Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1999, Blaðsíða 4
-
Á sunnudaginn verður frumsýning í Tjarnarbíói
á Ketilssögu flatnefs eftir Helgu Arnalds.
Brúðuleikhúsið 10 fingur er með þessa sögu
á sínum snærum og hún byrjar klukkan fjögur.
Ávaxtakarfan i íslensku óperunnl er leikrit fyr-
ir alla, lærdómsrikt og litríkt. Það veröur sýnt
á sunnudaginn, klukkan hálffimm, og það eru
örfá sæti laus. Síminn í Óperunni er 551
1475.
Bróðlr mlnn Ljónshjarta er sýnt í Þjóölelkhús-
inu. Næsta sýning verður á sunnudaginn,
klukkan tvö, og það eru nokkur sæti laus.
Símann er gott að vita, vilji menn panta miða,
en hann er 5511200.
Pétur Pan flýgur um
Stóra svið Borgar-
leikhússins á morg-
un, klukkan eitt, ogá
sunnudaginn á
sama tfma. Friðrik
Friöriksson fellur
eins og flís við rass
inn í þetta hlutverk
og er rosalega
skemmtilegur. Það
er ekki orðið of seint
að kaupa miða. Síminn í Borgarleikhúsinu er
568 8000.
I Nýlistarsafninu á sunnudaginn
stendur hópurinn Voices Without
Restraint fyrir fjögurra tíma sam-
felldri dagskrá sem fengið hefur
nafnið Rafmessa 1999. Dagskráin
kemur til með að gæla við flest
skilningarvit gesta en orð og tónlist
eru fyrirferðarmest. Skáldin Ron
Whitehead og Birgitta Jónsdóttir
eru Voices Without Restraint
ásamt þeim Pollock-bræðrum,
DanO og Michael. „Við erum ljóða-
og tónlistarhópur og við förum al-
gjörlega nýjar slóðir í að sameina
þetta tvennt," segja Ron og
Birgitta. „Á væntanlegum diski,
„From Reykjavik to Louisville and
beyond", er tónlistin úr ólíkum átt-
um, sumt hljómar eins og það komi
úr grárri forneskju, annað er ekta
Pollock-bræðra gítarblús og enn
annað hreinasta ambient o.s.frv.
Við ætlum að leika lög af plötunni
á tónleikunum."
Ron flytur svo fyrirlestur um
„beat“kynslóðina - Ginsberg, Ker-
ouac og þá alla - í samkomusal
Odda í Háskólanum á mánudaginn
kl. 17.15 og þar ætlar grúppan að
troða upp í lokin. Ron hefur dvalið
hér síðan í haust og er ekki frá því
að hljómsveitin Sigur Rós sé það
stórkostlegasta sem hann hefur séð
af menningarlífinu: „Ég trúði því
strax er ég heyrði Sigur Rós spila
að hún gæti orðið stærri en nokk-
urt annað tónlistaratriði sem kom-
ið hefur frá íslandi. Ég mun gera
mitt besta til að koma þeim á fram-
færi erlendis." Hér er Ron að vitna
í fyrirhugaða tónleikaferð sem
Voices Without Restraint og Sigur
Rós ætla að fara saman í í haust,
um Bandaríkin og Evrópu. Auk
þess að spila með Voices Without
Restraint kemur Ron fram með Sig-
ur Rós, og Michael og Birgitta lesa
upp úr væntanlegum bókum sem
Ron hyggst gefa út hjá forlagi sínu
„Published in Heaven" í sumar.
Klára helvítis plötuna
En það eru fleiri en Ron sem
finnst Sigur Rós vera það besta í
dag. Þeir sem fylgjast með eru
margir sammála um að hljómsveit-
in sé sú langbesta á landinu og víst
gefa fá bönd jafn sefandi strauma
frá sér á sviði. Sigur Rós spilar á
Rafmessuprestar og meðhjálparar: 1. Ron Whitehead. 2. Georg í
Sigur Rós. 3. Michael Pollock. 4. DanO Pollock. 5. Tanya. 6. Ágúst
í Sigur Rós. 7. Adda i Spúnk. 8. Kristín í Spúnk. 9. Jóhanna
Hjálmtýs. 10. Gunnar Erlingsson. 11. Jónsi í Sigur Rós. 12. Gunni í
Súkkat. 13. Stína Bongó. 14. Megas genginn í barndóm. 15. Mar-
lon Sneak Attack. 16. Kjartan í Sigur Rós. 17. Birgitta Jónsdóttir.
18. GAK. 19. Ósk Óskars. 20. Bragi Ólafsson.
Rafmessunni og hitar svo upp fyrir
Bonnie „Prince“ Billy á Gauknum
á miðvikudaginn. Það var því grá-
upplagt að slá á Jónsa söngvara og
fiðlubogagítarleikara:
„Við erum að spá í að spila ekki
gömlu lummumar f Nýló heldur
reyna að gera eitthvað nýtt,“ segir
hann. „Það kemur í ljós. Við ætlum
svo að spila alla vega eitt lag með
KK á miðvikudaginn og brúa
þannig kynslóðabilið - það gæti
komið flott út. Annars erum við
bara að reyna að klára þessa helvít-
is plötu, hún kemur vonandi í apr-
íl. Við höfum átt erfitt með að klára
hana því við erum alltaf úti um allt
en nú á að reyna að einbeita sér að
henni.“ Platan átti upphaflega að
koma út fyrir síðustu jól en eitur-
harður metnaður sveitarinnar varð
til þess að henni seinkaði. Vonandi
kemur þetta umtalaða nýja meist-
araverk út fyrr en síðar.
Iðandi skemmtun
Rafmessan er iðandi af öðrum
spennandi dagskráratriðum. Mega-
sukk - Megas og Súkkat - verður á
staðnum í voldugri mynd þvf
trommarinn Gunnar Erlingsson
ætlar að berja trommumar með,
rafrænu heimasætumar í Spúnk
ætla að bjóða upp á atriðið „Keðju-
sög í hálsinum“, Sneak Attack sér
um hardkor tekknó, Tanya og
Bragi Ólafsson flytja ljóð (sitt í
hvoru lagi), Jóhanna Hjálmtýsdótt-
ir syngur acappella, Stína Bongó
les ljóð og ber trumbur, Ósk Ósk-
arsdóttir flytur vorlög og Auður
Jónsdóttir les úr „Stjórnlausri
lukku“. Listamaðurinn GAK sér
svo um myndrænu hliðina og býr
til rétta andrúmsloftið með því að
varpa ljósum, formum og litum á
vegg. Rafmessan hefst kl. átta á
sunnudaginn og stendur
til miðnættis.
-glh
6G KÝS A$> L€SA BÆkUR a' FRUM*
MÁliMU, AO LESA ÞÝ0IN6U ER
E»WS 06 A© NOTA SMQk-K...
UM
HVAÐ SEGIR
JA... GRIM..
bETTA ? Í7
ÉG VEIT þAO EKKÍ... EG HOTA
ALDREI SMOKK WE6AR É6 L£S
Ö/^KuR
meira á|
www.visir.is
i
i
(
i
i
(
(
(
(
(
(
(
f Ó k U S 29. janúar 1999
4