Dagblaðið Vísir - DV - 12.03.1999, Page 14
FramtíöartrylJir
Spielbergs
og Cruise
Þegar stórstjömur á borð við Steven
Spielberg og Tom Cruise ætla aö vinna
saman er um langtimaáætlun að ræða
því slikir menn eiga yfirleitt erfitt
með að stilla saman strengi sína. Eftir
miklar vangaveltur er nú komið á
hreint að þeir munu gera saman vis-
indatryllirinn Minority Report og það
sem meira er, búið er að ákveða frum-
sýningardaginn 30. júní árið 2000. f
Minority Report mun Tom Cruise
leika yfirmann lögregludeildar sem
hefur það aðalverkefni að handtaka
fólk og ákæra það fyrir morð sem það
hefur ekki framið. Ef allar áætlanir
standast munu tökur hefjast í septem-
ber, um leið og Tom Cruise hefur lok-
ið sér af í Mission: Impossible 2.
,, Redf
i hlutv
Robert Redford,
sem síðast leik-
stýrði og lék í
The Horse
Whisperer, er bú-
inn að tryggja sér
kvikmyndaréttinn
á bók sem heitir
þvi langa nafni:
Napoleon of
Crime: The Life
and Times of Adam Worth, Master
Thief og mun hann leika aðalhlutverk-
ið og leikstýra. Adam Worth var
bandarískur þjófur sem fór til Eng-
lands í lok síðustu aldar og þóttist
vera breskur aðalsmaður. í raun var
hann bíræfinn í ránum og stal nánast
eingöngu verðmætum listaverkum og
öðrum gersemum. Þóttu vinnubrögð
hans einkar fagleg og mikill stíll yfir
þeim. Þegar upp um hann komst vildu
honum fáir neitt illt. Þekktur lög-
reglumaður, William Pinkerton, lét
svo ummælt við dauöa Worths að þar
hafi farið heldrimannaþjófur.
Brad Pitt
Tiættir vi í
Cameron Crowe, leikstjórinn sem
leikstýrði Tom Cruise í Jerry
Maguire, hefur skrifað handrit um
reynslu sína í rokkbransanum á átt-
unda áratugnum. Fjallar myndin um
viðskipti rokksöngvara og ungs
blaðamanns sem skrifar vafasama
sögu um söngvarana. Brad Pitt hafði
samþykkt að leika rokksöngvarann
en hætti
við á síð-
ustu
stundu,
Crowe til
mikilla
vonbrigða,
og er hann
nú að fara
á fjörur við aðrar ungar kvikmynda-
stjörnur. Pitt, sem mun næst sjást í
nýjustu kvikmynd David Finchers
The Fight Club (þeir gerðu saman
Seven), þar sem mótleikari hans er
Edward Norton, er þegar búinn að
ráðstafa tíma sínum í aðra rok-
kkvikmynd, Metal Gods, og þá
ganga þær sögur fjöllum hærra að
Mel Gibson reyni mikið að fá hann
til að leika aðalhlutverkið í endur-
gerð sinni á Fahrenheit 451 sem
hann ætlar sér að leikstýra.
Patch Adams hefur verið ein-
hver vinsælasta kvikmyndin i
Bandaríkjunum undanfarnar vikur
og er það mikið að þakka vinsæld-
um og góðum leik Robin Williams
sem enn eina ferðina leikur lækni.
Hann á nokkur slík hlutverk að
baki, meðal annars í What Dreams
May Come sem sýnd var fyrir
stuttu. í Patch Adams, sem Bíóhöll-
in og Laugarásbíó frumsýna, leikur
Williams lækninn Hunter „Patch“
Adams sem strax í námi fékk ákúr-
ur fyrir að vera of glaðsinna, átti
erfitt með að taka hlutina alvar-
lega. Staðreyndin var að Patch
hafði átt erfltt með að gera það upp
við sig hvort hann ætlaði sér að
verða trúður eða læknir. Hann vel-
ur læknisstarfið og þegar námi lýk-
ur stofnar hann eigin læknamið-
stöð þar sem hann beitir nýstárleg-
um aðferðum. Myndin er sann-
söguleg og í mörg ár varði Adams
Hunter „Patch“ Adams var í
fyrstu ekki ákveðinn hvort hann
ætlaði að verða trúður eða
læknir, læknirinn varð ofan á
en trúðurinn var samt ekki
ónýttur, heldur notfærði
hann sér kunnáttu sína og
meðfædda hæfileika til að
skemmta öðrum til að hjálpa
sjúklingum sínum.
Leikstjórinn Tom Shadyac ásamt Robin Williams við tökur á Patch Adams.
Monica Potter leikur iæknastúdentinn Carin sem í fyrstu trúir lítið á lækninga-
aðferðir Adams.
stofnun sína fyrir flölmiðlum en
skrifaði svo bók um starfsemi sina
sem varð metsölubók og kvik-
myndin er gerð eftir.
í bók sinni segir Adams frá því
hvernig hann reynir alltaf að fá
börn sem hann hefur til meðferðar
til að brosa og hann hikar ekki við
að klæða sig sem trúð eða fara í
górillubúningi til að framkalla
bros. Myndin þykir hlý um leið og
hún er gamansöm og eins og allir
vita er enginn betri í trúðsleiknum
en Robin Williams. Auk Robins
Williams leika í Patch Adams þau
Monica Potter, Peter Coyote, Dani-
el London, Bob Gunton og Philip
Seymour Hoffmann.
Leikstjóri er Tom Shadyac, fyrr-
um „standup“grínisti sem hér ger-
ir sína flórðu kvikmynd og hafa all-
ar orðið mjög vinsælar. Áður hafði
hann leikstýrt Ace Ventura: Pet
Detective, The Nutty Professor og
Liar, Liar. Þegar Tom Shadyac var
um tvítugt flutti hann til Los Ang-
eles og settist á skólabekk í kvik-
myndadeild UCLA-háskólans. Með
náminu vann hann sem grínisti á
ýmsum klúbbum í Los Angeles og
vakti athygli ekki minni manns en
Bobs Hope sem réð hann til að
skrifa brandara fyrir sig. Er hann
yngsti bandarahöfundurinn sem
nokkum tíma hefur starfað fyrir
Bob Hope. í námslok gerði hann
stuttmyndina Tom, Dick and
Harry, sem fór sigurför á kvik-
myndahátiðum um allan heim.
-HK
Fæöingardagur og ár: 21. júli 1952.
Fæðingarstaður: Chicago, lllinois.
Stjörnumerki: Söl i krabba. Tungl i
Ijóni.
Eiginkonur: Marsha Garces, iyrrver-
andi, Valerie Velardi, núverandi.
Systkini: Einbirni, er sonur milljóna-
mærings i bílaiðnaðinum.
Börn: Zachary og Zelda með Garces.
Cody meö Valerie.
Kvlkmyndir: Popeye 1980, The World
According to Garp 1982, The Survivors
1983, Moscow on the Hudson 1984,
Seize the Day 1986, Club Paradise
1986, The Best of Times 1986, Good
Morning Vietnam 1987, The
Adventures of Baron Munchhausen
1988, Dead Poets Society 1989,
Cadillac Man 1990, Awakenings
1990, Hook 1991, Dead Again 1991,
The Fisher King 1991, Toys 1992,
Mrs. Doubtfire 1993, Being Human
1994, Nine Months 1995, Jumanji
1995, Hamlet 1996, The Secret Agent
1996, Jack 1996, The Birdcage 1996,
Good Will Hunting 1997, Flubber
1997, Fathers Day 1997, What
Dreams May Come 1998, Patch Ad-
ams 1998.
Robin Williams er hamingju-
samur flölskyldufaðir í dag. Hann
á samt sina fortíð að baki sem
ekki er beint í anda ímyndar hans.
Árið 1982 var hann mikill vinur
Johns Belushi og var með honum
í eiturlyflaneyslu skömmu áður en
Belushi fannst látinn vegna of-
notkunar eiturlyfla. 1986 var hann
krafinn um 6,2 milljónir dollara í
skaðabætur. Það gerði ung stúlka
sem taldi að hann hafi smitað sig
af kynsjúkdómi. Williams ákærði
á móti stúlkuna fyrir að ljúga og
reyna að hafa peninga af honum.
Málið kom aldrei fyrir dómstóla,
sættir urðu og enginn veit niður-
stöðuna. Þá má að lokum geta þess
að þegar Robin Williams skildi við
fyrri konu sína giftist hann
skömmu síðar barnfóstru sonar
síns.
14
f Ó k U S 12. mars 1999