Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1999, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1999, Blaðsíða 20
b í ó f Ó k U S 12. febrúar 1999 Dennis Quaid Fæðingardagur og ár: 9. apríl 1954. Fæðingarstaður: Houston, Texas. Stjörnumerki: Sól I hrúti, tungl I krabba. Systkini: Randy Quaid, leikari. Eiginkona: Meg Ryan. Fyrrum eiginkona: Pamela Jane Soles. Barn: Jack Henry (með Meg Ryan). Kvikmyndir: Breaking Away, The Long Riders, Tough Enough, Jaws 3-D, The Right Stuff, Dreamscape, Enemy Mine. The Big Easy, Innerspace, Suspect, D.O.A., Everybody’s All American, Great Balls of Fire, Postcards From the Edge, Come See the Paradise, Undercover Blues, Wilder Napalm, Flesh and Bone, Wyatt Earp, Something to Talk about, Dragon- heart, Switchback, Gang Related, Savior, The Parent Trap. Dennis Quaid „Ég hef alltaf verið á þeirri skoðun að ég sé karakterleikari þótt ég sé oft sá sem á að bera myndina uppi og tel mig raunar heppinn að fá tækifæri til þess. En allt frá því ég hóf að leika í kvikmyndum hefur hugur minn staðið frekar til skapgerðarhlut- verka heldur en að leika hetjur. Ég lít ekki á aðsóknartölur sem mælikvarða á vinsældir eða getu á meðan vinsældir eru mældar í peningum. Það besta við að leika í vinsælli kvikmynd er að þú get- ur verið rólegur í ein tvö ár og það mun ekki skaða ferilinn að leika í einum til tveimur mis- heppnuðum kvikmyndum á þessu tímabili." Savior, sem Stjömubíó frum- sýnir í dag, er framleidd af Oli- ver Stone en leikstýrt af júgóslavneskmn leikstjóra, Pre- drag Antonijevic. Savior gerist í fyrrum Júgóslavíu og er aðalper- sónan Joshua (Dennis Quaid), fyrrum bandarískur diplómat sem hættir störfum fyrir utanrík- isþjónustuna og gerist málaliði í fyrrum Júgóslavíu og berst við hlið Serba gegn múslímum. Ástæðan er að eiginkona hans hafði verið drepin af múslímum í París. í Bosníu kynnist hann ungri konu, Vera, sem er á ver- gangi með barn sitt og hjálpar henni að komast í flóttamanna- húðir en þó ekki fyrr en eftir að hann hefur orðið vitni að grimmd Serba í stríðinu. Auk Dennis Quaid leika í Savior Natassja Kinski, Stellan Skars- gard og nýliðinn Natasa Nin- kovic sem leikur Veru. Dennis Quaid hefur fengið mikið lof fyrir leik sinn í mynd- inni og eru flestir á því að hann beri myndina uppi. Quaid hefur verið að gera góða hluti á undan- fornum árum en því miður fyrir hann hefur það verið í kvik- myndum á borð við Flesh and Bone og Wyatt Earp sem hafa far- ið fyrir ofan garð og neðan hjá Amerískur diplómat gerist málaliði í fyrrum Júgóslavíu og hjálpar ungri bosnískri stúlku ásamt litlu barni að komast í flóttamannabúðir: áhorfendum. Og sömu örlög biðu Savior, hún hefur staðið stutt við í bíóhúsum. Quaid fór í kvik- myndimar fyrir slysni, hann ætl- aði sér alltaf að verða tónlistar- maður og þegar bróðir hans Randy Quaid var að hasla sér völl í kvikmyndum þá lék Dennis í hljómsveitinni Electrics sem náði einhverjum vinsældum á tímabili. Það var hins vegar eitt sinn þegar hann var í heimsókn hjá bróður sínum að hann var talinn á að reyna fyrir sér í kvik- myndum og hann var einn af þeim heppnu; fékk fljótlega stórt hlutverk í Breaking Away sem fékk góðar viðtökur og í kjölfarið hætti hann í tónlistinni. En hæfi- leika hans sem tónlistarmanns má sjá í Great Balls of Fire þar sem hann lék rokkarann Jerry Lee Lewis. Quaid segir að það sem fyrst og fremst hafi heiUað hann við Savior hefði verið hversu ólík Hollywood-myndum hún var. „Þegar ég las handritið fannst mér ég nálgast hörmung- arnar í stríðinu í fyrrum Júgóslavíu og einnig er persónan sem ég leik flókin og viss áskor- un fyrir mig að leika hana.“ -HK Bíóhöllin/Saga-bíó You’ve Got Mall ★★ Það fer að halla fljótt undan fæti í þessari skritnu samsuðu þar sem og þegar upp er staðið er myndin aðeins miðlungsrómantísk gaman- mynd. Á móti leiðindasögu kemur þáttur Toms Hanks og Meg Ryan sem, eins og við mátti búast, koma myndinni upp á hærra plan með því aö vera eitthvert mest sjarmerandi leikarapar í Hollywood. -HK Ronln ★★■*. Það er margt sem gerir Ronin að góðri af- þreyingu. Til að mynda eru í myndinni einhver flottustu bílaeltingaratriði sem lengi hafa sést og liggur við að um mann fari viö aö horfa á öll ósköþin. Þá er leikarahópur- inn sterkur, með Robert De Niro í hörkuformi, og loks ber að geta þess að þrátt fyrir ýmsa vankanta I handriti gengur þessi flókna at- burðarás að mestu leyti upp og dettur ekki niður í lokin eins og oft vill verða. -HK Holy Man ★% Star Kld ★★ Dennis Quaid hefur fengið lof fyrir leik sinn í Savior. Bíóborgin Enemy of the State ★★★ Virkilega vel gerð spennu- mynd þar sem persónur verða nánast aukanúmer við hliðina á njósnatækni nútím- ans. Það er gífurlegur hraði í myndinni sem gefur henni vissan trúverðugleika þegar njósnatæknin er höfð í huga og þessi hraði gerir það líka að verkum að minna áberandi verður tilviljanakennt handritið þar sem sam- tölin bera oft þess merki að til að „plottið" gangi upp verði að fara ýmsar vafasamar leið- ir. -HK Practical Maglc ★★★ Bullock og Kidman hafa, held ég, aldrei verið eins góðar og njóta sín vel I þessum klikkuðu hlutverkum og Wiest og Channing skemmta sér greinilega konung- lega sem miðaldra nornamömmur. Practical Magic tekur sig aldrei of alvarlega og það er það sem gerir hana að þeirri ánægjulegu skemmtun sem hún er. -úd Vampírur ★★★

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.