Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1999, Side 21
b í ó
Cate Blanchett í hlutverki
' •>
Cate Blanchett er áströlsk leik-
kona sem útskrifaðist frá Ríkisleik-
listarskóla Ástralíu árið 1992. Henni
var strax boðið að vera meðlimur í
leikhópnum Company B þar sem
fremstur í flokki jafningja er Geof-
frey Rush. Með þessum hópi lék hún
meðal annars verkum Shakespeares,
Ófelíu í Hamlet og Miröndu í The
Tempest. Einnig lék hún Nínu í
Mávinum eftir Tsjekhov. Leið henn-
ar lá síðan til Sydney Theatre
Company þar sem hún var meðal
annars valin besta leikkona ársins
fyrir leik sinn í Oleanna eftir David
Mamet. Auk þess að leika í leikhús-
inu lék hún í tveimur sjónvarpsserí-
um, Heartland og Bordertown.
Kvikmyndaferill Blanchett er ekki
langur. Hún lék í fyrstu kvikmynd,
Paradise Road fyrir tveimur árum,
þar voru mótleikkonur hennar
Glenn Close, Frances MacDorm-
ant, Pauline Collins og fleiri þekkt-
ar leikkonur. Það var landi hennar
Bruce Beresford sem leikstýrði
myndinni. Næst lék Blanchett í ástr-
alskri mynd, Thank God He Met
Lizzie og fékk hún verðlaun sem
besta leikkonan í aukahlutverki þeg-
ar Ástralir afhentu sinn „óskar“ í
fyrra. Hún vakti síðan mikla athygli
fyrir leik sinn á móti Ralph Fiennes
í Oscar og Lucinda á síðasta ári og
má segja að þá hafi opnast dyrnar
fyrir hann í hinn enskumælandi
heim kvikmyndanna.
Cate Blanchett hefur nýlokið við
að leika í Pushing Tin, svartri
kómedíu um flugumferðarstjóra sem
Mike Newell leikstýrir. Mótleikarar
hennar þar eru John Cusack og Bifly
Bob Thomton. Þá munum við einnig
sjá hana í nánustu framtíð í An Ideal
Husband sem byggð er á sögu Oscars
Wflde og leikstýrð er af Oliver Park-
er og The Talented Mr. Ripley sem
Anthony Minghella (The English
Patient) leikstýrir. -HK
Elizabethar I sem
hún hlaut Golden
Globe verölaunin fyrir
um síöustu helgi.
Elísabet I. hefur oft verið aðalpersónan
í kvikmyndum en víst er að áhorfendur fá
að sjá nýja hlið á þessari frægu drottningu
miðalda í myndinni Elísabet sem fjallar
um upphafsár hennar á valdastóli
Meyci sttnin
verður til
Háskólabíó frumsýnir í dag
bresku kvikmyndina Elísabet sem
hvarvetna hefur vakið athygli og
verið vel sótt. Um er að ræða kvik-
mynd um Elísabetu I. Englands-
drottningu sem oft áður hefur ver-
Elisabet (Cate Blanchett) og æskuástin hennar, Ro-
bert Dudley (Joseph Hennes).
ið umfjöllunarefni i kvikmyndum
en víst er að í þessari kvikmynd,
sem Shekar Kapur leikstýrir, fá
áhorfendur nýja sýn inn í líf þess-
arar drottningar sem Englending-
ar telja meðal fremstu þjóðhöfð-
ingja sinna.
Myndin hefst
1554. Þegar ríkj-
andi drottning,
María, deyr verð-
ur það hlutverk
systur hennar,
Elísabetar (Cate
Blanchett) að
verða drottning
yfir ríki þar sem
hver höndin er
upp á móti
annarri og ríkið á
barmi gjaldþrots.
Elísabet er óund-
irbúin og tekur
því ekki vel þegar
helsti ráðgjafi
hennar, Sir Willi-
am Cecil (Ric-
hard Atten-
borough) segir
hinni ungu
Geoffrey Rush leikur njósnara Elísabetar, Sir Francis Walshingham.
drottningu að gleyma öllum per-
sónulegum málum, þar á meðal
sambandi sínu við Robert Dudley
(Joseph Fiennes) og snúa sér að
fullu að málefnum ríkisins.
Fljótt eignast Elizabeth óvini á
mörgum stöðum við hirðina en
hættulegastur er hertoginn af Nor-
folk (Christopher Eccleston) auk
þess sem hún verður að verjast ut-
anaðkomandi óvinum, sérstaklega
frönsku stríðsdrottningunni Mary
(Fanny Ardant) sem gerir innrás á
Skotlandstrendur. Þrátt fyrir við-
varanir helsta njósnara hennar,
Sir Francis Walshingham (Geof-
frey Rush) lætur hún slag standa
og lætur illa búinn her sinn mæta
Frökkum og fær hann slæma út-
reið. Elísabet gerir sér grein fyrir
því að ef hún eigi að halda velli
verði hún að safna í kringum sig
traustum vinum og bandamönnum
og snýr sér meðal annars aftur að
æskuunnusta sínum Dudley en
kemst að því mn síðir að hann hef-
ur gifst og snýr við honum baki
þrátt fyrir viðvaranir hans. Eftir
að hafa lifað af morðtilræði snýr
hún vöm i sókn með aðstoð Wals-
hinghams.
Auk fyrmefndra leikara bregð-
ur fyrir mörgum þekktum bresk-
um leikurum, meðal annars leikur
John Gielgud páfann, Kathy Burke
leikur Mary drottningu, eldri syst-
ur Ellsabetar, og Edward Hard-
wicke leikur lávarðinn af Arundel.
Þá má geta þess að fyrram knatt-
spymustjaman með Manchester
United, Eric Cantona, leikur lítið
hlutverk.
Leikstjóri Elizabeth er Shekhar
Kapur - hann er indverskur og hóf
feril sinni í heimalandi sínu árið
1985. Eftir átta ára farsælan feril
vakti hann fyrst athygli utan Ind-
lands þegar kvikmynd hans Bandit
Queen var sýnd á kvikmyndhátíð-
inni í Cannes í óþökk indverskra
stjómvalda. Kapur, sem á ámm
áður hafði búið á Bretlandseyjum,
flutti þangað aftur eftir hinar góðu
viðtökur Bandit Queen og er Eliza-
beth fyrsta kvikmyndin sem hann
gerir þar. -HK
Vampírur irki, Á köflum er heilmikill slag-
kraftur í þessari mynd og greinilega mark-
visst unnið meö að skapa hressandi kúl
vampírur (likt og í Blade) plús töff vampíru-
bana. -úd
Háskólabíó
Meet Joe Black ★ ★
Áferðarfalleg og stund-
um áhugaverð en frekar
tilgeröarleg kvikmynd
um viðskipti Dauðans
við viðskiptajöfur sem
óskar sér lengra lífs. Ein
bandarískra kvikmynda
sem settar eru á mark-
aöinn um þessar mundir sem eru alltof lang-
ar og það fyrst og fremst gerir það að verk-
um aö hún virkar ekki þar sem hún er allt of
langdregin. -HK
Egypski prinslnn irkiri The Prince of Egypt
er tækniundur og sannkallað augnakonfekt.
Ef hægt er að tala um epíska teiknimynd þá
er þetta slík mynd. Meö The Prince of Egypt
má segja að teiknimyndir sem geröar eru
sem fjölskylduskemmtun taki breytingum.
Ekki er veriö aö beina sérstaklega augunum
að börnum heldur einnig komið á móts viö
þá sem eldri eru og þroskaðri. -HK
Tímaþjófurinn ★★★
Bullock og Kidman hafa
held ég aldrei verið eins
góðar og njóta sín vel .I
þessum klikkuðu hlut-
verkum og Wiest og
Channing skemmta sér
greinilega konunglega
sem miðaldra norna-
mömmur.
What Dreams May Come kki What
Dreams May Come er sérstök kvikmynd sem
er á yfirboröinu mjög falleg og gefandi og
Robin Williams og Annabella Sciorra innileg
og sannfærandi I leik slnum en myndin nær
aldrei almennilegri festu heldur veröur kvik-
mynd meö mörgum fallegum og vel geröum
atriðum. -HK
Kringlubíó
Waterboy ★★ Enn
einn heimskinginn
sem sigrar heiminn.
Nú er það Adam
Sandler sem bregður
sér I hlutverk ein-
feldningsins meö
barnssálina sem I
byrjun myndar er
lægstur allra en stendur uppi sem bestur og
mestur I lokin. Sandler skapar skemmtilega
persónu en er I rauninni ekki aö gera neitt
annaö en það sem Jim Carrey gerir og marg-
ir hafa gert á undan, þá er allt of mikiö gert
út á amerískan fótbolta sem verður aö leið-
inlegum endurtekningum. -HK
Mulan kkkk Mulan er uppfull af skemmti-
legum hugmyndum og flottum senum, hand-
ritiö vel skrifaö og sagan ánægjulega laus
viö þá yfirdrifnu væmni sem oft einkennir
Disney. -úd
Laugarásbíó
Rush Hour ★★★ Þaö var því snjallt aö etja
Jackie Chan saman við Chris Tucker sem
slær út sjálfan Eddie Murphy þegar kemur
að kjaftavaöli. Þessir tveir ólíku leikarar ná
vel saman I Rush Hour sem er fýrst og
fremst vel heppnuð gamanmynd enda eru
slagsmálaatriðin yfirleitt útfærð á þann hátt
aö áhorfandinn getur hlegiö um leið og hann
fyigist spenntur meö. -HK
Regnboginn
Le dlner de cons ★★ Frönsk gamanmynd
sem hefur margt til slns ágætis. Byrjar sem
skemmtilegur leikur fyrir útgáfustjóra sem er
búinn aö finna sér bjána til að taka meö sér
I kvöldveröarboö en þegar upp er staöiö er
það spurning hvor er meiri bjáni. Ágætur leik-
ur og hnyttiö handrit, en myndin líður aöeins
fyrir þaö aö vera I allri uppsetningu eins og
leikrit. -HK
Rounders ★★★ Póker get-
ur veriö spennandi kvik-
myndaefni og þaö sann-
ast I Rounders sem fjallar
um nokkra ólíka náunga
sem allir eru atvinnuspil-
arar. Gæöi myndarinnar
eru mest þegar sest er við
spilaboröiö þvl handritiö
er stundum ótrúverðugt.
-HK
There’s Something about Mary kkk
Fjórir lúöar eru ástfangnir af sömu Mary.
Cameron Diaz er I toppformi, Matt Dillon al-
veg ótrúlega skemmtilegur sem sllmugur
einkaspæjari og Ben Stiller er fæddur lúöi.
-úd
Stjörnubíó
Stepmom k Stjúpan er ein af þessum ofur-
dramatísku erfiöleikadrömum og sver sig I
ætt viö vasaklútamyndina miklu, Terms of
Endearment. Sagan segir frá Luke og Jackie
sem eru skilin og nýja konu lukes, Isabel,
sem börnum Lukes og Jackie líkar ekki viö.
I heildina fannst mér þetta alveg voöaleg
mynd. En ég er llklega I minnihlutahópi hér
því þaö var ekki þurrt auga I húsinu. -úd
Imeira á|
www.visir.is
29. janúar 1999 f Ó k U S
21