Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1999, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1999, Blaðsíða 8
 4. desember í Reykiavfk „Föstudagshandtakan" í Tvíhöfða er frægasta útvarpsþáttaratriði síðasta árs. Verkfærið í atriðinu var Jón Atli Jónasson, betur þekktur sem Rödd Guðs á X-inu. Hann samþykkti að rekja glæpasögu sína sem leitt hefur til kæru og viðurnefnisins: Hættulegasti maðurinn í Reykjavík. En Jón vill taka það fram að hann er ekki hættulegur og að innst inni sé hann væminn og hlýlegur ungur maður. Og ef litið er á glæpaferil Jóns má glögglega sjá að hann er ekki annað en afurð þess sjúka samfélags sem hann lifir í. Sjálfur vill Jón titla sig fjöllistamann og segir að föstudags- handtakan sé listviðburður, gjörningur sem hann og félagarnir í Tvíhöfða buðu upp á á síðasta ári. „Alþingismálið er hjá Ríkis- saksóknara,“ segir Jón Atli Jónasson, dagskrárgerðarmað- ur á X-inu, þegar hann er spurð- ur um statusinn á glæpaferlin- um. Svo þaö er búiö aö berja upp úr þér upplýsingar? „Já, þannig séð. Ég var fyrst yfirheyrður þegar ég var hand- tekinn og svo aftur þegar lögregl- an var búin að rannsaka málið betur. Þetta kemur síðan bara í ljós.“ Hvað finnst þér um alþingis- menn? „Mér finnst þeir kannski taka sig aðeins of hátíðlega. Vegna þess að þetta var alls ekki illa meint hjá okkur og það er nú bara þannig að snilld er oft mis- skilin og ég veit ekki betur en sjálfur Össur Skarphéðinsson hafi haldið ræðu ofan af þing- pöllum." En ertu heiöarlegur náungi, svona aö öllu jöfnu? „Ég reyni það.“ Hefuröu komist í kast viö lögin áöur? „Já. En ég vil ekkert tjá mig um það.“ En hvaö finnst mömmu þinni um þetta allt saman? „Henni finnst þetta hrikalegt. Ég er svarti sauðurinn í fjöl- skyldunni. Mikið af ættingjum mínum vinnur líka hjá RÚV og ég er fyrsti fjölskyldumeðlimur- inn sem vinnur fyrir frjálsa út- varpsstöð." Svo kallaröu þig Rödd Guös, ertu trúaöur? „Já.“ Hvernig lýsir þaö sér? „Bara. Ég vil trúa á það góða í manneskjunni og þá sérstaklega alþingismönnum. Svo er ég mjög hrifinn af fyr- irgefhingunni og er duglegur við að biðjast afsökunar." Og samt ertu krimmi? „Já. Það er nú bara þannig að þessar handtökur hafa veitt mér mikla kvenhylli og ég er farinn að hallast á þá staðreynd að glæpir borgi sig. Þeir virðast alla vega æsa kvenkynið upp og það má vel vera að ég gerist íslenskur gangster og ræni kannski banka á næstunni.“ Er þaö nœst á dagskrá hjá þér og Tvíhöföa? „Ég veit það ekki. Við erum núna að leggja drög að nýrri fostudagshandtöku sem á eftir að koma virkilega á óvart.“ Þá er um að gera fyrir hlust- endur X-ins að bíða við viðtækin og halda sig innan dyra á föstu- dögum. Það er aldrei að vita hvar næsta hryðjuverk verður framið. Kannski væri vit í því ef alþingismenn samþykktu að stytta vinnuvikuna um einn dag. Þá gæti fólk með góðri samvisku lokað sig inni á föstudögum. Jón Atli (Rödd Guðs) má ekki koma nær Alþingishúsinu en sem nemur tuttugu metrum. Fyrsta handtakan nóvember „Ég stend í hettuúlpu á Ingólfstorgi og reyni ab selja vegfarend- um stolna tölvu. Tvíhöfði hringir sjálfur niöur á stöö og lögreglu- bíll mætir á svæöið. Ég reyni að komast undan á hlaupum en er giftusamlega handtekinn og „tekinn inn í bíl" eins og það heitir í bransanum." „Ég rölti í rólegheitunum út í næstu 10-11 verslun og byrja að éta úr hillunum. Ég stel niðursoðnum ananas I dós, tímaritinu Lífsstíl, grænum frostpinna og tveggja lítra kók. Ég kemst óséður út og er á flótta undan lögunum þegar ég átta mig á því að ég hef gleymt að stela pyisubrauði. Ég fer aftur inn í verslunina en þá hljómar X-ið inni í búöinni og af langri reynslu veit ég að þetta er búið spil. Ég brotna niður við kassa þrjú og i glæpinn. Fyrir utan keyrir lögreglubíll um miðbæinn leitandi að mér." wmmmmmmm- fmi Œil I í nafni lagann< 13. nóvember >1 „Fer á stúfana klæddur eins og lögregluþjónn. Stjórna umferðinni í miðbænum eftir eigin geðþótta við litla hrifningu bílstjóra og vegfarenda. Vinka kollegum mín- um sem eru að baksa viö það sama og ég þennan morguninn. Stoppa Ijóslausa Lödu í Austurstræti og þruma yfir bilstjóranum. Handtek vegfaranda og skila honum inn á stöðina. Þar er mér vel tekið. En áður en ég næ að bóka handtökuna kemur jaröskjálfti og í öll- um hamaganginum læöist ég út." Innbrot í Landssímahúsið. „Fer á stúfana með Jóni Gnarr. Hann er með rauðu hárkolluna. Freistum þess aö komast á þingpalla en þar er allt lokað. Til þess að bregð- ast ekki hlustendum ákveðum við að brjótast inn í Landssímahúsið. Við Ijúgum okkur inn í gegnum rammgirt anddyrið og flökkum milli hæða stelandi tepokum og truflandi fundi og fólk að störfum. Ég stel áritaðri og innrammaðri mynd af íslenska handboltalandsliðinu. Við stelum líka samlokum í mötuneytinu og svo er okkur hent út. Við náum að komast aftur inn og við Jón reynum að stela Ijósritunarvél sem stendur uppi á fimmtu hæð. Það gengur ekki og lögreglan mæt- ir á svæðið. Við leggjum kæruleysislega á flótta undan lögreglunni sem gerir ekkert. Rnnur okkur ekki eða eitthvaö. Enn og aftur mistekst lögregl- unni að hafa hendur í hári okkar." 18. desember •h Hæstvirtur forseti „Ég mæti aftur á þingpallana og er I góðum gír. Hlakka bara til aö finna adrenalínið streyma um æðarnar. Ég stend upþ og æþi yfir þingheim: Þið hafiö svikiö íslensku þjóðina með gagna- grunnsfrumvarpinu. Ég er yfirbugaður af þingvörðum og hand- tekinn. Aðdáendur mínir gera absúg aö lögreglunni þegar ég er færður á stöðina og lögreglan neyðist til að stoppa bíla á Sæ- brautinni sem eru fullir af hlustendum mínum. Þeir keyra gá- leysislega nálægt lögreglubílnum sem flytur mig til að sýna stuðning sinn við mig. Eftir fjögurra klukkustunda yfirheyrslu er ég látinn laus og á tröppum lögreglustöðvarinnar tek ég við árn- aðaróskum aðdáenda minna. Kringlukastið 27. nóvember Hetian 11. desember la klikkar „Við Jón Gnarr læðumst upp á þingpalla og íslenska þjóðin bíður þess að ég æþi ókvæðisorð að þingheimi. Ég guggna á þvl og Jón Gnarr reynir ab hósta hátt og klórar sér í rauðu hárkollunni til að bjarga andlitum okkar. Það gengur ekki og ég fer I felur." „Mæti svartklæddur upp I Kringlu með hettu fyrir | andlitinu. Hleyp um Kringluna til að draga aö mér at- hygli öryggisvarða. Það gengur ekki neitt svo ég fer I tíkallasíma og hringi í lögguna. Tilkynni um mann sem er að brjótast inn í bíla á bílastæðinu. Fer svo | út á bílstæði og reyni að brjótast inn í bíla. Löggan kemur ekki. Góður dagur til að fremja glæpi eða hitt j þó heldur." mm H S&tfcul©C|3 maðurinn f Ó k U S 12. febrúar 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.