Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1999, Blaðsíða 3
meömæli
uivai pasiuuvum ug
ökinn? Við erum Is-
X/
Þá
Hundsum Valentínusardaginn! Hvaða
fíflagangur er þetta að sleikja upp hall-
ærislega amerlska siði bara til að ein-
hverjar kerlingar á útvarpsstöðvum og
blómabúðir maki krókinn? Við erum Is-
lendingar og eigum
bóndadag og konu-'
dag, sem er nú alveg
yfirdrifið, og m.a.s.
mæðradag líka fýrir
sem eru hrifnir af
mömmu sinni. Ef
þessi væmni Valen-
tínusardagur nær hér einhverri fótfestu
verðum við áður en varir farin að skjóta
upp flugeldum 4. júlí til að fagna sjálf-
stæði Bandarikjanna. Kæfum þessa vit-
leysu í fæðingu.
Það er líka hellingur af öðrum góðum há-
tíðisdögum sem hægt er að njóta. Eftir
helgina er von á karnivaltrióinu bollu-,
sprengl- og öskudegl. Tveir þeir fyrstu
hafa nokkurn veginn
haldið sínum sjarma
Ímeð löðrandi rjóma-
í’%: y bollum og gómsætu
\ saltketi, en öskudag-
■ , urinn hefur verið að
I . jp; :' færast út I skrýtna
J~ blöndu af hrekkja-
^/T vöku og jólasálma-
söng. Það er nauðsynlegt fyrir sjálfstæði
Islendinga að berjast gegn þessari heims-
valdastefnu. Besta leiðin er að brýna gildi
öskupokanna fyrir krökkum og í skólum á
að pína þann gamla sið að sauma ösku-
poka upp á grislingana. Maður skildi að
visu aldrei til hvers maöur var að krækja
pokum í bakið á fullorönu fólki í gamla
daga, en það var einhver spennandi
sjarmi yfir þessu og hægt var að ímynda
sér að í pokanum væri falið njósnatæki.
Komum öskupokunum á kortið aftur því
þeir eru miklu skemmtilegri og meira göfg-
andi en það að hendast um bæinn og
væla út nammi.
Ef krakkarnir koma þrátt fyrir öskupoka-
hvatningu Fókuss og sníkja nammi á ekki
að sýna hörku og neita um nammi heldur
sýna kænsku og vera með Pez á boðstól-
um, og þá bara eitt Pez á mann. Kannski
fara krakkarnir að pexa yfir
Pezinu og nískunni í þér, en þá
átt þú sem ábyrgður einstak-
lingur að veifa öskupoka fram-
án t lýðinn og benda á kosti
hans. Annars er Pez gott
nammi og Pezkarlarnir standa
fýrir sínu.
Sjónvarpsdagskráin er ömurteg.
Vertu því þinn eigin dagskrár-
stjóri um helgina, í orðsins
fýllstu, því í Laugarásvldeöl á
Laugarásvegi 1 er undraland þeirra sem
vilja horfa á gamla sjónvarþsþætti. Þar
flæðir sjónvarþsköltið út um allar hillur og
þessi ieiga á líka góðar bíómyndir í haug-
um. Viö Ijúgum því hreinlega ekki að þetta
er besta leiga landsins. Ekki skemmir svo
fýrir að kartarnir sem vinna þarna eru eins
og kliþþtir út úr B-mynd frá sjöunda ára-
tugnum, greiða með brilljantíni og fifka
glysgjörnum töffaratöktum frá Presley-tím-
anum. Vá!
Nýjasti sjónvarps-
þátturinn - byrjaði um
síðustu helgi - heitir Með
hausverk um helgar og
er á dagskrá bæði laug-
ardaga og sunnudaga.
Þar er tekinn púlsinn á
fræga fólkinu, kjaftasög-
unum, boðið upp á blint
stefnumót, spiluð mynd-
bönd og rætt um það
sem máli skiptir í hinni
hégómagjörnu Sódómu
Reykjavík.
„Þátturinn er sýndur á laugar-
dögum og sunnudögum á milli 12 og
16,“ segir Siggi HIö sem hefur ver-
ið í þessum fjölmiðlabransa í þó
nokkuð mörg ár.
Og á hverju byggist hann?
„Hann er byggður á því að við
fáum alls konar fólk í heimsókn til
okkar og svo eru nokkrir fastir
punktar. Eins og til dæmis Blint
stefnumót. Þar fáum við manneskju
í heimsókn og gefum fólki kost á að
hringja inn til að ná deiti við hana.
Svo erum við með Hverjir voru
hvað innslög. Það byggist á mynd-
um af fólkinu sem var á djamminu
kvöldið áður.“
Það er margt fleira í boði í þætt-
inum þeirra Sigga og Valla. Laddi
og Gísli Rúnar kynna nýja karakt-
era og eru með innslög í þættinum.
Það er víst sprenghlægilegt og
kannski sérstaklega hannað fyrir
þá sem einhvem tíma gátu hlegið
að Kaffibrúsaköllunum. Strákarnir
verða svo með galopnar hurðir fyr-
ir allar gæsir og auðvitað steggi.
Tilvalið fyrir óþolandi vini að
drösla félaga sem er að fara að gifta
sér í stúdió og þröngva honum inn
í beina útsendingu. En eitt besta
dagskrárefni þeirra sem em Með
hausverk um helgar er kjaftasögu-
homið.
Siggi Hlö og Valli sport eru ferskustu sjónvarpsstjömumar.
„Já, við ætlum að reyna, þegar
færi gefst, að rekja kjaftasögur,"
segir Siggi.
Og þeir sem sáu síðasta þátt
skemmtu sér eflaust konunglega þeg-
ar Hrafn (Erobic-stjaman úr sjón-
varpinu, þessi með rassinn) kom í
þáttinn og bar til baka að hann væri
hættur með Ágústu vegna þess að
hann væri hommi og alkóhólisti og
hefði barið hana og eitthvað þaðan af
verra. En það á vist að hafa verið
kjaftasaga sem gekk um bæinn og
dreifði sér eins og krabbamein.
„Já. Hrafn kom og sagði okkur
að hann væri hamingjusamlega
giftur Ágústu Johnsen," segir Siggi
um þetta tiltekna mál.
En eru einhverjar aörar kjafta-
sögur vœntanlegar í gálgann?
„Já. Við erum að reyna að fá
Fjölni til að koma um helgina."
Hver er kjaftasagan um hann?
„Það eru allir hommar í dag,“
segir Siggi og hlær að þeirri fáran-
legu kjaftasögu. „Hami á víst að
hafa verið að leiða einhvem mann
eftir götu og eftir það eru allir að
segja að hann sé orðinn hommi.“
Það er því um að gera að leggjast
í þynnku mn helgina og horfa á
Með hausverk um helgar. Það veit
enginn hvað gerist um helgina en
Siggi segir að þeir strákamir verði
frjálslegir og skemmtilegir þrátt
fýrir hausverkinn. -MT
Stuttmyndaleikstjóri leitar að ungri
stúlku á hádegissýningum í Iðnó.
íslensk
stelpa m
stóra drauma
g f n i
Kynlíf í 4.
sæti
- Islendingar hafa
nóg annað við
tímann að gera 4
Linda Asgeirsdóttir: „Maður er svo berskjaldaöur þegar maður
þarf að syngja.“
Á fbnmtudaginn verður frumsýnd-
ur einþáttungur Kristjáns Þórðar
Hrafnssonar, Leitum að ungri
stúlku, á hádegissýningum í Iðnó.
Þetta verður nýstárleg upplifun því
áhorfendum er boðið upp á léttan há-
degisverð, hálftíma leiksýningu og
kaffi á eftir. Gestir fara því endur-
nærðir aftur í vinnuna. Þegar Iðnó
var opnað að nýju sl. sumar var efnt
til leikritasamkeppni og Kristján
hlaut fyrstu verðlaun fyrir leikritið.
Alls bárust 56 verk eftir 42 höfunda.
Leikendurnir eru tveir, Gunnar
Hansson og Linda Ásgeirsdóttir en
Magnús Geir Þórðarson leikstýrir.
Linda leikur Berglindi, stelpu sem
fer í prufu fyrir stuttmynd. Hvernig
týpa er Berglind?
„Hún er íslensk stelpa með stóra
drauma," segir Linda. „Við höldum
að mjög margar stelpur séu stórhuga
á þessu landi sem er gott mál. Berg-
lind er í skóla og að vinna en ákveð-
ur að skella sér í þessa prufu."
Dettur hún í lakkupottinn?
„Ja, það verður fólk að koma og
dæma um sjálft. Þetta er mjög
skemmtilegt leikrit, vel skrifað og í
þessum einþáttungi gerist ótrúlega
margt og fer í gegnum persónumar.
Manni finnst að leikritið sé miklu
lengra því Kristján kemur svo mörgu
að.“
Kannastu viö eitthvaö af því af per-
sónulegri reynslu?
„Jú, maður hefur nú farið í nokkr-
ar prufur og það er alltaf jafnerfitt að
láta einhvem „dæma“ sig. Það er
aUtaf erfiðast að fara i söngprufur
því maður þarf að vera svo hrikalega
vel upplagður. Maður er svo ber-
skjaldaður þegar maður þarf að
syngja.“
Hvaö ertu aö gera fleira þessa
dagana?
„Ég er að æfa annað leikrit héma
niðri í Iðnó sem við viljum kalla
geimsápu. Það gerist um borð í geim-
skipinu Geimfaxa. Við semjum það
saman fimm leikarar og leikstjóri og
það verður frumsýnt í mars. Við
erum einmitt núna að reyna að fmna
góðan titil á það.“
Dóp er ekki
minn tebolli
— Arnaldur Máni
heldur áfram
C mannfræði-
rannsóknum
sínum í Reykjavík
og New York
Spákonan á
Kaffisetrinu er
að gera það
gott:
Galdrar og
grillmatur 7
Hættu-
legastur í
Reykjavík o
- Jón Atrli
Jónsson segir frá
„fóstudagshandtökunni“
Wesley Snipes og
Guntó
Gaaz 9
- Upprennandi
kvikmynda-
gerðarmenn
semja
framhald af
Börnum
náttúrunnar
Erlífeftir 12-13
jólabóka/diskaflóðið?
- rithöfundar og músíkantar
á leið inn í hversdagsleikann
Hver á hvaða
nef?
13
We come
from the
land of ice
and snow..
— Led Zeppelin á íslandi
Ingólfur Helgi
Tryggvason
kerfisfræðingur:
Svona lifum
1Q við 2000-
vandann af
Mike Myers:
Hélt að haniiJi^l
væri skyldur mI
Bítlunum 21
Bannað að
láta eins og
22-23 hálfviti
~ Borghildur
Sverrisdóttir
sjónvarpsþula
Hvað er að gerast?
Veitingahús...........6-7
Leikhús ................8
Popp..................11
Fyrir börnin...........22
Myndlist...............22
Sjónvarp............15-18
Bíó................20-21
Hverjir voru hvar.....22
Fókus
r-ra fylgir DV á
SJf föstudögum
Forsíðumyndina tók Teitur
af Borghildi Sverrisdóttur.
12. febrúar 1999 f Ókus
3