og svo tékkar maður á einhverju sniðugu til að gera. Stelpum líka.“ Hjartsláttur nr. 9 með Mike Dred fer fram í Ráðhúskaffi á Ak- ureyri í kvöld, fóstudag, og svo samkvæmt venju á Kaffi Thomsen á sunnudagskvöldið. Forsíðumyndina tók Hilmar Þór af Steina Sharq. á höfuðiö, því B Wm 're/T „Fríkaður öskubakki er hvers manns hug- Ijúfi," sagði kerling með lungnaþembu einu sinni og hitti líkkistunaglann á höfuðið, því til hvers að reykja ef bakkinn er bjánalegur? Eða til hvers að reykja yfirhöfuð? eins og Þorgrímur Þráinsson segir. Þessi fallegi grlll-öskubakkl er dæmi um hugvit og góðar smekk. Góða öskubakka er helst að finna í Kolaportinu og þar má líka finna alla hina litlu en ómissandi hiutina í lífinu. Þess vegna ferð þú þangað um helgina. Þeir sem ekki hafa enn séð Festen á Kvik- myndahátíð ættu að drífa sig og kaupa miðann sinn í tíma. Það er alltaf uppselt. Þeir sem eru þegar búnir að sjá Festen ættu að sjá Brendan Teena Story á sunnu- daginn. Þetta eru þær myndir á hátíðinni sem fær fólk til að hugsa - jafnvel liggja andvaka. Hitt eru síðan allt ágætar myndir sem betra er að sjá í bíó núna en á videoi seinni. Nema The Ugly, hún er jafnvond I btói og á videoi. Hver man ekki eftir samræðum Marðar Árnasonar og Hannes- ar Hólmsteins, sem hnakkrifust vikulega I fréttun- um á Stöð 2 fyrir nokkrum árum? Nú gefst tækifæri til að rifja upp samneytið við þessa spöku menn því þeir þreyta einvígi á Sólóni ís- landusi nk. þriðjudagskvöld kl. 20.30 og koma fram fyrir hönd Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins. Kristín Ólafsdóttir útvarpskona sér um að kombakkið leysist ekki upp I handalög- mál. Gestir mega svo gjamma inn í umræð- urnar, t.d. „æi, þegiði þarna", sem margar hafa eflaust hreytt í sjónvarpstækin þegar kapparnir birtust þar. Á morgun er gráupplagt að bregða sér í Bláfjöll og fylgjast með snjó- brettamóti Týnda hlekksins. Þetta er fyrsta mótið af mörg- um sem sá týndi mun standa fyrir í vetur. Keppt verður I þremur fiokkum; 16 ára ogyngri, 17 ára og eldri og stelpuflokki, óháð aidri. Keppt verður í „slope-style" og munu keppendur þeysa í frjálsri aðferð um palla og áhöld í hinum glænýja snjóbretta- garði í Bláfjöllum. fjallaloft, bretti og dett-á- rassinn: Fullkomið fjör! Hér er góð hugmynd fýrir framapotara: Ást- arhjálpartækjaleigan. Margir vilja eflaust prófa hinar ýmsu gerðir erótískra hjálpar- tækja sem í boði eru en veigra sér við því út af verðinu og nagandi óttan- um við að verða fyrir von- brigðum. Rómeó og Júlía auglýsa t.d. á Netinu „Handunna afsteypu af frægri blámyndastjörnu, sem titrar og hefur sjálf- bleytibúnað", en hvernig er hægt að vita að græjan sé nothæf og 15 þúsund kallsins virði? Hér gæti tækjaleigan „Gisli, Eiríkur og HelgF komið sterk inn og leigt græjuna út á þúsund kall. Rétt eins og videoleigurnar merkja spólurnar „spólið til baka“ myndi þessi leiga merkja sínar vörur „skolið eftir notkun". í dag er bónda- dagur. Það er miður vetur og þorrinn er að ganga í garð. Til að halda upp á þetta allt saman, og þá sér í lagi bónda- daginn, hafa þau í Kaffileikhúsinu efnt til karlrembu- kvölds í kvöld. Dagskrá karlrembukvöldsins verður i senn fyndin og þjóðleg. Gestir munu meðal annars hlýða á harmónikuleik og sannsögulegar karlrembusögur nokkurra þjóð- þekktra aðila. Þá verða þeir Kor- mákur og Skjöldur með tískusýn- ingu, efnt verður til hópsöngs og í boði er að sjálfsögðu þorramatur. Einhver dulúð hvilir líka yfir kvöld- inu, leynigestur og fleira. En á með- al þeirra sem vitað er að koma fram er hljómsveitin Súkkat, sem mun sjá um tónlist kvöldsins, og Auður Haralds sem ætlar að flytja minni karla. Þegar Fókus spurði þetta fólk út í karlrembu voru allir sammála. „Karlremba er eðlilegur hluti af þjóðfélaginu. Ef hún þætti óeðlileg væri hún ekki svona algeng," segir Auður og Hafþór Ólafsson Súkkat- maður er sama sinnis og segir karl- rembu vera innbyggða í menn. Hún hafi eitthvað með hormóna að gera og ef hún sé ekki til staðar hljóti eitthvað að vera að. Hann bætir því jafnframt við að það sé einnig mikill femíni í öllu fólki og þess vegna munu allir vera að leita að jafnvægi. Þótt Auður segi karlrembuna eðli- lega er ekki þar með sagt að hún sé henni hlynnt. „Ég vildi að fólk hefði í sér stærri mann en svo að þurfa að þenja sig yfir aðra. Það eru ekki bara karl- menn sem eru haldnir rembu, til eru alls konar rembur. Til dæmis kven- remba, þjóðarremba og jólamatar- remba. Allar rembur eru flókin fyr- irbæri. Ein tegund rembu sem sum- ar konur hafa yfir að búa er að segja: „Það lifir ekkert hjá mér, það deyja bara öll blóm.“ Hjá sömu kon- um má ekki sjást í rykkorn þá er allt á leið til vítis. Málið er að þar sem jurtir geta ekki lifað líður engum vel. Remban felst í þeirri birtingar- mynd að breyta neikvæðu i já- kvætt.“ Auöur, finnst þér strákarnir í Súkkati vera miklar karlrembur? „Nja. Ég hitti þessa pilta í fyrsta sinn um daginn og þeir voru jafn- ljúfir og mig hefur alltaf grunað. En jafnvel þó mér þætti þeir vera mikl- ar karlrembur myndi ég ekki koma með yfirlýsingu um það hér.“ Kaffileikhúsið verður opnað klukkan átta í kvöld og þá er tilval- ið að ráðast á þorramatinn þjóð- lega. Annars hefst dagskráin klukk- an níu og eftir það kemur hvert skemmtiatriðið á fætur öðru. Súkkat heldur svo tónleika að þessu öllu loknu og tekur helling af lögum af útsaumaða geisladisknum sínum Ull. -ILK Vakniði, stelpur! Fríða pönkari er 21 árs og vill á þing. Svona sé 6-7 ©9 Þig Pör teikna ' |\' hvort annað. Spennu- fíklar og listamenn Steini Sharq um veggja- krotara. 8-9 Modest mouse stefnir upp á við. Næstu Pixies? sinfónísk Metallica er langt frá því hætt í músíkinni. Hver býr í húsinu við hliðina á þér? Götukort 12-13 valdafólksins. Spurð út Víetnam- stríðið! Rætt við Víetnam- Islendinga. 14-15 Tökum ekki eftir 19 grúbbpíum I svörtum fótum í viðtali. Eltingaleikur um París Ronin með Robert DeNiro frumsýnd. Fókus fylgir DV á föstudögum Frægari en Michael Jackson Nýi Fóst- bróðirinn er frá Súðavík. 22-23 Hvað er að gerast? Klassík........................4 Veitingahús..................6-7 Leikhús .......................8 Popp..........................11 Myndlist......................14 Sjónvarp...................15-18 Fyrir börnin..................19 Bíó........................20-21 Hverjir voru hvar..........22-23 22.janúar 1999 f ÓkUS 3

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.