Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1999, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1999, Blaðsíða 15
< Divorcing Jack er spennumynd með svörtum húmor sem tekin er á Norður-írlandi og gerist þar í nánustu framtíð. Drykkfelldur blaðamaður vondum Stjörnubíó frumsýnir í dag bresku kvikmyndina Divorcing Jack sem tekin er á Norður ír- landi og gerist þar í nánustu framtíð, nokkrum dögum áður en kosinn er fyrsti forsætisráðherra Norður-írlands. Þykir myndin spennandi um leið og svartur húmor skín í gegn. Aðalpersóna myndarinnar er blaðamaðurinn Dan Starkey sem er höfundur vikulegra dálka í stóru dagblaði. Honum þykir sop- inn góður og meðal annars þess vegna er hjónaband hans á síð- asta snúningi. Nokkrir dagar eru þar til kosningar fara fram og hef- ur Starkey í dálkum sinum gert lítið úr þessum kosningum og þeim sem í kjöri eru. Kvöld eitt á leið heim eftir drykkju hittir hann unga stúlku sem kannast við hann og enda þau saman í samkvæmi heima hjá Starkey. Stúlkan gerir sér dælt við Starkey og það fer ekki fram hjá eiginkon- unni sem segir honum að hypja sig út með þessa stúlku. Eftir að hafa reynt árangurslaust að telja konu sinni trú mn að ekkert sé á milli þeirra hverfur hann á brott með stúlkunni sem fer með hann blindfúUan til síns heima. Þegar Starkey raknar úr vímunni tekur hann til við að reyna að koma reglu á líf sitt. Hann er þó samur við sig og þegar hann hittir bandarískan blaðamann sem hef- ur jafnmikinn áhuga á viskíi og hann er hann fljótur að gleyma loforðum sínum og endar aftur í ibúð stúlkunnar. Eftir að hafa skroppið frá smástund kemur hann að stúlkunni liggjandi í blóði sinu og hefur hún hefiur ver- ið myrt. í ljós kemur að hún er dóttir háttsetts manns og vekur dauði hennar þjóðarathygli. í aðalhlutverkum eru David Thewlis, Rachel Grifiths, Jason Isaacs, Richard Gant og Robert Lindsay. Leikstjóri er David Caf- frey, sem er írskur og er að gera sína fyrstu kvikmynd. Divorcing Jack er gerð eftir skáldsögu Colin Bateman sem seldist mjög vel og fékk góða dóma. Skrifar höfundurinn sjálfur hand- ritið. -HK. Dauði Stanleys Kubricks, eins mesta kvikmyndagerðarmanns sem uppi hefur verið, kom öllum í opna skjöldu, enda var ekki vitað um nein alvarleg veikindi. Nokkrum dögum áður en hann lést var prufu- sýnd í Hollywood fyrir nokkra út- valda nýjasta kvikmynd hans Eyes Wide Shutsem hefur verið í fram- leiðslu í tvö ár. Meðal þeirra sem voru viðstödd sýninguna voru hjón- in Tom Cruise og Nicole Kidman sem leika aðalhlutverkin. Tom Cru- ise mun hafa látið hafa eftir sér að hann ætlaði að fylgja myndinni vel eftir í sumar og veita viðtöl og vera viðstaddur sýningar. Ekki gaf hann þó neitt upp um það hvernig hon- um hefði fundist myndin né nokkur annar sem var á sýningunni. Segir sagan að Kubrick hafi sent trúnað- arvin sinn til Hollywood með ein- takið af myndinni og sá hafl beðið þar til sýningu lauk og farið með það strax aftur til London. fc * 12. mars 1999 f Ókus 15

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.