Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1999, Blaðsíða 6
matur
AMIGOS ★★★ Tryggvagötu 8, s. 5111333.
.Erfitt er að spá fýrirfram í matreiðsluna, sem er
upp og ofan." Op/'ð / hádeginu virka daga
11.30- 14.00, kvöldin mán.-fím. 17.30-22.30,
fös.-sun. 17.30-23.30. Barinn er opinn til 1 á
virkum dögum en til 3 um helgar.
ARGENTÍNA ★★ Barónsstíg lla, s. 551
9555. „Bæjarins besta steikhús hefur dalaö."
Op/'ð 18-23.30 v.d., 18-3 um helgar.
ASÍA ★ Laugavegi 10, s. 562 6210. Op/'ð virka
daga 11.30-22 en 12-23 um helgar.
CAFÉ ÓPERA Lækjargötu 2, s. 522 9499.
CARPE DIEM Rauðarárstig 18, s. 552 4555.
CARUSO **★ Þlngholtsstr. 1, s. 562 7335.
„Þvert á íslenska veitingahefð hefur hin
rustalega notalegi Caruso batnað með
aldrinum." Op/'ð 11.30-14.00 og 18.00-23.00
virka daga. Föstudaga 11.30-14.00 og
18.00-24.00, taugard. 11.30-24.00 og
sunnud. 18.00-24.00.
CREOLE MEX ★★★★ Laugavegl 178, s. 553
4020. „Formúlan er líkleg til árangurs, tveir eig-
endur, annar í eldhúsi og hinn í sal.“ Op/'ð
11.30- 14 og 18-22 á virkum dögum en 18-23
um helgar.
EINAR BEN Veltusundl 1. 5115 090. Opíð
18-22.
GRILLIÐ ★★★★ Hótel Sögu v/Hagatorg, s.
5252 9960. „Glæsilegur útsýnissalur milli-
klassahótels með virðuiegri og alúðlegri
þjónustu, samfara einum allra dýrasta matseðli
landsins." Op/'ð 12-14.30 og 19-22.30 virka
daga, 12-14.30 og 18-22 föstu- og taugardaga.
HARD ROCK CAFÉ ★★ Krlnglunni, s. 568
9888.
HÓTEL HOLT ★★★★★ Bergstaðastrætl 37,
s. 552 5700. „Listasafnið á Hótel Holti ber i
matargerðarlist af öðrum veitingastofum lands-
ins." Op/'ð 12-14.30 og 19-22.30 virka daga,
12-14.30 og 18-22 föstu- og laugardaga.
HÓTEL ÓÐINSVÉ ★★ v/Óðlnstorg, s. 552
5224. „Stundum góður matur og stundum ekki,
jafnvel í einni og sömu máltíö." Op/'ð 12-15 og
18-23 virka daga, 12-15 og 18-23.30 föstu- og
laugardaga.
IÐNÓ ★★★ Vonarstrætl 3, s. 562 9700.
„Matreiösla, sem stundum fer sínar eigin slóðir,
en nær sjaldan hæstu hæðum. Enginn réttur var
að neinu leyti misheppnaður, en fáir minnis-
stæðir." Op/'ð frá 12-14.30 og 18-23.
ÍTALÍA ★★ Laugavegi 11, s. 552 4630.
KÍNAHÚSIÐ ★★★★ Lækjargötu 8, s. 551
1014. „Kínahúsið er ein af helztu matarvinjum
miðbæjarins." Op/'ð 11.30-14.00 og 17.30-
22.00 virka daga, 16-23 laugardaga og 17-22
á sunnudögum.
KÍNAMÚRINN ★★★ Laugavegl 126, s. 562
2258
LAUGA-ÁS ★★★★★ Laugarásvegl 1, s. 553
1620. „Franskt bistró aö íslenskum hætti sem
dregur til sín hverfisbúa, sem nenna ekki að
elda í kvðld, barnafjölskyldur utan úr bæ og
ferðamenn utan af landi og frá útlöndum." Op/'ð
11-22 og 11-21 um helgar.
LÆKJARBREKKA ★ Bankastræti 2, s. 551
4430.
MADONNA ★★★ Rauðarárstíg 27-29, s. 893
4523 „Notaleg og næstum rómantísk veitinga-
stofa með góðri þjónustu og frambærilegum ital-
íumat fyrir lægsta verö, sem þekkist hér á
landi." Op/'ð virka daga 11.30-14.00 og 18.00-
23.00 og 17-23.30 um helgar.
MIRABELLE ★★★ Smlðjustíg 6, s. 552
2333. „Gamal-frönsk matreiðsla alla leið yfir I
profiteroles og créme brulée." Op/'ð 18-22.30.
PASTA BASTA ★★★ Klapparstíg 38, s. 561
3131. „Ljúfir hrisgrjónaréttir og óteljandi tilbrigði
af góðum pöstum en lítt skólað og of uppá-
þrengjandi þjónustufólk." Op/ð 11.30-23 virka
daga og 11.30-24 um helgar. Barinn er opinn til
1 virka daga og til 3 um helgar.
LA PRIMAVERA ★★★★ Austurstræti 9, s.
5618555. „Sjálfstraust hússins er gott og næg
innistæða fyrir því." Op/'ð 12.00-14.30 og
18.00-22.30 virka daga og um helgar frá
18.00-23.30.
RAUÐARÁ Rauðarárstíg 37, s. 562 6766.
REX ★★★★ Austurstrætl 9, s. 511 9111.
„Rex kom mér á óvart með góðri, fjölbreyttri og
oftast vandaðri matreiðslu, meö áherzlu á ein-
föld og falleg salðt, misjafnt eldaðar pöstur og
hæfilega eldaða fiskrétti." Op/'ð 11.30-22.30.
SHANGHÆ ★ Laugavegl 28b, s. 551 6513.
Op/'ð virka daga 11.30-22 en 12-23 um helgar.
SKÓLABRÚ ★★ Skólabrú 1, s. 562 4455.
„Matreiðslan er fögur og fín, vönduð og létt, en
dálítið frosin." Op/'ð frá kl. 18 alla daga.
TILVERAN ★★★★★ Unnetsstíg 1, s. 565
5250. „Það eru einmitt svona staðir, sem viö
þurfum fleiri af til að fá almenning til að lyfta
smekk sínum af skyndibitaplani yfir á fyrstu þrep
almennilegs mataræðis." Op/'ð 12-22 sunnudag
til fimmtudags og 12-23 föstudag og laugardag.
VIÐ TJÖRNINA ★★★★ Templarasundl 3, s.
5518666. „Tjörnin gerir oftast vel, en ekki alltaf
og mistekst raunar stundum." Op/'ð 12-23.
ÞRÍR FRAKKAR ★★★★★ Baldursgötu 14,
s. 552 3939. „Þetta er einn af hornsteinum ís-
lenskrar matargerðarlistar og fiskhús landsins
númer eitt." Op/'ð 12-14.30 og 18-20 virka
daga og 18-22 um helgar en til 23 föstu- og
laugardag.
|meíra á\
www.visir.is
Arnaldur Máni heldur hér áfram mannskoðun sinni
og ber saman tvo tónlistarmenn
II. h I u t i
Ljónshjarta
Kjartan Sveinsson
tónlistarmaður
Af hverju tónlist?
„Því að ef ég væri ekki í tón-
list þá væri ég örugglega alveg
rosalega leiðinlegur."
Kanntu ekkert annað?
„Ég gæti líklega verið kokkur.“
Mundirðu vilja gera eitt-
hvað annað?
„Ég væri til í að vera græn-
metisbóndi með lífræna rækt-
un.“
Kemur Guð þér og starfi
þínu eitthvað við?
„Já, mjög svo, ég gæti ekki
verið án hans/hennar.“
Kemur pólitík þér og starfi
þínu eitthvað við?
„Nei, ekki áþreifanlega."
Áttu þér fyrirmyndir?
„Sai Baba og Jónatan Ljóns-
hjarta."
Drekkurðu eða dóparðu of
mikið?
„Allt sem til er í heiminum er
gott, í réttu rnagni."
Hvað langar þig helst að
gera með elskunni þinni?
„Ferðast með henni um allan
heiminn.“
Áttu þér mottó?
„Nei, en ég vildi að ég ætti mér
svona eitt eða tvö.“
Ein góð saga úr bransanum:
„Ég er nú að fara að gefa út
bók sem kemur út um jólin 1999
og heitir 102 sögur úr bransan-
um. Þar eru þær nú allar,
skemmtilegu sögurnar."
Kjartan Sveinsson tónlistarmað-
ur væri til í aö vera grænmetis-
bóndi meö lífræna ræktun.
- annan frá New York, hinn héðan af klakanum.
Eru þeir eins? Eru þeir ólíkir?
starfi þínu eitthvað við?
„Nei, ekki beint. En ég
held að tónlist sé afskap-
lega persónuleg og andleg
sköpun. Svo að tónlistin
mín er yfirlýsing á túlkun
minni á Guði, og ekki inn-
an ramma skipulagðra trú-
arbragða."
Kemur pólitík þér og
starfi þínu eitthvað við?
„List min er vanalega
ekki pólitísk."
Áttu þér fyrirmyndir?
„David Bowie. Æ, það
eru svo margir, Aretha
Franklin. Og svo dáist ég
líka að Radiohead."
Drekkurðu eða
dóparðu of mikið?
„Nei, vanalega ekki, ég
geri ekki of mikið af
neinu, bara tilraunir."
Hvað langar þig helst að
gera með elskhuga þínum?
„Hlæja, leika og njótast
vel.“
Áttu þér mottó?
„The only time you see
clearly is when you're full
of what you’re looking at.“
Ein góð saga úr brans-
anum:
„Við vorum fimm hljóm-
sveitir í æfingahúsnæði á
Lower-East-side og einu
sinni fór pípulögnin og allt
draslið okkar drukknaði
og eyðilagðist. En við héld-
um öll ótrauð áfram.
Kannski dálítið sorgleg
saga?“
egan Wyler
ónlistarmaður
Af hverju tón-
list?
„Hún nærir sál
á.“
Kanntu ekkert annað?
„Jú, ég geri ýmislegt
annað en ég vil helst ein-
beita mér að tónlistinni."
Mundirðu vilja gera
eitthvað annað?
„Já, en ég reyni vana-
lega að samræma tónlist-
ina með öllu hinu sem ég
elska, eins og í leikhúsinu,
með leiklistinni."
Kemur Guð þér og
Megan Wyler tónlistarmaöur
á sér mottóiö: „The only
time you see clearly is when
you’re full of what you’re
looking at.“
veitingahús
HumarhúsiÖ:
Ber nafn með rentu
„Löngum og hugmyndaríkum matseðli fylgir matreiðsla í
hæsta gæðaflokki hér á landi. Stíllinn er þó ekki hreinn, því
að mikið er kaffært í sósum og meðlæti er staðlað
Bezta ástæðan til að sækja
Humarhúsiö heim kemur ykkur
ekki á óvart, frábær humar, eink-
um í einfaldri matreiðslu,
hvítvínsvættur og hvítlaukskrydd-
aður og síðan grillaður hæfilega
skamman tíma. Á boðstólum eru
raunar ellefu mismunandi mat-
reiðsluaðferðir á humri.
Löngum og hugmyndaríkum
matseðli fylgir matreiðsla í hæsta
gæðaflokki hér á landi. Stíllinn er
þó ekki hreinn, þvi að mikið er
kaffært í sósum og meðlæti er
staðlað. Hvergi urðu þó bein mis-
tök nema í hálfhráum, feitum og
seigum andakjötssneiðum.
Lítið og notalegt humarhúsið er
gamaldags og stílhreint að vönduð-
um antíkbúnaði. Á kvöldin glitra
víðir málmdiskar og fagur borð-
búnaður á hvítum dúkum í birtu
léttra messingskróna. Fegurri veit-
ingasalur er ekki til í landinu.
Hér er góður og fjölbreyttur, en
ekki árgangamerktur vinlisti, sem
leitar víða fanga í fjarlægum lönd-
um, Ástraliu og Nýja-Sjálandi,
Chile og Líbanon, þótt hefðbundin
Ítalía og Frakkland séu í fyrir-
rúmi.
Verðlagið er hagstætt í hádeg-
inu, þegar tær súpa og val milli
þriggja flskrétta fæst á 1190 krón-
ur. Að kvöldi er þetta hins vegar
einn af dýrustu matstöðum lands-
ins. Þá kostar þríréttað með kaffi
um 4.400 krónur á mann.
Hádegissúpan reyndist vera tær
gæsasúpa meö strimlum af gæsa-
kjöti og grænmeti, frábær hvíld frá
þykku hveitilímssúpunum, sem
fást um alla borg. Til fyrirmyndar
var bragðmildur saltíiskur í lög-
um, með kampavínssósu, einfóldu
hrásalati og steinselju í olíu. Meyr
og fin var sesamhjúpuð risahörpu-
skel með maískomum, grænmetis-
smábitmn og baunaspírum.
Gott var sítrus- og kryddgrafið
lamb með balsam-olíu og sesam-
fræjum. En bezti forrétturinn var
rósmarínkrydduð og léttsteikt
rjúpubringa með fjallagrösum og
rauðvínssoðnum eplakúlum.
Pönnusteikt keila var hæfilega
elduð, borin fram með þunnri pip-
arsósu með grænum piparkomum
heilum, fallegu hrásalati með
miklum rauðlauk. Ristaður stein-
bítur var einnig hæfilega eldaður
og fallega fram borinn með óvenju-
lega maukuðu og ijómuðu risotto
með stómm og meyrum krabbabit-
um.
Andabringusneiðar á beini voru
of léttsteiktar og fremur seigar,
bomar fram með hindberjasósu,
perlulauksultu og léttsteiktu græn-
meti stöðluðu. Mun betra var létt-
steikt lambafillet, fint og meyrt,
með döðlum, stórum sveppum,
papriku, rifsberjum, bakaðri kart-
öflu og anís, en flaut í of mikilli
rósmarínsósu.
Blönduð og gratineruð ber vom
góð, sömuleiðis mjúk karamellu-
og mokkaterta á stökkum hnetu-
botni, svo og hvítt og bragðmilt
súkkulaðifrauð á ferskri hind-
berjasósu. Kaffi var gott.
Jónas Kristjánsson
6
f Ó k U S 29. janúar 1999