Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1999, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1999, Blaðsíða 20
Bíóborgin Ronin ★★★ Þaö er margt sem gerlr Ronin að góöri afþreyingu, til aö mynda eru í myndinni einhver flottustu bílaeltingaratriöi sem lengi hafa sést og liggur við aö um mann fari viö að horfa á öll ósköpin. Þá er leikara- hópurinn sterkur, meö Robert DeNiro í hörkuformi, og loks ber aö geta þess aö þrátt fyrir ýmsa vankanta í handriti gengur þessi flókna atburöarás aö mestu leyti upp og dettur ekki niöur í lokin eins og oft vill veröa. -HK Enemy of the State -kirk Virkilega vel gerö spennumynd þar sem persónur veröa nán- ast aukanúmer við hliðina á njósnatækni nú- tímans. Það er gífurlegur hraði ! myndinni sem gefur henni vissan trúveröugleika þegar njósnatæknin er höfð í huga og þessi hraöi gerir það líka aö verkum að minna áberandi veröur tilviljanakennt handritiö þar sem sam- tölin bera oft þess merki að til aö „plottiö" gangi upp veröi aö fara ýmsar vafasamar leiðir. -HK Bíóhöllin/Saga-bíó Practlcal IVlaglc kkk Bullock og Kidman hafa, held ég, aldrei ver- ið eins góöar og njóta s!n vel ! þessum klikk- uðu hlutverkum og Wiest og Channing skemmta sér greinilega konunglega sem miö- aldra nornamömmur. Practical Magic tekur sig aldrei of alvarlega og það er það sem gerir hana aö þeirri ánægiulegu skemmtun sem hún er. -úd Holy Man ★★ Hvað Eddie Murphy hefur séö viö hlutverk hins „heilaga manns" er erfitt aö koma auga á. Kannski hefur hann hugs- að sem svo aö þarna væri tækifæri fyrir har.n aö losna úr ýktum gamanhlutverkum. Murphy hefur samt ekki erindi sem erfiöi, þrátt fyrir aö hann beiti kjaftinum l!tiö. -HK Star Kld ki Vonda skrímsliö í Star Kid er eins konar klóni úr Predator og einhverju kunnuglegu úr eldri geimmyndum. Einhvern veginn varö boö- skaourinn sögunni ofviöa og þegar 1001. heilræöiö sveif yfir skjáinn fór ég aö geispa. -úd Umsá ásta Spennumyndin Umsátrið (The Si- ege) verður frumsýnd í dag í Regn- boganum, Sam-bíóunum, Álfabakka, og Borgarbíói á Akureyri. í henni ráðast hryðjuverkamenn ekki á garðinn þar sem hann er lægstur heldur er það sjálf New York sem er skotmarkið og eftir að þeim hefur tekist að sprengja upp Brooklyn- brúna og hræða líftóruna úr fólki með alls konar hryðjuverkum sann- færast yfirvöld um að ekki verði við þetta unað og herinn er kallaður til. Denzel Washington leikur sérfræð- ing lögreglunnar í hryðjuverkum sem á að sjá um að borgarar njóti fyllsta öryggis. Hann fær alla þá að- stoð sem hann þarf, meðal annars frá Elise Kraft (Anette Bening) sem er sérfræðingur i málefnum ríkj- anna fyrir botni Miðjaröarhafs. Þeim er ekkert sérstaklega vel tii vina, þekkja hvort til annars án þess að hafa starfað saman. Þau verða samt að snúa bökum saman í þvi hættuástandi sem skapast. Allt kem- ur fyrir ekki og herinn er kvaddur til. Fram á sjónarsviðið stigur Willi- am Devereaux (Bruce Willis) hers- höfðingi, hið mesta hörkutól og stríðsmaður sem þekkir enga lin- kind og þegar hann tekur alla stjórn í sína hendur eru bæði hryðjuverka- menn og borgarar í mikilli hættu. Umsátrið er auk þess að vera mikil spennumynd, pólitískur þrill- Hryðjuverkamenn hafa til þessa ekki verið áberandi í Bandaríkjunum en hver er kominn til að segja að næsta skotmark þeirra verði ekki sjálf gleðiborgin New York. Um þennan möguleika fjallar Umsátrið er þar sem undirtónninn er pólitísk- ar aðgerðir gagnvart hryðjuverka- mönnum og sú villa sem margir Bandarikjamenn vaða í að þeirra land sé öruggt fyrir hryðjuverkum. Hugmyndin að The Siege kom upp í huga framleiðandans Lyndu Obst þegar hryðjuverkamenn létu til sín taka og komu fyrir sprengju i hæstu skrifstofubyggingu veraldara, World Trade Centre árið 1993 og hefur hún unnið að þessari framkvæmd síðan. Það voru síðan greinar í The New York Times og Rolling Stones sem fjölluðu um hugsanlega hryðju- verkastarfsemi í Bandarikjunum sem komu henni á sporið með sögu- þráðinn. Leikstjórinn Edward Zwick og Denzel Washington vinna í The Si- ege saman í þriðja sinn. Fyrst var það Glory, en fyrir leik sinn í henni fékk Washington óskarsverðlaun og fyrir tveimur árum gerðu þeir sam- an Courage under Fire: „Því lengur sem ég vinn með Denzel því meira álit fæ ég á honum sem leikara og manneskju. Ég er alltaf jafnhissa hvað hann tekur hlutverk sín alvar- lega um leið og hann er góður fé- lagi,“ segir Zwick um Denzel Was- hington. Umsátrið var að langmestu leyti kvikmyndað í New York og voru hlutar Manhattan lokaðir á morgn- ana þegar veriö var að kvikmynda auk þess sem götur voru lokaðar að nóttu til þegar þess þurfti. Leikstjórinn, handritshöfundur- inn og framleiðandinn Edward Zwick hefur í gegnum tíðina verið jafnvirkur í sjónvarpi og kvikmynd- um. í sjónvarpinu var hann ábyrgur fyrir gerð gæðaþátt á borð við Thir- tysomething og My So-Called Life og hefur fengið mörg Emmy-verðlaun fyrir sjónvarpsmyndir. Fyrstu kvik- mynd sinni, About Last Night, leik- stýrði hann árið 1986. -HK Kærkomin n frá Nivea Visage og kao bioré Nýi hreinsiplásturinn (Clear-up Strip) írá Nivea Visage og kao bioré hreinsar svitaholur á nefínu og fjarlægir fílapensla og önnur óhreiníndi ó aðeins 10 mínáíum. flefió er bleytt, plásturinn setfur á það og veettur meö þ/ ottapoka. Eftir 10 til 15 minútur er plásturinn tekínn varlego af og árangurinn kemur i Ijós. Njóttu þess að vera til - notaðu hreinisplásturinn frá fliveá Visoge og kao bioré. NIVEA VISAGE v/v/v/ Wes Craven, sem leikstýrði Scream-myndunum tveimur, stendur að baki gerðar Whismaster þar sem gamla þjóðsagan um iampann sem veitir þrjár óskir tekur á sig nýja mynd Allir kannast viö ævintýrið um Aladdin og töfralampann þar sem Aladdin fann lampa sem hafði þann eiginleika aö þegar hann strauk hann þá birtist andi sem veitti hon- um allt sem hugur hann gimtist. Þetta ævintýri fær á sig nýja og ógnvekjandi mynd í Whismaster, sem Bíóhöllin frumsýnir í dag. Að- alpersónan er Alexandra Amberson (Tammy Lauren) sem óvart verð- ur það á að vekja upp þann versta af öllum öndum, anda sem gengur undir nafninu Djinn. Sá hafi fengið að sofa í friði í ein þúsund ár. Ósk- ir hennar breytast í martröð þegar hún uppgötvar að hún hefur óvOj- andi fengið andanum í hendur vopn sem gerir það að verkum að hann getiu upprætt mannkynið og gert jörðina að híbýlum fyrir sig og sína þjóð sem legið hefur í dvala. Djinn nærist á óskum annarra og eflist eftir því sem hann fær fleiri til að óska sér einhvers.En þeir sem það gera fá óvænta lausn, til dæmis stúikan sem óskar sér að verða falleg það sem eftir er ævinn- ar. Djinn tekur hana á orðinu og breytir henni í gínu. Það er hryllingsmeistarinn sjálf- ur, Wes Craven, sem stendur að baki gerð myndarinnar þótt hann leikstýri henni ekki sjálfur og með- al leikara sem hann hefur fengið til að leika í myndinni eru Robert Englund, sem gerði garðinn fræg- an sem Freddy Kreuger í Álmstræt- ismyndunum, Tony Todd, sem var óhugnaðurinn uppmálaður í Candyman-myndunum tveimur, og Kane Holder sem lék Jason í Fri- day The 13th, svo hryllingsmynda- aðdáendur ættu að fá eitthvað fyrir sinn snúð. Aðalhlutverkin eru þó í höndum minna þekktra leikara. Tammy Lauren hefur verið sinn leikferil að mestu í sjónvarpinu en lék þó á móti Dustin Hoffman og John Travolta i Mad City. Andrew Divoff, sem leikur Djinn, hefur leikið skúrka í mörgum kvik- myndum. Má þar nefha Another 48 Hrs. og Air Force One. -HK 20 f Ó k U S 29. janúar 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.