Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1999, Síða 7
h
I
I
»
>
I
»
>
I
>
>
I
Iríkd
fullir a
a r i
Þeir hafa slegið rækilega í
gegn hér á landi. Eiga ör-
ugglega stóran þátt í sölu-
aukningunni sem hefur orð-
ið á Thule-bjórnum. Það er
ekki nóg að vera valinn
þriðji besti bjór í heimi.
ímyndin verður að fylgja og
hún er danskari og fyndnari
en yfirleitt gerist á íslandi.
Mikael Torfason fór til
Köben, fann dönsku strák-
ana í Thule-auglýsingunum
og athugaði hvaða vitleys-
ingar þetta væru eiginlega.
Kaffihúsið heitir Gjaldþrota og
það á vel við. Grennri Thule, Teis
Damm, þiggur bjór en sá breiðari,
Soren Pedersen, vill bara kaffi.
Hann er á mótorhjóli og á eftir að
keyra heim.
Viðtalið byrjar á því að þeir
segja mér við hvað þeir vinna. Teis
keyrir vörur fyrir húsgagnafram-
leiðanda en Soren er öskubílstjóri.
Svo vilja strákamir vita hvort ég
hafl séð nýju auglýsingaseríuna,
þessa sem gerist á íslandi. Ég segi
þeim að svo sé og að hún gefl þeirri
fyrri ekkert eftir. Það hlakkar í
þeim og eitthvað segir mér að þeim
finnist þetta ævintýri allt mjög
fyndið og skemmtilegt.
Hvernig kom það til aó þió lékuð
í auglýsingu fyrir íslenskan bjór?
„Gott fólk í Reykjavík bað Dag
Kára, sem býr hér í Kaupmanna-
höfn, að gera svona auglýsingu,"
segir Teis. „Við Kári eigum sameig-
inlegan vin og ég hafði hitt hann og
hann bað mig bara að mæta fyrir
framan kirkju hérna í nágrenn-
inu.“
Soren þekkti Teis ekkert áður,
en þeir léku saman í þessum aug-
lýsingum. Dagur Kári rakst bara á
hann og bað hann að leika í auglýs-
ingunni. Soren sló til og fékk laun-
in að mestu í Thule-bjór!
Hvernig finnst ykkur svo þessi
íslenski Thule-bjór?
„Mjög góður,“ segir Teis og finn-
ur fyrir efa í glottinu mínu. „Fólk
var að spyrja mig einmitt að þessu.
þegar við vorum á íslandi. Það vildi
þá meina að ég fengi borgað fyrir
að segja að hann sé góður en þessi
bjór er alveg frábær og ég meina
það.“
„Vinnufélögum mínum fannst
hann líka góður. Við drukkum
birgðimar sem ég fékk einn daginn
eftir vinnu. Það er eitthvað við
bragðið og ég er viss um að þetta
hefur eitthvað að gera með vatnið
hjá ykkur," segir Soren og bætir
því við að hann sé einnig mikill
Elefant-maður.
Fyllerí á Fróni
Teis er ekki bara bílstjóri og aug-
lýsingaleikari. Hann er líka söngv-
ari hljómsveitarinnar Roosters sem
nú þegar hefur gefið út einn geisla-
disk.
„Ég væri til í að spila á íslandi.
Svo er ég að vona að það verði
hringt í okkur og við beðnir um að
gera þriðju auglýsingaseriuna."
„Já. Það var virkilega gaman á
íslandi. Þetta er mjög fallegt land.
Við fórum út á land og sáum Þing-
velli og margt mjög fallegt."
„Ég sat nú í bílnum allan tímann
sem við vorum þar. Soren var að
taka myndir á fúllu en ég var svo
fullur að ég komst bara ekki út úr
þessum bíl.“
Var mikió sukkaö á íslandi?
„Já. Ég var fullur allan tímann,"
segir Teis. „Á daginn vorum við að
taka auglýsingar og þá drukkum
við og á kvöldin fórum við niður í
bæ og drukkum fram á morgun.
Þetta var alveg frábær ferð. Það eru
ekkert smá fallegar stelpur þarna.
Ég verð að fara aftur."
Soren kinkar kolli og virðist
vera hjartanlega sammála því. Þeir
eru mjög ólíkir félagarnir. Teis er
ör og talar mikið á meðan Soren er
öhu yfirvegaðri.
„Það var líka mikið horft á okk-
ur þegar við vorum þarna," segir
Soren.
„Þetta voru okkar fimmtán mín-
útur af frægð eins og Andy War-
hol orðaði það.“
Soren minnist þá á eitthvað sem
kallast „Janteloven". En það ein-
hverskonar kennisetning sem Dan-
ir lifa eftir. Þetta „Janteloven"
kemur frá rithöfundi sem heitir
Axel Sandemose. Hann skrifaði
bók og í henni kom fram að enginn
mætti né ætti að vera merkilegri en
náunginn. Allir ættu skilda sömu
virðingu og fólk skyldi ekki skera
sig út. Þetta eru eins konar lög
meðalmennskunnar og Teis og
Soren diskútera mikið og lengi um
áhrif „Janteloven" á danskt samfé-
lag. Niðurstaða þeirra er einmitt að
þetta ali á meðalmennsku og því að
enginn megi skara fram úr í tekjum
eða metnaði. En fyrir þessu „Jante-
loven" fundu þeir ekki á íslandi.
Teis heimtar þá að borga næsta
umgang. Ég reyni að útskýra fyrir
honum að ég hafi boðað hann og
vilji þvi borga en ekkert dugar.
Hann nær í bjór handa okkur en
Soren stendur enn fast á að kaffi sé
það eina sem hann vilji.
Friðrik níundi
Eruö þió einhleypir?
„Já,“ segir Soren og bætir því
viö að hann eigi samt eina dóttur.
„Ég er í sambúð. Kærastan min
bað einmitt um að fá að koma með
mér til að sjá skrýtinn íslending en
hún ákvað síðan að vera bara
heima."
En hvaö finnst ykkur um innflytj-
endurna hérna í Kaupmannahöfn?
Teis: „Heimurinn er stór og það
er öllum velkomið að fara þangað
sem þeir vilja. En núna er mikið
verið að tala um þessa múslíma í
Norrebro og vandamálin sem þeim
fylgja. Mér finnst alveg eins hægt
að tala um það hversu erfitt það er
fyrir þá að búa héma. Það er öragg-
lega erfiðara fyrir þá en okkur.“
Soren: „En það bað þá enginn að
koma og þeir verða að fara eftir
dönskum lögum, sem þeir gera ekki
alltaf."
Teis er ekki alveg sammála þvi
og vitnar til fyrri ára þegar Dönum
vantaði vinnuafl. Soren þegir þá og
vill alls ekki fara að rífast út af
þessu máli. Það er greinilegt að
þetta mál er heitt í Danmörku en
flestir Danir era líkt og Soren ekki
tilbúnir til að láta það æsa sig um
of. En þessi mnræða spinnst yflr í
vitneskju þeirra beggja um málefni
Danmerkur i öðrum löndum. Svo
sem eins og fyrrum nýlendum eins
og Færeyjum, Grænlandi og í Afr-
íku. Þeir eru báðir mjög fróðir um
sögu landsins síns. Soren er stoltari
en hefur mikla réttlætiskennd og
vill að þeir biðji Grænlendinga og
þá Afríkubúa sem þeir kúguðu af-
sökunar á meðan Teis hefur ekki
neinar sérstakar skoðanir á þess-
um málum. Hann vill að þjóðirnar
fái að ráða sjálfar hvað þær gera.
„Friðrik níundi var besti kóng-
ur sem við höfum átt,“ segir Teis
þegar talið berst að sjálfstæði ís-
lands. „Þetta var bara alvöru
manneskja. Hann var allur tattó-
veraður og eyddi miklum tíma í að
drekka bjór með sjóurunum í Ny-
havn.“
En hvaö finnst ykkur um drottn-
inguna?
„Hún er ágæt,“ segir Soren. „En
sonur hennar, hann Friðrik, er frá-
bær. Hann er mjög alþýðlegur og
líkur afa sínum.“
Teis segir mér þá frá því að hann
hafi spilað fyrir Friðrik í
einkapartíi hjá Friðrik og djúsað
með honum. Þeir eru sem sagt mjög
fylgjandi því að hann verði næsti
konungur. Þá vind ég mér yfir í
Lars Von Trier og segi þeim að
hann hafi verið að fá styrk frá
Kvikmyndasjóði Islands. Þeir hlæja
og biðja okkur að hirða þennan
Lars Von Prozac. Dönsku blöðin
eru víst full af Prozac-sögum um
Lars þessa dagana. Hann er víst
svaka happý og síétandi gleði-
gjafann.
Að lokum ræðum við um
Thomas Vinterberg og Festen.
Þeir hafa báðir séð hana nokkrum
sinnum og segja Thomas miklu
betri en Lars, þeim finnast mynd-
irnar hans leiðinlegar. Þá kveð ég
þá og spyr hvar ég fmni leigubíl.
Þeir taka það ekki í mál að ég taki
leigubíl. Það er vist alltof dýrt fyrir
Danann og því fylgja þeir mér á
næstu strætóstoppistöð og koma
mér upp í vagninn. Ég spara mér
rúmlega þúsund kall og er miklu
nær um hvernig hinn týpíski Dani
hugsar og hegðar sér. -MT
□ KRAFTMESTA OG HRAÐVI
t$J NINTEflQO.64
LEIK JATÖLVA í HEIMI □
• Einföld í notkun (Barnavæn)
• Aflmikil - 64 bita
• Rauntíma - þrívídd
• Enginn biðtími.
(flllt að 15 mín i ððrum leikjatölvum)
• Ailt að 4 spilarar
• Besta leikjatölvan ‘98 í einu
UMBOÐSMENIM
• Golden Eye 007, hæst dæmdi
leikurinn 1998 (98%)
• Margföld ending leikja
• Um 80 leikjatitlar
B R Æ Ð U R N I R
Lá g m ú
Sími 533 2800
Reykjavik: Hagkaup, smáranum. Elko, BT-tölvur, Heimskringlan, SAM-tónlist, Japis, Vesturland: Málningarþjónustan, Akranesi. Hljómsýn, Akranesi. Kf. Borgfirðinga Borganesi. Vestfirðir: Geirseyjarbúðin, Patreksfirði.
--------------Rafverk, Bolungarvík. Straumur, Isafirði. Norðurland: Kf. Húnvetninga, Blönduósi. verslunin Hegri, Sauðárkróki. Hljómver, Akureyri. Bókval, Akureyri. Hagkaup Akureyri. Öryggi, Húsavík. Suðurland: Árvirkinn, Selfossi.
, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Reykjanes: Ljósboginn, Keflavík. Samkaup, Keflavík.
29. janúar 1999 f Ókus
7