Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Page 10
Glöggt er
Nú er von á þriðju breiðskífu
bandarísku skaðræðisrokksveitar-
innar Type 0 Negative og eru þung-
arokkarar víðs vegar þegar orðnir
spenntir, enda voru tvær fyrri plöt-
urnar vinsælar. Peter Steele,
söngvari og bassaleikari sveitarinn-
ar, hefur dvalist á íslandi og segir
dvölina hafa haft mikil áhrif á lög-
in á nýju plötunni. Um ísland segir
Peter þetta: „Það er jafndýrt og það
er fallegt, ísland er svo sannarlega
land elda og ísa. Andstæðurnar
hafa búið um sig í skapgerð íbú-
anna. Þeir geta verið kaldir og
hranalegir en á einu augabragði
geta þeir breyst í hlýjasta og vina-
legasta fólk sem ég hef fyrirhitt.“
Búist er við að platan komi út í
sumar og verða textar Peters um til-
finningalegt umrót og missi. Á fyrri
p 1 ö t u n u m
söng hann að-
allega um
konur og trú-
arbrögð svo
íslandsdvöld-
in hefur
beint rokkar-
anum inn á
við. Tónlist-
in verður líka poppaðri en áður og
má jafnvel búast við að áhrif frá
Bítlunum og The Doors verði með i
spilinu.
Isaak Brock, söngvari hljóm-
sveitarinnar Modest Mouse, er
orðinn leiður á blaðamönnum og á
tímabili var hann að spá i að hætta
að fara í viðtöl. „Ég var alltaf
spurður hvort mér væri sama þó
hljómsveitin væri borin saman við
íslenski t > s t ínn|
NR. 307
vikuna 22.1-29.1. 1999
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
S*ti Vikur LAG FLYTJANDI22/1
1 14 SWEETESTTHING ................................U2 1
2 3 HARD KNOCK LIFE.............................JAYZ
2 PRAISEYOU .............................FATBOY SLIM
8 WHEN YOU BELIVE ... .MARIAH CAREY & WHITNEY H0UST0N
2 EVERYTIME...........................JANET JACKSON
7 FLYAWAY.............................LENNY KRAVITZ
7 STJÖRNUR .....................SÁLIN HANS JÓNS MÍNS
6 THE EVERLASTING ...........MANIC STREET PREACHERS
7 REMOTE C0NTR0L.......................BEASTIE BOYS
1 LOTDS.....................................R.E.M.
5 ALARM CALL (FRENCH MIX) ...................BJÖRK
5 BÍDDU PABBI..............................SÓLDÖGG
2 MÉRERSAMA...............................BUTTERCUP
14 12 l'MYOURANGEL..................R.KELLY & CELINE DION
15 7 ÁSTARFÁR.............................LAND 0G SYNIR
16 1 ERASE/REWIND .......................THE CARDIGANS
17 3 PERFECT10 ..........................BEATUFUL SOUTH
SPLÚNKUNÝTT LAG (DANSREMIX) .............STUÐMENN
BLAME IT 0N THE B00GIE .....................CLOCK
N0 REGRETS .......................ROBBIE WILLIAMS
AS..................GEORGE MICHAEL & MARY J. BLIGE
POWER 0F G00D-BYE ........................MADONNA
SKYZO ............................SÚREFNI & HÖSSI
H0TH0T HOT(REMIX) ........................LLC00LJ
BIGBIGWORLD ...............................EMILIA
THERE GOES THE NEIGHB0RH00D..........SHERYL CROW
LOVE ME IN SLOW MOTION.................TOTALTOUCH
15/1
1
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36 11
37 2
38 1
39
40
TAKE METHERE...........BLACKSTREET & MYA (RUGRATS)
GIRLS ON FILM (REMIX)................DURAN DURAN
MALIBU .....................................HOLE
LIFI ÁFRAM...............................SÓLDÖGG
SERCHIN’MY SOUL ..................VONDA SHEPARD
NOBODYS SUPPOSED TO BE HERE..........DEBORAH COX
UPANDDOWN ............................VENGABOYS
DAYSLEEPER................................R.E.M.
DRAUMUR UM STRAUM.........................SÚKKAT
LULLABYE .........................SHAWN MULLINS
WHAT A FOOL BELIEVES................... M-PEOPLE
SO YOUNG................................THE CORRS
2 2
5 -
3 3
12 -
4 9
17 13
7 4
6 8
13 16
9 20
15 -
8 7
11 10
■ nvtt
19 34
21 23
18 12
22 -
24 30
10 5
16 17
26 -
14 14
I N V T T
27 28
23 18
30 31
20 11
33 -
39 -
29 22
40 -
35 36
28 15
31 -
Inýtt
37 40
Invtt
Taktu þátt í vali listans
í síma 550 0044
ftllHÞMIi'/
íslenski listlnn er samvinnuverkeFni Bylgjunnar og DV. Hringt er
í 300 til 400 manns á aldrinum 14 til 35 ára, aF öllu landinu.
Einnig getur Fálk hringt í síma 550 0044 og tekifi þátt f vali
listans. íslenski listinn er frumfluttur á Rmmtudagskvöldum á
Bylgjunni kl. 20.00 og er birtur á hverjum Föstudegi í DV. Ustinn
er jaFnFramt endurFluttur á Bylgjunni á hverjum laugardegi kl.
q 16.00. Ustinn er birtur, a5 hluta, í textavarpi MTV sjónvarps-
y stöðvarinnar. íslenski listinn tekur þátt í vali „World Chart“ sem
Framleiddur er aF Radio Express f Los Angeles. Einnig heFur hann
áhriF á Evrópulistann sem birtur er f tónlistarblaðinu Music &
Media sem er rekið af bandarfska tónlistarblaðinu BiTlboard.
Yftrumsjón með skoðanakfinnun: Halldóra Hauksdóttlr - Framkvæmd könnunan Markaðsdelld DV - Tölvuvinnsla: Dódó
Handrit helmlldaröflun og yfirumsjón með framlelðslu: ívar Guðmundsson - Taeknistjóm og framleiðsla: Forsteinn Ásgeirsson og þráinn Steinsson
Útsendingastjóm: Ásgelr Kolbelnsson, Jóhann Jóhannsson og Ragnar PáH Ólafsson - Kynnir f útvarpi: ívar Guðmundsson
The Pixies eða Built to Spill. Hvern
djöfulinn átti ég að segja? Að ég
væri brjálaður yfir því? Mér er al-
veg sama hvað fólk segir um okkur,
þess vegna mættu blaðamenn bera
okkur saman við Sade og Prince."
í kringum Modest mouse er nú
mjög jákvætt „böss“ í gangi. Sum-
ir tala um að þama sé komin ný
svöl rödd hins sjálfstæða rokks,
eins konar ný Pixies, sem ætti auð-
veldlega að geta orðið jafnvinsæl. í
aðdáendaklúbbnum er lið eins og
Nine Inch Nail-arinn Trent
Reznor og hinn aldurhnigni pönk-
ari Bob Mould. Hljómsveitin er
tríó og varð til í bílskúr í smábæn-
um Issaquah í Washington-ríki
árið 1992. Þá voru strákamir langt
undir tvítugu og æfðu í skúr. Þeir
komu út smáskífu hjá K Records,
sem er fornfræg neðarjarðarútgáfa í
Washington-ríki, nokkrum fleiri
smáskífum og svo albúmi sem heit-
ir því skemmtilega nafni „This Is a
Long Drive for Someone with not-
hing to Think about“. í fyrra kom
svo út önnur platan, „The lonesome
Crowded West“ og þá fór boltinn að
rúlla verulega.
Heimsókn frá djöflinum
Hljómsveitin er á samningi hjá
smáfyrirtækinu Up en megamerkið
Dreamworks finnur peningalykt og
vill fá bandið yfir til sín. Isaac kann
vel við sig hjá Up en hefur ekkert á
móti þvi að færa sig upp á skaftið:
„Eg hef takmarkaða menntun og vil
ekki vera í skítadjobbum út lífið.
Ég er alveg til í að fá smá peninga
fyrir að spila og hefði ekkert á móti
því að eignast mitt eigið hús ein-
hvern tímann."
Nú býr sveitin saman í íbúð í
Seattle. Isaac veit þó um hættumar
sem fylgja því að skrifa upp á
samning hjá risafyrirtæki.
„Kommersíal rokk er yfirleitt frek-
ar ömurlegt, en það þarf ekki að
vera þannig. Ég held við gætum al-
veg passað okkur að verða ekki öm-
urlegir þó við förum að fá peninga
fyrir að spila."
Nýja platan er hið fínasta rokk
með áhrifum úr bandarísku indí-
rokki - Pixies, Meat Puppets, Pa-
vement, Fugazi - og kaldhæðnum
textum sem eru langt yflr meðal-
lagi, um lifið og dauðann, Jesús og
Satan. Rödd Isaacs getur bæði ver-
ið há og iðandi og þreytuleg og
værukær. Eftir fyrstu hlustun gæti
þér verið smávægilega óglatt en eft-
ir nokkra tíma ertu búinn að fatta
hvert bandið er að fara. Eftir viku
ertu kominn þangað líka.
Bandið spilar að meðaltali sex
mánuði á ári af því þeim líkar
túraliflð. Þetta era frægar fyllibytt-
ur í bransanum og virðist nokkurn
veginn vera sama um allt nema
bandið og tónlistina. Næsta verk-
efni Hógværu músarinnar gæti ver-
ið að semja tónlist fyrir ónefnda
Hollywood-kvikmynd, „ef mér lýst
á það“, segir Isaac. „Upp á síðkast-
ið hef ég verið að semja texta um
djöfulinn og himingeiminn. Ég hef
engan áhuga á guði, eða einhverju
þannig kjaftæði, en ég er nokkuð
viss um að ég fékk heimsókn frá
djöflinum. Hann kemur ekki á dag-
inn, heldur heimsækir hann fólk í
draumum þess.“
Þanebblega það. Modest Mouse:
kengruglað rokkband sem gæti orð-
ið risaband eftir ár. Þú last það
fyrst hér.
-glh
E
geislanum
Beretta 70
oié'í) sieLj/j)
■i
Þýska eðalfirmað Crippled
Dick Hot Wax hefur glatt músík-
pælara ítrekað að undanfornu
með frikuðu efni og óvenjulegu,
t.d. með þýskri klámmyndamús-
ík og stórfurðulegri tónlist úr
spænskum B-hrylIingsmyndum.
Á Beretta 70 er haldið áfram að
grafa upp gleymda stórsnilld og
nú er leitað í brunn italskra
lögguspennutrylla frá tímabil-
inu 1971-80. Að vanda er útgáfan
rausnarleg; bæklingurinn hlað-
inn upplýsingum, hugleiðingum
og glansmyndum og diskurinn
troðfullur af tónlist.
Alveg eins og aðrir áratugir
hefur sá áttundi - seventísið -
sinn sjarma. Hann hef-
ur lengi þótt nokkuð
spennandi í upprifjun,
úrkynjaður og sak-
laus, og tískan fyndin
með sínum börtum,
útvíðu buxum og
stultuskóm. Tónlistin
hér fer ekki í felur
með uppruna sinn og
minnir um margt á það sem var
að gerast í bíómyndatónlistinni
í Bandaríkjunum: sumt hér
minnir á eggjandi fönkið úr
Shaft, annað á spennubrokkið
úr French Connection. Það er
kæruleysislegur léttleiki yfir
öllu saman og flott grúf í gangi,
mikið af
ýktum skælifótstigum (va-va),
bongótrommum og hlægilegum
ítölum sem reyna að syngja eins
og blökkumenn með afrókollu
frá Bronx. Sem sagt: góð slepja
fyrir grúskara og gæðaglæða í
gleðskapinn.
plötudómur
Ýmsir fíytjendur - Rokkstokk ‘98: 0
Tónliö^ zbm kfeppnfefþTÖtl
Tónlist er ekki keppnisíþrótt en
hljómsveitakeppnir hafa samt alltaf
notið vinsælda. Enda gott tækifæri
fyrir unga tónlistarmenn til að
koma sér á framfæri, hvort sem það
er upphafið að löngum ferli eða eitt-
hvað sem menn reyna að gleyma
sem fyrst. Músíktilraunir Tónabæj-
ar eru orðnar að stórviðburði og
sigurvegarar þeirrar keppni njóta
oftar en ekki talverðra vinsælda í
kjölfar sigursins. Nægir þar að
nefna Greifana og Botnleðju, en þær
sveitir sýna líka vel hvaða breyting-
um tónlistarsmekkur landans hefur
tekið síðustu tíu árin eða svo.
Rokkstokk er sams konar keppni.
Hún var haldin í Reykjanesbæ í júlí
síðastliðnum og uppákoman tekin
upp og gefin út öðrum til ánægju
eða aðvörunar.
Hljómsveitirnar tuttugu og ein
sem láta ljós sitt skína á plötunni
eru af ýmsum toga en gítarhljóm-
sveitir í harðari kantinum eru þó í
meirihluta. Þeirra best er hljóm-
sveitin Varð, sem varð í öðru sæti i
keppninni. Varð blandar saman
gítörum og sömplum á skemmtileg-
an hátt og virkar geysiþétt.
Terrance er á svipuðum slóðum, há-
vaðaband sem öskraði sig upp í
þriðja sætið. Sigurbandið ber hið
aðlaðandi nafn Klamedia X og sker
sig nokkuð úr. Minnir einna helst á
það sem kallað var framsækið rokk
á áttunda áratugnum. Útsetningarn-
ar eru ofhlaðnar fyrir minn smekk
og flautuleikur í rokktónlist er auk
þess harðbannaður, samkvæmt svo-
nefndum Jethro Tull lögum frá ár-
inu 1979.
Tölvutónlist átti vitaskuld sína
fulltrúa á Rokkstokk, enda íslenskt
ungviði tölvuvætt og hæg heimatök-
in. Virus liður fyrir lélegt sánd en
hefði annars hljómað eins og eftir-
líking af Prodigy, svo það er í lagi.
Oblivion er með gangsta rappið á
hreinu, en það finnst mér alltaf
hljóma hálf ankannalega með ís-
lenskum hreim. „Tick tack, I don’t
smoke crack“! Fæst það í Keflavík?
Efnilegir samt, sem er meira en ég
myndi segja um Albinóa 98. Hann,
eða þeir eru í mesta lagi efnilegt
efni í efni og það bara ef maður set-
ur sig í jákvæðu ágætthjákrökkim-
um stellinguna.
Þessi plata hefur sjálfsagt mest
gildi fyrir þá sem að uppákomunni
stóðu og vitaskuld er gaman fyrir
hljómsveitimar sem komu fram að
eiga eitthvað til minningar um það.
Fyrir hinn almenna hlustanda er
málið flóknara; ég kem ekki til með
10
f Ó k U S 22. janúar 1999