Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Blaðsíða 9
verkið og hugsanlega líka fengið
borgað fyrir það.“
Er þetta allt tengt hipphopp-
menningunni. Hlusta úöarar á
rapp og eru á hjólabrettum?
„Þetta er allt sprottið þaðan, já,
en samt ekki. Það hefur teygst svo
á þessu. Sjáðu mig; ég klæði mig
svona og fólk sem sér mig úti á
götu segir, þarna er gæi sem
hlustar á rapp og bla bla bla, en
ég er t.d. alæta á músík, hef gam-
an af þungarokki og pönki alveg
eins og af hipphoppi. En graffití-
ið sýnir oft hipphoppmenningu.
Þú ert að gera B-boys fígúrur,
stráka með derhúfur í stórum
buxum. Þetta er mjög
hipphopptengt, líka slangrið sem
fylgir með.“
Lanaar að gera eitt-
hvao þjóðlegt
Hefur komið eitthvaö sérís-
lenskt út úr þessu?
„Nei, því miður. Alla vega sé
ég það ekki, en það er kannski
betra fyrir einhvern útlending að
dæma um það. Manni finnst t.d.
íslensk músík vera óskaplega al-
þjóðleg en samt heyra útlending-
ar eitthvert evrópskt sánd í því
eða jafnvel eitthvað séríslenskt.
Það er nákvæmlega sama með
graffitíið, það hefur ekki komið
neinn séríslenskur stíll. Það er
þó hlutur sem ég hef mikið spáð
í að fara að gera. Mig langar til
að gera eitthvað þjóðlegt."
Hvernig þá?
„Kannski myndir af kindum,
rúnum, víkingum eða eldgosi. Ég
veit það ekki, ég þarf að pæla að-
eins betur í því hvernig ég get
náð þessu á sem eðlilegastan
hátt. Mig langar til að gera eitt-
hvað sem er íslenskt, eitthvað
sem fólk sér að er sérstakt."
Graffarar eru spennu-
fíklar
Til landsins kom nýlega banda-
rískur glœpafrœöingur sem taldi
krotiö geta verió skilaboð á milli
glœpagengja. Hvaö finnst Steina
Sharq um þetta?
„Þetta var bráðfyndið bull og
kjaftæði. Hann kom úr allt öðr-
um menningarheimi og sá sömu
merkin og sama fílinginn og drá
bara ályktanir af því.“
Koma íslensku „krjúin“ sitt
hverjum hluta borgarinnar?
„Já, en ekki endilega. Menn
rotta sig bara saman eins og ann-
að fólk gerir. Þetta er bara hóp-
ur, þannig lagað bara eins og
hljómsveit. Þetta geta verið
strákar sem ólust upp saman eða
strákar úr sinn hvorum bæjar-
hlutanum. Strákarnir sem ég er
að mála með koma héðan og það-
an. Þetta er ekki það stór borg að
þetta sé mjög hverfaskipt."
Engin stríö á milli?
„Nei, en ég er farinn að heyra
að erlendis sé leiðinlegt „atmó“ i
gangi, eins og t.d. í Hollandi. Þar
er séns að annar graffari komi og
lemji þig og steli málningunni
þinni. Ég er feginn að það er ekk-
ert svoleiðis hér. Þó menn séu
fljótir upp ef einhver málar t.d.
yfir verkin þeirra þá er aldrei
gengið lengra en að útkljá málin
bara á veggjunum. Graffarar eru
spennufíklar, hlaupandi um i
skjóli nætur. Þetta er bara list-
sköpun fyrir spennufíkla. Það er
spennandi að vera á næturnar að
gera eitthvað sem þú mátt ekki
gera. Þetta gengur líka mikið út
á stolt. Þú ert þessi, þetta tákn,
og þitt missjón er að koma því
upp á sem flestum stöðum, vera
búinn að gera sem mest. Ef ein-
hver er að hreyta einhverju í þig
fær hann að finna fyrir því.“
Hvaö œtlaröu aö verða þegar
þú ert oröinn stór?
„Ég ætla ekkert að verða stór.
Ég ætla bara að halda áfram að
vera strákur. Áherslurnar breyt-
ast kannski en maður veit aldrei
hvað gerist. Helst langar mig til
að gera það sem ég hef verið að
gera, að mála og búa eitthvað til,
bara að vera að skapa eitthvað.
Graffarar eru góðir strákar sem
vilja bara búa eitthvað til. Að
lokum vil ég skutla kveðju í
krjúið mitt, FMK, með mikilli
virðingu. Einnig kveðja til COTS
og allra graffaranna sem eru að
gera eitthvað af viti og metnaði."
-glh
ytt
„Þetta er Lopez,
eða Lpz eins og
hann skrifar það
stundum. Ég segi
auðvitað ekki hvað hann heitir og ég
veit ekki hvort hann er i einhverju krjúi.“
er tagg-
veit
hver þetta er,
það er búið að spretta svo mikið upp af
nýjum strákum í þessu að ég rugla öllum
saman. En ég á aö þekkja hann. Vonandi
veröur hann ekki fúll."
„Þetta er tagg fyrir
krjúið TMC en ég
veit ekki hverjir eru
í því eða hvaðan
það kemur."
„Senze. Ég man ekki
heldur hver það er -
alltof mikið af málningu
í hausnum á mér.“
„Smile er gaur sem hefur
skipt um tagg núna,
enda var hann böstaður."
Ármúli 13
Sími söludeild 575 1210
Skiptiboró 575 1200
Veldu þinn uppáhaldslit á Renault Clio
Aukabúnaóur á myi
Álfelgur og þokuljós.
Helstu öryggisþættir:
• ABS bremsukerfi
• Loftpúðar
• Fjarstýrð hljómtæki úr stýri
• Samfellanlegt stýri
• Nýtegund öryggishöfuópúða
• Styrktarbitar í hurðum
Veró frá 1.188.000 kr.
RENAULT
22. janúar 1999 f Ókus
9