Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1999, Blaðsíða 11
popp
Það verður helgarfjör með hljómsveitinni írafári
á Gaukl á Stöng. írafár leikur popp-rokk. Á
sunnudagskvöld taka svo við þeir Magnús Ei-
ríksson og K.K.
Síðdegistónleikar Hlns hússlns verða í dag
klukkan fimm. Þá ætlar tveggja manna hljðm-
sveitin Rafgashaus að spila frumsamda og lif-
andi tölvutóniist. Á þetta er hægt að hlýða
ókeypis.
Leikhúskjallarinn. fvar Guðmundsson frá Bylgj-
unni ætlar að stjórna diskóstuði úr búrinu sínu
í kvöld. Annað kvöld verður svo Slggl Hlö með
ný-endurblandað diskó. Á mánudagskvöld verð-
ur svo Listakiúbbur Leikhúskjallarans með
skemmtunina Disney.
Á Broadway verður lokað í kvöld vegna einka-
samkvæmis. En á
morgun verður hin vin-
sæla „ABBA"
skemmtun og á eftir
henni fylgja þeir í
hljómsveitinni Á móti
sól og halda dansgólf-
inu troðfullu.
Kaffi Reykjavík. Hljómsveitin Hálft í hvoru I
kvöld og annað kvöld. Rut Reginalds og Maggl
á sunnudagskvöldið. Hljómsveitin Ekkert á
mánudagskvöldiö og Eyjólfur Krlstjáns á þriöju-
dagskvöldið. Brjálaö stuö alla daga.
Spotlight club. Þema helgarinnar er „Valen-
tínusarhelgl".
Á Glaumbar verður
hið reglulega uppi-
stand með tónlistar-
dagskrá á sunnu-
dagskvöldið. Það eru
Bitlarnlr sem sjá um
þetta atriði.
Húnabúð I Skeifunni ellefu. Húnvetningafélagið
veröur meö dansleik þar sem þeir Skúli og Mar-
inó trylla lýðinn.
Á Catalínu í Kópavogi verður þaö hljómsveitin
Bara tvelr sem leikur fyrir dansi alla helgina.
Café Romance. Píanóleikarinn og söngvarinn
Glen Valentlne spilar fyrir gesti staðarins og líka
fyrir gesti Café Óperu aila helgina.
Fjörukráln í Hafnarfirði samanstendur eiginlega
af tveimur stöðum, Fjörunnl og Fjörugarðlnum.
Jón Moller píanóleikari spilar á Fjörunni fyrir
matargesti en í Fjörugarðinum leikur Víklnga-
sveltin fyrir veislugesti og á eftir er dansleikur.
Á Naustinu verður plötusnúöurinn Skugga-Bald-
ur um helgina, eins og svo oft áður.
Grand Hótel v/Sigtún. Gunnar Páll leikur og
syngur dægurlagaperlur fytir gesti hótelsins í
kvöld og annað kvöld. Allir eru velkomnir.
Péturs-pöbb. Hinn geðþekki
tónlistarmaður Rúnar Þór
leikur fyrir gesti í kvöld og
annað kvöld.
Mímisbar á Hótel Sögu, Ama
og Stefán sjá um fjörið þar i
kvöld og annað kvöld.
Kringlukráin. Þar verður hljómsveitin Taktík í
kvöld og annað kvöld en i Leikstofunni verður
hinn fjaðurmagnaði Guðmundur Rúnar Lúðvíks-
son. Á sunnudagskvöld leika svo þeir Ómar og
Halldór. Gaman aö því.
Um helgina munu norðlensku piltarnir i hljóm-
sveitinni Byltingu kíkja I höfuöborgina og spila
á Café Amsterdam, gestum og gangandi til
ömældrar skemmtunar. Þeir verða þar báða
dagana.
Næturgallnn. Anna Vllhjálms og Hllmar Sverris-
son spila í kvöld og annað kvöld. Gestasöngvari
er Elnar Vilhjálmsson. (Skyldi það vera spjót-
kastarinn?) Á sunnudagskvöld verður svo hljóm-
sveit HJördisar Gelrs með ærlegt gigg og gömlu
og nýju dansana.
Dubliner býður í kvöld og annaö kvöld upp á
hljómsveitina Na Flr Bolg. Fróðlegt.
Fyrst var það Daft
Punks, þá Air. Nú
heldur franska inn-
rásin í poppheiminn
áfram með diskó-
boltunum í Cassius.
Æs
Fyrir nokkrum árum var
franskt popp litið sömu augum
og hárgreiðsla þýskra karl-
manna: það þótti einfaldlega það
hallærislegasta af öllu hallæris-
legu. Á síðustu árum hefur
franska poppið hreinlega aldrei
verið vinsælla og svöl tónlist
Daft Punks og Air þykir toppur-
inn í poppinu. Báðar sveitimar
komu fram í byrjun árs (1997 og
1998) á dauðum tíma í poppinu
og nú virðist sama sagan ætla að
endurtaka sig því tveir
spriklandi diskóboltar frá París
eru að renna sér upp á stjömu-
himin poppsins. Þetta era þeir
Boombass (Hubert Blanc-
Francard) og Philippe Zdar í
hljómsveitinni Cassius.
Tónlist félaganna er diskó-
þrungið eðalpopp, stútfullt af
sömplum úr gömlum diskó- og
fonklögum og hlaðið góðu grúfi
og ferskleika; fonkuð hústónlist
sem æpir á að maður hendist á
dansgólfið. Karlamir eru orðnir
31 árs og era frekar feimnir við
sviðsljósið. Þeir voru að spá i að
koma fram með grímur en
mundu þá að Daft Punks voru
búnir að gera það.
Úr hipp-hoppi í hús
„Cassius 1999“ er platan þeir
hafa stefiit á í áratug. Hún er
ávöxtur tímabils sem þeir hafa
eytt í að stúdera og hlusta á
hipp-hopp takta og hústónlist.
Það sem þeir lögðu upp með var
hipp-hoppið. Eldri bræður þeirra
hlustuðu á The Police og svipaða
tónlist en hipp hoppið gerði þeim
kleift að brjótast frá áhrifum
eldra fólks. „Hipp hoppið var
okkar eigin tónlist, ekki tónlist
foreldra okkar,“ segja þeir.
Pabbi Huherts var frægur
hljóðstjómandi i París svo það
var eðlilegt að strákur fylgdi í
fótspor hans. Hann fór að vinna
sem kaffiupphellari í hljóðveri
en vann sig upp og árið 1991 var
hann orðinn reyndur pródúser
og farinn að vinna fyrstu skífu
rapparans MC Solaar.
Philippe ólst upp í Ölpunum.
Hann fékk vinnu sem aðstoðar-
maður pabba Huberts og lærði
upptökustjórn. Þeir Hubert
kynntust árið ‘88 og mynduðu
náinn kunningsskap, enda báðir
hrifnir af hipp-hoppi, tísku-
kiæðnaði og svölum amerískum
bíómyndum. í sameiningu gerðu
þeir fjórar vinsælar plötur með
MC Solaar og öðram frönskum
gleði og kynlíf. „Við vildum gera
eitthvað jákvætt," segja þeir.
„Það er edveg nóg af dapurri tón-
list og stundum þarf maður á
henni að halda, eins og þegar
kærastan fer ffá manni. En rest-
ina af tímanum horfir maður á
sjónvarpið, fer út að ganga og sér
alla vitleysuna, svo maður þarf
eitthvað til að gefa sér kraft í líf-
inu.“
Þegar þeir voru litlir horfðu
þeir aðdáunaraugum á aðal-
diskótekið í París, Le Palace.
„Við vorum tólf ára en okkur
dreymdi um að vera þama inni.
Við létum okkur dreyma um all-
ar stelpurnar, nautnalífið og
átappaða lífsgleðina. Þetta var
sexí unglingafantasía og stund-
um pælir maður í því hvort við
erum ekki bara að endurskapa
þessa fantasiu, t.d. þegar við
erum að snúðast fyrir tvö þús-
und gleðipinna í klúbbi eins og
Respect í París. Kannski er
„Cassius 1999“ bara æska okkar
framlengd í kampavíns- og
formalínskokkteil.“ -glh
röppurum. Þegar þeir fengu
leiða á hipp-hoppinu og fannst
það vera farið að endurtaka sig
fóru þeir að þróa tripp-hopp grúf
með La Funk Mob. Philippe var
líka orðinn sólginn í hús-tónlist
og fékk útrás fyrir áhugamálið
með því að vinna með Dj Etienne
de Crecy (manninum á bak við
plötuna „Super discount" frá
1997). Philippe kallaði sig Motor-
bass og platan sem þeir Etienne
gerðu saman var „PansouT og
hafði mikil áhrif. Philippe gabb-
aði Hubert (sem þá var farinn að
kalla sig Boombass) til að gera
með sér hús-lag, „Foxy lady“,
sem þeir gáfu út undir nafninu
L’Homme Qui Valait Trois Mill-
ards. Útkoman, gutlandi tekknó-
diskó, varð viðloðandi plötuspil-
ara snúða um allan heim, frá
Andy Weatherall til Harveys, og
Boombass uppgötvaði að hústón-
listin væri ekki svo slæm eftir
allt saman: Cassius var komin á
koppinn.
Gleði og kynlíf
Tónlist Cassius gengur út á
plötudómur
Það er ekki oft sem maður heyr-
ir í rappi á öðrum tungumálum en
ensku þó auðvitað séu dæmi þar
um. Helst hefur rýnir heyrt í
frönskum röppurum og nokkrum
sinnum i dönskum kollegum
þeirra. Ég varð því mjög spenntur
þegar ég fékk Fúnf Steme deluxe í
hendumar. Mörgum fmnst áreið-
anlega skrýtið að hugsa sér þýskt
rapp en þeir sem svo hugsa ættu
þá að huga aðeins betur að sínu
eigin móðurmáli sem hefur alls
ekki ólíkt hljómfall og þýskan.
En burtséð frá öllum tungumála-
erfiðleikum þá kunna Fúnf Steme
svo sannarlega að skemmta sér,
það mjög greinilegt á þessum diski
þeirra. Á þessum diski ráða gleði
og kátina ríkjum. Á honum eru
um 30 lög og þar af náttúrlega góð-
ur skammtur af „intróum“. Öll eru
Fiinf Sterne deluxe:
Sillium ★★★
l.s
lögin á þýsku nema eitt Will
Smith, Meer Gayne, en þar kemur
Biz Markie fram. Hann er einnig
með í næsta lagi á eftir. Tónlistin
er af ýmsum toga, m.a. gera þeir
grín að danstónlist með laginu
Discotizer, en eins og flestir vita
eru Þjóðverjar mestu techno-haus-
ar heimsins. Fúnf Steme deluxe
sleppa hins vegar ekkert við áhrif-
in frá technoinu því þeir nota
stundum hljóð sem tflheyra því.
Þess má geta að lokum að Fúnf
Steme deluxe gerðu allt vitlaust á
Cafe Thomsen á síðasta ári. En ég
ráðlegg mönnum eindregið að vísa
allri þröngsýni á bug, smella
disknum á fóninn og hlusta á
hvernig Þjóðverjamir gera þetta.
Guðmundur Halldór Guð-
mundsson
En burtséð frá öllum tungumálaerfiðleikum þá kunna Fiinf
Sterne svo sannarlega að skemmta sér, það er mjög greini-
legt á þessum diski þeirra.
Á Gullöldinnl mun enginn annar en Stefán P. og
hljómsveit hans skemmta gestum og halda
uppi lifi og fjöri alla helgina.
Ný hljómsveit sem ber nafnið Skröltormamlr
leikur lög tileinkuö Elvis Presley á Álafoss fótum
beztum í Mosfellsbæ I kvöld og annað kvöld.
Úti á landi:
Hljómsveitin O.fl. frá Sel-
fossi veröur með þrusu-
ball á Hótel Bárunnl,
Akranesi, í kvöld.
í kvöld veröur eins árs af-
mælisveisla hins kefl-
víska Skothúss. Eitt
heitasta band á landinu i dag, Land og synlr,
ætla að halda uppi hörkufjöri fyrir gesti fram á
rauða nótt. Á morgun verður Elghtles-kvöld i
boði heilsuræktarstöðvarinnar Lífsstils, DJ
Nonnl Hilmars þeytir skífur.
Hljómsveitin Skítamórall mun rísa endurnærð
og fersk eftir stutt fri og verður í SJallanum Ak-
ureyri um helgina. í kvöld fyrir 16 ára og eldri en
á morgun fyrir 18 ára og eldri.
Métel Venus við Borgarnes. Þar verður þorra-
dansleikur i kvöld og hin sivinsæla Slxties ætl-
ar að leika fyrir dansi og nota um leið tækifær-
ið til að kynna nýjan bassaleikara.
Hella. Slxtles mætir svo þangaö á morgun,
með nýja bassaleikarann, og spilar á þorra-
dansleik um kvöldið.
meiraá
www visir is
12. febrúar 1999 f Ókus
11