Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Blaðsíða 8
1 e i k h ú s 0! Hrútspungar og spreybrúsar Steini segir a.m.k. þrjátiu stráka á kafi í graffitímenning- unni í dag en bara örfáar stelpur. Strák- arnir eru flestir í „krjúum" (e. ,,crew“) og allir sem fást við þetta hafa graffití- gælunafn. Ég pumpa Steina um nöfn á nokkrum hópum og hann segir mér að í bænum séu „krjú“ eins og B2B - „Bom 2 bomb“ - FMK - „Flow motion Korp“ og COTS - „Code of the streets". „Þegar ég var að byrja var bara handfylli af mönnum í þessu og maður þekkti hverja einustu und- irskrift og vissi hvar allt var segir Steini. „Núna hefur orðið mikil sprengja og það er enda- laust af litlum klárum strákum sem em að koma upp og maður getur bara ekki fylgst með þessu lengur. FMK er hópurinn sem ég er að vinna með. Sharq, Zus, Zinc, Sar, Del 39 og Arek er krjúið." Hvernig velja menn sér nöfn? „Ég er búinn að vera með nokk- ur nöfn í gegnum tíðina. Strák- arnir byrjuðu að kalla mig Steina hákarl því ég var alltaf að tala um hákarla. Ég var mjög hæper-aktíf- ur og nettbilaður unglingur, kannski vegna þess að ég var með svo mikið af málningu í hausnum. En það er mjög misjafnt hvernig nöfnin verða til. Sumir taka sér Haldiö þiö árshátíö? „Nei, en það er pæling, er ekki þorrinn að koma? Við gætum haft hrútspunga og spreybrúsa. Við hittmnst bara mikið, erum bara vinir.“ Byrja menn sem bombarar og þróast svo út í graffitílistamenn? Er þetta spurning um þroska? „Nei nei, það eru sumir sem fara aldrei upp úr bombinu. Ég ber meiri virðingu fyrir mönnum sem leggja metnað í að gera verk.“ Ert þú þá hættur aö úöa nema með leyfi? „Já, ég nenni ekki að standa í hinu. Ég er frekar heiðarlegur ungur maður. Svo er líka farið að sekta fyrir þetta og mér finnst bara asnalegt að vera að gera þetta þar sem fólk vill þetta ekki. Ef maður er að gera þetta í leyfi getur maður eytt meiri tíma í Jj^ðköp) spcfinu Spreyjarar eru að verða viðurkenndir í sam félaginu. Nú fá þeir heilu veggina til að sprauta á og fólki finnst það bara hið bestE mál, enda myndirnar oft hið mesta augna yndi. Svo eru það veggjakrotarar í orðsins fyllstu, sem gefa lítið út á myndlistarpæling ar og sprauta táknin sín á veggi úti um allan bæ. Steinar V. Pálsson - eða Steini „Sharq“ - er einn helsti graffitígúrú borgar- innar. Hann er búinn að úða í tíu ár og þekkir þennan menningarheim út og inn. Dr. Gunni hitti kappann og fékk að vita allt um íslenska graffitíheiminn. I kvöld kl. 20 frumsýnir Borgarlelkhúslö á stóra sviöinu Horft frá brúnni eftir Arthur Mlll- er í nýrri þýðingu Sigurðar Pálssonar. Sögu- svið verksins er hafnarhverfi ítalskra innflytj- enda í New York. Hafnarverkamaðurinn Eddie (Eggert Þorleifsson) og eiginkona hans (Hanna María Karlsdóttir) ganga Katrínu (Marta Nordal), systurdóttur konunnar, í for- eldrastað. Þegar fram líða stundir veröur Katrín ástfangin af Italanum Rodolpho (Guð- mundur Ingi Þorvaldsson) og blossar þá upp afbrýðisemin í Eddie og það rennur uþþ fyrir honum að tilfinningar hans I garð Katrinar eru flóknari en hann hafði gert sér grein fyrir. Sím- inn í Borgarleikhúsinu er 568-8000. Á sunnudaginn frumsýnir Hvunndagslelkhúslö í lönó leikritið Frú Klein eftir breska höfundinn Nlcholas Wrlght í leikstjórn Ingu Bjarnason. Margrét Ákadóttir, Steinunn Ólafsdóttir og Guðbjörg Thoroddsen leika verkið sem gerist i London árið 1934 á heimili frú Klein en þá starfaði hún þar sem sálkönnuður. Melanie Klein var einn af frumkvöðlum sálvísindanna og lagði m.a. grunn að meðferö til hjálpar börnum. Hún reyndi einnig aö betrumbæta kenningar Freuds og vafði þær kvenlegu sjón- arhorni. Ytra umhverfi verksins er upphaf gyð- ingaofsókna síöari heimsstyrjaldar en Klein var af gyðingaættum. Þýðandi verksins er Sverrir Hólmars- son. Sími 530- 3030. ÞJóölelkhúslö. Solvelg verður leikin á miöviku- daginn kl. 20, næstsíðasta sýn- ing, Sími 551- 1200. íslenska óperan. Fellx Bergsson er Hlnn full- komnl Jafnlngl á morgun kl. 20, örfá sæti laus. Næsta sýning á þriöjudagskvöldiö, örfá sæti laus. Sími 551-1475. Borgarlelkhúslö. Sex í svelt á stóra sviði kl. 20 á morgun, uppselt. Leikhúsið auglýsir að kominn sé biðlisti á næstu sýningar. Sími 568-8000. Þjóöleikhúslö. Brúöuhelmlllö er á stóra svlö- Inu kl. 20 í kvöld, uppselt. Einnig er uppselt á sýninguna á sunnudagskvöldið. Örfá sæti eru hins vegar laus á sýninguna á fimmtudags- kvöldið. Sími 551-1200. Loftkastallnn frumsýndi leikritið Mýs og menn I gærkvöldi. í kvöld kl. 20.30 verður önnur sýn- ing og á sunnudagskvöldiö sú þriðja. Hilmir Snær og Jói stóri standa sig með stakri prýði og þessi margsagða saga Steinbecks gamla er sjálfsagt seint of oft sögð. En einhvern tím- ann kemur að því. Sími 552-3000. Borgarlelkhúslð. Búa saga á lltla svlðlnu I kvöld kl. 20. Sími 568-8000. íslenska óperan. Hellisbúinn er I kvöld kl. 20, uppselt, á morgun kl. 23.30, uppselt og á sunnudag- inn kl. 20, upp- selt. Simi 551- 1475. Þjóölelkhúslð. Á litla sviöinu er Abel snorko býr elnn leikinn á morgun kl. 20, örfá sæti laus. Sími 551-1200. Hafnarfjarðarleikhúslö sýnir Vírus - tölvu- popplelk, á morgun kl. 20. Sími 555-0553. ÞJóðlelkhúsiö, Smíðaverkstæölö. Maöur i mlslitum sokkum í kvöld kl. 20.30, uppselt. Á morgun kl. 20.30, uppselt. Á sunnu- daginn kl. 20.30, uppselt. Á fimmtudaginn kl. 20.30, uppselt. Sími 551-1200. lönó sýnir leikritiö Rommi kl. 20.30 á morgun, nokkur sæti laus. Næsta sýning á fimmtudaginn. Sími 530- 3030. Iðnó. Þjónn í súpunnl kl. 20 í kvöld. Sími 530-3030. Þjóölelkhúsiö. Tveir tvöfaldir á morgun kl. 20, nokkur sæti laus. Simi 551-1200. TJarnarbíó sýnir leikritið Svartklæddu konuna á morgun, laus sæti laus kl. 21. Sími 561-0280. Bak vlö eyrað sýnir Málþing hljóönandl radda kl. 20.30 á laugardaginn, síðustu sýn- ingar. Við göngum niður Laugarveg- inn og lítum á verkin. Á nánast alla veggi er einhver búinn að tjá sig með úðabrúsa. Þessi ógreini- legu tákn eru merkimiðar úðar- anna. Steini þekkir flestar „und- irskriftirnar" en er hrifnari af því þegar „graffarar" gera eitthvað metnaðarfyllra. Svo fáum við okk- ur kaffi. Á hverju byrja menn þeg- ar þeir fara að úöa? „Ætli þeir byrji ekki á því að koma sér upp græjum og fari svo að eyðileggja eigur almennings", segir Steini og hlær. „Þetta eru bara venjulegir spreybrúsar sem hægt er að fá í málningarvöru- verslunum. Þetta er ekkert merki- legra en það, þó ég hafi unnið með sérpöntuðu bílaspreyi stundum. Það er mikið stuð. Maður notar svoleiðis þegar maður er að vinna fyrir ríka kúnna. Svo er hægt að sérpanta tappa á brúsana, það var gífurlegur munur að úða eftir að ég fattaði það.“ Steini hefur stundum fengið það verkefni að úða á veggi í heimahúsum. Honum finnst það oftast koma illa út því það er svo lítil fjarlægð en hann talar um gott abstraktverk sem hann úðaði nýlega í eldhúsi eins arkitekts í bænum. En hvaö gera menn svo? spyr ég. Koma graffarar sér upp undirskrift? „Já, undirskriftin er kjarninn í grafTitípælingunni. Það er það sem þú ert. Hvemig þú sérð þig, hvernig aðrir sjá þig, það sem þú vilt vera. Það er þannig sem þú „representar" þig, svo við notum góða íslensku. Þetta gengur út á það að koma nafninu þinu upp, skilja eftir þig falleg verk svo að fólk taki eftir nafninu þínu, eða aðrir graffarar, því við gemm þetta helst hver fyrir annan og okkur sjáifa, þó það sé ábyggilega gaman fyrir fólk að sjá þetta frek- ar en gráa borgina." Bombarar og listamenn Eru einhverjar siöareglur í þess- um bransa? „Já, alls konar siðareglur. Graffarar eru hinir mestu montrassar og mjög svo tauga- spenntar mannverur. Á fjölmáluð- um stöðum ferðu ekki yfir verk hjá öðmm nema það hafi staðið þar mjög lengi. Ef þú ferð yfir verk hjá öðmm er það sama og að pissa í skóna hans, eða að sofa hjá konunni hans. Þá fer hann að fara yfir verk hjá þér eða þið ákveðið kannski að fara í bardaga - eða „battle", eins og það er kallað. Það er sterkt í hipphopp-menningunni að berjast, þeir gera það plötu- snúðar og breikarar. Bardaginn fer þannig fram að tveir málarar ráðast á sama vegginn, sinn hvor- um megin, og gera sinn hvom hlutinn - megi sá betri sigra.“ Hver dœmir um þaö? „Aðrir graffarar og þeir sjálfir. Hvor er með betri stíl.“ Nú ertu að tala um myndir, er þaö ekki? Hvaö meö krafsiö? „Hvað ertu að kalla krafs? Meinarðu undirskriftirnar, eða „töggin", eins og það er kallað?" Já, œtli þaö ekki bara. „Það er bara lítill hluti af þessu. Það era til tvær tegundir af graffi- tíi. Það eru „bombarar", sem hlaupa út um víðan völl með brúsa og penna og koma nafninu sínu upp á þeim stöðum sem þeir koma við á - á almenningsklósett- um, húsveggjum, strætisvögnum, biðskýlum - alls staðar. Bombarar gera einföld verk sem taka 2-3 mínútur í uppsetningu, oftast nær nafnið sitt eða nafnið á hópnum sem þeir tilheyra. Síðan er það hin tegundin, sem er graffitílista- menn. Menn sem eru að gera út á - ég segi ekki meiri - en á öðrum metnaði. Ég tel mig tilheyra seinni hópnum. Mér finnst Reykjavík of lítill og of fallegur staður til að hann eigi að vera undirlagður undir bombara. Mér finnst allt í lagi að menn komi „töggun- um“ sínum upp á nokkrum stöðum en ég er ekkert sérstak- lega hrifinn af því þegar menn hlaupa kannski einhverja nóttina og gera sama hlutinn á annað hvert hús.“ nöfn, öðrum er gefið nafn, t.d. ef þú værir lítill og ljóshærður gæt- irðu verið kaflaður Blondie. Menn fá jafnvel nöfn frá þeim sem kenndi þeim listina, þá með 2 fyr- ir aftan. Til dæmis gæti nemandi minn heitið Sharq 2. „ Ert þú leiötogi FMK-krjúsins? „Ja, ég er elstur, en vil ekki setja mig á háan hest þó ég hafi verið lengur en þeir í þessu. Ég get kennt þeim ýmislegt og þeir mér, en við erum allir jafnir.“ f Ó k U S 22. janúar 1999 8

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.