Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1999, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1999, Blaðsíða 4
Kynlíf Tómstundir Samkvæmt skoðanakönnun DV finnst landsmönnum vinir og fjárhagslegt 1.514 stig 543 stig > ''<£ 28,4% 27,1% 25 8,6% Ol 7% 10,2% Oa l.sæti 2.sæti 3.sæti 4.sæti 5.sæti öryggi eftirsóknarverðari en áhugaverð atvinna. Og þetta þrennt er allt mikilvægara í lífinu en kynlíf - að ekki sé talað um tómstundir. Áhu undanfómum árum - þá kemur það ekki sterkt út úr þessari könnun. Aðeins 5,7 prósent karla og 2,2 prósent kvenna settu kynlíf i fyrsta sæti. 12,5 prósent karla og 11,6 prósent kvenna settu það í annað sætið. Það má sjá af þessu ákveðna togstreitu milli kynj- anna, sem mikið hefur verið látið með í gegnum aldirnar - karlar em spenntari fyrir kynlífi en konur. Það kom fram í könnun- inni að mun fleiri höfuðborgark- arlar en landsbyggðarkarlar settu kynlíf í fyrsta sæti eða 8,6 prósent á móti 2,8 prósentum. Það var hins vegar ekki merkjanlegur munur á milli kvenna eftir bú- setu. Og togstreitan sem minnst var á áðan er þéttbýlisvandi. Á landsbyggðinni er gott jafnvægi á milli kynlífsáhuga kynjanna. 2,8 prósent karla og 2,9 prósent kvenna á landsbyggðinni settu kynlíf í fyrsta sæti og skulum við vona að þetta fólk flnni hvað ann- að. Svona lítur skipting milli mik- ilvægis þáttanna fimm út ef ákveðinni stigagjöf er beitt á niðurstöður könnunarinnar. Ef reiknað er með að hver þáttur fái 15 stig fyrir fyrsta sæti, 7 stig fyrir annað sætið, 3 stig fyrir þriðja sætið, 1 stig fyrir fjórða sætið en ekkert fyrir fimmta sætið er niðurstaðan sú að vinirnir fá 34,8 pró- sent atkvæða en fjárhagslegt öryggi 34,2 prósent. Áhugaverð atvinna, kynlíf og tómstundir fá mun færri stig. konur) settu tómstundir í fyrsta sæti en 61 prósent (340 þátttak- endur) skipuðu þeim í síðasta sætið. Þetta er mjög athyglisverð niðurstaða og á skjön við það sem halda mætti af umræðu undan- farinna áratuga. Og þó. Þegar töl- ur um hvemig fólk ver tíma sín- um eru skoðaðar kemur nefnilega i ljós að sjónvarpið hefur étið upp styttingu vinnutímans frá stríðslokum. Ef fólk hefði skipað tómstundunum ofar á listann hefði það því í raun verið að segja að sjónvarpið væri það mikilvæg- asta í líflnu. 42,2% 29,4% ■ rfl ■ 14,9% ri~} 6,3% 7.2% Jl LJl LIÍ Qs Wm l.sæti 2.sæti 3.sæti 4.sæti 5-sæti Tómstundir tómlegar Eitt helsta baráttumál verka- lýðshreyfingarinnar á Vestur- löndum er stytting vinnutímans. Hugmyndin að baki þessari kröfu er að vinnan sé böl og fólk þurfl aukinn tíma til að lifa hinu raun- verulega lífl utan vinnutímans. íslendingar virðast ekki ginn- keyptir fyrir þessum rökum. í könnun DV kom fram að tóm- stundir eru síður en svo mikil- vægar í lífi þeirra. Aðeins 1,1 prð- sent þátttakenda (3 karla og 3 Fjárhagslegt öryggi vs. hugnyggja Því hefur verið haldið fram að við lifum á miklum efnishyggju- tímum. Þrátt fyrir að vinimir lendi í fyrsta sæti í þessari könn- un þá stangast niðurstöður könn- imarinnar síður en svo á við þessa fullyrðingu. í raun er það undarlegt að einhver skuli frem- ur búa við efnahagslegt öryggi en eiga vini því uppsöfnuð speki mannkynssögunnar kennir að vinátta geri menn hæfa til að lifa af flesta óáran - jafnvel efnahags- legt óöryggi. Það verður líka að teljast merki um efnishyggju að áhugaverð atvinna mali tóm- stundirnar í þessum samanburði. Auðvitað eiga margir þeirra sem settu áhugaverða atvinnu ofar- lega sér þann draum að vinna við áhugamál sín en vond útkoma tómstunda bendir til að flestir vilji verja tíma sínum þannig að það hafi einhvem efnahagslegan tilgang. Vond útkoma kynlifsins verður líka fremur að reiknast sem tap fyrir hughyggju en tap efnishyggju, því þótt kynlífið sé að stóm leyti holdlegt sport þá á það sér sterkari huglæga hlið en efliislæga. EN ÞÚ, ORIM? ERT bó GÖMUL 5 OÚ ÞÚ EKT POTTl»ÉTT GÖMUL sÁk SAL? JÁ JA ELSK.AN MÍN 6Ó£>A, ÉG £* MJÖS GÖMUL SÁu... HUN Eft OROKM 5V0 GÓMUL AÐ HÚN ER ElGtNLEGA WÁLSTUM WÍ DAUfi Vinir og peningar mikilvægari en kynlrf einnig) fyrsta sætið. Rúmlega 12 prósentum fleiri konur töldu vin- skapinn mikilvægari en fjárhags- legt öryggi. Það vora hins vegar tæplega 3 prósentum fleiri karlar sem völdu fjárhagslega öryggið frekar en vinina - það eru því enn til góðir skaffarar meðal karla. En þar sem munurinn hjá körlunum var minni en hjá kon- um þá unnu vinimir keppnina. Vinskapurinn er mikilvægastur af þessum fimm þáttum. Samkvæmt niðurstöðum skoð- anakönnunar DV er jafnalgengt að landsmenn nefni vini og fjár- hagslegt öryggi sem það mikil- vægasta í lííinu. Karlar eru jafn- klofnir í afstöðu sinni til þessa og konur og sömuleiðis fólk á höfuð- borgarsvæðinu og það sem hýr í hinum dreifðari byggðum. Og það má heldur ekki finna mikinn mun milli þessara hópa í afstöð- unni til vinnunnar, kynlífs og tómstunda. í öllum hópum var al- gengast að áhugaverð atvinna lenti í þriðja sæti, kynlífið í fjórða og tómstundir í fimmta. Það er því ekki mikill munur á verðmætamati fólks eftir kynjum eða búsetu. Hópamir eru allir meira og minna eins - það er fólk- ið innan þeirra sem er ólíkt. Það er ef til vill rétt að benda fólki á að könnuninni var ekki ætlað að leiða í ljós hvað lands- mönnum þætti mikilvægast í líf- inu. Vísvitandi var þáttum eins og góöri heilsu, barnaláni og fjöl- skyldu sleppt út. Þátttakendur fengu aðeins að raða fimm þátt- um upp í mikilvægisröð: vinum, áhugaverðri atvinnu, kynlífi, tómstundum og fjárhagslegu ör- yggi. Könnunin segir því aðeins til um samanhurð á mati lands- manna á mikilvægi þessara þátta. Og fólki fannst þetta auðsjáanlega skemmtilegur leikur. Af 600 manna úrtaki tóku 93 prósent þátt í leiknum - svarhlutfall sem er fátítt að sjá í könnunum. 44,2% Vinirnir mikilvægastir Af þessum fimm þáttum lentu vinimir oftast í fyrsta sæti, rúm 44 prósent landsmanna sögðu þá mikilvægari en hina þættina fjóra. Fjárhagslegt öryggi kom fast á hæla vinanna með rúm 42 prósent í fyrsta sæti. Það voru konurnar sem tryggðu vinunum (og að sjálfsögðu vinkonunum Fjárhagsleat öryggi mikilvægt Eins og áður sagði völdu flest- ir karlar fjárhagslegt öryggi í fyrsta sæti en vinirnir komu fast á eftir. Landsbyggðarkarlar voru örlítið harðari á því en höfuð- borgarkarlar að fjárhagslegt ör- yggi skipti meira máli en vinirn- ir. Fjárhagslegt öryggi varð hins vegar í öðm sæti meðal kvenna. Vinirnir höfðu betra forskot á öryggið meðal landsbyggða- kvenna en þeirra sem búa á höf- uðborgarsvæðinu. Fjölmargar kannanir hafa sýnt fram á að ekkert samhengi sé á milli peninga og hamingju, fólk verður ekki hamingjusam- ara þrátt fyrir að það eignist pening. Hugsanlega vildi ein- hver túlka svar þeirra sem settu fjárhagslegt öryggi í fyrsta sæti sem misskilning, fákunnáttu í lífinu. Það ber hins vegar að benda á að spurt var um fjár- hagslegt öryggi ekki auðlegð. Hugsanlega lögðu sumir þann skilning í fjárhagslegt öryggi að það væri að eiga alltaf nóg af peningum til að uppfylla £illar óskir og langanir en hugsanlega áttu flestir einfaldlega við að þeir vildu vera lausir við nag- andi ótta við að eiga hvorki í sig né á. (— 31,6% 33,6% 18,9% l.sæti 2.sæti 3.sæti 4.sæti 5.sæti Áhugaverð atvinna skiptir máli Tiltölulega fáir sögðu að áhuga- verð atvinna væri mikilvægust af þessum fimm þáttum eða tæplega 9 prósent af heildinni. Vinnan lenti hins vegar næstum jafhoft og fjárhagslega öryggið og vinirn- ir í öðru sæti. Þetta þýðir að það var álika algengt að þeir sem settu vinina í fyrsta sæti veldu áhugaverða vinnu eða fjárhags- legt öryggi í annað sæti. Þegar einstakir hópar em skoð- aðir kemur í ljós að fleiri höfuð- borgarkonur (8,6 prósent) og landsbyggðakarlar (11,3 prósent) setja áhugaverða atvinnu í fyrsta sæti. Færri höfuðborgarkarlar (7,9 prósent) og landsbyggðakon- ur (6,6 prósent) setja vinnuna í fyrsta sæti. Það má velta fyrir sér sam- henginu á milli fjárhagslegs ör- yggis og áhugaverðrar vinnu. Það er augljóst að fólk gerir mun meira úr því fyrrnefnda. Það mætti því draga þá ályktun að það væri tilbúið að fórna því að vinnan væri áhugaverð svo fram- arlega sem það fengi vel borgað. Kynlíf ekki mikilvægt Þrátt fyrir að kynlíf sé áber- andi í samfélaginu - það má jafn- vel segja að ákveðin kynlífsbylt- ing hafi átt sér stað í Reykjavík á f Ó k U S 12. febrúar 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.