Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1999, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1999, Blaðsíða 22
fyrir börn Þaö er uppselt á Pétur Pan á stóra sviöi Borg- arlelkhússins um helgina, en síminn er 568 8000 fyrir þá sem vilja panta fram í tímann. Þaö er iíka uppselt á stóra sviöi Þjóðlelkhúss- ins þar sem Brððir mlnn IJónshjarta er sýnt á sunnudaginn kl. 14. Slmi 5511200. Ávaxtakarfan er sýnd tvisvar í íslensku óper- unnl á sunnudaginn, kl. 14 en þá er uppselt og kl. 16.30 en á þá sýn- ingu eru til laus sæti. Sími 5511475. Iðnó sýnir leikritiö Dimmalimm kl. 16 á sunnudaginn. Sýn- ingum fer fækkandi og síminn er 530 3030. í Möguleikhúslnu viö Hlemm heldur Kvennakór Reykjavíkur tvenna barnatónleika á morgun, kl. 14 og 16. Þetta er fjölbreytt menningardagskrá fyrir börn og fjölskyldufólk, barnaleiksýningar, tónleikar og annað efni sem sérstaklega er sniðiö aö þörfum barna. 30 félagar úr Kvennakórnum syngja lög fyrir börn við undírleik Þórhlldar BJörnsdóttur. Á dagskránni eru lög úr kvikmyndum og söng- leikjum sem flest börn kannast við. Á sunnu- daginn veröur leikritið um Snuðru og Tuðru sýnt kl. 14. Miöasöluslmi I Möguleikhúsinu er 562 5060. Slnfóníuhljómsvelt íslands. Rauöa rööin fimmtudaginn 18. febrúar. P. Tsjajkovskí: Rómeo og Júlía. W. A. Mozart: Fiölukonsert nr. 3. S. Prokofiev: Rómeo og Júlía. Stjórnandi og einleikari: Dmltry Sltkovetsky. Háskólabíó v/Hagatorg, sími 562 2255. Þó að margt breytist s i þjóðfélaginu með tímanum og þá sérstaklega í fjöl- miðlaheiminum hefur dagskrárþul- an í Ríkissjónvarpinu haldið velli. Á hverju kvöldi birtist skælbrosandi þul- an og segir okkur hvað sé fram und- an. Nýlega byrjaði ný stúlka að kynna dagskrána, Borg- hildur Sverrisdóttir. Hún tók góðfúslega í þá ósk að leyfa Fókusi að fylgjast með sér að störfum. Bann i Öryggismálin hjá Sjónvarpinu eru í góðum gír og eftir að hafa þrætt ranghala sjónvarpshússins er ég loksins kominn inn í það allra heilagasta, útsendingarklefann sjáif- an. Hér sitja tveir herramenn og koma dagskránni inn á hvert heim- ili á landinu. í kvöld eru Sigurður útsendingarstjóri og Bragi tækni- vaktstjóri á vaktinni. Þeir sitja við græjuborð en fyrir framan þá eru alls konar skjáir, klukkur og mælar. Á einum skjánum er „Afsakið, hlé“ tilbúið ef eitthvað skyldi fara úr- skeiðis. „Það er aldrei að vita hvenær kerfið hrynur," segir Sig- urður dularfullur. „Það getur gerst fyrirvaralaust." Nú kemur Borghildur út úr þul- arklefanum. Hún hafði verið að æfa sig, hita sig upp fyrir næstu kynn- ingu. Veðurfréttimar era að klárast og eftir auglýsingar þarf hún að lesa upp alla dagskrá kvöldsins auk þess að kynna það sem er næst. Þetta er því mikilvægasta kynning kvöldsins og Borghildur segist vera pínulítið stressuð enda er þetta bara fjórða kvöldið hennar og kynningamar ekki enn komnar upp í vana. „Við erum fullir ábyrgðar,“ segja tæknimennimir, „það em kannski hundrað þúsund manns að horfa á dagskrána núna.“ „Kem ég á eftir þessu?“ spyr Borg- hildur. Það er verið að sýna kynn- ingu á Gettu betur. „Nei, það koma auglýsingar fyrst. Það em svona tvær minútur," svar- ar útsendingarstjórinn. Svo kemur að því og Borghildur rúllar þessu upp með glans. Karl- arnir frammi tala saman og era sammála um að hún sé efnileg. Eftir kynninguna leyfir Borghildur mér að sjá inn í þuluklefann. Þetta er ægileg kompa, eins og lítil hjóla- geymsla í kjallara í blokk. Mannlaus kamera starir á settið sem er varla stærra en það sem sést í sjónvarp- inu. Lógó Ríkissjónvarpsins á bak við þuluna er t.d. ekki heilt eins og maður hafði ímyndað sér heldur bara brot. Við Borghildur sammæl- umst um að koma ekki upp um gerviumhverfi þulunnar með myndatöku því það væri svona svip- að og að sýna bömum fram á að jólasveinninn sé ekki til. Ótrúlega vinsælt starf Hvað er þulan að gera núna? spyrja íslendingar sig eflaust á hverju kvöldi eftir að hún er horfin af skjánum og dagskráratriði tekið við. Borghildur sýnir mér setustof- una þar sem hún slappar af á milli kynninga, reykherbergiö (hún er eina þulan sem reykir og vill ekki tala mikið um það) og skrifstofuna sína, þar sem hún hefur gamla tölvu til að skrifa kynningamar á. Þul- umar skrifa nefnilega sjáifar það sem þær segja. Annars segist hún bara vera að „dandalast eitthvað" á milli kynninga. Borghildur er 24 ára og úr Hafn- arfirði. Hún er á fyrsta ári í sálfræði í Háskólanum en var áður búin að prófa heimspekina í eitt ár. „Ég var mjög stressuð þegar ég fór í fyrstu kynninguna," segir hún, „en núna skelf ég ekki jafnmikið. Vinnudag- urinn er þannig að ég mæti kl. 4 og er til miðnættis. Ég er á þriggja mánaða reynslutíma og er bara tvö kvöld i mánuði en svo fæ ég vonandi meira ef ég stend mig vel.“ Varstu búin aö bíöa eftir þessu djobbi lengi? „Ég fór í fyrstu prufuna fyrir hálfu ári. Þá fóm 26 manns í prufu. Það vom viðtöl og Egill Eðvalds- son fór með okkur í smáþjálfun. Úr þeim hópi komust sex áfram og það var sagt við okkur að það yrði hringt í þann sem fengi starfið þeg- ar losnaði næst. Þetta starf er ennþá ótrúlega vinsælt.“ Já og það virðist fylgja ákveðinni línu: Máladeild, hálft ár í Frakk- landi og svo annaðhvort þula eða flugfreyja. Er þetta þinn ferill - ertu þannig týpa? hverjir voru hvar mexjraL át[ i www visir.is Á Astró á föstudeginum tóku þeir Jón Páll og Klddl Blg Foot á móti gestum í fyrsta sinn. Þar sást meðal annars í Þorsteln, forstjóra Coke, Jón Ólafsson athafnamann, Svölu fegurðardrottn- ingu, Begga og strákana í Sóldögg, Jóhann Ás- gelr Bónusdreng, Jón, forstjóra Hagkaups, BJörn Árnason Samúelsson og Domma í Gagnabank- anum. Svo mætti Andrea Róberts ásamt tuttugu gullfallegum og nýútskrífuðum Atlantaflugfreyj- um, Bruce, útvarps- stjóri Rns miöils, ásamt Hvata, Huldu, Helöari, Pétrl Áma og Þór Bærlng. I prívatinu voru fata- fellur að striplast fýr- ir einhvern sem var aö hætta hjá Sól-Vik- ing. Þar voru einnig Börkur pródúsent, Raggl Hólm, Sverrir múslími, Gummi Ben KR-ingur, Axel, dagskrár- Si stjóri Létt FM, Valdl í Valhöll og Jón Kári hjá Flugleiðum. Annars var alveg ótrúlegt stuð á Astró og allt aöalfólkið á staðnum. Þar má nefna menn eins og Kormák og Skjöld, Kristófer Helgason á Bylgjunni, Llndu í GK, Ara Alexander llsta- mann, Slgurjón Ragn- arsson Ijósmyndara, Hlyn Master Mlx, Fjölnl og Möndu, Helga Björns rokkara og fullt af öðru góöu liöi. Einnig voru nokkrir Ijósmyndarar á Astró nýkomnir af aöalfundi R.G.A.T.M. Þetta voru þeir Hllmar Þór, Ijósmyndari Fókuss, Gunn- ar Lelfur Jónasson, Erllng Ó. Aöalstelnsson og Una Björk Kerulf frá fjölmiðlavaktinni. Um síöustu helgi byrjaöi nýr sjónvarpsþáttur á Skjá 1 sem heitir Hausverk um helgar (sjá síðu 3 í Fókusi) og voru stjórnendurnir Slggl Hlö og Valll Sport á fullu spít- ti á milli bara til að taka púlsinn ásamt Dóra Ijósm. og Klúní sportrit- ara fyrir hinn mjög svo frumlega og skemmtilega dagskrárliö Hverjir voru hvar. Á Rex á föstudagskvöldið var Þór- hallur Titringsmaöur mættur ásamt h e n n I B r y n J u sinni. Þar voru einnig Slmbl klippari, Solla nuddari, Höddi og Helgl Björn bílasalar, Þor- steinn og Guörún ! kók voru þarna nýkomin af uppskeruhátíö. Árni Snævarr, fréttmaöur á Stöö 2, var líka ferskur með nýja konu upp á A laugardeginum hélt gleðin áfram á Astró og þar voru mætt þau Bryndis Bjarna, Jóna Lár, Lllja ásamt Cosmo- stelpunum sínum, Konráö Ólafs hand- boltakappi, Ellert B. Schram og frú, Steinl, sem einu sinni var söngvari I Vinum vors og blóma, og Skjöldur, aö sjálfsögöu meö hattinn sinn. Jón Kári Á Flugleiðum sat við privat borð um- kringdur konum og Stebba nokkrum Kennisted. Gunnar Andrl sölukennari var sömu- leiðis á Astró, Krumml flugmaöur líka og Jóhann- es B. Skúlason reddari, Kristjan Rex og Blrglr á Rnum miöli tók létta Ariu í lokin ásamt Fjölni á meöan Manda lá í hláturskasti. Árni „Scets- hers", Jonnl Slgmars, Sverrir Rós og Júlli Kemp rifjuöu upp gamla tima á einu borðinu, Eydís hár/dansari, Helga Slgrún (Gull 90.9) ásamt fullt, fullt, fullt, af ööru góöu liði og það komust færri að en vildu. Þaö var mikiö að gera í tónlist- arlifinu þegar leið á helgina. Á Virkni-kvöldinu á Kaffi Thom- sen var margt um manninn. Justice þeytti skifur og á staö- inn voru mætt öll teknófrík bæjarins. Þar á meðal voru ísar og Arl Undirtónabræður, Palli sproti, Þóra Dungal, Jón Atll (Rödd Guös), Skýjum ofar gengið, DJ Frimann, Hrönn í Kolkrabbanum og margir fléiri. Stefnumót 4 var síöan á Gauk á Stöng þriðju- dagskvöld. Sigurrös öskraöi á sviöinu og í saln- um voru menn á borö viö Sjón. Llndu í GK, Jón Atla, Árna Matt spekúlant og nokkra sænska túrista. Máni á X-inu var einnig á staðnum, Úlll var að sjálfsögöu á barnum og afgreiddi vatn handa teknógenginu og skenkti bjór fyrir rokkara. 22 f Ó k U S 12. febrúar 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.