Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.1999, Qupperneq 13
VALUR VALSSON
HELGI ÞORGILS FRIÐJ0NSSONI
DAVÍÐSSON
'AR VALDINIÁRSSONl-
HALLGRlMUR SNORRASON [
MATTHÍAS JOHANNESSEN
-ATLI HEIMIR SVEIHSSON
MARKUS ÖRN ÁNTONSSON]
W^BJÖRK GUÐMUNDSDÓTTIR
X ' GUÐJÓN MÁR GUÐJÓNSSON
IHÓSKULDUR JONSSON'
ÍJONAS KRISTJÁNSSON
iKARL SIGURBJÖRNSSQnI
BUBBI MORTHENS
IHALLDÓR BLÖNDAL
SINUNN ÓLÍNÁ ÞORSTEINSDÖTTIR
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIr''
IPÉTUR KR. HAFSTEIN
'GUÐBERGUR BERGSSON jttEEl
ÞORSTEINN PALSs5Ngg§
FRIÐRIK SOPHUSSON
EINAR MÁR GUÐMUNDSSON
iFINNUR INGOLFSSON
FRIÐRIK POR FRIÐRIKSSON
bir'gÍrIsleifur GUNNARSSON
HÖRÐUR SIGURGESTSSON
STYRMIR GUNNARSSON
ILAFUR RAGNAR GRÍMSSON
;GUNNAR ÖRN KRISTJANSSON
Hverfi komast í tísku. Og fara úr tísku. Fyrir fáum árum vildu allir komast í gott úthverfi. Nú vilja allir flytja niður í bæ.
Stundum eru byggð upp hverfi sem eiga að vera fín og stundum verða þau fín.
En stundurm verða þau ekki nógu fín heldur hálf hallærisleg. Fókus kannaði hvaða hverfi Reykjavíkur geta með sanni kallast fín og hver ekki,
hver eru í tísku og hver ekki, með því að skoða hvar um 200 valds- og áhrifamenn búa.
S?e
tís
félagsfræðikenning sem
ðefur verið einna mest í
'tísku undanfarin ár mætti
kalla kenninguna um brotnu rúð-
una. Hún er byggð á tilraun sem
framkvæmd var í mismunandi
hverfum í ýmsum borgum Banda-
ríkjanna. Þeir sem stóðu að könn-
uninni byrjuðu á því að brjóta
framrúðu í nokkrum bílum og
komu þeim síðan fyrir í vegkanti
eða upp við gagnstétt. Viku síðar
athugðu þeir hver hefðu orðið af-
drif bílsins. í sumum hverfum stóð
hann enn óhreyfður. Það flokkuðu
þeir sem góð hverfi. í öðrum hverf-
um var búðið að brjóta nokkrar
rúður til viðbótar, skrapa aðeins í
lakkið eða jcifnvel pissa utan í bíl-
inn. Slík hverfi voru kölluð miður
góð. í enn öðrum hverfum var bíl-
inn horfinn, það var búið að stela
honum. Það voru vond hverfi. Og í
sumum hverfum var búið að
lúskra algjörlega á bílnum, kveikja
í honum, skera á dekkinn og rífa af
honum hurðir og skott. Það voru
alvond hverfi, þar sem íbúamir
höfðu ekki einu sinni fyrir að stela
bílnum heldur notuðu hann frekar
sem tæki til að tjá algjöra fyrir-
litngu sina á verðmætum.
Þegar könnunarfólkið fór síðan
að kanna þessi hverfi komust þeir
að því að eitt skiptir mestu máli
um hvort hverfi verða góð, slæm
eða alvond. í góðum hverfum býr
alls konar fólk, en viss hluti þess
gegnir störfum sem bera með sér
svo góðan þokka að böm og ung-
lingar líta upp til þessa fólks.
Bandarískt þjóðfélag er svo skrýtið
að tilraunarfólkið mat það svo að
kennarar væru kjölurinn í þessum
fyrirmyndar-starfshópum. Hér
heima em þeir hins vegar dreggjar
samfélagsins ef marka má yfirlýs-
ingar talsmanna stéttarinnar
sjálfrar. En hvað um það. Þegar
fjöldi þessara fyrirmynda dettur
niður í 5 prósent af íbúum eins
hverfis rambar það á mörkum góðs
og slæms hverfis. Ef hins vegar
færri en 5 prósent íbúanna tilheyra
fyrirmyndarstéttum er voðinn vís,
mórallinn í hverfinu hrynur niður
fyrir það að geta kallast mennskur.
Hverfið verður frumskógur.
Þessi kenning er rifjuð hér upp í
tilefni af ólátunum í Hagaskóla eft-
ir síðustu áramót. Það kom nefni-
lega í ljós þegar Fókus kannaði
hvar ríkasta, valdamesta og vin-
sælasta fólkið á höfuðborgarsvæð-
inu býr, að hverfið í kringum
Hagaskólann - Melarnir og Hag-
amir - em alfmasta hverfi Reykja-
víkur. Þar búa forsætisráðherrar,
hæstaréttardómarar, viðskiptajöfr-
ar, skáld og listamenn hver innan
um annan. Þar er varla hægt að
skjótast út í sjoppu án þess að
rekast á fyrirmynd - fólk sem skar-
ar framúr á öllum sviðum. Samt er
allt í hers höndum í Hagaskóla.
Það skyldi ekki vera að það hafi
eitthvað verið til í því sem Stein-
grímur Hermannsson sagði um
árið, að það væri ekki víst að öll
lögmál vestrænna samfélaga giltu
á íslandi.
Mislukkuð fín hverfi
En úr því að minnst er á Stein-
grím þá er best að byrja þessa yfir-
reið um hverfi höfuðborgarinnar í
hverfinu hans. Hann býr á Amar-
nesinu. Þegar það var skipulagt
sáu bæjaryfirvöld í Garðabænum
fyrir sér að þar myndu sómar ís-
lands, sverð og skildir, búa í
hverju húsi. Þegar Fókus safnaði
saman helstu stjómmálamönnum
þjóðarinnar, stjórnendum öflug-
ustu fyrirtækjanna, forsvarsmönn-
um helstu stofnanna, vinsælustu
skemmtikröftunum og leikumnum
- alls um 200 manns - kom í ljós að
aðeins þrír úr þessum stóra hópi
búa á Amamesinu: Guðrún Er-
lendsdóttir hæstaréttardómari,
Bogi Pálsson forstjóri P. Samúels-
son og Jón Helgi Guðmundsson
forstjóri BYKO. Meira að segja
Hólahverfið í Breiðholti býður upp
á fleiri stórmenni en Amarnesið.
Eins er ljóst að Laugarásinn -
sem fyrir nokkrum áratugum var
kallaður Snobbhill - hefur látið á
sjá. Þar em ekki lengur fyrir-
menni í hverju húsi. Þar búa þó
Stefán Friðflnnsson, forstjóri ís-
lenskra aðalverktaka, Frosti
Bergsson, forstjóri Opinna kerfa,
og Bryndís KQöðversdóttir þing-
kona. Og í næsta nágrenni em
nokkur fyrirmenni, til dæmis
Höskuldur Jónsson, forstjóri
ÁTVR. En þetta hverfi má eftir
sem áður muna sinn fifil fegri þeg-
ar forstætisráðherrann bjó við
Laugarásinn og forstjóri Sam-
bandsins einnig.
Vesturbærinn fínastur
og fjölbreytilegastur
Vesturbærinn hefur af mörgum
verið álitinn hjarta Reykjavíkur.
Þar hafa löngum búið listamenn,
háskólaborgarar og sá hluti emb-
ættismannastéttarinnar sem getur
rakið ættir sínar í Reykjavík aftur
til Innréttinganna. Um tima, þegar
úthverfi á borð við Garðabæinn,
Fossvoginn og Laugarásinn vom
að byggjast, hrörnaði Vesturbær-
inn hins vegar. En þegar kortið
hér til hliðar er skoðað kemur í
ljós að þessi bæjarhluti lifir nú
endumýjaða lífdaga. Það er ekki
bara að Vesturbærinn er enn höf-
uðborg listamanna, háskólamanna,
embættismanna og stjórnmála-
manna, heldur er augljóst að við-
skiptajöfrar sækjast nú mjög eftir
að flytja í Vesturbæinn. Þetta sést
ekki aðeins á því hvað deplamir
eru þéttir í Vesturbænum heldur
kemur í ljós að þessir deplar tákna
frekar ungt fólk og nýorðið mið-
aldra. Vesturbærinn er í tísku.
En Vesturbærinn er misfinn.
Fínasti hluti hans em Melamir og
Hagamir. Þar býr Davíð Odds-
son, forsætisráðherra, Pétur Kr.
Hafstein, forseti Hæstaréttar,
Matthías Johannessen, ritstjóri
Morgunblaðsins, Ólafur B. Thors,
forstjóri Sjóvá-Alemennra og Júlí-
us Vífill Ingvarsson, forstjóri
Ingvars Helgasonar. Á þessu
svæði búa einnig Guðmundur
Andri Thorsson rithöfundur,
Hallgrímur Snorrason hagstofu-
stjóri og Jóhann Sigurjónsson,
forstöðumaður Hafrannsóknar-
stofnunar. Og margir fleiri.
Aðeins vestar, í Skjólunum, er
síðan klasi af ungu áhrifafólki. Þar
býr Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri á Nesveginum,
skammt frá Geir H. Haarde fiár-
málaráðherra, Hrafni Bragasyni
hæstaréttardómara, Guðnýju
Guðbjörnsdóttur þingkonu, Ólafl
Davíðssyni, ráðuneytisstjóra for-
sætisráðuneytisins, og fleimm. Og
þar stutt frá em Grandarnir en
þar búa meðal annarra Garðar
Valdimarsson ríkisskattsstjóri og
Guðrlður Sigurðardóttir, ráðu-
neytisstjóri menntamálaráðuneyt-
isins.
Gamli Vesturbærinn, norðan
Hringbrautar, telst ekki eins finn
og nýrri hluti hans - ekki vegna
þess að það vanti þar fyrirmennin,
heldur eru innan um þá minni
spámenn í minni íbúðum, sem nóg
er af á þessu svæði. En í gamla
Vesturbænum búa meðal annarra
Markús Öm Antonsson útvarps-
stjóri, Björk Guðmundsdóttir
söngkona, Hjörtur Torfason og
Garðar Gíslason hæstaréttardóm-
arar, Þórarinn Eldjárn rithöfund-
ur og Ásta Ragnheiður Jóhann-
esdóttir þingkona. Austast í Vest-
urbænum, niðri við Tjörnina, búa
síðan menn eins og nafnarnir
Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunnar, og Friðrik Þór
Friðriksson kvikmyndamógúll.
Það fínasta af öllu fínu
En þótt Vesturbærinn verði að
teljast fint hverfi þá er örlítill part-
ur hans - sem tilheyrir honum
GEIR MAGNUSSON
SIGURÐUR HELGASON
Skynngar á taknum
® Stjórnmálamenn
(D Viðskiptajöfrar
© Embættismenn
© Listamenn
© Skemmtikraftar
og fjölmiðlamenn
varla en deilir með honum póst-
númeri - enn finni, en það
Skerjafiörðurinn. Þar búa engir
nema fyrirmenni. Hörður Sigur-
gestsson, forstjóri Eimskips, er í
einu húsi, Sigurður Helgason,
forstjóri Flugleiða, í öðru, Geir
Magnússon, forstjóri Olíufélags-
ins, í þvi þriðja og svona mætti
lengi telja. Og Skerjafiörðurinn
getur ekki aðeins státað af sterk-
efnuðum viðskiptajöfnnn heldur
búa þar líka traustir embættis-
menn eins og Þór Magnússon
þjóðminjavörður og Friðrik
Ólafsson, skrifstofustjóri Alþing-
is. Skerjarfiörðurinn er því það
sem Arnarnesið þráði að verða.
Seltiarnarnesið
og Seljahverfið sterk
Það úthverfi utan Vesturbæjar-
ins sem getur státað af flestum fyr-
irmönnum er líklega Seltjamar-
nesið. Þar búa margir peninga-
menn, nokkrir sfiómmálamenn og
jafnvel einstaka listamaður. Hverf-
ið er því bæði stöndugt og fiöl-
breytt þótt það sé frekar millistétt-
arlegt í samanburði við háaðilinn í
Skerjafirðinum.
Annað hverfi sem kemur nokk-
uð vel út er Seljahverfíð. Þar búa
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra, Halldór Guðmundsson,
útgáfustjóri Máls og menningar,
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Þjóðhagsstofnunar og ráðuneytis-
stjóri í viðlögum og Árni Kol-
beinsson, ráðuneytisstjóri í sjáv-
arútvegsráðuneytinu. Seljahverfið
er ungt og metorðagjamt.
Garðabærinn
lætur á sjá
Garðabærinn hefur hins vegar
liðið fyrir það að frumbyggjamir
hafa elst og fært völd sín til þeirra
sem enn eru ekki nógu ríkir til að
kaupa hús þar. Þar búa þó enn
Benedikt Sveinsson, bráðum fær
til að kallast stjórnarformaður ís-
lands, Óskar Magnússon, stjóm-
arformaður Baugs og Rannveig
Rist, forstjóri ísals. Garðabærinn
fær hins vegar færri depla á kort-
ið í dag en hann hefði fengið fyrir
tíu árum eða svo. En þeir em hins
vegar enn í fáum litum, í Gcirða-
bænum búa peninga- og embættis-
listræn hvem.
þroskuð hverfi
og omur hvorft oom oru
wo oom-ohki noitt noitt
menn en fáir eða engir listamenn,
stjómmálamenn eða fólk úr hug-
lægari greinum.
Fossvogurinn
þokkalegur á svæðum
Einu sinni þótti Fossvogurinn
mjög fint hverfi og þykir sjálfsagt
enn. Hann kemur hins vegar ekki
sérlega vel út úr þessari könnun og
ekki heldur þótt nágrannahverfi
hans, Gerðin, sé talið með. Þar búa
þó mörg fyrirmenni, til dæmis
Kristinn Björnsson í Skeljungi,
Gxmnar Felixson í Tryggingamið-
stöðinni, Hafsteinn Hafsteinsson,
forstjóri Landhelgisgæslunnar og
Ólafur Ragnarsson, útgefandi í
Vöku-Helgafelli. Nokkuð langt frá
þessum mönnum, hinum megin við
hæðina í Rauðagerði, býr síðan Sig-
urður Gísli Pálmason, fyrram í
Hagkaupi en nú í Þyrpingu.
Nokkrir góðir blettir
Á stöku stað í Reykjavík eru síð-
an blettir þar sem nokkrir fyrir-
menn safnast saman. Við Háteigs-
veginn búa til dæmis hlið við hlið
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs-
og dóms- og kirkjumálaráðherra, og
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra. Uppi í Hólahverfi era þeir
næstum í kallfæri hvor við annan
Árni Johnsen þingmaður og Har-
aldur Henrysson hæstaréttardóm-
ari. Björn Bjarnason býr sunnar-
lega í Hlíðunum, ekki svo langt frá
Jóni Ólafssyni í Skífunni. Og í
hverfinu sem kallað er „Milli lífs og
dauða“ búa skammt frá hvor öðrum
Stefán Baldursson þjóðleikhús-
stjóri og Kári Stefánsson, forstjóri
íslenskrar erfðagreiningcir.
Þingholtin
menningarleg en blönk
Það er áberandi á kortinu hversu
margir deplar lenda í Þingholtun-
um en hversu fáir þeirra gefa til
kynna peninga eða stjórnmálaleg
völd. Þingholtin em vinstri bakk-
inn í Reykjavík - listamannahverf-
ið. Þar búa listamenn, popparar og
skemmtikraftar. Og einstaka menn
meö peningavit. Guðjón Már Guð-
jónsson í Oz býr til dæmis í Þing-
holtunum og yst í þeim, alveg upp
við Landsspítalann býr Birgir ís-
leifur Gunnarsson. Hann er seðla-
bankastjóri og hlýtur að hafa vit á
peningum.
Grafarvogurinn
varla á kortinu
Nýjasta hverfi Reykjavíkur telur
um 20 þúsund íbúa en fáir þeirra
virðast teljast til helstu fyrirmanna
þjóðcirinnar. Þeir einu sem Fókus
fann voru Finnur Ingólfsson iðn-
aðarráðherra og Einar Már Guð-
mundsson rithöfundur. Tvíhöðar,
Jón Gnarr og Sigurjón Kjartans-
son, búa síðan einnig þar.
En úr því minnst er á framsókn-
armanninn Finn, þá er rétt að
benda á eitt sem kom i ljós í þessari
könnun. Það var varla hægt að
finna framsóknarmann fyrir innan
Elliðaár. Þeir virðast ekki hætta sér
nær sollinum í Reykjavík, heldur
kjósa að lóna uppi í hæðunum.
Árbærinn og Kópavogur
millistéttahverfi
Miðað við íbúatölu koma líka
fram fáir deplar í Árbænum og í
Kópavogi. Styrmir Gunnarsson,
ritstjóri Moggans, býr í Kópavogi,
en fáir aðrir utan hvað skallapopp-
ararnir Sigga Beinteins og Stefán
Hilmarsson eru nágrannar í
Smárahverfmu. Þau búa skammt
frá Pálma Gestssyni leikara.
Svipaða sögu er að segja frá Ár-
bænum. Þótt þar séu í sitthvorum
endanum stór og mikil hús þá fund-
ust þar fáir máttarstólpar þjóðfé-
lagsins, utan þá spaugstofumenn
Karl Ágúst Úlfssson og Örn
Árnason.
Og þegar við erum farin að telja
upp þá sem hafa atvinnu af því að
leika máttarstólpa, þá hættum við.
22. janúar 1999