Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1999, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1999, Blaðsíða 21
' 7 12. febrúar 1999 f Ókus Stjörnubíó Stepmom ★ Stjúpan er ein af þessum ofur- dramatísku erfiöleikadröm- um og sver sig í ætt viö vasa- klútamyndina miklu, Terms of Endearment. Sagan segir frá Luke og Jackie, sem eru skilin, og nýrri konu Lukes, Isabel, sem börnum Lukes og Jackie llkar ekki viö. í heildina fannst mér þetta alveg voöaleg mynd. En ég er líklega I minnihlutahópi hér þvl það var ekki þurrt auga I húsinu. -úd Mike Myers, sem sýnir af- burðaleik í 54, sem Regnboginn frumsýnir í dag, er einn fjöl- margra gamanleikara sem gert hafa garðinn frægan í Saturday Night Life sjónvarpsseríunni. Þegar hann byrjaði í þáttunum voru nokkrar af stjörnunum að hætta, leikarar á borð við John Candy og Dan Aykroyd, og þær skyldu eftir pláss fyrir metnaðar- gjarna leikara á borð við Mike Myers. í Saturday Night Life skapaði Myers meðal annars töffarann Wayne Campbell sem hann fór með yfir í kvikmynd- irnar í Wayne’s World myndirn- ar tvær. Hinar miklu vinsældir kvikmyndanna gerðu það að . verkum að hann hætti í sjón- varpsþáttunum og er í dag einn vinsælasti gaman- leikarinn í Hollywood og bók- aður langt fram í tímann við hin ýmsu verkefni. Foreldrar frá Liverpool Mike Myers er sonur innflytjenda frá Liverpool og í æsku var hann fullviss um að hann væri skyldur einhveijum af Bítlunum. Ástæð- an fýrir þessari fullvissu hans var að foreldrarnir töluðu alveg eins og Bítlarnir og enginn talaði eins í Toronto þar sem hann ólst upp. Annars var faðir hans sölu- maður hjá Encyclopedia Britann- ica og móðir hans hafði lært leik- list í London en hætti þegar þau hjónin fluttu vestur um haf. Fað- ir Myers var mikill aðdáandi breskra gamanmynda og átti það til að láta syni sína sitja yfir Pet- er Sellers- og Monthy Python- myndum. En það var Myers sem heillaðist mest og fljótt komu í ljós einstakir leikhæfileikar hans og einnig miklir prakkarahæfi- leikar. Móðir Myers sá að í honum voru miklir leikhæfileikar og fór því með hann í prufur þegar aug- lýst var eftir bömum í sjónvarps- auglýsingar. Átta ára gamall lék Myers í sinni fyrstu sjónvarps- auglýsingu og hann lék í mörgum meðan á skólanámi stóð. Myers hefur riíjað það upp að þegar hann var ellefu ára gamall lék hann í auglýsingu á móti hinni þekktu gamanleikkonu Gildu Radner sem lék móður hans. Hann varð svo ástfanginn af Radner að hann grenjaði sig í svefn þegar tökum lauk. Ári síðar sá hann Gildu Radner í Saturday Night Life, sem þá var að byrja sitt skeið, og ákvað að einhvern tímann skyldi hann leika í þess- um þáttum. Leiklistin átti hug hans allan og þótt Myers hafi náð að klára skyldunám í skóla þá segist hann hafa verið níu ára gamall þegar hann tók sitt síðasta almennilega próf. Myers varð fljótur að vinna sér sess í kanadísku sjónvarpi og var orðinn vinsæll leikari innan við tvítugt. Hjónaband og Satur- day Night Life Um það leyti sem Mike Myers ákvað að láta slag standa og flytja yfir landamærin til Banda- ríkjanna hitti hann unga stúlku, Robin Ruzan, á hokkíleik. Hann kom henni til aðstoðar þegar hún fékk hokkíkubb í höfuðið. Þetta var ást við fyrstu sýn og fylgdi hún hon- um yfir til Bandaríkj- anna þar sem Myers hélt strax á fúnd Lome Michaels, upphafs- manns Saturday Night Life-þáttanna, og bað um vinnu. Þeir höfðu einu sinni hist og Michael leist það vel á strákinn að hann réð hann til að skrifa brandara. Myers var fljótur að viima sig inn í raðir leik- j ara og vann síðan í sex ár við 1 þáttaröðina. 1 Það var Mike Myers mikið áfall eftir hinar miklu vinsældir Wayne’s World-kvikmyndanna tveggja að hans næsta kvikmynd, So I Married an Axe Murderer, kolféll þótt hann sjálfur fengi góða dóma. Hann ákvað því að taka sér frí frá kvikmyndum, vann við ýmis verk, fór meðal Tölvuteiknaðar pöddur í stríði Foreldrar Mike Myers fluftu til Bandaríkj- anna frá Liverpool og þegar Mike Myers var barn að aldrí trúði hann og hélt því hik- : laust fram að hann værí tengdur Bítiunum: M k annars í tónleikaferð með Barbra Streinsand en ein per- sónan sem hann skapaði í Satur- day Night Life hét Linda Richman og var mikill aðdáandi Streisand, sem á móti bauð hon- um að koma með persónuna á tónleika sína. Þetta heppnaðist mjög vel og var ein mest sótta tónleikaferð Streisand. Þá stofn- aði Myers rokkhljómsveitina Ming Tea ásamt Susanna Hoffs og Matthew Sweet og spiluðu þau og skemmtu á ýmsum klúbb- um á Los Angeles-svæðinu, meðal annars voru þau um tíma aðal- hljómsveitin á hinum vinsæla stað Viper Room sem Johnny Depp á. Það var meðan hann lék með Ming Tea sem hann skapaði per- sónuna Austin Powers og fór fljótt að skrifa kvikmyndahandrit í kringmn þá persónu. Það var lít- ið mál fyrir Myers að fiármagna myndina sem sló eftirminnilega í gegn. Þessum sigri sinum fylgdi Myers eftir með því að leika sitt fyrsta dramatíska hlutverk, Steve Rubbell, eiganda diskóteksins 54, í samnefndri kvikmynd. Næsta mynd hans mun vera framhald af Austin Powers og þar á eftir kem- ur McClintock’s Live þar sem mótleikari hans er Janeane Garofalo. Mike Myers og Robin Ruzan giftu sig meðan Myers tók sér frí frá kvikmyndum og búa í Los Angeles ásamt þremur hundum. Myers, sem ávallt þakkaði foður sínum hversu fljótt hann þroskað- ist sem gamanleikari, heiðrar minningu hans, en faðir hans dó árið 1991 úr Alzheimer, með því að ganga með hring sem faðir hans fékk fyrir vel unnin sölu- störf hjá Encyclopedia Britann- ica. -HK Disney-fyrirtækið reið á vaðið með tölvuteiknaða teiknimynd í fullri lengd með Toy Story. Þessi skemmtilega mynd sló í gegn og setti þar með gæðastandard fyrir þær sem á eftir myndu koma, enda er það svo að aðeins tvær hafa fylgt í kjölfarið, Maurar (Antz) og Pöddulíf (The Bug’s Life) enda Ovinurinn Hopper sem er foringi gráðugra engtsprettna kostnaðurinn við gerð slíkra mynda gífurlegur. Það einkennilega við tvær fyrmefndar myndir er að þær eru nánast um það sama, litla maura sem mega sín lítið gegn stærri kvikindum. Eftir að Antz sló í gegn höfðu margir hjá Disney áhyggjur af því að miklar vinsældir Antz hefðu áhrif á aðsókn á Pöddulíf en sú var ekki raunin og hefur Pöddulíf orðið mun vinsælli heldur en Antz sem Draumasmiðja Steven Spielbergs og félagar gerðu. Pöddulíf er sem sagt önnur kvik- mynd Disney sem er öll tölvuteikn- uð og gerð í samstarfi við Pixar- tölvufyrirtækið. Myndin er fiöl- skyldumynd og er ein aðsóknar- mesta myndin í Bandaríkjunum á síðasta ári. Pöddulíf fiallar um maurabú sem verður fyrir því á hverju ári að engisprettumar koma og éta allan matinn sem mauramir Manny ásamt vini sínum Sllm réttir maurnum Rik hjálparhönd í þeirrl vlðleitni hans að bjarga maurabyggð frá englsprettunum. höfðu safnað fyrir veturinn. Einn maur ákveður að gera eitthvað í málunum og ræður til starfa flokk her-padda sem taka eiga á vandan- um. Hins vegar er um mikinn mis- skilning að ræða því „her-pöddum- ar“ em í raun sirkuspöddur og vita ekkert um hemað. Pöddulíf, sem frumsýnd er í dag, verður sýnd á mórgum stöðum, í Reykjavík er hún sýnd með íslensku tali í Bíóhöllinni og Kringlubíói og með íslensku og ensku tali í Bíó- borginni. Úti á landi er hún sýnd í Nýja bíói í Keflavík með íslensku tali og Nýja bíói á Akureyri, einnig með íslensku tali. Frægir leikarar ljá raddir sínar í ensku útgáfuna. Má þar nefna Kevin Spacey, Julia Louls-Dreyfus, Phillis Diller, Jon- athan Harris, David Hyde Pierce og Denis Leary. -HK Háskólabíó ■ Pleasantvllle Pleasant- ville er ein af þessum mynd- um sem ætla sér afkaplega mikið en falla dálítið á eigin bragði. Fyrri hlutinn lofaði of góðu sem seinni hlutinn upp- fyllti ekki. Það var einhvern veginn eins og þetta þyrfti allt að vera svo ánægjulegt og mætti ekki fara yfir eitthvert ósýnilegt strik. -úd Elizabeth ★★★ Shekhar Kapur vefur frásögn- ina I expressíonlsk klæði, skuggarnir eru lang- ir, salirnir bergmála og andi launráða svífur yfir. Guðsblessunarlega heldur hann sig langt frá hinni hefðbundnu nálgun breskra búninga- mynda og skapar safarikt bló sem er þegar upp er staðiö hin ágætasta skemmtan. -4S Festen ★★★★ I kvikmynd Thomasar Vinter- bergs, Festen, er það fyrst og fremst mögnuð saga sem gerir myndina að áhrifamikilli upplif- un en auðvitað verður heldur ekki komist hjá því að njóta þess einfaldleika sem hún býður upp á með notkun hinnar dönsku dogma-aö- feröar. Þetta er kvikmynd sem lætur engan ósnortinn. -HK Meet Joe Black ★★ Egypskl prlnslnn ★★★* Regnboginn The Slege ★★ Mikill hraöi á kostnað persóna sem eru fiatar og óspennandi. Mörg atriði eru vel gerð og stund- um tekst að skapa dágóða spennu en aldrei lengi I einu. Denzel Washington, sem fátt hefur gert rangt á farsælum leikferli, hefur átt betri daga. Hið sama má segja um Annette Bening en gleðitíðindin eru að Bruce Willis nær sér vel á strik og gerir vel I l'itlu hlutverki. -HK Le dlner de cons ★★ Frönsk gamanmynd sem hefur margt til sins ágætis. Byrjar sem skemmtilegur leikur fyrir útgáfustjóra sem er búinn aö finna sér bjána til að taka með sér I kvöldveröarboö en þegar upp er staöið er það spurning hvor er meiri bjáni. Ágætur leikur og hnyttiö handrit en myndin líður aðeins fyrir þaö að vera I allri uppsetningu eins og leikrit. -HK Rounders ★★★ Póker getur verið spennandi kvikmyndaefni og það sannast I Rounders sem flallar um nokkra ólíka náunga sem allir eru atvinnuspilarar. Gæði myndarinnar eru mest þegar sest er við spilaborðið þvl handrit- iö er stundum ótrúverðugt. Góðir leikarar meö John Malkovich I hlutverki senuþjófsins eiga góða spretti og skapa stundum mun drama- tlskara andrúmsloft en ástæða þykir til. -HK There’s Somethlng about Mary ★★★ Kringlubíó Wlshmaster ★★ The Wish- master segir frá demóni nokkrum sem getur látið all- ar óskir rætast en sá böggull týlgir skammrifi að þær ræt- ast kannski ekki endilega á þann hátt sem óskandinn hefði viljað. Einhvers staðar datt botninn úr sögunni og endirinn var alveg gersamlega út I hött og sló myndina glæsilega út úr tveggja stjörnu klassanum. -úd Waterboy ★★ Enn einn heimskinginn sem sigrar heiminn. Nú er það Adam Sandler sem bregður sér I hlutverk einfeldningsins með barnssálina sem I byrjun myndar er lægstur allra en stendur uppi sem bestur og mestur I lokin. Sandler skapar skemmtiiega persónu en er I rauninni ekki að gera neitt annað en það sem Jim Carrey gerir og margir hafa gert á undan. Þá er allt of mikið gert út á amerísk- an fótbolta sem verður að leiðinlegum endur- tekningum. -HK Mulan ★★★★ Laugarásbíó Rush Hour ★★★ Það var þvl snjalit að etja Jackie Chan saman við Chris Tucker sem slær út sjálfan Eddie Murphy þegar kemur að kjaftavaðli. Þessir tveir ólíku leikarar ná vel saman I Rush Hour sem er fyrst og fremst vel heppn- uð gamanmynd, enda eru slagsmálaatriöin yfirleitt útfærð á þann hátt að áhorfandinn getur hlegiö um leið og hann tylgist spenntur með. -HK mesxira. á.[ www.visir.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.