Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1999, Page 10
Þegar diskóið fór að hjaðna tók
að bera á hljómsveitum með fram-
tíðarlegar pælingar sem spunnu
diskópoppið á tölvur og gerfla. Hin
þýska Kraftwerk er auðvitað
þekktust þessara sveita, en einnig
má geta The Plastics frá Japan,
Flying Lizards frá Englandi og
Belganna í Telex sem hér verða
gerðir að umtalsefni enda hefur
sveitin verðið að fá verðskuldaða
uppriíjun á síðustu misserum.
Einnota popp
Þegar snúðurinn/djassarinn
Marc Moulin, prógrammar-
inn/hljóðsmiðurinn Dan Lacksm-
an og söngvarinn Michael Moers
stofnuðu Telex árið 1978 var tak-
markið að spila rafrænt
diskópopp og leggja áherslu á
innihaldsleysi og léttleika. Ný-
bylgjurokk með alvarleika, gítur-
um og pólitísku innihaldi var í
blóma og því miskildu margir létt-
meti Telex og diskótilburði. Það
kom þó ekki í veg fyrir að sveitin
átti þrjá smelli, gleðilagið „Twist
á Saint-Tropez“ þeirra stærstur.
Telex voru grínarar og því ekkert
sem stöðvaði þá í að taka þátt í
Eurovision 1980. Þeir tóku lagið
„Eurovision" og gerðu grín að
öllu saman en áhorfendur klóruðu
sér forviða í hausnum og bandið
lenti í 17. sæti. Tónlist bandsins
var höktandi hljóðgerflapopp, eins
og tilvalin fyrir dansglöð vél-
menni, og Telex kveikti undir vél-
mennaímyndinni með myndatök-
um þar sem bandið var andlits-
laust og vélrænt í hreyfíngum.
Hljómsveitin starfaði til ársins
1986, gaf út 5 plötur og átti marga
klúbbasmelli, sérstaklega í Banda-
ríkjunum þar sem hún var síðar
enduruppgötvuð. Telex töldu
besta hólið vera það „þegar áhorf-
endur segja að tónlist okkar sé
einnota - það er það sem öll tón-
list á að vera“.
Óþörf lýtalækning
En Telex misreiknaði áhrif sín.
Poppið þeirra lifir og strípaðir
taktarnir og vélrænt grúfið sem
þótti framúrstefnulegt fyrir 20
Underworld - Beaucoup Fish: ★★★
jj .
enduv
Breska tríóið Underworld er í
eðli sínu poppband en dulbýr sig
vel meö tæknilegri framúrstefnu,
eða það fannst manni allavega þeg-
ar fyrsta platan þess, meistaraverk-
ið „Dubnobasswithmyheadman",
tók að hljóma. Bandið kom hingað
og spilaði á eftir Björk í Höllinni
1994 og fólk talar enn um þann at-
burð með glampa í augum og svita
á enni; margir frelsuðust til
tekknótrúar á þeim tónleikum.
Bandið græddi ftillt af peningum
með smellinum „Bom Slippy" sem
kom út 1996. Þar var hrópað á bjór
og lagið varð eins konar fylliríis-
sálmur þess sumars. Nú, eftir
þriggja ára þögn, kemur ný plata í
ljótasta umslagi sem sést hefur
lengi. Þetta er rúmlega 74 mínútna
hlunkur og er transvekjandi bítið
keyrt linnulitið áfram. Sem betur
fer eru þeir þremenningar ekkert
að sleikja sig upp við biggbít eða
einhverja drum- and bassstæla
heldur endurtaka bara sjálfa sig á
sannfærandi hátt með því að end-
urtaka tekknóriffin í sífellu og
árum er allt i kringum okkur í
dag. Ásamt Kraftwerk er Telex
amma nútíma danstónlistar. Sér-
staklega hafði Telex áhrif á þróun
hús- og teknótónlistarinnar þar
sem hún grasseraði í Chicago á
seinni hluta síðasta áratugar. Það
var því vel við hæfi að einn aðal-
húsboltinn, Carl Craig, skyldi
stinga upp á þvi að hrundið yrði
af stað Telex-átaki. Fyrirtæki
Carls, Planet E, í samvinnu við ís-
landsvininn Dj Morpheus hjá
SSR í Brussel, hefur endurútgefið
helstu verk Telex á ferilsplötu og
að auki sett saman rímixplötu þar
sem nokkrar af hetjum nútímans
krukka í gömlu Telexstöfii með
nýjustu tólum. Útkoman er ágætis
lýtalækning en eiginlega óþörf því
nútímapopp fortíðar með belgíska
tölvutríóinu er enn þá jafnferskt
og framandi og þegar það kom
fyrst út. -glh
syngja yfir. Það heyrist
langar leiðir að þetta er Und-
erworld, sánd þess festist hér enn
betur í sessi. Þó eru undantekning-
ar: „Skym“ hljómar eins og slöpp
B-hlið frá Depeche Mode og í
„Bruce Lee“ er nýr hljómur; fonk-
að feitara en áður á þessum bæn-
um. Vilji fólk falla í sveittan trans
er fátt betra í augnablikinu en upp-
finningasemin og nýjabrumið er
ekki lengur til staðar. Það er þó
langt í þreytuna. -glh
3
listinni og hrifnir af hringdönsum og
þjóðlagagrini draga þeir mörkin mun
fýrr en t.d. íslendingar þegar kemur að
því að skilgreina hvað sé rokk. Það
liggur við að mörkin séu dregin við
það hvort notuð séu rafmagnshljóðfæri
eða ekki. Þess vegna kemur fyrir að
það sem þeim finnst argasta rokk
finnst okkur algjör poppfroða. Rokk
eða eitthvað sem getur tadist framsæk-
ið fæst ekki spilað í útvarpinu eða sýnt
í sjónvarpinu (þeir eru með eina stöð
af hvoru) og fæstir eru nokkuð að láta
það fara í taugarnar á sér, enda flytur
ungt fólk í hrönnum af skerjunum og
sest að í öðrum löndum með betra
rokkaðgengi.
Það verður því að teljast átak að
Tutl skuli hafa tekist að safna saman
tólf hljómsveitum, þó þær séu mis-
frambærilegar og flestar áttavilltar í
tónlistinni. Þessum rokkurum finnst
gaman að taka gítarsóló í tíma og
ótima og eru ekki feimnir við að hafa
tíu-tuttugu kafla í hveiju lagi. Þeir
leggja lítið upp úr eftirminnilegum
melódíum eða góðu grúfi en hamast
þess meir í djamminu og fá eflaust
góða útrás. Flestar sveitirnar flytja
hvínandi hauskúpurokk og stendur
hljómsveitin Hatespeech upp úr - hún
virðist vita upp á hár (örugglega sítt)
hvert hún er að fara. Innan um eru
aðrir hlutir. Encounter Galaxy minn-
ir örlítið á Cardigans og læðir vel
þegnu estrógeni i rokkið og tölvupopp-
sveit eyjanna (eða „teldubólkur" eins
og Færeyingar segja) heitir Maður:
glottir, og hún lafir ágætlega í róman-
tískri ballöðu. Önnur bönd minna svo
á hljómsveitina Upplyftingu ef hún
hefði keypt sér fózz-fótstig.
Þijú lög af plötunni verða síðan á
safnplötunni „Rock from the Cold
Seas“ sem er væntanleg. Þar kemur
rokkið einnig frá Lapplandi, Græn-
landi og íslandi og fulltrúar okkar
verða Alsæla, Mínus og Bisund.
Húrra fyrir norrænni samvinnu! -glh
Náfrændur vorir í Færeyjum búa á
18 eyjum og eru um 45 þúsund samtals.
Þar er tónlistarlífið fjörugt en hingað
til hefur aðaláherslan verið lögð á
þjóðlagamúsík, dansiballapopp og
skandinavískan lopasokkadjass. Aðal-
útgáfufyrirtækið heitir Tutl og hefur
sinnt þessum stefhum vel en einnig
gefið út þrjár safnplötur, „Rokkur í
Föroyum", þar sem færeyskt rokk
hljómar. Á fyrstu plötunum tveim var
sungið á ensku en á þeirri þriðju,
„Grótfóroyskt", sem er nýkomin út,
eru öll lögin sungin á færeysku. Platan
getur því talist fyrsta alfæreyska rokk-
platan.
Þar sem Færeyingar eru linir i tón-
NR. 314
vikuna 12.3-19.3. 1999 Skunk Anansie hoppar beint
i sjounda sæti listans meðstóru
kartöfluna hans Kaila.
Sæti Vikur LAG FLYTJANDI 5/3 12/2
1 8 LOTUS...................................R.E.M. 1 2
2 5 LADYSHAVE...............................GUS GUS 3 11
3 14 FLYAWAY..........................LENNY KRAVITZ 6 9
4 9 PRAISE YOU.........................FATBOY SLIM 2 1
5 2 YOU STOLE THE SUN FROM ME .MANIC STREET PREACHERS 7 -
6 8 ERASE/REWIND .....................THE CARDIGANS 4 7
7 1 CHARLIE BIG POTATO...............SKUNK ANANSIE CTIM
8 3 NOTHING REALLY MATTERS.................MADONNA 5 14
9 5 I WISH I COULD FLY.....................ROXETTE 9 13
10 21 SWEETEST THING ..............................U2 8 8
11 6 EXFACTOR ..........................LAURYN HILL 10 3
12 4 STRONG ENOUGH .............................CHER 12 21
13 4 BOY YOU KNOCK ME OUT....TATYANA ALI & WILL SMITH 16 24
14 9 NO REGRETS.....................ROBBIE WILLIAMS 11 4
15 8 LULLABYE .........................SHAWN MULLINS 13 16
16 7 END OF THE LINE.........................HONEYZ 18 22
17 4 ENJOY YOURSELF .............................A+ 14 18
18 7 ÁSTIN MÍN EINA .........VÉDÍS HERVÖR ÁRNADÓTTIR 15 5
19 3 THE BOY WITH THE ARAB STRAP ...BELLE & SEBASTIAN 23 26
20 3 WRITTENIN THE STARS.....ELT0N JOHN & LEANN RIMES 20 35
21 2 OUT OF MY HEAD........................FASTBALL 22 -
22 3 TENDER....................................BLUR 29 40
23 1 BIRTIR TK........................LAND OG SYNIR
24 7 HAVEYOUEVER ............................BRANDY 17 6
25 6 CASSnJS ‘99............................CASSnJS 25 17
26 3 YOU DON’T KNOW ME .. .ARMAN VAN HELDEN & DUANE H.. 26 31
27 2 MEÐ FULLRI REISN ... .FJÖLBRAUTASKÓLINN f BREIÐHOLTI 31 -
28 5 HEARTBREAK HOTEL...............WHITNEY HOUSTON 19 15
29 3 WHEN A WOMAN’S FED UP..................R.KELLY 30 29
30 1 WESTSEDE....................................TQ 1,'fcllJ
31 7 ONE .....................................CREED 21 10
32 1 ELDUR...................................VERSLÓ fcllXJ
33 2 RUSH...................................KLESHAY 35 -
34 4 WALK LIKE A PANTHER................ALL SEEING I 36 33
35 2 MARÍA..................................BLONDIE 38 -
36 4 COME INTO MY LIFE......................F.MTIJA 27 27
37 6 HOWWILLIKNOW............................JESSICA 32 36
38 1 THE ANIMAL SONG.........................SAVAGE GARDEN
39 2 GEORGY PORKY...........ERIC BENET & FAITH EVANS 40
40 1 NO SCRUBS..................................TLC
Þótt enginn viti út á
Ladyshave Gusgus gengur
þá filar fólk það í botn.
Lenny Kravitz ætlar að vera
þaulsetinn á listanum Fly
Away. Eftir fjórtán vikur
stefnir hann á toppinn.
Þessa plötu fær maður sér
aðallega upp á frík-gildið.
Það er nauðsynlegt að styrkja
nágrannana og þegar tónlistin
verður óþolandi hallærisleg
má hafa gaman af því að hía
á frændurna fyrir skrýtna
málið sem þeir syngja á.
Taktu þátt í vali
listans í síma 550 0044
989
íslenski listinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar og DV.
Hringt er 1 300 til 400 manns á aldrinum 14 til 35 ára, aí
öllu landinu. Einnig getur fólk hringt í síma 550 0044 og
tekiö þátt í vali listans. íslenski listinn er frumfluttur á
flmmtudagskvöldum á Bylgjunni kl. 20.00 og birtur á
hverjum fóstudegi í DV. Listinn er jafnframt endurfluttur
á Bylgjunni á hverjum laugardegi kl. 16.00. Listinn er
birtur, að hluta, í textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar.
lslenski listinn tekur þátt í vali „World Chart“ sem
framleiddur er af Radio Express í Los Angeles. Einnig
hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er í
tónlistarblaöinu Music & Media sem er rekiö af bandaríska
tónlistarblaöinu Billboard.
Yfirumsjón með skoöanakönnun: HaUdóra Hauksdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaösdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó
Handrit, heimildaröflun og yfirumsjón með framleiðslu: Ivar Guðmundsson - Tæknistjóm og framleiösla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn
Steinsson Útsendingastjóm: Ásgeir Kolbeinsson, Jóhann Jóhannsson og Ragnar Páll Ólafsson - Kynnir í útvarpi: Ivar Guðmundsson
10
f Ó k U S 12. mars 1999