Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.1999, Qupperneq 3
MÁNUDAGUR 8. MARS 1999
23
DV
Iþróttir
Jón Arnar Magnússon í fimmta sætinu á HM í Japan:
Frekar slakt
kk
nýtt íslands- og Norð
amet náði ekki að fleyta Jóni á pall
Nýtt íslands- og Norðurlandamet
náði ekki að fleyta Jóni Arnari
Magnússyni í verðlaunasæti í
sjöþraut á heimsmeistaramótinu í
frjálsum íþróttum sem lauk í
Maebashi i Japan í gær. Jón bætti
sinn besta árangur um 123 stig og
hlaut samtals 6.293 stig.
Sjöþrautarkeppnin á HM hefur
sjaldan eða aldrei verið jafn
spennandi og úrslitin réðust ekki
fyrr en í síðustu greininni sem var
1000 metra hlaup. Heimsmeistari
varð Pólverjinn Sebastian Chmara.
Hann lauk keppni með 6.386 stig eða
8 stigum meira en Eistlendingurinn
Erki Nool sem hlaut 6.374 stig.
Tékkinn Roman Seberle hlaut svo
bronsið en hann lauk keppni með
6.319 stig. Árangurinn í sjöþrautinni
var frábær sem sést best á því að
fjórir af þeim flmm efstu bættu sig.
Ætlaði að ná lengra
„Þetta var svona frekar slakt hjá
mér í heildina séð, þó svo að það
hafi verið ljósir punktar í þessu inn-
an um. Ég ætlaði mér að ná lengra
og var búinn að gæla við komast á
pall. Ég náði vissulega að gera betur
en á síðasta heims-
meistaramóti
nema í sæt-
um og mað-
ur verður
bara að bíta
í það súra epli.
Þrír af fjórum
efstu mönnum
bættu sig og ég
gerði það líka svo
það sést hvað þetta
er orðið öflugt,“
sagði Jón Amar
ússon í samtali við DV'
eftir sjöþrautarkeppnina á
HM í frjálsum íþróttum.
„Mér
gekk ekki sem
skyldi í 60 metra hlaupinu.
stangarstökkinu og í grindar-
hlaupinu og ef maður ætlar að
ná í verðlaunsæti má helst ekk
ert klikka. Ég var sáttur við
langstökkið hjá mér, kúluvarpið
var þokkalegt og 1.000 metra
hlaup var í lagi, þó svo að ég hafi
ætlaö mér að gera betur. Ég lok-
aðist aðeins inni á fyrstu 300
metrunum og var 4 sekúndum
of hægur á þeim og það skipti
kannski sköpum."
Dagsform og
heppni
- Nú náðir þú að
bæta þinn besta ár-
angur. Kom það
þér á óvart að það
skyldi ekki skila
betra sæti?
„Nei, í raun-
I inni ekki. Þess-
ir strákar eru
geysilega
sterkir og
ég vissi
það
þeg-
ar ég fór í
þessa
keppni að
þetta gæti
orðið
mjög jafnt
eins og
kom svo á
daginn.
Þetta er
spum-
Bestir
Norður-
landaþjóða
Island náði bestum ár-
angri allra Norðurlanda-
þjóða á heimsmeistara-
mótinu í Japan. Vala
Flosadóttir fékk silfur í
stangarstökki, Jón Amar
Magnússon varð í 5. sæti
í sjöþraut og Þórey Edda
Elísdóttir í 9. sæti í stang-
arstökki.
Wilson Kipketer frá
Danmörku var eini Norð-
urlandabúinn fyrir utan
Völu sem komst á verð-
launapall en Danir áttu
ekki aðra keppendur of-
arlega. Besti Svíinn náði
fimmta sæti og Norð-
menn og Finnar vom enn
neðar. -VS
Erki Nool:
Vinsælli en
forsetinn
Aðdáendaklúbbur Erki Nool var
mættur á áhorfendapallana í Maebas-
hi, eins og jafnan þegar Eistlendingur-
inn er á ferð á stórmótum. Þar voru á
ferð 16 Eistlendingar sem hvöttu sinn
mann með hrópum og trommuslætti.
Forseti klúbbsins, Juri Tiitus, sagði að
Nool væri næstvinsælasti maður í Eistlandi,
á eftir forseta landsins.
Nýkrýndur heimsmeistari i sjöþraut, Sebast-
ian Chmara, mótmælti þessu:
„í Eistlandi er Nool vinælastur, svo kemur
forsetinn," sagði Pólverjinn.
-VS
Jón Arnar er hér að vippa sér yfir 5,00
metra f stangarstökkinu í sjöþrautinni á
HM í Japan.
ing um dagsform og líka heppni. Ég
lit á þetta mót sem góða reynslu og
maður veit hvað lítið þarf í viðbót
til að ná betri árangri," sagði Jón
Arnar.
Möguleiki á að Chmara
keppi á Akureyri
Jón keppir næst á alþjóðlegu móti
sem fram fer á Akureyri á sunnu-
daginn. Þar etur hann kappi við
Eistlendinginn Erki Nool og þá er
góður möguleiki á að heimsmeistar-
inn Sebastian Chmara keppi á mót-
inu. „Hann langar mikið að koma
og vonandi gengur það eftir,“ sagði
Jón.
Mótið á Akureyri verður loka-
punkturinn hjá Jóni á innitímabil-
inu og við tekur undirbúningur fyr-
ir átökin í sumar. í lok maí keppir
hann á hinu árlega móti í Götsiz í
Austurríki og stóra mótið verður
svo i ágúst en þá fer heimsmeistara-
mótið fram í Sevilla á Spáni.
„Auðvitað stefnir maður hátt fyr-
ir heimsmeistaramótið. Ég legg ekk-
ert árar í bát þó að ekki hafl gengið
sem skyldi á þessu móti,“ sagði Jón
Arnar að lokum. -GH
Kínverjinn
sigraði alla
-vs
Sebastian Chmara:
„Rosaleg
barátta“
„Þetta var rosaleg barátta, hraðinn í 1.000
metrunum var svo mikill," sagði Pólverjinn
stóri, Sebastian Chmara, eftir að hafa tryggt sér
heimsmeistaratitilinn í sjöþrautinni i Maebashi
í gærmorgun.
Chmara og Erki Nool háðu mikið einvígi í
1.000 metrunum og um leið um heimsmeistara-
titilinn og þeir voru báðir örmagna að hlaupinu
loknu. Pólverjinn hágrét af geðshræringu þegar
hann steig upp á verðlaunapallinn skömmu síð-
ar og horfði á pólska fánann dreginn að húni.
Chmara er 27 ára og varð Evrópumeistari
innanhúss í fyrra. Hann er mun sterkari í sjö-
þraut en tugþraut og átti besta heimsárang-
urinn á síðasta ári, 6.415 stig.
Chmara fékk 3,5 milljónir króna i sigurlaun
fyrir titilinn en það var verðlaunafé Alþjóða
frjálsíþróttasambandsins á HM.
-VS
Heildarúrslitin í siöbrautinni á HM í Maebashi
Cao Ji, kínverskur badminton- 60 m langst. kúla hást. 60 m. gr. stöng 1000 m Heildarstig
maður, sigraði alla keppinauta sína 1. Sebastian Chmara, Póllandi 7,14 7,62 15,89 2,11 8,05 5,20 2:37,86 6.386
á meistaramóti Reykjavíkur í TBR- 2. Erki Nool, Eistlandi 6,83 7,80 14,87 1,93 8,16 5,50 2:38,62 6.374
húsunum um helgina. Hann vann 3. Roman Sebrle, Tékklandi 6,94 7,76 15,27 2,11 7,94 4,80 2:41,50 6.319
Brodda Kristjánsson í úrslitum í 4. Tomas Dvorak, Tékklandi 6,96 7,61 16,70 1,99 7,84 4,90 2:41,48 6.309
einliðaleik karla, 15-10 og 15-7. 5. Jón Arnar Magnússon 6,99 7,69 16,08 2,02 8,09 5,00 2:39,55 6.293
Elsa Nielsen sigraði Brynju Pét- 6. Lev Lobodin, Rússlandi 6,87 7,16 15,85 1,96 7,81 5,10 2:47,48 6.153
ursdóttur, 11-6 og 11-1, í úrslitum í 7. Dezso Szabo, Ungverjalandi 7,05 7,29 13,89 2,02 8,18 5,20 2:44,14 6.029
einliðaleik kvenna. 8. Chris Huffms, Bandaríkj. 6,67 7,43 15,53 1,96 7,91 hætti
Alþjóðlegt fimleikamót í London:
Yfirburðir Rúnars
Rúnar Alexandersson stóð sig frá-
bærlega í London í gær.
Rúnar Alexanderson, fimleika-
kappi úr Gerplu, sigraði með yfir-
burðum í fjölþraut á alþjóðlegu
móti í London á Englandi í gær.
Rúnar hlaut samtals 54,25 stig og
var tæplega fjórum stigum á undan
næsta manni.
Rúnar jafnaði sinn besta árangur
í í æfingum á tvíslá en hann hlaut
9,35 fyrir æfmgar sínar. Fyrir gólf-
æfingarnar fékk Rúnar 8,6, á boga-
hesti 9,7, í hringjum 9,2, fyrir stökk-
ið fékk hann 8,4 og fyrir æfmgarnar
á svifrá hlaut Rúnar 9,0.
Hæstur á öllum áhöldunum
nema einu
Rúnar fékk hæstu einkunnirnar
á öllum áhöldunum nema í stökki.
Annar á mótinu var Bretinn Scott
Mircers með 50,40 stig og í þriðja
sæti varð Bretinn John Smarthurs
með 50,05 stig.
Rúnar sagði eftir mótið að það
hefði komið honum nokkuð á óvart
hversu mikill munur var á efstu
mönnum en það hefði verið i lagi
hans vegna.
Rúnar hefúr staöið sig geysilega
vel á mótum undanfarið og virðist
vera í toppformi þessa dagana.
-AIÞ/GH
Heildarúrslit
I Maebashi
Karlar
200 m hlaup
Frank Fredericks, Namibiu . . 20,10
Stangarstökk
Jean Galfione, Frakklandi . . . . 6,00
4x400 metra boðhlaup
Bandaríkin . 3:02,83
Langstökk
Ivan Pedroso, Kúbu . . . 8,62
60 metra hlaup
Maurice Green, Bandaríkjunum 6,42
800 metra hlaup
Joahn Botha, S-Afríku .... . 1:45,47
Hástökk
Javier Sotomayor, Kúbu . . . . . 2,36
1500 metra hlaup
Haile Gebrselassie, Eþíópiu . 3:33,77
400 metra hlaup
Jamie Baulch, Bretlandi . . . . 45,73
60 m grindahlaup
Colin Jackson, Bretlandi . . . . . 7,38
3.000 m hlaup
Haile Gebrselassie, Eþíópíu . 7:53,57
Kúluvarp
Alexander Bagasch, Úkrainu . . 21,41
Þrístökk
Fridek Charles Michael, Þýsk. . 17,18
Konur
Kúluvarp
Vita Pavlysh, Úkraínu .... . . 21,43
200 m hlaup
Ionela Tirlea, Rúmeníu . . . . . 22,39
Langstökk
Tatjana Kotova, Rússlandi . . . . 6,86
1.500 m hlaup
Gabriela Szabo, Rúmeniu . . . 4,03,23
4x400 metra boðhlaup
Rússland . 3:24,25
60 metra hlaup
Ekaterini Thanou, Grikklandi. . 6,96
800 metra hlaup
Ludmila Formanova, Tékkl . . 1:56,90
Þrístökk
Ashia Hansen, Bretlandi .. . . 15,02
3000 metra hlaup
Gabriela Szabo, Rúmeníu . . . 8:36,42
400 metra hlaup
Grit Breuer, Þýskalandi .. . . 50,80
60 m grindahlaup
Olga Shishigina, Kazakhstan . . . 7,86
Hástökk:
Khristina Kalcheva, Búlgaríu . . 1,99
Stangarstökk
Natasja Ryshich, Þýskalandi . . . 4,50
Verðlaunataflan
Gullsilfurbrons
Bandaríkin 3 7 9
Rúmenía 3 1 0
Þýskaland 3 0 4
Bretland 3 0 2
Rússland 2 4 2
Eþíópía 2 0 1
Úkraína 2 0 1
Kúba 2 0 0
Búlgaría 1 2 1
Tékkland 1 1 2
Pólland 1 1 2
Frakkland 1 0 0
Grikkland 1 0 0
Kazakhstan 1 0 0
Namibía 1 0 0
Suður-Afríka 1 0 0
Kenia 1 0 0
Nígería 0 2 0
Spánn 0 1 1
ÍSLAND 0 1 0
Ástralía 0 1 0
Barbados 0 1 0
Danmörk 0 1 0
Eistland 0 1 0
Marokkó 0 1 0
Mósambík 0 1 0
Bahamaeyjar 0 0 1
Kanada 0 0 1
Ungverjaland 0 0 1
Mexíkó 0 0 1
(2 brons voru veitt i stangarstökki
kvenna.)
ÞÍN FRÍSTUND
-OKKAR FAG
INTER
SPORT
Bíldshöföa 20 • 112 Reykjavík • 510 8020
• www.intersport.is