Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1999, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1999, Blaðsíða 23
j 4 « i « « í i « « i « « « 9 j i j j i j „Ha, ha, ha, nei, það finnst mér ekki. En, jú, ég var í máladeild í menntaskóla og jú, ég fór til Frakklands í hálft ár, en ég ætla aldrei að verða flugfreyja." Mikið atriði að vera hress Hvaö ertu aö hugsa um þegar þú ert aö lesa kynningarnar? Ertu aö hugsa aö nú séu flestir landsmenn aö horfa á þig? „Ég reyni nú bara að hugsa ekki um það.“ Kannski alls konar pervertar aó horfa... „Nei, ég hugsa ekkert um það. Ég hugsa bara um að gera þetta veL“ Haföiröu fariö á leiklistarnám- skeiö? „Nei, en ég var að læra söng í 3 ár. Kom m.a.s. fram hér í Sjón- varpinu hjá Hemma Gunn. Það kom til vegna þess að ég var ís- landsmeistari í karaoke ‘94, söng lag sem Pálmi Gunnarsson hafði sungið áður.“ Er eitthvert samband á milli ykkar þulanna? „Voða lítið. En eftir fyrsta kvöldið mitt sendi ein þulan mér bréf og stappaði í mig stálinu." Hvaða augum lítur sálfrœöinem- inn á djobbið? „Ég er nú svo nýbyrjuð, bæði í þulunni og sáifræðinni. En það skiptir máli hvernig þulurnar koma fram og segja hlutina. Það getur peppað áhorfendur upp ef þulan er góð. Maður verður heim- ilisvinur eftir einhvem tíma, eins og Ragnheiður Clausen er tví- mælalaust orðin núna.“ Já, hún er hress og persónuleg. Stefnir þú á þann stíl? „Vilja ekki allir vera hressir og persónulegir? Maður á að reyna að sýna það besta af sjálfum sér þó maður sé kannski ekki að sýna sitt innsta eðli. En það er mikið atriði að vera hress.“ Hver er uppáhaldsþulan þín? „Ég vil ekki tjá mig um þær sem eru núna en af þeim sem eru hættar finnst mér Sigurlaug Jón- asdóttir góð og svo Rósa náttúr- lega alveg frábær." Finnst þér tíminn lengi aö líöa og djobbið einmanalegt? „Nei, tíminn líður hratt og hér er fullt af skemmtilegu fólki svo þetta er ekki einmanalegt, ég hef alla vega ekki fundið fyrir því enn þá. Þetta er fln vinna með skólan- um.“ Er eitthvaö bannaö í starfinu? „Já, það er auðvitað bannað að láta eins og hálfviti og maður yrði fljótt kallaður upp á teppi ef mað- ur færi að segja einhveija vit- leysu." Létta oss lífið Nú fer að koma að næstu kynn- ingu og Borghildur fer í klefann til að hita sig upp. Karlamir á tökkunum segja nauðsynlegt að hafa þulu, að það sé öryggisatriði, t.d. þegar koma þarf óvæntum skilaboðum til þjóðarinnar, frétt- um af jarðskjálfta, ófærð og svo- leiðis. „Svo er það líka það eina sem við höfum fram yfir hinar stöðvamar, útlitslega séð,“ segir Sigurður. „Já, það er betri stemning þeg- ar kona er á vaktinni," samþykkja takkamenn, „þær létta oss lífið.“ Ég reyni að toga upp úr þeim leyndarmál þulanna. „Það eru ekki allar sem undirbúa sig jafn vel og hún Borg- hildur hérna,“ segir Sigurður. „Srnnar sem em orðnar vanar koma bara tíu sekúndum áður og fara létt með það.“ Hefur einhver komió of seint? „Jú, stundum kom Rósa of seint og stundum bara alls ekki. Þá urð- um við að senda atriðið beint út þululaust. En Rósa er Rósa og drakk te og kaffi í kynningunum," segir Sigurður. Hann er búinn að vinna við þetta síðan 1977 og það bregður fyrir glampa í augunum þegar hann talar um hina goð- sagnarkenndu þulu. En nú er komið að Borghildi að láta ljós sitt skína. „Níu!“ kallar Bragi tæknivaktstjóri í hljóðnem- ann. „Nú fylgjiunst við með breska sakamálaflokknum Illþýði," segir Borghildur í kompunni og brosir blítt framan í landann sem liggur í sófum og hægindastólum úti um allt land og lætur kassann skemmta sér og þuluna lýsa upp skammdegið. -glh 5 eftirminnilegar þulur Rósa Ingólfsdóttir Goðsögn þul- arstarfsins. Frjálsleg og heimilisleg með afbrigð- um. Tók t.d. upp á því að veifa kaffibrúsa í lopasokk áður en hún kynnti hollenska fræðslu- mynd og sagði að lopasokkur á kaffibrúsa væri þarfaþing. Kom sífellt á óvart og þjóðin man hana ljóslifandi enn. Eftir þularstarfið hefur Rósa fengist við ýmislegt, m.a. að fara í rósabað. Hún er nú með vikulegan útvarpsþátt á Matthildi og er að vanda aUt í öUu. Ása Finnsdóttir Ása var fyrsta þulan á skjánum en í byrjun voru ráðnar tvær, hún og Sigríður Ragna Sigurðar- dóttir. Þær voru því prótótýp- urnar; komv vel fyrir, ung ar, sætar og sjarmerandi. Brynja X. Vífilsdóttir Sló í gegn með fegurð sinni og var á skömmum tíma drottning hinna votu sjónvarpsdrauma. Minna þótti koma til upplestrarhæfi- leika eða heimiUslegra takta. Hætti og fór í nám til Mexíkó. Birtist svo óvænt á einhverri forsíðu með rassinn í bala. Gísli Baldur Garðarsson Fyrsta karl- þulan. Það vakti mikla athygU þegar karl birtist í settinu á áttunda áratugnum. Siðan þá hafa ýmsir karlar setið í þularkompunni og nú eru tveir í starfinu. GísU var að læra lögfræði með þular- starfinu og starfar í dag sem hæstaréttarlög- maður. Ragnheiður Clausen Forystu- þulan í dag I með per-1 sónuleganI og hressan | stíl sem minnir um sumt á Rósu. Er búin að vera þula síðan ‘94 og er því með lengstu starfsreynslu þul- anna í dag. Bókmenntafræði og fyrirsætustörf hafa éinnig heiUað dísina ungu. ---- jr'il diiJdÍJJvíjíljr' jííjJJíj diijj^y NYJA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.